Morgunblaðið - 07.01.1969, Blaðsíða 10
1»
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1969.
í afmælishdfi Úldunnar
SKIPSTJÓRA- og stýrimanna-
félagið Aldan minnist 75 ára af-
mælis síns með fagnaði að Hótel
Sögu föstudagskvöldið 3. janúar
og einnig 10 ára afmælis kven-
félagsins Öldunnar en það er fé-
lag eiginkvenna starfandi félags-
manna. í hófinu var mættur
borgarstjórinn í Rvík, sem vildi
með nærveru sinni heiðra þetta
ur Öldunnar, Guðmundur H.
Oddsson rakti sögu félagsins í
stórum dráttum, en það hafði
'hann áður gert ýtarlega í Morg-
unblaðinu.
Frú Laufey Halldórsdóttir, for-
maður kvenfélagsins, mælti nokk
ur orð um naúðsyn þess að sjó-
mannskonur hefðu með sér fé-
lagsskap vegna þeirrar sérstöðu
aði fundarmenn, sem margir
voru lærisveinar hans og ræddi
um samstarf Öldunnar og Stýri-
mannaskólans, en Aldan var
þeim skóla mikil stoð í byrjun
skólahaldsins, en skólinn var
stofnaður tveimur árum fyrr en
félagið og því enn í reifum, þeg-
ar það var stofnað 1893.
Sigurjón Einarsson, skips'tjóri,
Nokkrar Öldukonur í hófinu, talið frá vinstri: Unnur Halldórsdóttir, Gróa Pétursdóttir, Rann-
veig Vigfúsdóttir, Pálína Árnadóttir og Laufey Halldórsdóttir.
aldna félag, sem fyrrum, og reynd
ar enn, þó að það sé ekki eins
áberandi eftir að bærinn stækk-
aði, var mjög áhrifaríkt í bæjar-
málum. Þarna voru einnig stadd-
ir ýmsir fyrirmenn í sjávarút-
vegi og slysavörnum, en flensan
sá fyrir því, að marga þá vantaði
sem gjarnan hefðu viljað mæta,
svo sem sjávarútvegsmálaráð-
herra. Þó að Öldunnar gæti nú
ekki eins mikið í bæjarlífinu og
bæjarmálefnum og áður, þá
þyrfti ekki annað en telja upp
nokkra af félagsmönnum til að
ljóst væri, að það er varla of-
djúpt tekið í árinni þó að sagt
sé, að í þessum félagsskap sé að
finpa þá menn, sem halda um
slagæð þjóðfélagsins. Þeir hafa
ekki hátt um sig í daglegu lífi
þjóðarinnar en það segir enginn
síga þegar þeir segja stopp.
Ingólfur Stefánsson, framkv.
F.F.Í. stjórnaði hófinu. Formað-
sjómannskonunnar að verða að
gæta bús og barna ein meðan
eiginmaðurinn er fjarverandi.
Jónas Sigurðsson, skóla-
stjóri Stýrimannaskólans, ávarp-
mælti fyrir minni sjómannskon-
unnar. Þessi ræða, sköruglega
flutt og vel saman, full af ungri
ást til lífsförunautarins, varð
svanas’öngur þessa aldna sjó-
Geir Hallgrímsson borgarstjóri Gunnar Friðriksson forseti SVFÍ
Jónas Sigurðsson skólastjór; og Guðmundur H. Oddsson.
Sigurjón hóf mál sitt á því, að
hann hefði verið kvaddur til „á
tólftu stundu“, að mæla fyrir
minni sjómannskonunnar og fátt
væri sér kærara. Fáa grunaði,
sem hlustuðu á kraftmikla rödd
og flutning Sigurjóns, að tólfta
stund hans sjálfs væri runnin
upp í orðsins fyllstu merkingu.
Klukkan var að byrja að ganga
tólf um kvöldið, þegar Sigurjón
hafði lokið ræðu sinni og klukk-
an hálf tólf var hann andaður.
Þegar Sigurjón hafði lokið
máli sínu ávarpaði kona hans,
Á þessari mynd (talið frá vins tri): Nikulás Jónsson, skipstjóri, Ásgeir Jakobsson, Sigurjón Stef-
ánsson, skipstjóri, Sigurjón Einarsson, skipstjóri. Ingólfur Þórðarson, kennari Stýrimannaskólans
og formaður Öldunnar Guðmu ndur H. Oddsson.
frú Rannveig Vigfúsdóttir, öldu-
konur og lauk þannig áratuga
samstarfi þeirra hjóna fyrir
hagsmunamálum sjómanna og
kvenna þeirra, því að dauðinn
hafði tekið sér sæti við borðið
meðan frú Rannveig talaði. Sig-
urjón náði þó að komast heim,
en hné niður örendur á tröppum
húss síns. Þegar þau tíðindi bár-
ust að Sigurjón væri látinn til-
kynnti ormaður Öldunnar mann-
fagnaðinum lát hans og sleit hóf-
inu. Guðmundur minntist hins
látna nokkrum völdum orðum,
minnti á hverfleika lífsins, sem
sjómenn þekktu manna bezt, og
sagði, að þó að hryggð setti vita-
skuld að þeim sem þekktu Sig-
urjón, þá bæri að hafa það í
huga, að hann hefði hlotið þann
dauðdaga, .sem hann myndi sjálf-
ur helzt hafa kosið sér. Hann
hafði kvatt félaga sína fögrum
orðum og dáið á þeim vettvangi,
sem honum hefði alla tiíS verið
kærasfcur, með sjómönnum og við
hlið konu sinnar. Yfir andláti
hans væri ljómi og reisn, sem
öllum viðstöddum yrði minnis-
stæður.
