Morgunblaðið - 20.12.1968, Side 24
24
MORGUNBLAÐffi, FÖSTUDAGUR 20. DESEMSBER 1968
Athyglisverð bók
Estelle Roberts: jVHÐILL í 40
AR. Saga af lífi og starfi eins
fremsta miðils sem uppi hefur
verið. Grágás. Keflavík.
SUMIR þeirra, sem amast við
spíritlsma, þykjast gera það af
vísindalegum ástæðum, segja að
þetta séu trúarbrögð en ekki vís-
indi. Þeir, sem hins vegar amast
við honum af trúarlegum ástæð-
um, telja að hér sé um að ræða
algertt trúleysi: Menn vilji vita
en ekki trúa. En þar sem ekki
sé unnt að vita neitt um hinztu
leyndardóma, verði menn að
ta'ka það allt með trúarinnar aug
um, þó ekki sínum eigin 'heldur
manna, sem lifðu á löngu liðn-
um öldúm. Þeir telja sig vita
það, að efalaust hafi þeir verið
verið óskeikulir, sem stóðu að
samningu kirkjuþingssamþykkta
í grárri forne9kju. í>eir skildu
skaparann. Og hinn „trúaði“ Jón
Jónsson skilur trúfræðinga for-
tíðarinnar. Af þessu verður að
draga þá ályktun, að þessar trú-
aPhetjur nútímans, sem aldar
hafa verið upp í heimatrúboðs-
félögum, slagi talsvert upp eftir
guði.
Þannig rekur eitt sig á annars
horn. Og svo má ekki kalla þetta
sálarrannsóknir, því að hinn trú-
aði Jón Jónsson veit allt um sál-
ina, sem hann (hiefur þó aldrei
reynt að vita neitt um, og hinn
vísindalegi og vantrúaði Jón Jóns
son veit svo mi'kið, að engin sál
er til, og gerir sér þess vegna
ekkert far um að kynna sér mál-
ið. Þeir, sem það gera, eru ann-
að hvort frámunaleigir sivikarar
eða einfeldningar nema hvort
tveggja sé.
Staðreyndirnar eru þó þær, að
flest meiri hiáttar trúarbrögð, og
þar með talinn kristindómurinn,
stafa frá sams konar fyrirbærum
og spiritisminn fjallar um og sál
arrannsóknir eru að reyna að
kynna sér. Þau stafa frá vitrun-
um og ,,opinberunum“, sam-
bandi við annars heims verur,
æðri og lægri, er menn þykjast
hafa komizt í kynni við. Sjálfur
sagði Jesús, að „Faðirinn" væri
i sér, og að þau orð, sem hann
talaði, talaði hann ekki af sjálf-
um sér, heldur var það hin æðri
vera („Faðirinn") sem talaði fyr
ir murun hans. Þessu þykjast
kristnir menn trúa enn þann dag
í dag. En þegar vitranamenn nú-
tímans halda einuhverju líku
fram, telja „kristnir" menn það
Estelle Roberts.
svik eða hégóma í stað þess að
rannsa’ka málið betur. Hví skyldi
það vera nokkur fjarstiæða, að
það, sem hefur gerzt, geti gerzt
aftur og aiftur? Hlví skyldi „fað-
irinn“ hafa hætt að tala við
mannkynið fyrir tvö þúsund ár-
um? Ekki veit ég betur en ka-
þólska kirkjan að minnsta kosti
hafi ihaft nokkurt samfoand við
engla og anda allan þennan tíma,
þó að prótestantar hafi verið of
stórir upp á sig til að virða þá
viðtals og hent £ þá blekbyttu
að dæmi Lúthers meistara síns,
og haldið þá vera tóma djöfla,
sem sæktust eftir samfoandi við
sig.
Þegar þess er gætt, að spíri-
tisminn er í raun og veru jafn-
gamall trúarbrögðunum og hef-
ur ávallt verið aflvaki þeirra,
væri það ekki nema eðlilegt, að
„trúaðir" menn, sem væru það
meira en að nafninu til, hefðu
áhuga fyrir hon.um af vísinda-
legum ástæðum, því að trú og
vísindi eru tengdari hvort öðru
Vöruskemman Grettisgötu 2
Nýjar vörur daglega, sama lága verðið.
Hárþurrkur frá kr. 650, hárþurrkuhjálmar kr. 1170, herrasokkar kr.
39, barnasokkar kr. 25, crepesokkar kr. 25, nælonsokkar kr. 25, nær-
föt kr. 30, svæfilsver kr. 35.
Mikið úrval af herra-, dömu- og barnapeysum á kr. 50 til kr. 495.
Arinsett úr kopar kr. 590. Alls konar gjafastyttur frá kr. 165 til kr. 750
og margt fleira.
