Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968 21 endum til stórtjóns. Veiðiskýirsl- ur frá þessu tímabili sýna sízt meiri veiði á stöng en fæst á stöng núna á vatnasvæðinu, þrátt fyrir netaveiðina. 1 lok þessa tímabils var álitið á þessu vatna svæði til stangaveiði ekki meira en svo, að Sbangveiðifélag Reykjavíkur bauðst til þess að taka allt vatnasvæðið á leigu fyrir 50 þús. kr. — fimmtíu þús- imd krónur. — En ti'l allrar gæifu var því boði hafnað og netaveiði tekin upp, sem senni- lega hefir fært héraðinu 20—30 milljónir á einum áratug. Og ekki vantaði okkur nú árnaðar- óskimar í veganesti, þegar við byrjuðum aftiyr að nytja eigur okkar sjálfir. Ég mun eiga í fór- um mínum eitthvað af blaðaúr- klippum, þar sem hluti af öllum hrakspánum fyrir veiðinni og rányrkjunni er skráður. En hverjar eru svo staðreyndirnar? Hvert netaveiðiárið öðru meira, þrátt fyrir minnkandi veiði- tælkni, sem frjáls samtök bænd- arrna sjálfra komu á á vatna- svæðinu, og sumarið 1967 sló síð an ödl fyrri met hvað aflamagn snerti. Svo kemur Helgi Sæm. og gasprar í sjónvarpið út um landsbyggðina. Þvílík rán- ybkja. 90% af allri veiði á Vatnasvæðinu kemur í net! Ég vil spyrja Helga. Hefði það verið að einhverju leyti minni rányrkja að veiða þennan fisk á stöng? Þar sem verulegur hluti aflans væri kannski „húkkaður" eða kræktur eins og mun al- gengt við stangarveiði? Vafa- laust hefði það verið fínna fyr- ir fiskinn að deyja á þann hátt en fyrir grófri hendi netamanns- ins. En þessi metveiddi lax skap- ar þó þrátt fyrir allt eftirsótt útflutningsverðmæti, sem stang arlaxkm er alls óhæfur til að keppa við. Og hefir skapað grundvöllinn að því verði, sem bændur fá í veiðileigu fyrir laxárnar sínar í dag. Og mun einmitt þetta atriði vera mjög veigamikið fyrir því ofurkappi, sem forustumenn Stangarveiði- manna leggja á það að fá allar metaveiðar úr sögumni, því lækk ar verðgildi ánna, þegar aðal- grundvölluriim að verðgildi þeirra er úr sögunni. Þetta verða bændurnir sjálfir að skilja En víkjum svo aftur að rán- yrkjutáli þeirra félaga. Fiski- fræðingar telja að meðan ekki er veitt meira en 50—60% af stofninum sé hann ekki í neinni hættu. Veiðifélag Árnesinga hef ir um margra ára skeið látið merkja nokkurt magn af laxi við ósa ölfusár, og sleppt að því loknu. Um 30% af þessum laxi hefir endurveiðst. Telja þeir félagar þetta vera rán- yrkju? Telja þeri réttara að láta þessi verðmæti, sem nemur 1-3 af stofninum, sem gengur í ána verða að mestu ónotað, veiðibjöllu eða öðrum vargi að bráð, en héraðið milljónum tekju minna. Því eins og áður er sagt mundi' vatnasvæðið il'lá nýtast til stangarveiði. Mig minnir að ég hafi ein- hvers staðar lesið hugleiðingar eftir Jakob Hafstein um það, hvers vegna ýmsar ár á Norður- landi sýna svo þverrandi veiði á seinni árum t.d. Laxá í Aðal- dal. Hafa ekki þessar ár verið nytjaðar eingöngu með stöng. Ekki hafa netin komið þar við sögu. Að lokum vil ég segja þetta: Ég tel það verði mikil ógæfa fyr ir veiðimál okkar, ef að þeir menn, sem í framtíðinni eiga að stjórna þeim, ætla að haga mál- flutningi sínum og gjörðum með álíka rökum, lýðskrumi, gaspri og s'lagorðum, eins og fram kom í sjónvarpinu „Á öndverðum meiði“ 9. ágúst s.l. Hrauni 10. ágúst. Ól. Þorláksson. Frumvarp um FRUMVARP tii þjóðminjalaga kom til fyrstu umræðu i neðri- deild Alþingis í gær. Fylgdi Gylfi Þ. Gíslason, menntamála- ráðherra, því úr hlaði, gat um breytingar frá eldri lögum og ný- mæli frumvarpsins. Sagði ráð- herra að þetta væri síðasta frum varpið í flokki frumvarpa um söfn er lagt hefði verið fyrir þetta þing, og jafnframt það viða mesta. Þjóðminjasafnið hefði nú starfað í 106 