Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968 23 — Knattspyma Framliald a( bls. 30 2. deild Aston Villa — Charltotn 0-0 Blackbum Huddersfield 0-0 Blackpool — Middlesbro 1-1 Bolton — Portmouth 1-0 Bristol City Bury 2-1 Derby Co. — Norwich 1-1 Fulham — Oardiff 1-5 Hull — Crystal Pialace 2-0 Millwall — Oarlisle 1-1 Oxford — Preston 2-1 Sheff. Utd. — Birminghaim 2-0 Liverpool hiefur enn fjöguma stiga forskot í 1. deild í Eng- landi. Sl. laugardag bætti félag- ið við sig tveimur stigum, að þessu sinni á kostnað West Ham, sem sýndu þó mjög góða knatt- spyrnu á Anfield og fengu mik- ið hrós hjá hinum fjölmörgu knattspymu-„óðu“ Liverpoolbú- um. Samt var það Liverpool sem skoraði bæði mörkin í leiknum, hið fyrra skorað af Emlyn Hug- hes í lok fyrri hálfleiks og hið síðara í byrjun seinni hálfleiks og var Peter Thompson þar að verki. Liverpool hefur nú þegar hlotið 36 stig í 23 leikjum eða tapað aðeins 10 stigum í keppn- inni. Leeds United, sem sigraði á hehnavelli gegn Sheffield Wed nesday, 2-0, hefur einnig tapað 10 stigum, en leikið tveimur leikj um færra. Það var Peter Lorimer sem skoraði bæði mörkin fyrir Leeds. Everton, sem hefur til þessa tapað aðeins einum leik síðan í ágúst, varð að láta 1 minni pokann fyrir Arsenial, sem áttu nú sinn bezta leik um langt skeið. Fyrir Arsenial skomðu Radford, Court og Graham á síð ustu mín. leiksins. Alan Ball skoraði eina mark Evertons. Manchester City minnia stöku sinnum á að þeir eru nú al- ténd Englandsmeistarar í knatt- spyrnu, því á laugardag sigruðu þeir Bumley með 7 mörkum gegn engu! Þetta var stórkostleg ur leikur hjá City og Bumley, Bem þó hefur átt ágæta leiki undanfarið, var greinilega í öðr- um „klassa“ í flestum greinum leiksins. Tapið hefði getað orð- ið enn stærra sögðu fréttamenn, því City mistóbst vítaspyma að auki. Um félögin á botninum í 1. deild er það að segja að Leic- ester sigraði Manchester United, 2-1 og hiefur staðan lagast tölu- vert og Nottingham Forest náði stigi í Southampton, en Queems Park Rangers töpuðu á heimavelli gegn Coventry, 0-1 og Rodney Marsh mistókst vítaspyma fyrir QPR imdir lokin. Á meðan Liverpool og efstu liðin í 1. deild eru að „stinga af“, þjappast 2. deildin samam og myndi sá kallast snjall sem gæti réttilega gizkað hvaða 2 fé- lög flytjast upp í 1. deild í vor Efst er Derby, sem hefur betri markahlutfall en Middlesbro, bæði 28 stig, Millwall 27, CrystaJ Palaoe, Cardiff City og Cbarlton 26, Hull City og Huddersfield 25 stig og Blackbum 24. Derby jafnaði gegn Norwich með svo að segja síðustu spymu leiksins. Fulham og Aston Villa eru enn á botni í 2. deild og staða þess- ara félaga Ijót, og 3. deildin blas ir við. í Skotlandi fékk St. Mirren sinn fyrsta stórskell í haust, er lið ið heimsótti Parkhead, því Celt- ic skoraði fimm sinnum án svars' Eftir 14 umferðir í 1. deildinni skozku er Celtic efst með 24 stig, Dundee United hefur 22, Dumfermline 19 og Rangers og St. Mirren 18 stig hvort. Þá fór fram í Englandi 2. um- ferð bikiarkeppni Kmattspyrnu- sambandsins (F.A. Cup) og til marks um jafnia og skemmtilega keppni i umferðimni urðu 9 af 20 leikjunum jiafntefli. Eitt fé- lag utan deildanna er öruggt í 3. umferð, en það er Ketterimg sem sigraði Dartford 5-0. Annar ójiafn leikur í umferðinni var í Southend þar sem 4. deildarliðið sigraði Brentwood, sem er í Sout hem League með 10-1. í fyrstu umferð bikarkeppninniar er leik- in var fyrir 3 vikum signaði Sout hend King’s Lynm, 9-0. í 3. umferð sem verður leik- in4. jan. n.k. hefja stóru fé- lögin þátttöku í bikarkeppninni, þ.e. 1. og 2. deild og verða leik- irnir 32 talsins Staðan í 1. deild Efstu liðin Liverpool 23 16 4 3 43:13 36 Leeda 21 13 6 2 31:17 32 Everton 22 12 6 4 49:22 30 Arsenial 21 11 7 3 26:13 29 West Ham 22 9 8 5 42:26 26 Neðstu liðin: Stoke 22 7 5 8 20:31 17 Coventry 22 4 6 12 20:35 14 Leicester 22 4 6 12 20:43 14 Nottm. For. 20 1 10 9 25:34 12 Q.P.R. 21 3 5 13 '24:48 11 — Handbolti Framhald af bls. 30 stað