Glæsilegur bókumorkaður ú I. hæð
Bambækur frá kr. 25 — kr. 85.
Kaupið ódýra jólabók handa bömunum.
Leikiangnmurkuður II. hæð
Mikið úrval af leikföngum tekið upp daglega.
Kynnið ykkur hið ótrúlega lága verð.
Skómurkuður II. hæð
Mikið úrval af inniskóm. — Gerið góð kaup.
Vöruskemmun Grettisgötu 2
Klapparstígsmegin.
en menn gera sér að jatfnaði ljó®t.
Menn geta naumast trúað öðru
en því, sem þeir halda að sé rétt.
Þetta á líka við um vísindamenn.
Á seinni hluta 19. aldar og fram
ytfir aldamót gátu þeir ekiki trú-
að á annað líf en það, sem þeir
gátu séð og þreifað á, af því að
þeir fundu því engan stað í heims
mynd sinrii. Þess vegna var efnis
hyggjan þeiirra trú. N'ú er hieims-
mynd visindanna orðin ailt önn-
ur, og hver veit nema þau kom-
ist svo langt, að þau uppgötvi
einhivem daginn þessa aðra ver-
öld andanna, sem trúarbrögðin
hafa löngum haldið fram að til
sé. Margs ihafa menn orðið vís-
ari af rannsóknum. Er ekki hugs-
anlegt, ef farið væri að gefa
þesisu meiri gaum en verið hetfur
nú um sinn, að ýmislegt kynni að
verða uppgötvað? Það er eins og
sumir haldi, að fara eigi með
trúarbrögð sem eins konar
feimnimál, sem helzt ekki megi
ræða um blátt átfram eða af sann
leiksást, heldur eigi hver maður
að prédi'ka sína kreddu með ein-
hverjum hátíðlegum óskeikul-
leik, sem ayndsamlegt sé að
draga í efa. Hvar væru „vísind-
in“ á vegi stödd með slík vinnu-
brögð?
Rétt er að viðurkenna, að
nokkrir atf allra fremstu efnisvíS-
inidamönnum Breta fengu á öld-
inni sem leið lofsverðan áhuga
fyrir sálarrannsóknum. Að vísu
h'ófu margir þeirra í fyrstu rann
sóknir á þessu sviði í þvi 'Sikyni
að „tfletta ofan a'f svikum“, sem
þeir héldu að brezkir miðlar
hefðu í frammi. En flestir end-
uðu með því að 'sannfærast um
raunveruleik fyrirfoæranna og að
þau störfuðu frá framliðnum
mönmum. Meðal Breta hefur og
þessu máli verið mestur gaumur
gefinn, jafnvel atf kirkjunni, og
þar hafa um áratugi verið starf-
andi hinir merkustu miðlar.
Ég er viss um, að hleypidóma-
laust fólk, sem les með athygli
sjálfsævisögu Estelle Robert®:
Miðlll í 40 ár, mun ekki aðeins
hafa atf því ánægju heldur og
margvíslega fræðslu um, hvem-
ig sálarrannsóknir eru stundaðar
af almenmingi, og hvers menn
geta orðið vísari, ef þeir fást til
að getfa þessu máli gaium. Þessi
völva hefur verið ein atf fremstu
miðlum Breta um áratugi og vak-
ið geysilega athygli með hæfi-
leikum sínum. Segir þarna frá
alls konar tegimdum dulrænna
fyrixbæra: Skyggnilýsingum, dul-
heyrn, hlutskyggni, huglæfcnimg-
um og líkamningum. Frá bam-
æsku hatfði frúin samband við
eilífðarverumar, sá þær og tai-
aði við þær, en foreldrarnir í-
mynduðu sér út frá vísindalegum
rétttrúnaði þeirra tíma, að hún
hlyti að vera stórlega biluð. Hún
fór tii miðla, sem sögðu henni að
hún hefði óvenjulega hætfileika
á því sviði og sögðu henni að
fara heim til sín, setjast við
borð og sjá, hvort ekki færi eitt-
hvað að gerast. Þetta gerði hiún
á hverjum degi í heila vibu, en
ekkert gerðist. Þá ýtti hún bodð-
inu upp að vegg og hét að koma
ekki nærri slíku káki framar.
