Morgunblaðið - 07.01.1969, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1969.
en að öðru leyti sýndi hún ekki
af sér nein geðbrigði.
— Hvað sannanir hafið þér?
— Við höfum fundið staðinn,
þar sem líki tengdadóttur yðar
var fleygt í ána, ásamt farangr-
inuro hennar og innbrotsverk-
færunum.
— Ah!
Meira var ekki sagt, en hún
sat kyrr með henduirnar kreppt-
ar í kjöltu sinni.
— Sonur yðar neitar að af-
saka sig með sjálfsvörn. Og það
er misskilningur hjá honum,
því að ég er viss um, að þegar
konan hans kom inn, þá var hún
vopnuð og ætlaði að granda hon-
um.
— Hversvegna?
— Það er það, sem ég ætla
að spyrja yður um.
— Ég hef bara enga hugmynd
um það.
— Hvar voruð þér?
— í herberginu mínu eins og
ég var búin að segja yður.
- Og þér heyrðuð ekki neitt?
— Ekkert. Aðeins þegar hurð
var látin aftur. Og svo í bílnum
úti á götunnii.
— Leigubílnum?
— Já, það hélt ég hlyti að
vera, þar sem tengdadóttir mín
var búin að segjast ætla að ná
sér í leigubíl.
— Þér eruð þá ekki viss?
Þetta gæti hafa verið einkabíll?
— Ég sá hann ekki.
— Þá hefði þetta hæglega get
að verið bíllintn hans sonar yðar?
— Hann fullyrti við mig, að
hann hefði ekkert farið út.
•— Yður er væntanlega ljóst
ósamræmið með þessu, sem þér
segið nú, og hinu, sem þér sögð-
uð þegar þér komuð hingað ótil-
kvödd?
— Nei.
— Þá fullyr^ið þér, að tengda
dóttir yðar hefði farið burt í
leigubíl.
— Ég held enn, að hún hafi
gert það.
— En þér eruð ekki viss um
það lengur. Eruð þér þá líka
sannfærð um, að ekki hafi verið
reynt að brjótast inn til ykkar?
— Ég sá þess engin merki.
— Hvenær komuð þér niður
á miðvikudagsmorgun?
— Um hálfsjöleytið.
— Fóruð þér þá inn í lesstof-
una?
— Ekki strax. Ég hitaði kaff-
ið fyrst.
— Þér opnuðuð ekki glugga-
hlerana?
— Jú, ég býst við að ég hafi
gert það.
— Áður en þér komuð niður?
— Sennilega.
— Þér gætuð ekki svarið það?
— Setjið þér nú yður í mín
spor, hr. Maigret. í tvo daga hef
ég litla hugmynd haft um, hvað
fram hefur farið. Ég hef verið
spurð allra hugsanlegra spurn-
inga. Ég hef setið í biðstofunni
yðar í guð má vita, hve marga
klukkutíma. Ég er þreytt. En
geri samt mitt bezta til að halda
þetta út.
— Til hvers komuð þér hing-
að í kvöld?
— Er það ekki eðlilegt, að móð
ir fylgi sýni sínum, þegar svona
stendur á? Við höfum alltaf bú-
ið saman. Hann gæti þurft á mér
að halda.
— Munduð þér fylgja honum
í fangelsi?
— Ég ski’l yður ekki. Ég trúi
ekki, að. . . .
— Við skulum orða þetta öðru
vísi: Ef ég legði fram ákæru
gegn syni yðar, munduð þér þá
taka þátt í ábyrgðimni á því,
sem hann hefur gert?
— En nú þegar hann hefur
ekkert gert!
— Eruð þér svo alveg viss
um það?
— Til hvers hefði hann átt að
fara að myrða konuna sína?
— Þér forðizt að gefa mér
beint svar. Eruð þér sannfærð
um, að hann hafi ekki myrt
hana?
— Já, að því er ég bezt veit.
— Er hugsanlegt, að hann hafi
gert það?
— Hann hafði engan tilgang
með því.
— En hann gerði það nú samt!
sagði hann hranalega og horfði
beint framan í hana. Hún sat
eins og málþola.
