Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968 Raddir vorsins 1 HAUST kom í bókabúðir söng- lagahefti með frumsömdum lög- um eftir aldraðan bónda af Kjer úlfsættinni, son hans og dóttuT, ©g enn fremur á frænka þeirra lög í heftinu. Þessi aldraði bóndi er Metúsalem J. Kjerúlf, sem býr á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal. Verður nánar minnst á höfundana hér á eftir. Hinn mikli maður í Kjerúlfs- ættinni er norska tónskáidið Halfdan Kjerulf (1815—1068), sem er einn af merkustu braut- ryðjendum í norskri tónlist á 19. öld og skapaði þjóðiegan norskan sönglagastíl. Beztu lög- in hans hrífa menn enn í dag eftir meira en öld — þau eru klassisk. Hér á landi hafa söng- lögin eftir hann átt miklum vin- sældum að fagna, ekki sízt Brúð- ferðin í Harðangri,sem er fræg asta lagið. Ennfremur „Nykur- inn og lögin við kvæðin í sveita sögum Björnsons, eins og „Undr andi stari ég ár og síð upp yfir fjöllin háu“ og „Sig bældi ref- ur und bjarkarrót út við mó- inn. Lagið um refinn hafa skóla böm á Norðurlöndum sungið kynslóð eftir kynslóð. Þetta litla lag er geníali og er gott dæmj um hinn þjóðlega sönglaga- stíl tónskáldsins — lagið er nefnilega stökkdans. Mörg önn- ur iög eftir Kjerúlf eru alkunn hér á landi." Kjerúlfsættin er upphaflega dönsk og mjög gömul þar í iandi. Faðir tónskáldsins, Peder Kjer- úlf, var danskur embættismað- ur, sem kom ti'l Kristjaníu laust eftir aldamótin 1800 til að taka við starfi í stjórnarskrifstofun- um. Hann kvæntist norskri konu, Betzy Lasson,en sú ætt er kunn fyrir tónlistargáfur, og tal ið er, að hinn frægi sonur þeirra hafi eigi síður sótt tónlistargáf- una í þá ætt. Börn þeirra hjóna urðu sex, fimm synir og ein dótt ir. Tvö dóu ung, dóttirin Ida, sem Welhaven orti ástarljóð in til, dó 23 ára, og listmálar nn Hjálmar, dó 26 ára, bæði úr brjóstveiki. Tónskáldið kvæntist ekki, en tveir bræðranna kvænt ust, en áttu ekki böm. Þessi grein ættarinnar er nú útdauð. Allmargir íslendingar bera ættarnafnið Kjerúlf og munu allir komnir af Jörgen Kjerúlf, lækni á Brekku í Fljótsdal(d. 1831). Hann er langafi Metúsal- ems á Hrafnkelsstöðum. Jörgen læknir er föðurbróðir tón- skáldsins Halfdans Kjerulfs. Metúsalem J. Kjerú'lf, bóndi á Hrafnkelsstöðum, á 6 lög í heft- inu, þar af þrjú við ljóð eftir hann sjálfan. Lögin eru lítil og lagleg, öll eru þau í dúr, og i þeim er heiðríkja. Lög Guðrún- ar, dóttur hans og bústýru, eru einnig sex að tölu. Meðal þeirra eru snotur stemmningslög, eins og „Sumarkvöld. Jón M. Kjer úlf, bróðir hennar, sem einnig býr á Hrafnkelsstöðum, á fjögur lög í heftinu. Tilkomumest er lagið „Nú kemur vorið kæra. Frænka þeirra Sigríður Jöngensdóttir Kjerúlf frá Húsum í Fljótsdal, nú í Reykjavík, á fjögur lög í heftinu. í þeim er sami angur- STYKKISHÓLMI 9. desenvber. Leikfélagið Grímnir í Stykkis- hólmi frumsýndi sl. fostudags- blíði tónninn og er í lögum Guð rúnar frænku hennar. Lög S ig- ríðar eru litsterk stemmningslög og vil ég sérstaklega nefna lag- ið „Inn til fjalla. Jón Þórarinsson tónskáld, sem með smekkvísi hefur gengið frá raddsetningu laganna, segir í formála að heftinu: „Lögin í hefti þessu bera að sjálf- sögðu svipmót þeirrar tónlistar sem mest hefur verið iðkuð á ís- lenzkum heimilum, bæði um efni og frágang. Að því er komið hef ur t.il minna kasta um hljómeetn- ingu, hef ég reynt að raska því sem minnst. Ennfremur segir Jón í formálanum: „Mér hefur verið ánægjuefni að eiga þátt í að koma á framfæri þessu sýn- ishorni heimilistónlistarinnar á Hrafnkelsstöðum í Fljótsdal, sem ber svo fagurt vitni um átthaga- ást höfundanna og einlæga tryggð þeirra við uppruna sinn og umhverfi". Baldur Andrésson. kvöld í samkomuhúsinu í Stykk- ishólmi, leikritið Allra meina bót, eftir Patrek og Pál, með músík eftir Jón Múla. Var leiknum forkiunnar vel tekið og ekki að ástæðulausu, því snilldarbragð var þar á allri meðferð. Leikendur eru 5 og lék Njáll Þorgeirsson bifreiðastjóri lækninn. Andrés gamla lék Svanur Pétursson málarameist- ari og gerði honum skemmtileg skil. Þá léku þeir Friðrik R. Guð- mundsson kennari og Gunn- leifur Kjartansson s'jómaður hin karlmannshlutverkin og Jóse- fína Pétursdóttir kvenhlutverk- ið Höllu. Var erfitt að gera upp á milli leikendanna. Þjálfun öll