Morgunblaðið - 11.12.1968, Blaðsíða 16
16
MORiGUNBlLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968
■Oltglefiandi H.f. Árvafcuir, Reyfciavíic,
Framfcvæmdastj órí Haraldur Sveinsaoin.
'Ritstjórai' Sigiurðiur Bjamia3t>n frá Vigur.
Matitihias Johanniesslen,
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Eitstjómarfulltrúi Þorbjöm Guðmundasott
Fréttastjóri Björn Jóíhannssott
AuglýsingaBitjöri Árni Garðar Kristinsson.
Eitstjórn ag afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-109.
Auglýsingar Aðiailstræ'ti 6. Sími 22-4-80.
ÁJsfcrMtargjald fcr. 15'D.OO á mánuði innanlainids.
1 lausasötu kr. 19.00 eintakið.
A THYGLISVERÐ
TILLAGA
Tj^rfiðleikar þeir, sem ís-
^ lenzkir atvinnuvegir eiga
nú við að stríða, hafa opnað
augu manna fyrir nauðsyn
þess að beina fjármagni í rík-
ara mæli til hinna ýmsu
greina atvinnulífsins, ekki
einungis lánsfé, heldur þurfi
í ríkum mæli að efla atvinnu-
fyrirtækin með auknu eigin
fjármagni, annars vegar með
því að þau fái að hagnast og
halda eftir verulegum hluta
ágóða síns og hins vegar á
þann hátt, að sem allra flest-
ir verji hluta fjármagns síns
til beinnar þátttöku í atvinnu
lífinu.
Hér á landi hefur mjög
skort á, að samstillt átak
margra manna væri til að
hrinda í framkvæmd verk-
efnum á sviðum atvinnulífs-
ins, en nú skilja fleiri nauð-
syn þess, að öflug almennings
hlutafélög rísi upp til að leysa
vandann í þessu efni. Jafn-
framt er nauðsynlegt, að
ýmsir sjóðir og stofnanir geri
sér grein fyrir því, að fjár-
festing í hlutabréfum atvinnu
fyrirtækja er eðlileg og sjálf-
sögð eins og tíðkast í ná-
grannalöndum okkar.
Á þingi Alþýðusambands
íslands, sem nýlega var hald-
ið, hreyfði Guðmundur H.
Garðarsson athyglisverðri
hugmynd. Hann vildi, að
launþegasamtökin kæmu á
fót öflugum sjóði með árlegu
framlagi allra þátttakenda og
hluta af fjármagni Atvinnu-
leysistryggingasjóðs, en sjóð-
ur þessi styrkti íslenzkt at-
vinnulíf með beinni þátttöku
í því, en eigendur sjóðsins
nytu arðsins af fjárframlög-
um til atvinnulífsins- Slíkur
sjóður gæti haft verulega
þýðingu fyrir atvinnuvegina,
en auk þess yrðu íslenzkir
launþegar eigendur að hlut-
deild í atvinnurekstri, en
slíkur háttur er líklegur til
að auka skilning og samstarf
launþega og vinnuveitenda.
Var því illt að tillaga þessi
skyldi ekki fá afgreiðslu á
þingi Alþýðusambandsins.
Þar sem heilbrigð þróun
hefur verið í rekstri atvinnu-
vega hafa risið upp marghátt-
aðar stofnanir og sameignar-
sjóðir, þar sem hinn almenni
borgari leggur fram fé til
ávöxtunar, en síðar ráðstafa
stjórnendur sjóðanna fjár-
magninu á hinn heppilegasta
hátt. Hefur slík fjárfesting
orðið mjög vinsæl meðal al-
mennings. Margir hafa byrjað
smátt, en aukið við eign sína
ár frá ári og orðið fjárhags-
lega sjálfstæðir, samhliða því
sem þeir hafa styrkt atvinnu-
rekstur og tryggt atvinnuör-
yggi. Slík þróun mundi vafa-
laust verða hér á landi, er
opin hlutafélög hefðu náð
verulegri fótfestu, og vissu-
lega ætti það að vera kapps-
mál launþegasamtakanna, að
þessi þróun yrði sem örust.
FURÐULEG
ÓSKAMMFEILNI
Tjhnn af varaþingmönnum
Framsóknarflokksins,
Tómas Karlsson, minntist
þeirra tímamóta, er íslenzka
fullveldið var 50 ára, með sér
stæðum hætti. Hann réðst
með mikilli hörku að þeirri
kynslóð, sem nú er að ljúka
sínu ævistarfi og sagði m.a.:
„Stórkostlegum byrðum,
svo geigvænlega þimgum að
mönnum hryllir við, hefur
verið velt yfir á okkur og
okkar böm og framtíð okk-
ar og þeirra í þessu landi,
okkar, sem eigum við að taka
og erfa þetta land.“
Og þessi drengstauli bætti
því við, að á yngri kynslóð-
ina hefðu verið lagðar „dráps
klyfjar“.
