Morgunblaðið - 20.12.1968, Side 9

Morgunblaðið - 20.12.1968, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968 að telja að nýtt tryggingatímabil hefjist.“ Undir þetta skrifaði þáver- andi sjávarútvegsmálaráðherra, Lúðvík Jósefsson ásamt ráðu- neytisstjóranum. Hann hefur því eins og bæði fyrirrennarar hans 1 embættinu og þeir sem við tóku á eftir viðurkennt það, áð nauðsyn bar til að gera þama breytingu. Sama er það, sem nú- verandi ríkisstjórn hefur gert og komið til móts við útveginn með ýmsum uppbótum. Ég vil draga þetta fram, vegna þess að það hefur alltaf verið talsverður vandi að greiða úr þessum málum. Bæði fyrir og nseista ár eftir að vinstri stjóm- in var vfð völcl þurfti þannig að hafa þríþætta samninga. í fyrsta lagi samninga við ríkisvaldið um hvaða fríðindi útgerðin hefði til þess að hún gæti rekið bátana, í öðru lagi fiskverðsisamningar við sjómenn og í þriðja lagi kjarasamningar. Það er ek'ki rétt sem fram hef- ur komið í umræðum um þetta mál, að ríkisstjórnin hafi knúfð útvegsmenn og sjómenn til þess að gera nýja samninga eftir 1961. 1959 var leitað eftir því af sam- tökum útvegsmanna, að samn- ingamir væru endurskoðaðir með það fyrir augum að hægt væri að koma málunum þannig fyrir, að það væri sama verð sem væri skipt upp og tekjur sem kæmu fram. Það var hins vegar ekki fyrr en 1961 að þessir samn ingar tókust, og þá er einmitt samið me’ð viðmiðun við þann grundvöll er þá var fyrir hendi. Það frumvarp sem hér liggur fyrir á að leysa af hólmi kerfi sem verið hefur í sambandi við uppbótagreiðslumar og er gert ráð fyrir því að þegar fiskverð verður ákveðið verði fiskkaup- endum gert að greiða ákveðna prósentu í stofnfjársjó’ð, sem rennur til afborgana og vaxta- greiðslna útgerðarinnar. Og þvi til viðbótar er einnig gert ráð fyirir, að ákveðin prósenta verði einnig greidd af fiskkaupendum, sem gengur síðan beint til út- gerðarinnar og á að standa und- ir þeirn kostnaði sem gengis- breytingin leiðir af sér. I þessu fmmvarpi er farið eins hóflega í þessar sakir og nokkur mögu- leiki va,r til. Sá aukni kostnaður sem út- gerðin verður nú a'ð taka á sig, miðað við ákveðið aflamagn á árinu 1969, mun vera frá 17,9— 29,4%. Frumvarpið reiknar með 17%. Vissulega er það rétt sem fram hefur komið að tekjur útgerðar- innar og sjómanna hafa lækkað verulega. Hins vegar lítur dæm- ið ekki alveg eins út og það hef- ur verfð lagt fram af andstæð- ingum þessa fmmvarps, sem tala um 3 millj. kr. sem tekjumissi hjá sjómönnum, vegna þess að hjá mörgum bátum hefur verið um kauptryggingu að ræða. NAUÐSYN AÐ FULL ATVINNA HALDIST Matthías Bjarnason gerði í upp hafi ræðu sinnar nokkrar fyrir- spumir til sjávarútvegsmálaráð- herra, m.a. um orsakir þess að rækja hefur verið færð til í flokkum í útflutningsgjaldi. Síð- an sagði Matthías m.a.: Það er vissulega ánægjulegt hve mikla umhyggju stjómar- andstæðingar bera nú fyrir sjó- mönnum, en þeir þurfa einnig að bera umhyggju fyrir þessari stétt þegar þeir em í stjómar- aðstöðu, en þá hafa þeir orðið að grípa til sömu aðgerða og þeir eru nú að fordæma. Ég vil minna á það, að á ár- unnum 1952—1956 var um 15% munur á fiskverði að viðbætt- um gjaldeeyrisfríðindum ti] út- gerðarmanna og á skiptaverði til sjómanna. Hið raunverulega verð til útgerðarmanna var þá 1,26 kr. á fyrsta flokks fisk, en til sjómanna var verðfð þá 1,95 kr. 1957 var fiskverð til útvegs- manna 1,15 kr. auk verðbóta er námu þá 47 aurum pr. kg., eða samtals 1,62 kr. en skiptaverð til sjómanna var á sama tíma 1,38 kr. Munurinn var þá 21%. Árið 1958 var þessi munur 20%, á ár- inu 1959 var hann 24% og á ár- inu 1960 varð breyting á hluta- skiptum og fullt fiskverð var greitt til beggja. Á árinu 1961 breytast kjara- samningar sjómanna og ég hygg að síðan hafi sjómenn haft í raun og veru hærri hlutdeild úr brúttóafla en áður. Það er alveg rétt sem vikið hefur verið að í umræðunum að engin stétt hefur misst jafnmik- ið af sínum tekjum og sjómenn, sökum þess hve aflinn hefur minnkað sl. tvö ár. En það breytir ekki þeirri staðreynd að ástandið var orðið þannig hjá