Morgunblaðið - 07.01.1969, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.01.1969, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 19&9. Annast um skattaframtöl Tími eftir samkomulagi. Pantið tíma, sem fyrst eftir kl. 7 á kvöldin. Friðrik Sigurbjörnsson, lögfræð- ingur, Harrast. s. 16941. Ódýr matarkaup Nýr lundi kr. 15 stk. Nauta hakk kr. 130 kg. Saltaðar rullup. kr. 98 kg. Kjötb. Lvg. 32. Kjötmiðst. Laugal. Laugardaga til 6 Opið alla laugardaga til kl. 6. e. h. Kjötmiðstöðin, Laugalæk. Unghænsni Unghænur kr. 88 kg. Kjúkl ingar kr. 180 kg. Kjúklinga læri kr. 180 kg. Kjúklinga- brjóst kr. 180 kg. Kjötb. Lvg. 32. Kjötmiðst. Laugal. Þorramatur - hákarl svið, síld, súrsuð sviðasulta svínas., lundab., hrútsp., bringukollar, hvalrengi. — Kjötbúðin, Laugavegi 32. Kjötmiðstöðin, Laugalæk. Atvinna Ungur maður nýkominn frá námi í Englandi óskar eftir atvinnu. Góð ensku- kunnátta. Tilb. sendist Mbl m. „Atvinna 6257“ f. 11/1. Skrifborð óskast Óska eftir að kaupa notað skrifborð. Uppl. í síma 13368. Tvítug stúlka óskar eftir atvinnu strax, helzt skrifstofustörfum, er vön, margt annað kemur til greina. Uppl. í síma 10958 eftir kl. 1. Fósturbarn Reglusöm hjón óska eftir að taka barn í fóstur. Tilb. sendisft afgr. Mbl. fyrir 15. janúar merkt „Trúnaðar- mál 6312“, Óska eftir að kaupa notað segulbands tækL Uppl. í síma 33281. Til sölu góður Opel Reckord, 4ra dyra, árg. 1964. Bílasala Matthíasar. Brotamálmar Kaupi alla brotamálma langhæsta verði, staðgr. Nóatún 27, sími 35891. Skattaframtöl, bókhald, launauppgjöf. Fyrirgreiðsluskrifstofan Austurstræti 14, s. 16223. Þorleifur Guðmundsson heima 12469. Kona óskast til að annast fámennt sveitaheimili á Suðurlandi. Ný húsakynni og góðar aðstæður. Um- sóknir sendist blaðinu fyrir 10. þ. m. merkt „6237“. Tökum börn í gæzlu hálfan eða allan daginn. — Upplýsingar í síma 32838 — SIRA GÍSLA ÞULA BRYNJÓLFS- SONAR EFTIR SÆMUND TÓMASSON Sæmundur Tómasson SÆMUNDUR Tómasson, trésmiður, Spítalastíg 3, hér í borg, gerir það stundum til gamans sér að setja saman vísur og þul- ( ur til að stytta tímann. Þeaja þulu orti hann á dögunum, ei hann beið þess, að gestur góður gengi í bæinn, sem gleði vekur, bætir haginn. Fyrstan sá ég síra Gísla, sem hefur jafnan margt að sýsla. Út við strendur, upp um sveitir af því margan fróðleik veitir mér og öðrum marga tíma, sem minna hafa við að glíma. Fer hann þá um fjöll til dala fróðleiksþránni til að svala. Leitar hann með lygnum fjörðum lýsir prestum, kirkjum, jörðum. Áfram langar leiðir liggja, líka þarf að mörgu að hyggja. Efnið til að sækja í sarpinn m sífelli örvar ferðagarpinn. Austur sveitir löng er leiðin þar liggur vegtir upp á Skeiðin. Fyrir löngu „Binni bróðir“ buldrandi gelck þar um slóðir, en sungið hátt af kræfum köllum í kirkjunni á Ólafsvöllum. Lengi ég ekki lopa þennan læt nú Gísla taka pennann og lýsa þar í léttu roáli laust frá öllu orðaprjáli ýmsu, oem hann