með ágætum og samspil svo sem íbezt verður á kosið. Þá lék hljómsveit undir söngnum og voru í herani þeir sr. Hjalti Guð- mundsson, Marínó Kristinsson, Bjarni Lárentsinusson, Gísli Birgir Jónsson og Hafsteiinn Sig- urðsson. Vakti leikur þeirra at- 'hygli og ánægju leikhúsgesta. Leikstjóri var Sævar Helgason og var horaum og leikendum óspart fagnað í leikslok. Leik- félagið hefur hug á að sýna sjónleik þennan í nágreraninu nú fyrir áramót, en síðan ef hægt verður að fara eitthvað lengra, en í vetur er áformað að koma öðru leikriti á svið. Þetta er þriðja leikár félagsins og hefur það verið bæjarbúum til sóma og hafa áhugamenn sýnt lofsverðan dugnað í að koma leikritum á svið, auk þess sem þeir hafa ýmislegt gert til að efla félagsstarfsemina. Hafi leikfélagið þökk fyrir ágæta skemmtun. Fréttaritari. Teak, gaboon, strikikrossviður fyrirliggjandi HJÁLMAR ÞORSTEINSSON OC CO. H.F. Klapparstíg 28, sími 11956. FYRIR TELPUR Kápur, buxnadragtir, sloppar. Laugavegi 31. Nauðungaruppboð annað og síðasta á fiskverkunarhúsi í Akurhúsatúni, Grindavík, eign Gunnars Halldórssonar, fer fram á eigninni sjálfri föstudaginn 13. des. 1968, kl. 4.00 e.h. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. N auðungaruppboð Eftir kröfu Einars Viðar hrl., Gunnars Sæmundssonar hdl., Kristins Sigurjónssonar hrl., og Landsbanka ís- lands verður haldið opinbert uppboð á ýmis konar lausafé, að Digranesvegí 10, neðstu hæð í dag, mið- vikudaginn 11. desember 1968 kl. 15. Selt verður m.a. sjónvarpstæki, (National, Blaupunkt, Luxor, Philips, Zenith) og Atlas ísskápur. Greiðsla fari fram við hamarshögg. Bæjarfógetinn í Kópavogi. N auðungaruppboð Eftir kröfu Ragnars Tómassonar, hdl., verður fast- eign í landi Gerða, Gerðahreppi, þinglesin eign Þórar- ins Guðbergssonar, seld á nauðungaruppboði, sem háð verður á eigninni sjálfri, föstudaginn 13. des. 1968, kl. 2.30 e.h. Uppboð þetta var auglýst í 44., 46. og 49. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1968. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. Styrkir til náms í félagsráðgjöf Félagsmálaráð Reykjavíkurborgar hefur ákveðið að veita styrki til náms í félagsráðgjöf erlendis. Styrkir þessir eru fyrst og fremst ætlaðir þeim, er hyggjast takast á hendur fé'agsmálastörf í stofnunum Reykjavíkurborgar, t. d. við Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar og í sjúkrahúsum. Áskilið er, að umsækjandi hafi a.m.k. gagnfræðapróf. Nánari upplýsingar eru veittar í skrifstofu Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, og skulu umsóknir hafa borizt þangað eigi síðar en 23. des. n.k. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar. JENNA OG HREIÐAR STEFÁNSSON: STÚLKfl MED LJÚSfl LOKKfl Þetta er framhald af bókinni „Stelpur i stuttum pilsum“, sag- an af Emmu, unglingsstúlku í Reyk javík, sem á við margs kon- ar vandamál að glíma. Emma ræður j lokin fram úr vandan- um og framtíðin blasir við henni, björt og full fyrirheita. Afbragðs bók fyrir unglinga. VERÐ KR. 170.00 án söluskatts. Jrnn a <*t H rdífaf StefAn*son STÚLKA MEÐ UÓSA LOKKA ULF ULLER: VULSDUGfl 06 MINNETONKA I þessari bók lenda þeir félagar, VaLsauga og Símon Henson i margvíslegum hættum og mann- raunum. Sögumar um Valsauga era ósviknar indiánasögur, sem allir strákar eru hrifnir af. Sig- urður Gunnarsson hefur þýtt allar bækuraar um Valsauga. VERÐ KR. 180.00 án söluskatts. VALSAUGA oc MINNETONKA. ÁRMANN KR EINARSS0N ÓII MACrOI finna gullskipió ARMANN KR. EINARSSON: ÓLIOG MflGGI FINNfl GULLSKIPID Þetta er 7. bókin f flokki óla- bókanna, og sú bókin, sem allir unglingar hafa Iieðið eftir með einna mestri eftirvæntingu. — Var hollenzka kaupfarið í raun og veru grafið i sandinn, þar sem þeir voru að leita? Hafði það flutt með sér slík auðæfi, sem af var látið? Ráðgátan leys- ist í þessari bók. VERÐ KR. 200.00 án söluskatts. 7a&f?n 1 'ooM e/NiDALS GUOJÓN SVEINSSON: ÚGNIR EINIDIILS Ný bók um þá félaga, Bolla, Skúla og Adda, sem eru nú á leið f útilegu í afskekktum-eyði- dal inni á öræfum, þegar þeir verða varir við grunsamlegar mannafcrðir. Þetta er framúr- skarandi skcmmtileg og spenn- andi unglingabók. VERÐ KR. 220.00 án söluskatts. „AUio meina bót“ í Stykbishólmi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.