Morgunblaðið - 07.01.1969, Side 1
24 SIÐUR
4. tbl. 56. árg.
ÞltlÐJUDAGUR 7. JANUAR 196«
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Talið fullvíst að
Smrkovsky víki
— Orðrómur borinn til baka um að
sovézkir hermenn hafi búið um
sig í verksmiðjum í Prag
Prag, 6. jan. NTB.
TALSMAÐUR tékknesku stjórn-
arinnar bar í kvöld til baka þann
orðróm, sem hafði gengið í höf-
uðborginnl, að sovézk herfylki og
stríðsvagnar hefðu hreiðrað um
sig í helztu verksmiðjum í borg-
inni. Hafði verið haft fyrir satt,
áður en þessi yfirlýsing var gef-
in út, að sovézkir hermenn hefðu
fengið fyrirmæli um að búa um
sig í verksmiðjum til að bæla
niður hugsanlegar mótmælaað-
gerðir í sambandi við væntanlega
afsögn Josefs Smrkovskys, for-
seta tékkneska þjóðþingsins, en
hann mun nú að hverfa úr því
embætti, að því er telja verður
nær fullvíst.
Stjórnin í kommúnistaflokkn-
um í Bæjaralandi og Mæri
samþykkti í kvöld að for-
seti hins nýja þjóðþings
landsins skuli vera Slóvaki en
mælti með því, að Smrkovsky
yrði fengið í hendur embætti
varaforseta þess.
Ýmsar blikur virðast á lofti í
Tékkóslóvakíu, þar sem sýnt er
að Smrkovsky verði látinn víkja
Jóhannes Nordal
úr embætti og um allt land hafa
verið haldnir fjöldafundir, þar
;em afdráttarlausum stuðningi er
'ýst við hann.
Smrkovsky hélt sjónvarpsræðu
á sunnudagskvöld, þar sem hann
bað menn gæta stillingar og
kvaðst ófús hafa dregizt inn í
þessi átök og honum væri
mjög á móti skapi, ef efnt yrði til
verkfalla eða mótmælaaðgerða
hivers konar, þó að hann viki úr
embætti þjóðþingsforseta.
Flokksmálgagnið Rude Pravo
sagði í forystugrein á miánudag,
að ágreiningurinn um embætti
þingforseta væri kominn í al-
gera sjálfheldu og væri liður í
aðgerðum, sem aðeins gætu kom-
ið þeim til góða sem óskuðu eftir
verkföllum og óeirðum. Æsku-
lýðsblaðið Mlada Fronta sagði í
dag, að óvissan og ringulreiðin í
landinu stafaði fyrst og fremst af
því að að almenningi væru ekki
gefnar fullnægjandi upplýsingar
um framvindu mála.
Ben Belln
sleppt?
BEN BELLA, fyrrverandi for-
seta Alsír, kann að verða sleppt
úr haldi innan skamms. Hann
hefur verið fangi síðan honum
var vikið frá völdum í júní 1965.
f fréttum frá Alsír segir, að móð
ir hans hafi fengið að heimsækja
hann 1. janúar og hafi honum
þá liðið vel, enda hlotið góða
meðferð.
Menntamálaráðherra
S-Vietnam myrtur
Saigon AP. 6. jan.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA
Suður-Vietnam, Le Minh Tri,
lézt í dag af sárum er hann hlaut
þegar sprengju var varpað að
bifreið hans fyrr um daginn. Tri
sem var læknir að menntun
hafði aðeins gegnt embætti
menntamálaráðherra í þrjá mán-
uði.
Atburðurinn var í miðborg
Saigon og ódæðismennirnir kom
Ust undan í mannþrönginni. Bif-
reiðarstjóri ráðherrans lézt einn-
ig og lífverðir hans tveir og
nokkrir vegfarendur' særðust.
Sjónarvottar sögðu, að tveir
ungir menn hefðu varpað
sprengjunni og er talið víst að
þeir hafi vei'ið útsendarar komm
únista. Við atburðinn fengu þær
sögur byr unair báða vængi að
Viet-Cong menn hygðu á stór-
aukna hryðjuverkasrtarfsemi í
Saigon og í undirbúningi væri
meiri háttar árás á borgina.
Frá útför Tryggve Lie í brenn ingarkirkju í Osló í gær. Nánir
ættingjar hins látna sjást vinstra megin á myndinni, en til hægri
er Ólafur konungur, ríkisarfinn og kona hans.
Virðuleg útför
Trvggve Lie
Osló, AP. NTB. 6. jan.