Veizlugestir stóðu upp og
drúptu höfði og innan skamms
var veizlusalurinn auður og
hljóður.
Skákmótið í Hastirgs:___
Smyslov tók forustu
Ingólfur Þorsteinsson afhendir Sveini Sæmundssyni gjöfina. ( Frá vinstri): Kristmundur J. Sig-
urðsson og Magnús Eggertsson, aðalvarðstjórar, Ingólfur Þorsteinsson, kona Sveins, frú Elín
Geira Óladóttir, Sveinn Sæmundsson og Þórður Björnsson, yfirsakadómari, sem stjórnaði hófinu.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)
Kvaddur eftir 30 ára starf
VASSILY Smyslov fyrrverandi
heimsmeistari í skák hefur tekið
forystu eftir sex uimferðir á skák
mótinu í Hastimgs. Smyslov hef-
ur 5 vinninga en landi hans
Tuikmakov sem er 22ja ára hefur
2% vinning. Þessi ungi Rússi
átti upphaflega að tefla í næst-
efsta flokki á mótinu en þar sem
rússneski stórmeistarinn Mark
Taimanov forfallaðist á síðustu
stundu var Tukmakov boðið að
tefla í efsta flokki.
Dónorfregn
BORIZT hafa bréf frá dr. Sturlu
Guðlaugssyni í Haag, og í því VI-
kynnir hann lát aldraðrar móður
sinnar frú Maritje Ingenofhl Guð-
lagssop, ekkju Jónasar skálds
Guðlaugssonar. Lézt hún að heim
ili þeirra mæðgina í Haag og var
hún orðin 85 ára.
Frú Maritje Guðlaugsson var
hér á landi síðast á árunum laust
eftir 1950 er hún kom hingað tví-
vegis að sumarlagi og átti hún
hér nokkurn hóp vina og kunn-
ingja. Sonur hennar Sturla er
eirm af deildarstjórum Konung-
lega hollenzka listasafnsins í
Haag og hefur gegnt því starfi
um árabil og nýtur álits þar og
víðar í Evrópulöndum sem list-
fræðingur.
Úrslit í 6. umferð:
Smyslov vann Clarke, Eng-
landi. Englendingurinn Wrigiht
vann landa sinn Fuller, Persitz,
ísrael vann Vestur-<Þjóðv©rjann
Húbner, Keene, Englandi vann
Kottnauer, Englandi (Kottnauer
er Tékki en flýði land árið 1953)
Smejkal, Tékkóslóvakíu vann
Hartoch, Englandi, en Tukmakov
og Gligoric, Júgóslavíu gerðu
jafntefli í 22 leikjum.
Staðan í mótinu eftir sjöttu um-
fer er þessi:
Tukmakov 4% —
Smyslov 5 vinn.
Tukmakov 4% —
Gligoric 4 —
Smejkal 4 —
Keene 3% —■
Hartoch 2% —
Húbner 2% —
Persitz 2% —
Wright 2% —
Clarke 2 —
Kottnauer 2 —
Fuller 1 —
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4*SO
STARFSFÓLK Sakadóms Reykja
víkur og rannsóknarlögreglunn-
ar í Reykjavík hélt Sveini Sæ-
mundssyni veglegt kveðjuhóf á
laugardagskvöld, en Sveinn læt-
ur nú af störfum yfirlögreglu-
þjóns rannsóknarlögreglunnar
eftir 30 ára farsælan starfsferil.
Þórður Bjömsson, yfirsaka-
dómari, stjórnaði hófinu og flutiti
aðalræðuma, en einnig tóku til
máls Ingólfur Þorsteinsson, eftir
maður Sveins, og Kristmundur
J. Sigurðsson, aðalvarðsitjóri.
Minrttust þeir allir hins mikla
og farsæla starfs, sem Sveinn hef
ur innt af höndum sem yfirlög-
regluþjónn í 30 ár, þökkuðu hon
urn það og fluttu honum og fjöl-
skyldu hans ámaðaróskir. Þá
fasrði starfsfólkið Sveini að gjöf
Ijóspremtaða útgáfu af myndabók
Paul Gaimard’s og áletraðan, silf
urbúinn göngustaf.
Að lokum tók Sveinn Sæmunds
son til máls, þakkaði hlý orð í
sinn garð og góðar gjafir og
kvaddi svo samstarfsfólk sift
með hlýjum og vel völdum orð-
um.