útgerðinni og fiskvinnslunni í landinu að það varð að gera rót- tækar rá'ðstafanir til þess að út- flutningsatvinnuvegimir stöðv- uðust ebki með öllu. Og með gengisbreytingunni og þessum hliðarráðstöfunum er reiknað með því að útgerðin geti gengið áfallalaust miðað við það, að méðalafli haldist. Auðvitað verður hvorki hægt að skapa út- gerð eða öðrum atvinnugrein- um neinn grundvöll, ef afli bregzt verulega eða að öllu leyti Eg er hræddur um það, að ef sjó menn hefðu nú fengið að njóta áhrifa gengisbreytingarinnar að öllu leyti, þá hefðu aðrar stéttir í þjó'ðfélaginu engan veginn sætt sig við það og þar með hefðu þessar ráðstafanir að engu orðið á stuttum tíma. Við vitum það, að þjóðin hef- ur orðið fyrir miklum áfölkim — að útflutningsverðmætið hef- ur fallið úr yfir 6 milljarða kr. íuorn 3 milljarða kr. Þetta hlýtur að koma við alla þjóðina, og þá sjómenn sem aðra. Við verðum fyrst og fremst að gera nú harð- ar ráðstafanir til þess að halda uppi atvinnu í landinu og ég hygg að þa'ð sé miklu meira virði bæði fyrir sjómenn og verkamenn að atvinna verði nægileg, þótt lífskjörin versni. Það kom fram í ræðu Lúðvíks Jósefssonar að útflutningsgjald af sjávarafúrðum rynnu til vafa samrar starfsemi og hann lýsti því yfir í ræðu sinni að hann vildi algerlega hverfa frá útflutn ingsgjaldinu og fella það niðuir. Ég vil minna þingmanninn á Margar nýjar gerðir at kvenskóm það, að þegar hann ré’ði þessum málum voru greidd vátrygginga- iðgjöld fiskiskipa á svipaðan hátt og nú. Og þá komu einnig framlög í fiskveiðasjóð og hluta- tryggingasjóð og aðrar greiðslur sambærilegar við greiðslur af út- flutningsgj aldi eins og það er nú. Ég hygg, að enginn ágrein- ingur sé um það innan útvegs- ins að útflutningsgjaldið eigi áð taka með þessum hætti og standa undir þeim greiðslum sem því er nú ætlað að standa undir, en 80% af því fer til greiðslu á vátryggingariðgjöldum fiski- skipa, 12,7% til fiskveiðasjóðs og í aðra starfsemi fer 7,3%. ÞJÓÐIN A ÖLL AÐ TAKA A SIG AFÖLLIN Hannibal Valdimarsson sagði að þær 'bjrrðar sem frumvarpið gerði rá'ð fyrir að lagðar yrðu á sjómenn, væru ekki sanngjamar. Þjóðin öll ætti að taka á sig áföllin. Þá væri farin mjög óæski leg leið í þessu máli, þar sem engin tilraun hefði verið gerð til þess að semja við sjómennina áður en þetta ákvæði var tekið inn í lögin. Mikið væri rætt um það, að ef ekki fengist gengið frá hlutunum á þennan hátt mundi útgerðin stöðvast, en vert væri að vekja athygli á því að með samþykkt frumvarpsins skapaðist sú hætta -að sjómenn fengjust ekki á flotann vegna launakjaranna. Það var af hálfu A.S.Í. og sjó- mannasamtakanna reynt að fá ríkisstjórnina til að fresta af- greiðslu frumvarpsins meðan samningaleiðin væri reynd, en við þvf fengust engin svör önn- ur en þau að ekki yrði hafður á óeðlilegur hraði við afgreiðslu þess. Mikil bót var þó að breyt- ingu sem gerð var á frumvarp- inu, þess efnis að samningar við sjómenn renna út um leið og frumvarpið er samþykkt, en aug- ljóslega verða allir samningar erfiðari eftir að búið er að setja slík lög. Ég er viss um að sjó- menn hefðu verið hógværir og sanngjarnir ef samningaleiðin hefði verið farin. Þeir hafa jafn- an sýnt það að þeir eru tilbún- ir að axla sitt þegar leggja þarf byrðar á þjóðina. Frjáls samn- ingaleið er alltaf farsœlust í ákvörðun um kaup og kjör, en ríkisstjórnin valdi ekki þá leið, að þessu sinni. ÁVAXTAMARKAÐUR 10 kg. appelsínur kr. 330, ananas kr. 37.40, kílódós, jarðarber kr. 49.75, kílódós og kr. 27.40 hálfdós. Ódýrar sultur, ódýr aspas kr. 23.10, ódýr grænn aspas kr. 34, ódýr appelsínusafi kr. 36 flaskan, ódýrt kakó, piparkökur kr. 19 pakkinn, hafrakex kr. 19 pakkinn, tekex kr. 15.55, Santos kaffi kr. 32.50 pk. Vínber, grapefruit, mandarínur, perur og sítrónur. Matvörumiðstöðin, Lœkjarveri Laugalæk 2, horni Lau galækjar og Rauðalækjar. Leðurstígvél kurlmunnu loðföðruð, með og ön rennilass. Mjög vönduð vora — hogslætt verð Skóverzlun Péturs Andréssonur Laugavegi 17, Laugavegi 96, Framnesvegpi 2. DRENGJASKÓR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.