En sjá: Er hún gekk snúðugt til
dyra, elti borðið hana, og andinn
Red Cloud, sem borðið hreyfði,
birtist henni í skærri birtu og
mælti: „Ég er kiominn til að
þjóna heiminum. Ef þú þjónar
mér mun ég þjóna þér.“ „A
þessari stundu skynjaði ég segir
völvan, að allt sem gerzt hafði
í lífi mínu til þessa: mótlætið,
stritið, sborturinn og þó sérstak-
lega raddímar, sem ég heyrði —
allt var þetta með ráðum gert
og fyrirfram ákveðið . . . Nú
hafði ég fengið óyggjandi sönn-
un fyrir því,að hið eina og sanna
lífsstarf mitt var í þann veginn
að hefjast." Nú mundu þeir
segja, sem amast við spíritisma,
án þess að hatfa nærri honum
kornið, að þetta, sem kom fyrir
þessa merkilegu komu, hatfi efcki
verið annað em brjáilæði og vit-
leysa. En annað sögðu þúsund-
imar, sem komu til hennar ár
etftir ár til a'ð sækja til hennar
sönnun fyrir ódauðleik ástvina
sinna og þar með huggun og
styrk til Mfsbaráttunnar, sem
þeir sannfærðust um að háð
væri tii einhverrar vonair. Annað
segja þeir, sem margsinnis hafa
hortft á svipuð fyrirbrigði hjá
öðrum miðlum, þó að kannski
væm þeir eigi gæddir eins rnikl-
um hætfileikum og þessi kona.
Hvað mundir þú segja lesandi
góður, ef skrifborðið þitt tæki
upp á því einhvern góðan ve<ður-
dag að elta þig út að dyrum?
Mundi ekki koma að þér etfi,
hvort eittbvað kynni ekki að
vanta í þá heimsmynd, sem efnis
vísindin héldu lengi fram og enn
eimir eftir atf í hugum alþýðu?
Hvort við köllum það sálar-
rannsóknir eða eimhverju öðru
nafni, skiptir það mestu máli að
gefa þessum atbuirðum gatum og
kynna sér þá rækilega. Jafnvel
ýmisir, sem ekki nema Jíitið hafa
kymnt sér málið, hatfa sé'ð hluti
eins og borð hefjast á loft og
hendast af stáð, án þess að nokk-
ur sýnileg hönd hreyfði við því.
Þetta gerðist fyrir fimmtáu árum
í Tilraumafélaginu svo nefnda,
þegar allt var á tjá og tundri og
jafnvel tveir fullhraustir karl-
menn urðu að liggja ofan á
Indriða til ða missa hann ekki út
í loftið. Þá skildu ýmsir mestu
gáfumenn landsins eins og Einar
Kvaran og Haraldur Níelsson,
'hvað málið var merkilegt, þó að
flón og fáráðlingar gedðu skop
að eins og ávallt verður.
í bók Estelle Roberts segiir frá
fjöldamörguim sönnunum fyrir
því, að látnir lifa. Þar segir og
frá vitrunum og læknimgum lík-
um þeim, sem gerðust á postula-
tímanum, og er bókin enn merki
legri fyrir þá skuld, að þama eir
fyrirbrigðunum lýst frá reynslu
mi'ðilsims sjálfs, auk þess sem
hún tilfærir vitnisburði margra,
sem ti'l hennar komu og fengu
þar samnaniir sem nægðu þeiim.
Völvan lifir í líku andrúmslofti
og frumkristnin, þegar slíkar
lækningar og opinberanir voru
daglegt brauð, og postuiamir
læknuðu í krafti Krists, sem vair
þeirra léiðsögumaður.
Og á engan hátt sýnist mér
guðfræði Skýja-Rau'ðs (Red
Cloud’s) verri en t.d. guðfræði
Bartlhs:
„Mundu, að ekikert er æðra í
lífinu en að geta séð fegurð
guðsríkis. Þú getuir séð hama í
einföldu blómi, lit þess og lögun.
Gakktu upp á fjall, horfðu á
sólsetur, og hjarta þitt mun fylli-
ast rósemd. Horfðu á litadýrðina,
þegar sólin hvertfur hægt og
hægt bak við fjallið. Reyndu áð
skynja hina ólýsamlegu kyrrð og
fegurð. Þá hetfurðu fundið guð.
Farðu á fætur í momgumsárið,
stattu í döggvotu grasi og horfðu
á nýjan dag rísa. Hörtfðu á fugl
hefja sig til flugs, setjast á grein
og syngja í morgunkyrrðimni. Þá
hefurðu fundið guð. Hlustaðu á
hlátur bams og leik og sjá'ðu
hvemig það hleypur til móður
sinnatr. Þá hetfurðu líka fundið
guð.
Megi ég alltaf finna í veröld
þinini fegurð guðs og vizku ríkis
hans í líki þessa eimfalda orðs —
kærleikur."
Engan mun iðra þess að lesa
þessa bók. Hún getur vakið fleiri
menn til raunverulegrar trúar
en heil hersing hversdagslegra
guðfræðiriita.
Þýðingin virðist vera lipur-
lega af hendi leyst, en hana hef-
ur Gylfi Gröndal annazt.
Benjamín Kristjánsson.
Glerverk Hjálmholti 6 auglýsir
2ja mm rammaglerið komið ásamt 3ja—4ra—5 mm
rúðugleri. Sími 82935.