ár, en um það hefði aldrei verið til nein heildarlög- gjöf, og yrði það að teljast mjög óeðlilegt. Ráðherra vék síðan að helztu breytingum og nýmælum frum- varpsins, en þau eru þessi: Fom- þjóðminjor minjar sem finnast í jörðu skulu vera eign ríkisins, hægt verður að friða kirkjugripi, sem varð- veittir eru í kirkjum landsins. Sett eru ákvæði sem heimila frið un þeirra húsa sem talin eru hafa sérstakt gildi, menningarsögulegt, listrænt eða sögulegt. Að lokium er svo breytt reglum um byggða söfn og gert ráð fyrir að framlag ríkisins við byggingu þeirra verði aukið úr Vi í %. BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu { þessu fyrsta bindi eru eftirtaldar sögur: Egils saga, Hœnsna-Þóris saga, Gunnnlaugs saga ormstungu, Bjarnar saga Hítdcelakappa og Gisls þóttur lllugasonar. ÍSLENDINGASÖGUR með núfíma stafsetningu Grímur M. Helgason mag. arf. og Vésfeinn Ólason cand. mag. bjuggu til prenfunar. Oft heyrist það, einkum hjó ungu fólki, að erfitt sé að lesa íslendingasögurnar vegna hinnar samrœmdu fornu stafsetningar. Á seinni órum hafa menn þv( fremur haliazt að því að prenta jslendingasögurnar méð nútfma stafsetningu, enda er hún oft sízt fjœr stafsetningu handritanna en samrcemd stafsetning forn og hefur þann ótvírœða kost að vera auðveldari ilestri fyrir þó, sem henni einni eru vanir. — Þessi heildarútgófa islendingasagna með nútíma stafsetningu verð- ur ótta bindi. Ný bindi koma út í apríl og nóvember 1969 og síðan tvö og þrjú bindi órin 1970 og 1971. Er þvi kjörið tœkifceri að eignasf þetta safn á þann hótt að kaupa bindin jafnótt og þau koma út, — það verður engum tiifinnanleg f jórfesting, en hinsvegar verðmcet og varanlég eign. ÍSLENDINGASÖGUR með nútíma stafsetningu eru sjólfsögðustu bcekur í bókaskóp hvers Islendings, því 'allir geta iesið íslend- ingasögur méð nútíma stafsetningu sér til gagns og skemmtunar. Takmarkið er: Ekkert islenzkt heimili ón íslendingasagna með nútíma stafsetningu Verð kr. 645,00. 5KUGG5JA Um þessar mundir er að hefjast framleiðsla hérlendis á rafgeymum undir hinu heimsfræga vörumerki CHLORIDE. Hér er um að ræða samvinnu, sem tekizt hefur með rafgeymaverk- smiðjunni Pólar H/F og brezka risafyrirtækinu Chloride Electrical Storage Co Ltd. Samband íslenzkra samvinnufélaga hefur haft milligöngu um þessá samvinnu, en það hefur um árabil haft á hendi aðaiumboð Chloride hérlendis. Chloribe RAFGEYMAR Þessi samvinna hefur m. a. það I för með sér, að nú geta Pólar nýtt að ‘vild allar tækni- nýjungar Chloride, en á rannsóknarstofum þeirra vinna yfir 300 manns og auk þess opnast nú Chioride notendum alþjóðleg þjónusta Chloride fyrirtækjanna. Chloride rafgeymirinn framleiddur af Pólum H/F mun innifela allar þær tæknilegu nýjungar, sem hafa gert Chloride heimsfrægt á þessu sviði. Jafnvel enn mikilvægari er þó sú staðreynd, að ýmáir hlutar framleiðslunnar, sem of dýrt er að framleiða hórlendis vegna takmarkaðs fjölda munu fást frá Chloride á mun lægra verði vegna fjöldaframleiðslu þeirra fyrir heimsmarkaðinn. Bein afleiðing þessarar samvinnu er veruleg verðlækkun, sem er mismunandi eftir gerðum. Rétt stærð rafgeymis verður fáanleg fyrir allar tegundir bíla, báta og dráttarvélaV Einnig hafa verið gerðar ráðstafanir til framleiðslu á geymum til margvislegra annarra not§i. Pólar H/F munu framleiða 37 tegundir Chloride rafgeyma, sem panta má frá verksmiðjunni beint eða Véladeild S.I.S. SMÁSALA: Umboðsmenn um land allt. HEILDSALA: Pólar H/F, Einholti 6, Reykjavík Pósthólf 809 Símar 18401 og 15230. Véladeild S.Í.S., Ármúla 3, Reykjavík — Pósthólf 180 — Sími 38900. Framleiðsla: POLAR H.F.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.