Morgunblaðið - 20.12.1968, Side 19

Morgunblaðið - 20.12.1968, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 20. DESEMBER 1968 19 Heilbrigðisþáttur TVISVAR tveir eru fjórir. Styzta leið milli tveggja punkta er bein lína. Speigli er haldið að viitum manns — engin móða, ekkert líf. Önd- unin hætt. Líf og öndun fara saman. Allt sjálfsagðir hlutir. Samt gegnir furðu, hvað það gleymist oft, þegar menn eru sjúkir, að aðgæta hvort önd- unin sé í lagi. Fóik virðist einkennilega tomæmt á þessi auigljósi grundvallarsannindi: Engin fruma í líkamanum getur starfað eðlilega, ef hún fær ekki það súrefni sem hún þarfnast. Lítum á venjulegt kerti. Það er sama hversu gott er í því efnið, það er engin leið að láta það loga án súrefnis. Og sé súrefni ófullnægjandi ósar á kertinu. Það er fullt af fólki, sem kallast lifandi, sem ósar á — sem er veikt, af því að frumurnar í líkama þess fá ekki nægitegt súrefni. Það er sama, hversu til fæðis er vand að eða bætiefnum sóað, það ósar á þessum mannkertum svo lengi sem frumurnar í líkamanum fá ekki nægilegt súrefni til að vinna rétt úr öðrum efnum orkuna, sem þær þarfnast til að gegna hlut verki sínu til fullnustu. Heil- intn þarfnast þess ekki síður en önnur líffæri. Útivist og góð öndun er undirstaða góðra afkasta . einnig þar Þetta sannaðist á Aþeninigum, sem voru mestir atgervismenn til líkama og sálar á seinni tíð. Svo geta menn sjálfir reiknað út, hvort hollara muni lítilli þjóð á þessum tíma, að moka í sig róandi lyfjum til að deyfa einkenni frá sveltandi og hálfkæfðum heilafrumum eða að hreyfa sig meira og anda betur. Til þess að frumurnar fái sitt súrefni greiðlega, er ýmis- legt, sem þarf að vera í lagi. í fyrsta lagi þarf loftið að vera gott, nægilegt súrefni í því og ekki eiturefni, sem spilla því. Þessu sýna menn lítilsvirð- ingu á margvíslegan hátt. í borgum spilla þeir lofti með útblæs'tri bifvéla og ólofti frá verksmiðjum. í heimahúsum sofa þeir við lokaðá glugga í yfirhituðum herbergjum. Og verst af öllu, þeir svæla heils una út úr símum eigin líkama með tóbaksreyk, sem inniheld ur mörg skaðleg efni: nikotin, sem dregur saman æðar og slævir blóðrás, kolsýring (kolmonoxyd), sem dregur úr hæfni bióðsins til súrefnis- flutninigs og síðast, en ekki sízt ýms tjöruefni, ’sem sann- að er, að valda oft krabba- meini. Samt reykir fólk, sem telur sig hafa fulla greind og full't vit. Súrefnið úr loftinu þarf að komast niður í lung- un, gegnum himnur þar og yfir í blóðið, sem skilar því í vökvann, sem . frumurnar fljóta í og þaðan áfram inn í frumuma. Þar er umbreyting- arverksmiðjan, sem vinnur orku, sem fæst fyrir svonefnd an bruna súrefnisins. Allt verður þetta þó fyrir svo ótrú lega margbrotinni efnaþörf að undrun sætir, og margt er þar torskilið enn. Það gegnir yfir- leitt furðu, hversu allt er samstillt í þessari miklu efna- verksmiðju, sem hefur ótrú- lega hæfni til að gera við bil- anir í sjálfri sér, ef undirstöðu lögmál náttúrunnar eru skil- in og virt. Heilbrigðisfræðin mun vafa- lítið gefa önduninni meiri gaum eftir því sem stundir líða. Til þess bendir vaxandi áhugi á aukinni líkamsbreyt- ingu. Hreyfing er einmitt öruggasta leiðin til bættrair öndunar, betri súrefnisflutn- ings og þar með fullnægjandi orkuvinnslu frumunnar. Sú orkuvinnsla er frumskilyrði góðrar heilsu. Þessvegna verð ur fleira sagt um þetta efni í næsta þætti. Physicus. Skíðulyftan ó ísnfirði gefur út nlmanak fsafirði, 16. des. — Skíðalyft- an á ísafirði hefur nýlega gefið út mjög smekklegt almanak til ágóða fyrir starfsemina. I því eru myndir frá fsafirði og ná- grenni, teknar af Leo Jóhanns- syní, Svanberg Jakobssyni og Kristjáni Jóhannssyni. Skíðalyftan á Seljalandsdal var fekin í notkun í janúarmánuði sl. og hefur hún tvímælalaust stóraukið áhuga almennings á skíðaíþrótt, eins og hin mikla að- sókn að lyftunni hefur sýnt, og einnig hefur lyftan stórbætt að- stöðu keppnismanna til þjálfun- ar. Almanakið er prentað í Prent- stofunni ísrún og hefur hinn góð kunni skíðakappi, Árni Sigurðs- son, prentari, séð um uppsetn- ingu og frágang þess. A'lmannakið hefur verið selt í bænum og verið fáanlegt í bóka verzlunum hér og verður sent viða um land til sölu. H. T. Breyting ú skóln- kostnoðnr- lögunum Á FUNDI neðri deildar á laug- ardaginn mæltj Gylfi Þ. Gísla- son, menntamálaráðherra, fyrir frpumvarpi um breyting á lög- um um skólakostnað. Frumvarpið kveður á um að á árinu 1969 skiuli framlög til nýrra skólamannvirkja skiptast á 4ra ára greiðslutímabil vegna hverrar framkvæmdar. f lögum um skólakostnað, sem samþykkt voru á Alþingi í apríl 1967, er ráð fyrir því gert að framlög ríkisins til skóla- mannvirkja skiptist á 2—3ja ára greiðslutímabil vegna hverrar framkvæmdar, en samkvæmt fyrri lögum var um 5 ára greíðslutímabil að ræða. Var ætlunin, að fjárveitingar til nýrra skólamannvirkja í fjár- lögum fyrir árið 1969 væru miðaðar við 3ja ára greiðslu- tímabil. Við meðferð fjárlaga- frumvarpsins hefur komið í ljós, að það mundi valda óeðlilegri röskun að stytta greiðslutíma- bilið skyndilega úr 5 árum í 3. Mundi það hafa í för með sér meiri fækkun nýbygginga en eðlilegt er, miðað við núverandi aðstæður. Er því í frumvarpinu gert ráð fyrir, að stytting greiðslutímabilsins sé gerð í áföngum, þannig að það verði 4 ár í sambandi við þá skóla, sem byrjað verður að byggja á næsta ári, en 3 ár frá og með árinu 1970. Viceroy Filter. I fararbroddi. 9.00 “Mætt á skrifstofuna”. 12.60 “Byggingaráætlun rædd á leið til næsta stefnumóts”. 15.15“vi3 brúna með yfirverk- fræðingi og eftirlitsmanni. Viceroy fyrir alla”. Ekki of sterk, ekki of létt, Viceroy gefur bragðið rétt... 0 rétt hvaða tíma dagsins sem er! 17.30“Áríðandi fundur um nýja byggingaráætlun”. _ J.NU11U Di\.t5Illlllllltígb SJOIIIGIKS j eftir erilsaman dag—og ennþá bragðast Viceroy vel”.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.