Síðan tók hún vasaklút upp
úr töskunni sinni. Augu hennar
voru þurr. Hún var ekki að
gráta. Hún þerraði aðeins á sér
varirnar með klútnum.
— Gæti ég fengið glas af
vatni?
Hann var dálitla stund að
leita að því, þar eð hann var
ekki eins kunnugur þarna og í
sirani eigin skrifstofu.
— Jafnskjótt sem saksóknar-
inn kemur í dómshúsið, verður
sonur yðar ákærður. Og ég get
sagt yður það strax, að hann
hefur engan möguleika á að
sleppa.
— Þér eigið við . .. ?
— Að hann fari undir fallöx-
ina.
Það leið ekki yfir hana, held-
ur sat hún stífbein og starði
fram fyrir sig.
— Lík fyrri konunnar hans
verður grafið upp. Þér vitið
46
.jálfsagt að merki um eitur geta
vel fundizt í beinagrind.
— Til hvers hefði hann átt að
myrða þær báðar? Það er óhugs-
andi. Það er ekki satt. Ég veit
ekki tií hvers þér eruð að segja
mér þetta, en það er bara ekki
satt. Lofið mér að tala við hann í
einrúmi, og þó skal ég komast að
sannleikanum.
— Voruð þér í stofunni yðar
allt þriðjudagskvöldið?
— Já.
— Og fóruð alls ekkert niður?
— Nei. Til hvers hefði ég átt
að vera að því, þegar þessi kven
maður var loksins að fara?
Maigret gekk að glugganum og
kældi á sér ennið á rúðunmi,
gekk síðan í næstu skrifstofu,
greip flöskuna og drakk úr
henni sem svaraði tveimur eða
þremur einfö'ldum.
Þegar hann kom inn aftur, var
hann orðinn eins þungur í göngu
lagi og Guillaume Serre og
augnaráðið jafn þvermóðskulegt
og hjá honum.
9. kafli.
Hann sat á stól, sem hann átti
ekki sjálfur, með báða olnboga á
borðinu, með stærstu pípuna sína
í munninum, og starði á gömlu
konuna sem leit út eins og ein-
hver abbadís.
— Svo að sonur yðar myrti
hvorki fyrri konuna sína né þó
seinni, frú Serre? sagði hann og
tíndi fram orðin.
Hún hleypti brúnum, eins og
hissa, en glaðnaði samt ekkert á
svipinn.
Stór vinnushúr óshnst
Upplýsingar i sima 13428
Dansskóli SIGVALDA
Innritun daglega i sima 14081 kl. 10-12 og 1-7
Listdansskóli
Cuðnýjar Pétursdóttur
Lindarbæ Reykjavík og Félagsheimili
Kópavogs Kópavogi.
Kennsla hefst aftur A. janúar næstkomandi.
Nemendur frá fyrri námskeiði mæti á sömu tímum
og dögum og áður.
Innritun nýrra nemenda og uppl. eru í síma 40486
í dag og á morgun frá kl. 3—6.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000
Blessaður góði, það er ekki sama á hvern þú ekur!
— Og heldur ekki föður sinn,
bætti hann við.
— Hvað hafið þér . . . ?
— Suss! Ef yður er sama,
skulum við gera út um þetta
eins fljótt og við getum. í bili
skulum við ekkert hugsa um
þetta fyrr en tími er kominn.
— Og við skulum heldur ekki
táia neitt um mál mannsins yð-
; ar. En það sem ég er næstum
viss um, er það, að fyrri tengda-
dóttir yðar var myrt á eitri. Og
sannanir. Þær koma þegar þeirra
ég vil ganga iengra. Ég e.r sann-
færður um, að það var ekki gert
með arseníki eða neinu af þess-
um sterku eiiturtegundum, sem
venjulega eru notaðar.
— Og meðal annarra orða, frú
Serre, vil ég benda yður á, að
eitur er venjulega kvenna vopn.
— B áðar tengdadætur yðar
þjáðust af hjartasjúkdómi og það
gerði maðurinn yðar líka.