Ein eða tvær kynslóðir
hafa breytt landi okkar úr
gjörsnauðu eylandi í eitt
mesta velfarnaðarríki verald-
arinnar. Segja má að hér hafi
allt verið byggt upp af engu
á þessari öld, og mestu hef-
ur sú kynslóð áorkað, sem nú
fær ungu fólki í hendur
margháttuð auðævi og meiri
velmegun en á þessu landi
hefur þekkzt.
Þá kemur fram á sviðið
ungur oflátungur, sem ræðst
að þeim, sem mest og bezt
hafa þjónað þjóð sinni, ber
sér á brjóst og segir, að hann
og hans líkar verði að bæta
fyrir syndir feðranna. En
þessi „hetja“ gerir sér að vísu
ekki vonir um, að hann muni
afreka miklu á skömmum
tíma, því að bölið á að lenda
á börnum hans í framtíðinni.
Það má segja um þennan
dóm Tómasar Karlssonar um
störf þeirrar kynslóðar, sem
nú er að ljúka sínu dagsverki,
að gjafir eru yður gefnar. -
ÁRÁSIR Á
LANDBÚNAÐINN
Alltaf öðru hvoru hefur Al-
þýðublaðið uppi árásir á
mm
MYMSm.
i
_________________________________________________________________________________________________________________________________________________
'VWSSít^
Kolsýringur í hitunarkerfi
olli flugslysinu
við Perpignan í júlí, þegar 88 fórust
FLUGMENNIRNIR þrír í
brezku flugvélinni, sem fórst
í Frakklandi í júní s.I, munu
al'liir hafa orðið fyrir kolsýr-
ingseitrun, sem streymdi inn í
hitakerfí. flugstjómarklefans.
Um borð í vélinnd voru alls
88 og fórust allir.
Þetta eru niðurstöður ranm
sóknarnefndar, sem hefur
kannað orsakiir slyssins. Flug
vélin var tuttugu og fimm ára
gömul Douglas DC4, Skymast
er. Þetta var fyrra flugslys
af tveimur, sem brezkar leigu
flugvé'lar urðu fyrir á einum
sólarhring. Síðara slysið varð
við Stockport, í Cheshire og
þar biðu 69 manns bana.
f skýrslunni er því haldið
fram, að slysið hafi orðið fyr-
ir mistök áhafnarinmar eða
vanrækslu — og þessi mis-
tök megi rekja til að kolsýr-
ingseitrun hafi streymt út frá
biluðu hitakerfi.
f skýrslunni segir einnig að
hliðstæðar bilanir séu ekki
óþekkt fyrirbæri í DC4 vél-
um, en venjulega fylgi því
sterk eldsneytis'lykt, og hafi
því oftast reynzt gerlegt að
grípa til þeirra ráðstafana, að
taka hitakerfið úr sambandi.
Þegar talsmaður Samgöngu
málaráðuneytisins var að því
spurður, eftir að skýrsian
hafði verið birt, hvort ekki
yrðu gerðar einhverjar ráð-
stafanir til að koma í veg fyr-
ir að slíkt gæti eradurtekið
sig, svaraði hann því til, að
sendar hefðu verið út ná-
kvæmar fyrirskipanir til allra
sem réðu yfir flugvélum af
þessari gerð og ráðleggingar
um endurbætur, sem myndu
varna því að slíkt gæti gerzt.
Vélar af þessari gerðu eru
enn víða í notkun um ger-
va'llan heim og meðal annars
í Bretlandi, bæði í leiguflugi
og í iranaralandsflugi.
Vélin sem hér er fjallað um
í eigu flugfélagsins Air Ferry
sem nú hefur nýlega hætt
störfum. Vélin fór frá Manst-
on klukkan 5.30 fytrir hádegi
og flugstjóri var Ponald Pull
inger, 46 ára að a'ldri. Að-
stoðarflugmenn voru Edwards
Isaacs, 61, árs og Richard
Fisher, 34 ára að aldri. Þegar
klukkan var sex mínútur yf
ir níu flaug vélin iran í all-
mikið skýjaþykkni í grennd
við Perpignan og var þá
skyndilega komin í fjögur
þúsund feta hæð. Um svipað
leyti hafði flugstjóriran sam-
band við flugvöllinn en eftir
það hyerðist ekki framar til
vélarinnar.
Sýnishorn sem tekin voru úr
líkum áhafnarinnar sýndu 19.9
próserat kolsýrings hjá flug-
stjóranum og 11 og 6.3 prósent
hjá aðstoðarflugmönnum hans.
Það hefur áður verið staðfest
að kolsýringur langt undir 20
prósent hefur í för með sér
misskynjun á stjórnun hæðar
mæla flugvóla.
