Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968 11 Guðlaugur Císlason: Fufl hagnýting fiskimiöanna er þjdöarnauösyn Akvörðun Dómsmálaráðuneyt- isins um að framfylgja án und- antekninga lögunum um bann gegn botnvörpuveiði eftir að upp gjöf saka hafði átt sér stað hinn 1. des. sl. hefur vakið all mikið umtal um þessi mál og umræður um hagnýtingu veiðisvæðanna innan fiskveiðimarkanna. Með útfærslu fiskveiðimark- anna 1958 skapaðist nýtt við- horf í þessum efhum og vanda- mál fyrir þá báta og skip, sem dragnót og togveiðar stunduðu, alveg sérstaklega fyrir hina smærri báta, sem ekki hafa að- stöðu til að stunda þessar veið- ar á djúpmiðum eða fjarlægari miðum. Vandkvæði dragnótabátanna var leyst með lögurn nr. 40 frá 9. júní 1960, um takmarkað leyfi til dragnótaveiði innan fiskveiði landhelgi íslands. Vandkvæði emærri báta og skipa, sem tog- veiðar stunda eru hinsvegar enri ekki verið leyst: Hafa þó ein- staka þingmenn á undanförnum árum flutt á Alþingi frumvörp ti'l laga um breytingu á lögunum um bann gegn botnvörpu veiði, en þau ekki náð fram að ganga vegna mjög slkiptra skoðana þing manna á nauðsyn þess að breyta lögunum og einnig á því hvað langt ætti að ganga, ef breyt- imgar væru gerðar. Segja má, að málið hafi verið í algerri sjálf- heldu síðan að útfærslan 1958 átti sér stað. Útgerðarmenn og sjómenn hafa af illri nauðsyn neyðst til að halda þessum veið- um áfram, því miður oft í trássi við gildandi lög og reglur, og Landhelgisgæzlari séð í gegnum fingur sér með framkvæmd lag- anna. Ég he'ld að öllum, bæði sjómönnum, útgerðarmönnum og löggæzlunni sé orðið ljóst að þannig getur þetta vart áfram gengið. En spurningin er þá. Er nauð synlegt að breyta lögunum um bann gegn botnvörpuveiði? Er ekki hægt að afla hraðfrystihús unum og fiskvinnslustöðvunum nægilegs hráefnis á annan hátt? Guðlaugur Gíslason Ég hygg að þeir sem bezt til þekkja þessara mála séu sam- mála um það að breyting sé nauðsynleg og óhjákvæmileg, þó að vitað sé að ágreiningur er um hvað langt eigi að ganga í tilslögunum frá gildandi lögum. Fiskiðnaður íslendinga er ekki lengur heimilisiðnaðu,r einis og áður var, meðan algengast var, að hver útgerðarmaður verkaði afla sinn sjálfur með fjölskyldu sinni og venzlafólki, heldur er sem betur fer, orðið um þróaðan stóriðnað að ræða, sem krefst hráefnis, ekki einasta á vetrar- vertíð, heldur allt árið. Hjá þessu verður ekki komist með þeirri fjárfestingu og uppbyggingu, er átt hefur sér stað í þessari iðn- grein á undanförmum árum. Og állir vita, að í hinum fjölmörgu útgerðarstöðvum allt í kringum landði, eru fiskvinnslustöðvarn- ar mjög víða nær einasta undir- staða atvinnulífsins. Samdráttur í hráefnisöflun til þeirra þýðir því minni atvinnu og lokun þeirra einhvern hluta árs, algert atvinnuleysi. Þetta er sú stað- reynd, sem við blasir. Það hlýtur að teljast tímabært að 'landsmenn geri sér þess fulla grein, á hvern hátt fiskimið þau, sem við einir ráðum yfir verði bezt nýtt, bæði vetur, sumar vor og haust, án þess að um ofveiði eða rányrkju sé að ræða, og mega þar engin aldarmóta eða ofstækissjónarmið ráða. Hin rót- gróna fcrú allt of margra á að botnvarpan sé enn, þrátt fyirir mjög aukna möskvastærð, hættu legra veiðarfæri en sum önnur, sem nú eru notuð, samrýmist eng anveginn áliti fiskifræðinga eða þeirra reynslu, sem fengin er af þeim veiðistöðvum, sem holn hef u r lengst og mest verið notuð á. Um