Morgunblaðið - 11.12.1968, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. DESEMBER 1968
aði við hliðiö, fór Maigret sjálf-
ur til dyra og hvíslaði að Mo-
ers: — Farðu nákvæmlega yfir
allt húsið.
Og Moers, sem skildi hann og
sá hinn risavaxna líkama tann-
læknisins, tautaði:
— Heldurðu,að það komi hon
um úr jafnvægi?
— Já, það gæti komið ein-
hverjum úr jafnvægi, áður en
lýkur.
Fáum mínútum síðar hefði
helzt mátt halda, að uppboðs-
haldarar hefðu tekið húsið í sín-
ar hendur og væru I þann veg-
inn að bjóða upp það sem þar
var inni. Tæknimennirnir smugu
inn í hvern krók og kima tóku
niður myndir af veggjunum, ýttu
slaghörpunni til og svo hæg-
indastólunum, til þess að gægj-
astu undir gólfteppið, hrúguðu
upp skúffum úr skápum og
breiddu úr skjölum.
Einu sinni tóku þeir eftir
frú Serre, sem hafði komið í
dyrnar, en síðan dregið sig í
hlé með áhyggjusvip. En svo
kom Eugenie inn og sagði:
— Ég ætla að vona, að þið
setjið allt á sinn stað aftur?
Og hún sleppti sér enn meir,
þegar eldhúsið hennar sætti
sömu meðferð, jafnvel skápur-
inn, þar sem hún geymdi kúst-
ana.
— Ef þið vilduð bara segja
mér, að hverju þið eruð að gá.
En þeir voru einmitt ekki að
gá að neinu sérstöku. Og ef út
í það var farið, þá vissi Mai-
gert varla sjálfur, að hverju
þeir voru að gá. En meðan á
þessu öllu stóð, voru þeir að
hafa auga með manninum, sem
etli þá um allt og sást hvergi
bregða.
Hversvegna hafði María skrif-
að vinkonu sinni að Serre
væri raunverulega ekki annað
en yfir sig vaxinn skólastrák-
ur?
Meðan mennirnir voru að
þessu, tók Maigret símann og
náði í Dubuc læknL
— Eruð þér nokkuð að fara
út alveg strax? Get ég komið og
talað við yður? Nei, það tefur
yður ekki lengi. Þakka yður fyr
ir. Ég skal segja það við stúlk-
una.
Það voru fimm sjúklingar í
biðstofunni hjá Dubuc, og Mai-
gret fékk að koma inn um bak-
dyrnar. Þetta var skammt þarna
frá. Maigret fór þvi gangandi
en varð um leið gengið framhjá
járnvörubúðinni, þar sem búð-
29
armaðurinn frá deginum áður
kallaði til hans.
— Ætlið þér ekki að láta ljós
mynda höfuðbókina?
— Jú, bráðum.
Dubuc var maður um fimmt-
ugt með rautt alskegg og gler-
augu.
— Þér stunduðuð frú Serre, var
ekki svo?
— Jú, þá ungu. Eða ö'llu held
urþá yngri.
— En stunduðuð þér nokkurn
annan í húsinu?
— Látum okkur sjá. . . jú,
hreingerningakonuna, sem hafði
skorið sig á hendi. Fyrir tveim-
þrem árum.
— Var María Serre raunveru
lega veik?
— Já hún þarfnaðist meðferð-
ar.
— Hjartað?
— Já, of stórt hjarta. Auk
TIL LEIGU
Til leigu er hluti 2. hæðarinnar Tryggvagötu 8
(um 175 ferm.). Inngangur frá Tryggvagötu og Vest-
urgötu. Lyfta.
Upplýsingar gefa
lögmenn
Eyjólfur Konráð Jónsson
Jón Magnússon
Hjörtur Torfason
Sigurður Sigurðsson
Tryggvagötu 8
Símar 11164 og 22801.
íii heimilistæki sf.
HAFNARSTRÆTI 3SIMI20455
Stórkostlcgt úrval
af jólaskrauti
Jólakúlur — pakkaskraut — borðskraut
loftskraut — jólakransar — jólatré (greni).
- MIKIÐ ÚRVAL AF KERTUM -
- JÓLASERÍUR 20 TEGUNDIR -
ÖNNUMST SERIUVIÐGERÐIR =£8=*
Einnig mikið urval af gjafavörum, hár-
þurrkur, útvarpstœki, plötuspilarar, raf-
magnsrakvélar og margt fleira.
þess át hún of mikið og kvart-
aði um svima.
— Gerði hún oft boð eftir yð-
ur?
— Svo sem einu sinni á mán-
uði. En í hin skiptin kom hún
hingað.
— Fyrirskipuðuð þér nokkur
meðöl handa henni?
— Róandi meðöl... pillur. Eng
in eiturlyf.
— Haldið þér að hún hafi
getað fengið hjartaslag?
— Það er ólíklegt.. . en eftir
svona tíu til fimmtán ár . ..
— Gerði hún nokkuð til að
megra sig?
— Á fjögurra til fimm mán-
aða fresti ákvað hún að svelta
sig en sá ásetningur dugði henni
sjald nast lengur en svo sem í
firnm daga.
— Hittuð þér manninn henn-
ar?
FIFA auglýsir
Allar vörur á gamla verðinu
Úlpur, peysur, kjólar, skyrtur, terylene-
buxur, molskinnsbuxur, sokkabuxur,
nœrföt og sokkar.
Einnig regnfatnaður á börn og fullorðna.
Verzlið yður í hag. Verzlið í
FÍFU
Laugavegi 99,
(inngangur frá Snorrabraut).
11. DESEMBER
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Hvíldu þig ef þú getur, því að nú gefst þér tækifærið.
Nautið 20. príl — 20. mai
Þú vininur betur, því að ekki er eins ónæðissamt. Hvíldu þg,
þegar þú getur.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Reyndu að ljúka því, sem þú ert byrjaður á og greiddu
úr flækjum.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Athugaðu máilð í kvöld. Notaðu þér næðið.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Reyndu að nota þér ró, sem hvílir yfir öllu í dag, og skipu-
leggja fjárhaginn dálítið.
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Athugaðu hver ber ábyrgð á þvi, sem skeð hefur. Semdu
annaðhvort við þá, eða breyttu áætlun til að sniðganga þá. Hvíldu
þig eins og þú mátt.
Vogin 23. september — 22. október
Notaðu hvaða átyllu sem þú finnur til að sleppa frá störfum
í dag. Leitaðu betri innsýnar.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Notaðu kyrrð dagsins til að vinna upp það sem miður hefur
farið.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Nú er hægt að leiðrétta það sem miður hefur farið. Reyndu
að sýna sanngimi.
Steingeitin 22 desember — 19. janúar
Þér gengur vel í viðskiptum við þá sem fjarri eru. Þú skalt
virða möguleikana. Farðu snemma í rúmið.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Gerðu þér grein fyrir því, að þessi dagur er hagkvæmur
fyrir þá sem eru að ná þér.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Þú skalt vinna þin daglegu störf, ein nota tækifærið til a
gleðja aðra. Þú hefur gott næði til þess.