— Viss meðöl, sem mundu
ekki hafa skaðleg áhrif á heilsu
hraust fólk, geta verið banvæn
' þeim, sem eru veilir fyrir hjarta.
Mér þætti gaman að vita, hvor't
María hefur ekki einmitt fengið
okkur lykilinn að þessu vanda-
! máli, í einu bréfinu til vinkonu
sinnar. Hún talar um einhverja
Englandsferð, sem þér fóruð ein
hverntíma með manninum yðar
og leggur áherz'iu á, að þið hafið
orðið svo sjóveik, að þið hafið
J orðið að leita til læknisins á
! skipinu.
[ — Hvað mundi hann fyrir-
skipa í slíku tilfelli?
— Það hef ég enga hugmynd
um.
— Það er mjög ólíklegt. Þeir
eru vanir að gefa atrópín í
einni eða annarri mynd. En nú
getur atrópín einmitt verið ban
vænt fyrir hjartasjúkt fólk, ef
skammturinn er verulega stór.
— Þér eigið við að maðurinm
minn . . .
— Við munum koma að því
seinna, enda þótt ómögulegt sé
að sanna neitt héðanaf. Maðurinn
yðar var talsvert útsláttarsamur
7. JAN l AB.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Vikan byrjar vel. Sinntu heilsufari þínu. Ljúktu við allt sem
setið he'ur á hakanum Kvöldið getur orðið afar gott.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Álit þitt virðist hljóta betri hljómgrunn í dag. Útilokaðu allt
fálm. í kvöld færðu ágæta hugmynd, sem mætti hagnýta sér
fram í tímann.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Vinir þínir eru sérlega samvinnuþýðir, en láttu þá samt ekki
axla byiðarnar eima. Notaðu einstakt tækifæri.
Krabbinn 21. júní — 2? .júlí
Farðu einfaldar leiðii. Það er vandasamt að finna sparnaðar-
leiðir. líklegt að einhver leiti á náðir þínar til að greiða sál-
ræna f.ækju. Þú ert illa undir það búinn, þótt þú hafir mátt
vita það
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Freistaðu gæfunnar i viðskiptum og fjármálum. Félagi þinn
eða maki leggja þér heilræði. Þegar á líður færðu einstakt tæki-
færi.
Meyjan 23. ágúst — 22 septcmber
Auðvelt er að ganga frá smáatriðunum. Stórmálin eru ekki
tilbúin Einfalt svar við gömlu vandamáli er á næsta leiti, og
kann að vera að þér verð: það ljóst seinna í dag. Hugsaðu
ráð þitt vel.
Vogin 23. september — 22. október
í dag verður tekið af skarið. Eldra fólkið er virðulegra og
hefur ýmislegt til málanna að leggja. Hlustaðu, þótt þú hafir
heyrt þetta áður. „
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Athugaðu vel smáatriðin og gæðin. Kynntu sjálfan þig og
vinnu þs'nia í sífellu með allri þeirri sölumennsku, sem þú getur
safnað þér saman í sarpinn.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Farðu í sparifötin og vertu í hátíðaiskapi, þú kannt að þurfa
að fara eitthvert, sem þú hefur áður farið án frekari útskýr-
inga, Lagaflækjur skýiast með fréttri aðferð.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Vertu hógvær í fnamkvæmdum og varðveittu þannig hóp eða
fjölskylduhagsmuni. Athugaðu hvort einhvers staðar eru geilar
í áformum þínum. Gerðu eitthvað til að róa foreldra þína.
Vatnsberinn 20. janúar — 28. febrúar
Reyndu að komast til botns í málefnum er varða gamla
kunningja. Ef þú spyrð réttrar spurningar getur þér opnast
heill heimur lystisemda. Málefni gamla fólksins þarfnast ait-
hugunar.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Einhverjir atburðir endurtaka sig, en vertu ekki hissa þótt
útkoman verði öðruvísi. Reyndu að fá endurgoldna peninga,
sem þú hefur lánað einhverjum. Orð annarra verða þér umhugs-
unarefni.