ÚTFÖR Tryggve Lie, fyrsta fram
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna, var gerð frá Þrenningar-
kirkju í Ósló í dag, að við-
stöddu fjölmenni. Hubert Hump-
hrey, varaforseti Bandaríkjanna,
kona hans, og dóttir Trumans,
fyrrum Bandaríkjaforseta voru
meðal þeirra, sem komu til Osló
til að vera við útförina. ÖIl Norð
urlöndin áttu og fulltrúa við út-
förina og viðstaddur var og Ólaf-
ur konungur, Haraldur rikisarfi
og Sonja prinsessa, og fleira tig-
inborið fólk. Ralph Bunche, að-
stoðarframkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna var sérlegur
fulltrúi U Thants og Sameinuðu
þjóðanna við athöfnina.
Athöfnin í kirkjunni var virðu
leg og auk Fridtjovs Birkelis,
biskups, sem jarðsöng og flutti út
fararræðuna, fluttu þeir stutt
ávörp í kirkjunni, Per Borten,
forsætisráðherra Noregs og
Gjaldeyrisstaöan hefur batnaö um
650 milljónir króna s.1.2 mánuði
— Viðtal við Jóhannes Nordal Seðlabankastjóra
MORGUNBLAÐIÐ hefur snúið
sér til dr. Jóhannesar Nordal
Seðlabankastjóra og spurt hann
um áhrif gengisbreytingarinnar á
gjaldeyrisstöðuna og afkomu
okkar gagnvart útlöndum sl. ár.
Gjaldeyrisstaðan versnaði í heild
á sl. ári um nálægt 1300 millj-
ónir króna miðað við núver-
andi gengi, en hins vegar varð
mikil breyting á við gengisfelling
una, þannig að gjaldeyrisstaðan
batnaði síðustu tvo mánuði árs-
ins um nálægt 650 milljónir
króna. Fer hér á eftir viðtalið
við bankastjórann.
— Hverjar urðu breytingarnar
á gjaldeyrisstöðunni sl. ár?
— Enn sem komið er eru eng-
ar endanlegar tölur fyrir hendi
um gjaldeyrisstöðuna og þróun
gjaldeyrismála. Hins vegar er
'ljóst, eins og margbent hefur
verið á, að mjög mikill greiðslu-
'halli varð á árinu í heild, enda
mun útflutningur hafa minnkað
ium 25% frá 1967, en 45% miðað
Við 1966. Þessar tölur sýna þó
engan veginn að fullu hið raun-
verulega tekjutap, sem útflutn-
ingsatvinnuvegirnir hafa orðið
fyrir á þessum tveimur árum, því
að þrátt fyrir minnkun útflutn-
ingstekna hefur orðið tiltölulega
lítil læk'kun á heildarframleiðslu
kostnaði þessa atvinnuvegar. —
'Þannig hefur verið áœtlað að
lækkun þeirra nettó gjaldeyris-
tekna sem útflutningsatvinnuveg
irnir færa þjóðarbúinu nemi um
55% frá 1966 til 1968.
— En hvernig hefur þróunin
verið síðustu mánuði?
— Þegar ljóst varð í haust, að
í viðbót við fyrri áföll væri lík-
indi til þess að síldarafli mundi
að mestu bregðast á þessu ári,
hlaut það að leiða til mjög al-
varlegs ástands í gjaldeyrismál-
unum, er m. a. byggðist á ótta
við gengisbreytingu. Þrátt fyrir
það að margvíslegar ráðstafanir
væru gerðar til að draga úr gjald
eyrisnotkun og ýmsar takmark-
anir eettar á yfirfærslur, jökst
Frambald & bls. S
Ralph Bunche og fóru lofsanneg-
'iun orðum um líf og starf hins
látna og hylltu hann sem bar-
áttumann og göfugan son þjóðar
sinnar, sem alla tíð hefði verið
hugsjónum sínum trúr.
Framhald á bls. 15
Konuríki
London 6. jan. AP.
BÓKSALI í London fékk fyr-
I ir nokkru svohljóSandi bréf
i frá einum viðskiptavina sinna:
„Ég skila yður hér með bók-
inni: „Hvernig stjórna á kon-
um.“ Ég er viss um að þetta
I er ágæt bók, en því miður vill
konan mín ekki leyfa mér að
lesa hana.
Norður-Vietnamar:
Hafna
tillögum
nema samnings-
aðilar séu 4
París 6. jan. NTB.
FULLTRUAR Norður-Vietnam
á Parísar viðræðunum höfnuðu
i dag öllum tillögum Bandaríkj-
anna sem fela í sér, að samninga
aðilar um Vietnam séu aðeins
tveir.
Á blaðamannafundi í París í
dag sagði talsmaður sendisveitar
Norður-Vietnama. að aldrei yrði
fallizt á annað en aðilar væru
fjórir og tækju allir þátt í fund-
unum á sama grundvelli. Tals-
maðurinn gagnrýndi bandarísku
stjórnina harðlega og sagði að
'hún drægi málið viljandi á lang-
inn og tefði fyrir að reglulegar
friðarviðræður gætu hafizt.