Útreikningar hafa sýnt að
flugmaður sem flýgur í 9.000
feta hæð með 18 prósent kol-
sýrings í blóðinu mundi hafa
ruglast svo í ríminu, að hann
taldi sig vera í allt að 17. þús-
und feta hæð. Sé þett haft
í huga má geta nærri að engan
þarf að undra þó að flugvél-
in hafi skyndilega verið kom-
in niður 1 4.000 feta hæð 0(g
hafi síðan hrapað skömmu
síðar.
landbúnaðinn og reynir með
öllum hætti að ala á tor-
tryggni á milli þeirra, sem
störf vinna til sveita og hinna,
sem við sjávarsíðuna búa.
Þessi iðja lýsir litlum þegn-
skap og raunar fullkomnu
skilningsleysi á þýðingu eins
af meginatvinnuvegum lands
manna.
Sem betur fer gerir þó allur
þorri manna sér ljósa grein
fyrir því, hve þýðingarmikill
landbúnaðurinn er, enda væri
fráleitt, að við framleiddum
ekki innanlands þær land-
búnaðarafurðir, sem við þurf-
um til eigin neyzlu. Er nú
raunar óttazt, að mjólkur-
skortur geti orðið Suðvestan-
lands-
Nokkur útflutningur sauð-
fjárafurða getur líka drýgt
tekjur landsins og raunar
ástæða til að ætla, að með
bættum vinnubrögðum og
stækkun sauðfjárbúa mundi
Útflutningur sauðfjárafurða
verða samkeppnishæfur á er-
lendum mörkuðum. Því er nú
svo komið, að við útflutning
sauðfjárafurða fást 77—80%
af innanlandsverði, og sú
hundraðstala mundi hækka,
ef verð á ull færi hækkandi,
sem vonir standa til. Sést af
þessu að ekki vantar nema
herzlumuninn til þess að
sauðfjárafurðir okkar íslend-
inga yrðu samkeppnishæfar á
erlendum mörkuðum. Stöðug-
ur fjandskapur í garð land-
búnaðarins er því í senn
ástæðulaus og ósanngjam.
Vestur-þýzkt eftirlitsskip
— til Neskaupstaðai
Neskaupstað, 9. desemtoer
HINGAÐ kom á sunnudag vest-
ur-þýzka eftirlitsskipið Fritjof
að sækja tvo þýzka sjómeran, sem
hér hafa legið í sjúkrahúsinu að
undanförnu.
Skip þetta, sem er 1300 toran,
er raú í aranarri ferð sirani, en það
annast eftirlit með þýzkum veiði
sfcipum á inorðurslóðum. Skipið
hafði hér aðeins stutta viðdvöl,
og vakti mikla atlhygli fyrir
glæsileika; en það rauo vera út-
búið öllum nýjustu og beztu
tækjum, sem stík skip þurfa að
hafa, m.a. til að veita lækraisað-
gerð
Á skipinu er 50 manraa áhöfin
og hjámanksiganghraði þess er 17
mílur. Heimalhöfra s'kipsins er í
Cuxhaven. — Fréttaritari.
Réttarhöldum Irestað
Yfir grískum hershöfðingja
Aþenu, 9. desemtoer. AP.
HERRÉTTI yfir griskum hers-
höfðingja, sem ákærður var fyr-
ir landráð, hefur verið frestað
um óákveðinn tíma. Hershöfðingi
þessi, Archimedes Argyropoulos,
er nú orðinn sjötugur og setztur
á helgan stein. Honum var gefið
að sök að hafa gert áætlun um
uppreisn 1967, í því tiifelli að
hægrisinnar reyndu að hrifsa
völdin frá flokki Georges
Papandreous, ef hann hefði sigr-
að í kosningunum, eins og búist
var við.
EDerinn tók völdin í sínar hend-
ur mánuði fyrir kosningar, til að
hindra að Paparadreou sigraði.
Þetta er í þriðja skipti á tveim
vikum sem réttarfhöldum aif þessu
taigi er frestað. Sagt er að Papa-
dopoullois, forsætisráðh erra, sé
reyna að bæta álit hieimisins á
Stjórn hanis, sem beið mikinn
álitshnekki vegraa rétbarhaldanna
yfir Alexarader Paraagoulis, sem
reyndi að háða forsætisráðherr-
aran af dögum. Panaigoulis var
dæmdur til dauða, en hætt var
við aftökuna vegna mótmæla-
öldu sem fór um ailan heiminn.
RÉTTARHÖLDUNUM gegn Sir-
han B. Sirhan, sem er ákærður
fyrir að 'hafa myrt Robert Kenne
edy, hefur verið frestað til 7. jan
úar til þess að lögfræðingar hans
fái tima til þess að undirtoúa
vörn hans. M klar öryggisráðstaf
anir voru gerðar í dag, Sirhan
kom fyrir rétt í stutta stund.
Átti það að vera upphafið að
réttarhöldunum yfir honum.
Málmleitartæki voru notuð til
þess að leita að hugsanlegum
földum vopnum á þeim, sem
fengu að koma inn í dómssal-
inn og fylgzt var nákvæmlega
! með því, hverjir fengu að fara
i þar inn.