álit fiskifiræðinga vil ég vitna til ágætrar greinar Aðai- steins Sigurðssonar, fiskifræðings í 20. tölubl. Ægis 15. f.m. Og reynslan af svæðinu frá Reykja nesi og austur fyrir Vestmanna- eyjar staðfestir álit fiskifræð- inga. Á þessu svæði hefur ver- ið veitt með botnvörpu lengur og meir bæði vetur og sumar en á noikikru öðru svæði innian niú- verandi fiskiveiðitakmarka og verður ekki séð að þau séu neitt frekar að gefa sig en þau svæði önnur þar sem mimna hefur ver- ið veitt með þessu veiðarfæri eða með dragnót. Það sem hlýtur að verða gert og þarf að vinda bráðan bug að, er að gefa sjómönnum og I hópvinnu á námskeiði Vinnuveitendasambandsins. (Frá vinstri) Þórður Gröndal, verkfr., Gunnar Bjarnason, verkfr., Sveinn K. Sveinsson, forstj., og Örn Johnson, forstj. „Verkefni vinnu- veitandans" — námskeið tyrir stjórnendur fyrirtœkja VINNUVEITENDASAMBAND fslands hefur hafið námskeiða- hald fyrir stjórnendur fyrirtækja. Á aðalfundi sambandsins, sem haldinn var í Reykjavik 20.—22. maí í vor var samþykkt álykitun þess efnis, að brýna nauðsyn bæri til að stilla öllum fram- leiðslukostnaði í hóf svo sem kost ur er og taldi fundurinn að auk- in hagræðing og aukin menntun stjómenda fyrirtækja væru grundvallarskilyrði hagkvæms reksturs. Tæknideild Vinnuveitendasam- bandsins hóf svo undirbúning að námskeiðahaldi fyrir stjórnendur fyrirtækja og var gerð heildar- áætlun um námskeiðahaid á veg um sambandsins. Framkvæmda- stjóm sambandsins samþykkti þessa áætlun og var henni þá hrundið í framkvæmd. Mánudaginn 2. desember var fyrsta námskefðið haldið í hinum nýju húsakynnum Vinnuveit- endasambandsins að Garðastræti 41, en þar hafa verið innréttaðar tvær kennsiustofur með tilliti til námskeiðahalds. Var aðalefni þessa námskeiðs „Verkefni vinnu veitandans“ og voru þátttakend- ur 13. Auk starfsmanna tækni- deildar Vinnuveitendasambandis- ins voru þeir prófessor Guðlaug- ur Þorvaldsson og Jónas Haralz forstjóri Efnahagsstofnunarinnar fyrirlesarar á námskeiðinu. Stóð námskeið þetta í fjóra daga frá kl. 14.00 til 18.00. 1 beinu framhaldi cif þessu nám skeiði verður haldið annað nám- skei'ð dagana 11. og 12. desember frá kl. 19.00 til 23.00 fyrir að- stoðarmenn þeirra sem voru á fyrra námskeiðinu. Þátttakendur á þessu námskeiði verða 16. Eftir áramótin verða haldin fleiri námskeið á vegum Vinnu- veitendasambandsins og verður þá miðað við að koma til móts við óskir fleiri vinnuveitenda hvað þessari starfsemi viðvíkur. Gerir stjóm Vinnuveitendasam- bandsins sér miklar vonir um gildi starfsemi þessarar í fram- tíðinni. (Frá Vinnuveitendasambandi fslands). útgerðarmönnum meira valfrelsi um hvaða veiða'rfæri þeir vilja nota á hverjum tíma og hverj- um stað. Gömlu hindurvitnin og hjátrúin um að eitt veiðarfæri sé skaðlegra en annað verður að víkja og eðlileg og skyn- samleg hagnýting veiðisvæðanna innan fiskveiðimarkanna að kom í staðinn. Ef þetta dregst úr hömlu, er ekki annað fyrirsjá- aniegt, en að stórfelldur atvinnu samdráttur verði við sjáv- arsíðuna þegar í vetur og víða algert atvinnuleysi þegar á næsta vori. Þetta er. því ekkert sér- hagsmunamál útgerðarmanna og sjómanna heldur undirstöðuatriði undir lífsafkomu verkafólks í fjölmörgum útgerðarplássum víðs vegar kringum 'land. Hvaða þýðingu togveiðar smærri báta hafa i sambandi við hráefnisöflun hraðfrystihúsanna og fiskvinnslustöðvanna,, sýna bezt skýrslur Fiskifélags íslands en þar kemur