auga á festi. Það ágætlega sómir presti. Að fræða aðra er feiki gaman en fyrst er að draga efnið saman, að þjóta um sveitir, þar um hlöðin, þá sést margt að setja í blöðin handa þeim, sem heima sitja og harla fátt um lífið vita: Aðeins það sem aðrir segja en oftast verða sjálfir þegja. Er þá ljúft ef eirthrver kemur, eitbhvað, sem að gott sér temur margan, garolan fróðleik finnur og fimlega úr efni vinnur. Oft er unun á að hlýða en eftir því otft langt að bíða. Úr því rættet aldrei fremur en þá síra Gísli kemur. Fagna ég honum fyrstur manna. Flytur hann með sér gleði sanna. FRÉTTIR Kvenfélagið Seltjörn, Seltjarnarnesi Aðalfundur félagsins verður hald inn miðvikudaginn 8. janúar kl. 8.30 í Mýrarhúsaskóla. Aðalfundar störf og önnur mál. K.F.U.M, KFUK Árshátíð Árshátíð félaganna verður liaug- ardaginn 11 jan kl. 8 i húsi fé- laganrua við Amtmainnsstíg. Minnzit verður 70 ára afmælis félaganna. Aðgöngumiðar fást til fimmtudags kvölds á skrifstofunni og eftir skrifstofutíma hjá húsvörðum. Hvítabandskonur Fundurinn, sem átti að verða þriðjud. 7. jan. ‘69, fellur niður vegna inflúensufaraldursins. Dregið hefur verið í jólahapp- drætti Hvítabandsins (innanfélags- happdrætti) og hlutu þessi númer finninga: 73, Heimskringla (3 bindi). 107, Hallveigarstaðaskeið. 223 Tvö svæf ilsver (handsaumuð). 374, Mynd (Sólveig Eggerz Pétursdóttir). 482 Jólaskeið 1968. 479 Mynd (Sólveig Eggerz Pétursdóttir). 330, Borðref- ill (handsaumaður). 265 Röggva- púði. 183, Kaffidúkur (áteiknaður) Ég þekki verkin þín — sjá, ég hefi látið dyT standa opnar fyrir þér, sem enginn getur lokað (Op- inb. 3,8). I dag er þriðjudagur 7. janúar og er það 7. dagur ársins 1969. Eftir lifa 358 dagar. EldbjargarmessaÁr degisháfiæði kl. 8.36 Upplýsingar um læknaþjónustu í borginni eru gefnar í síma 18888, símsvara Læknafélags Reykjavik- Uæknavaktin í Heilsuverndarstöð- ii ni hefur síma 21230. Slysavarðstofan í Borgarspítalan um er opin allan sólarhringinn. Aðeins móttaka slasaðra. Sími 8)212 Nætur- og helgidagalæknir er t síma 21230. Neyðarvaktin svarar aðeins á virkum dögum frá kl. 8 til kl. sími 1-15-10 og laugard. kl. 8-1. Keflavíkurapótek er opið virka daga kl. 9-19, laugardaga kl. 9-2 og sunnudaga frá kl. 1-3. Borgarspítalinn í Fossvogi Heimsóknartími er daglega kl. 15.00-16.00og 19.00-19.30. Borgarspítalinn í Heilsuverndar- stöðinni Heimsóknartími er daglega kl. 14.00 -15.00 og 19.00-19.30. skeiði, sem hefst miðvikudaginn 15. jan. láti vita í síma 36679 milli kL 6—8 þriðjudagirm 7. jan. Mæðrastyrksnefnd og Vetrarhjálp hafa síðasta dag fataúthlutunar að Þingholtsstræti 25, miðvikuda/g- inn næsta, þann 8. janúar frá kl. 2—6. Ágætur fatnaður til að laga ot sauma. Kvenfélag Bústaðasóknar Fundur verður í Réttarholtsskól- anum miðvikudagskvöldið 8. jan- úar kl. 8.30 Fjölbreytt dagskrá. Æskulýðsfélög Bústaðasóknar, yngri deild Fundur 1 Réttarholtsskólanum fimmtudagskvöld, 9. jan. kl. 8.15 