Hafnfirðinganna verða fleiri að fara utan. Umfangsmikil æfingaáætlun hefur verið gerð. Byrja æfing- amar í kvöld en verða síðan bæði úti og inni. Til marks um álagið á landsliðsmenninia er að 6 æfingar verða milli jóla og nýárs og auk þess þéttár æfing- ar og æfingaleikir strax eftir ný- árið, en nýja árið hefst með pressuleik sem fram fer laugar- daginn 4. janúar. Eftir þann leik verður landsliðið móti Tékkum valið. Frá FH: Hjalti Eimarsson, Birg ir Finnobgason, Geir og Örn Hall steinssynir og Auðunn Óskars- son. Frá Fram: Þorsbeinn Björns- son, Björgvin Björgvinsson, Sig- urbergur Sigsteinsson, Ingólfur Óskarsson og Sigurður Einars- son. Frá ÍR: Ásgeir Elíasson, Ágúst Svavarsson og Vilhjálmur Sig- urgeirsson. Frá Víking: Jón Hjaltalín Magnússon og Einar Magnús- son. Frá Haukum: Stefán Jónsson, Þórður Sigurðsson og Ólafur Ól- afsson. Frá Val: Ólafur Jónsson, Jón Karlsson og Bjarni Jónsson. Frá KR: Emil Karlsson, mark- vörður. Á blaðamannafundi í gær sagði Axel Einarsson formaður. að landslið pilta og stúlkna myndu taka þátt í Norðurlandamóti unglinga, en mót pilta fer fnarn í Lögstör í Danmörku en mót stúlkna í Vánersborg í Svíþjóð. Verða mótin 21.—23. marz. Æf- ingar hafnar hjá báðum liðum, og eru með svipuðu sniði og æf- ingar A-liðsins. Hafa 25 stúlkur verið valdar til æfinga og 26 piltar, en fækkað verður í hóp- urnim síðar. Þjálfari pilta eru Sigurbergur Sigsteinsson og Hilmar Bjömsson en þjálfarar stúlkna Þórarinn Eyþórsson og Hans Steimmian. Kveðjui u íull- veldisufmælinu MEÐAL þeirra, se.m sendu Bjarna Benediktssyni, forsætis- ráðherra, kveðjur í tilefni 50 ára aifmælis fullveldis íslands, voru Per Borten, forsætisráðherra Noregs, Tage Erlander, forsætis- ráðherra Svíþjóðar og Fondet for Damsk-Islandsk samarbejde. íslenzk-sænsku félugið fiSLENZK sæniska féliagið heldur í ár eins og endranær Luciulhátíð fyrir félagsmenm og gesti þeirra. Hátíðin verður að vanda í Þjóðleikhúskjallaranum fostu- daginn 13. desember kl. 20.30 stundvíslega. Aðalræðu kvölds- irns heldur Gösta Edling, nýskip- aður ræðismaður Svía hér á landi. Hátíð þeuisi er fyrir löngu orð- in fastur liður í starfi félagsins og er mjöig vinsæl meðal allra, sem hafa einu sinni sótt hátíð- ina, og þykir ómissandi sem fyr- inboði jólanna. Þátttakendur eru beðnir að til- kynna þátttöku sína tímanlega og sækja aðgöngumiða í verzlun ina Kirkjumuni i síðasta lagi á hádegi á föstudaig. Þorvaldína á Hraða- stöðum-ln memoriam Hvur er þessi heimskona, sem þarna gengur? Hvur er þessi frú, sem þama fer? Hvuir er hún, sem var, en er ei lengur? Hvur? Hvur er hún, sem hverju kalli gegnir? — Ung í fasi, þó með hélað hár? Hvur er hún, sem prýðir húsið smáa í dalnium, þar sem hversdagsleikinn grár grænfcar við sáin tún? Vor í lofti, ung.t er hjartað trúa; létt að ganga atorkunnar spor — við litinn kost. Burt fór hún, sem var, en er ei lengur. Hvurt? Og févana hendur kveðja lífið — fulllar auðæfa! X. Kjarnfóður unnið hér á landi úr þekktum, völdum hráefnum Avallt nýmalað maísmjöl og annað fyrsta flokks kom, flutt inn laust, malað í myllu okkar. Prótíngjafi: íslenzkt fiskimjöl. Öll nauðsynleg bætiefni og snefilefni í réttum hlutföllum samkvæmt nýjustu þekkingu. Mjöl eða kögglar að vild. Allt unnið í nýtízku blöndunar- og kögglunarvélum. Um 30% kostnaðarverðs innlent efni og vinna. VERÐ OKKAR í DAG: Kúafóðurblanda M. F. pr. tonn kr. 8.178.00 sama köggluð — — — 8.400.00 Ungafóður, byrjunarfóður f. lífkjúklinga — — — 8.900.00 — vaxtarfóður f. lífkjúklinga — — — 9.125.00 — byrjunarfóður f. holdakjúklinga — — — 9.425.00 — vaxtarfóður f. holdakjúklinga — — — 9.200.00 Varpfóðurkögglar, heilfóður — — — 8.750.00 Varpmjöl (hænsnamjöl M. R.) — — — 8.222.00 Grísagyltufóður, kögglar — — — 9.000.00 Eldissvínafóður, kögglar — — — 9.000.00 Reiðhestafóður, mjöl — — — 8.525.00 — kögglar — — — 8.850.00 Hafrar — valdir sáðhafrar — pr. sekk 50 kg. — — — 364.00 YFIR 50 ÁRA REYNSLA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.