fram að 103 bát- ar stunduðu togveiðar á síðustu vetrarvertíð og varð afli þeirra samtals um 25 þúsund tonn. Sxð- aista sumar stunduðu hinsvegar 142 bátar þessar veiðar og skil- uðu samtals á land tæpum 35 þúsund tonnum. Afli togbátanna nemur því um 60 þúsund tonn- um það sem af er þessu ári. Sýna skýrslur Fiskifélagsins að ef afli í Vestfirðingafjórðungi er dreginn frá, en þar hafa tog- veiðar ekki verið stundaðar, er afli togbáta, sem lagður hefur verið á land annarsstaðar meiri bæði vetur og sumar en a.fli línu og handfærabáta samtals. Ef ein hver heldur að þessar veiðar verði stundaðar áfram með ein- hverjum árangri, að óbreyttum lögum og reglum þá er það mis- skilningur. Flestir þessara báta eru of smáir til þess að afla- möguleikar þeirra séu nægjan- legir, nema að farið sé inn fyrir þau mörk, sem nú eru í gildi. Útgerð þeirra myndi því víð- ast hvar hætt þar sem þeim næg ir ekki að hafa aðeins rekstrar grundvöll yfir þá vetrarvertíð- ina. Afleiðing þessa yrði 'lokun fiskvinnslustöðvanna í mörgum stærstu sjávarplássum landsins fir sumar og haustmánuðina, sem hreinlega myndi kippa grund- vel/linum undan tilveru margra byggðarlaga. Eðlileg og full hagnýting fiski ' miðanna innan fiskveiðimarkana með þeim veiðarfærum, sem arð væmlegust eru og bezt á hverj- um tíma og hverjum stað er ekkert sérmál sjómanna eða út- gerðarmanna, heldur þjóðarnauð syn, til þess að halda uppi nauð synlegri og samfeldri atvinmu við sjávarsíðuna. Og alveg er kom- inn tími til þess að við áttum okkur á þvi, að útfærsla fisk- veiðilandheílginnar 1958 váa* ekki einasta til að bægja frá erlendum fiskiskipum, heldur ekki síður til þess, að íslend- ingar sjálfir nytjuðu án fordóma veiðisvæðin innan fiskveiðimark- anna á sem arðbærastan hátt fyrir þjóðarheildina. - SEÐLABNKINN Framhald af bls. 5. sen reisti á sinum tíma á Fri- kirkjuvegi 11. Fari svo, að bot-g- aryfirvöld telji varðveizlu húss- ins æskilega, mundi Seðlabank- inn vilja stu'ðla að henni með því að taka að sér allan kostnað að því að flytja húsið á annan stað í Reykjavík og koma því þar fyrir, þegar að því kemur, að úr byggingarframkvæmdum geti orð ið af hálfu Seðlabankans. Mun mál þetta verða rætt við borga.r- stjórn Reykjavíkur og kannað, hverjar leiðir ver'ði taldar heppi- legastar í þessu efni. Sýning verður haldin næstu daga á tillögum þeim, sem fram komu í samkeppninni, en hún hefst miðvikudaginn 11. þjn. Verður hún haldin í húsnæði Byggingarþjónustu Arkitektafé- lags íslands við Laugaveg 26.“ ÍSLAND 50 litskyggnur í öskju. jSkýringar á dönsku og ensku. t Kynning á landi og þjóð. Verð kr. 500,-. jFræðslumyndasafn ,ríkisins - Borgartúni 7. FYRIR DRENGI Jakkar með síðbuxum, stakir jakkar, vesfi með síðtouxum, skyrtur, buxur og fleira. Laugavegi 31, Jólaiundur HVATAR Hvöt, félag Sjálfstæðiskvenna, heldur jólafund sinn miðvikudaginn 11. þessa mánaðar kl. 8.30 í Sjálfstæðis- húsinu. Skemmtiatriði: 1. Blandaður kvartett syngur jólalög. Sigurveig Hjaltested, Margrét Eggertsdóttir, Sverrir Kjartansson og Hjálmar Kjartansson. Ruth Little Magnússon annast undirleik. 2. Jólahugvekja. Séra Ólafur Skúlason. 3. Kaffidrykkja. 4. Jólahappdrætti. 100 vinningar. 5. Sýning á ísienzkum heimilisiðnaði. Sýndur verður margvislegur handunninn, íslenzkur fatnaður. Félagskonur og fleiri sýna. Félagskonur fjölmcnnið og takið með ykkur gesti. STJÓRNIN. 'm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.