Kvenfélag Laugarnessóknar heldur fund fimmtudaginn 9. janúar kl. 8.30 í fundarsal kirkj- unnar. Munið breyttan fundardag. VÍSUKORN Málefnið sem mest er þráð myndar stofna landsins. Atriði þessu oft er stráð utan hjónabandsins. Loftur Auðunsson. Meðan einhver yrkir brag, og íslendingar skrifa, þetta gamla þjóðarlag, það skal aUtaf lifa. Jón S. Bergmann Næturlæknir í Hafnarfirði aðfaranótt 8. janúar er Jósef Ól- afsson sími 51820 Kvöldvarzla í lyfjabúðum í Reykja vík vikuna 4 — 11. janúar er í Holtsapóteki og Laugavegsapóteki. Næturlæknir í Kefiavík 7.1 og 8.1 Kjartan Ólafsson 9.1 Arnbjörn Ólafsson 10.1, 11.1, og 12.1 Guðjón Klem- enzson 13.1. Kjartan Ólafsson Ráðleggingarstöð Þjóðkirkjunnar Framvegis verður tekið á móti þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð- bankann, sem hér segir: mánud. þriðjud., fimmdud. og föstud. frá kl 9-11 fh og 2-4 eh. Miðviku- daga frá kl 2-8 eh. og laugardaga frá kl. 9-11 f.h Sérstök athygli skal vakin á miðvikudögum vegna kvöldtímans Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík- ur á skrifstofutíma er 18-222 Næt- ur- og helgidagavarzla 18-230. A.A.-samtökin Fundir eru sem hér segir: í fé- lagsheimilinu Tjarnargötu 3c: Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21 Langholtsdeiid, í Safnaðarheimili Langholtskirkju, laugardaga kl 14. RMR-8-1-20-VS-I-HV. I.O.O.F. Rb 4 = 11817814 — Gengið Nr. 135 — 5. desember 1968. Kaup Sala 1 Bandar. dollar 87,90 88,10 1 Sterlingspund 209,60 210,10 1 Kanadadollar 81,94 82,14 100 Danskar krónur 1.172,00 1.174,66 100 Norskar krónur 1.230,66 1.233,46 100 Sænskar kr. 1.698,64 1.702,50 100 Finnsk mörk 2.101,87 2.106,65 100 Franskir fr. 1.775,00 1.779,02 100 Belg. frankar 175,63 176,03 100 Svissn. frankar 2.045,14 2.049,80 100 Gyllini 2.429,45 2.434,95 100 Tékkn. krónur 1.220,70 1.223,70 100 V.-þýzk mörk 2.196,36 2.201,40 100 Lírur 14,08 14,12 100 Austurr. sch. 340,27 341,05 100 Pesetar 126,27 126,55 100 Reikningskrónur Vöruskiptalönd 99,86 100,14 1 Reíkningsdollar Vöruskiptalönd 87,90 88,10 1 Reikningspund Vöruskiptalönd 210,95 211,43 Leturbreyting táknar breytingu síðustu gengisskráningu. 84 Listaverkabók Gunnfríðar Jóns- ódttru. Frá kvennadeild Skagfirðingafé- lagsins í Reykjavík Þær félagskonur, 9em ætla að taka þátt í næsta handavinnunám- sá NÆST bezti ÁSTU-GVENDUR var karl nokkur jatfnan nefndur, sem lögreglan notaði oft til að lóga hundum og köttum hér í bænum. Hann var ófríður maður og allsvakalegur. Einu sinni fóru lögregluþjónar með hann til konu, sem hafði beðið um að lóga fyrir sig uppáhalds ketti. Þegar konan sá Ástu-Gvend, sagði hún: „Nei, ég held ég hætti við að láta lóga kettinum. Maðurinn er svo afskaplega Ijótur". „Ég hélt nú, að þetta ætti ekki að verða neinn keliríiötúr", varð þá Áistu-Gvendi að orði. — Liggðu bara kyrr undir rúminu, elskan, innbrotsþjófurinn er ekki farinn enn!!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.