Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 15
MORGU'NHLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DBSEMBER 1968 15 Prófarkaleiðréttingar og hand ritafrágangur staðlað 1 FRÉTTATILKYNNINGU, sem Mbl. hefur borizt frá IMSÍ seg- ir m.a.: Á vegum I ð n a ðarm á 1 a.stof nun- ar Islands hefur starfað stöðl- unamefnd er borið hefur heitið prófarkanefnd. Nefndin hefur ný lokið samningiU staðals um leið- rérttingar og frágang handrita, IST — 3. Staðall þessi skiptLst í fimm kafla. 1 þeim fyrsta eru helztu hugtök skilgreind. I öðrum kafla eru reglur um frágang handrita, sem stuðlað geta að vandvirkni og nákvæmni. Þriðji kaflinn fjallar um reglur, sem prófarka- lesarar og starfsmenn prent- smiðju ættu að fyfgja, til þess að störf hvors aðila um sig verði hagkvæmari og árangiursríkari og samskipti þeirra í milli í fast- ari skorðum. I fjórða kaflanum eru prófarkatáknin sýnd. Að langmestu lejrti eiru þessi tákn hin sömu og þau, sem hafa hlot- ið aiþjó’ðlega útbreiðslu í hlið- stæðum stöðlum annarra þjóða. Loks er í fimmta kaílanum sýnt dæmi um, hvernig táknimum er beitt við leiðréttingar á viiilum. I prófarkanefnd áittu sæti Bjami Vilhjálmsson þjóðskjala- vörður, frá Félagi ísl. fræða, Haf- steinn Guðmundsson prentsmiðju stjóri firá Félagi ísl. prentsmiðju- eigenda, Pétur Stefánsson prent- airi frá Hinu ísl. prentarafélagi og Sverrir Júlíusson hagfiræðingur frá Stjómunarfélagi ísiands, sem jafnframt var ritari nefndarinn- ar. Að auki tókiu þeir Mag.nús Ástmarsson premtsmiðjustjóri og Þorsteinn Magnússon viðskipta- fræ’ðingur þátt í störfum nefnd- arinnar um skeið. Frumvarp að staðli um ledð- réttingar prófarka og frágang handrita var sent út til almennr ar gagnrýni í júli síðastliðnum og var skilafrestur 2 mánuðir eða tid 15. sept. Mikill áhuigi virðist vera fyrix umræddum staðli, því að umsagnir og athugasemdir bárust frá möirgum aðilum. Nefndin yfirfór gagnrýni og breytti því sem betur þótti mega fara. Æviminningabók Á VEGUfM Menningar- og minn- ingarsjóðs kvenna er.u nú komin út þrjú hefti af Æviminningabók ,um íslenzkar konur. Er útgáfa iþessi hin veglegasta í alla staði og mun geyma um aldir min.n- dngu þeirra kvenna, gem þar eru skráðar. Sjóðux sá er bækumar gefur út var stofnaður af Bríetu Bjarnhéðinsdóttur með dánar- gjöf til Kvenréttindafélagsins og skyldi ihonum á sínum tíma var- ið til þess að styrkja íslenzkar konur til náms og vísindastarfa. Sjóðurinn veitir nú styrk á hverju ári og hefur gert það um allmargra ára skeið. Annars er sjóðurinn fyrst og fremst byggð- lur upp af minningargjöfum um látnar konur og fylgir þá gjötf- linni æviminning hiinnar látnu, löng eða stutt eftir því sem ósk- að er. Eins og áður var sagt eru minningaheftin nú orðin þrjú, ihið síðasta kom út í fyrra og nú er verið að safna í fjórða heftið. Skal það tekið fram, að allur firá- gangur er hinn prýðilegasti, svo sem pappír og prentun, svo þetta er í rauninni hreinasta skraut- útgáfa, óvenjulega vel fallin ti'l tækifæris og minningagjafa. Sem sýnishorn skal hér getið um tvö fyrstu nöfinin í hverju hefti, en þau munu nú alls geyma nöfn 180 kvennia. Fyrsta hafti Æviminninganna hyrjar á æviminningu Bretar Bjarnhéðinsdóttur, rituð af hennj sjálfri, árið 1929, síðan er minn- ing Laufeyjar dóttur hennar. Annað heftið heíst á minn- ingargrein um Þorbjörgu Sveins- dóttur, ljósmóður, systur Bene- dikts Sveinssonar, sýslumanns. Hún var aðalstofnandi „Hins íslenzka kvenfélags“ 1894, en það var í raun og veru fyrsta kven- réttindafélagið á íslandi. Næst í því hefti kemur svo minning Elínar Eggertsdóttur Briem, sem var mikil forystukona um stofn- un kvennaskóla hér á landi, og 'bar það mál jafnan mjög fyrir brjósti. ' í þriðja heftinu eru fyrstu tvær minningargreinarnar um forsetafrúrnar okkar tvær, sem iátnar eru, en þær urðu þjóðinni báðar mjög ástsælar og mim af hienni jafnan minnzt með virð- ingu og kærleika. Bókin Æviminningar fæst hjá Menningar- og minningarsjóði kvenna, sem hefur skrifstofu á 'Hallveigarstöðum ásamt K.R.F.Í. '(Kvenréttindafélagi íslands). — 'Skrifstofan er opin á þriðjudög- um, fimmtudögum og föstudög- um á milli kl. 4og 6. Aðalbjörg Sigurðarðóttir. BIBLÍAN •rJÖLABÖKW 10 ARA ÁBYRGÐ TVÖFALT' EINANGRUNAR 20ára reynsla tiérlendi SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON «COHF f 10 ÁRA ÁBYRGÐ B( Js L w 0 o Danskir pinnastólar margar gerðir HVÍTMÁLUÐ BORÐ B Ú S L w 0 Ð HÚSGAGNAVERZLUN VIÐ NÓATÚN — SlMI 18520 ANGU-SKVf ERU MJÖG VINSÆLAR. ITUR VE RZLUNIN SElsiR" 1 Fatadeildin. &in$töl( (fœácu/ara, sem a/lir fieJíkja

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.