Morgunblaðið - 07.01.1969, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1969.
23
V-ÞYZKALAND:
Heræfíngor Bandaríkjamanna
— hefjast síðari hluta janúarmánaðar
Frankfurt 6. jan. NTB.
SÍÐAR í þessum mánuði hefja
Bandaríkjamenn umfangsmiklar
heræfingar í Vestur-Þýzkalandi
og munu um 12 þúsund hermenn
taka þátt í þeim, og komu nokk-
ur hundruð þeirra fyrstu til
Frankfurt í dag. Æfingarnar
munu standa til 4. febrúar. Tii-
kynnt var og að 96 Phanton or-
ustuflugvélar taki þátt i æfing-
um, sem verða haldnar skammt
frá landamærum Tékkóslóvakíu.
Heræfingar þessar eiga að sýna
eindregin stuðning Bandaríkja-
manna við NATO og þar með
varnir Vestur-Evrópu, með hlið-
sjón af atburðum þeim, sem gerð
ust í Tékkóslóvakí.u í ágúst. —
Áformað hafði verið, að heræf-
ingarnar yrðu ekki fyrr en
seinna á árinu, en því var siðan
breytt í ljósi nefndra atburða.
Tass-fréttastofan sovézka sagði
frá æfingurvum í kvöld og sagði
að þær væru ögrun, setn myndi
leiða til aukinnar spennu og
'væru aðeins í þágu hernaðar-
sinna í Washington og Bonn. —
Sagði Tass, að fory.stumenn
NATO reyndu af ráðnum hug
að auka á spennu milli austurs
og vesturs og það kynni að hafa
hinar alvarlegustu afleiðingar.
NTB fréttastofan segir, að tveir
sovézkir blaðamenn hafi verið á
flugvellinum í Frankfurt, þegar
fyrsta flugvélin með bandarísku
hermennina lenti og hefðu þeir
eiimig fengið leyfi til að vera á
blaðamannafundi sem haldinn
var í því tilefni.
Verksmiðjur Sambands íslenzkra samvinnuféiaga, Gefjun og
Iðunn á Akureyri um 1940. Á myndinni sést Glerá og austur
yfir Eyjafjörð.
Osko ekki
iroiRsols
Kairo, 6. janúar AP.
DAGBLAÐIÐ „A1 Ahram" siegtr
í frétt í dag, að griska stjómin
hafi í hyggju að óska eftir fram-
sali Grikkjans sem ræmdi far-
þegavélinni frá „Olympív Airlin-
es“ og neyddi hana til að lenda
í Kairó. Blaðið segir að griska
stjórnin hafi ákveðið að láta mál
ið niður falla.
Talsmaður gríska sendiráðslns
'hefur ekkert viljað segja um
þess’a frétt, en segir að griski
sendiherrann muni hitta starfs-
mann utanríkisréðuneytis Egypta
og rœða málið við hann. Fundur
inn verður að ósk sendiherrans.
.Atvinnutjón vegna brunans verði sem minnst'
} Ákvarðanir um framtíð Iðunnar teknar í dag
Jóhannes Geir.
Sýnir d
Chcrlottenborg
JÓHANNES Geir Jónsson list-
málari tekur þátt í norrænni sam
sýningu á „Charlottenborg“ í
Kaupmannahöfn. — Sýningin er
haldin á vegum sýningarsamtak-
anna „Corner-Udstillingen“ og
var opnuð um áramótin.
Jóhannes Geir sýnir þarna 8-9
myndir og er eini þátttakand-
inn frá fslandi.
„Reykjavíkur-
gangan“
GANGA sú er æskulýðsfylkingin
og félag róttækra stúdenta efndu
til sl. sunniudag og nefndu
,,Reykjavíkurgöngu“ var farin
áætlaða leið. Urn 250—300 manns
munu hafa tekið þátt í göngunni.
en margir rauðir fánar voru born
ir i broddi fylkingar. Ekkert varð
til tíðinda í göngunni, en ekki
gátu nokkir göngumenn setið á
•sér að berja á fólksbifreið, sem
af tilviljun lenti á mótj göng-
<unni, þegar hún fór yfir Laufás-
veg.
Nokkrir göngumenn héldu ræð
ur, en engin æsti sig sérlega,
eins og þessa fólks er þó vani.
Á kröfuspjöld voru m. a. rituð
orð sem vörðuðu Bandaríkin,
■Víet Nam og skoðanafrelsi á ís-
landi. Einnig var á einu spjald-
inu klámvisa um Jósef, Maríu og
Jesús.
Framkvæmdastjóm Sam-
bands íslenzkra samvinnufé-
laga fjallaði um framtíð verk-
smiðjanna á Akureyri á fundi
í gær og munu endanlegar
ákvarðanir um framtíðarrekst
urinn verða teknar í dag. En
höfuðáherzla mun á það lögð,
að atvinnutjón vegna brunans
verði sem allra minnst. Mbl.
átti í gærkvöldi örstutt sam-
töl við Erlend Einarsson, for-
stjóra Sambands ísl. samvinnu
félaga og Harry Frederiksen,
frfcvstj. um þessi mál.
Harry Frederiksen sagði, að
fi>”
mönnum Sambandsins, áð
koma verksmiðjunni í fullan
gang svo fljótt sem verða
mætti. Þær hefðu starfað
lengi og veitt 110 til 120
manns atvinnu að jafnaði að
undanfömu og framleiðslu-
vörurnar hefðu ætíð haft
nokkuð jafna og örugga sölu.
Á styrjaldarárunum síðustu
hefði þó ef til vili komið bezt
í ljós, hve akkur var að því,
að verksmiðjunum hafði verið
komið á fót.
—• Hvenær voru verksmiðj-
urnar reistar, Harry?
— Elzti hluti þeiirra var frá
fyrri öldinni, eða allt frá 1878,
en verksmiðjustarfsemi á veg-
um SÍS hófst ekki fyrir alvöru
fyrr en um 1930, er skinnasút
un var hafin á Akureyri, en
gæruotun hafði verið þar
áður. Árið 1936 tók skinna-
verksmiðja til starfa í fjórum
starfsdeildum, gærurotun, sút
un, skógerð og hanzkagerð,
og jókst starfsemi mjög nœstu
árin. Verksmiðjuhús Gefjunar
var byggt um svipað leyti, eða
1935 og 36, en viðbótarbygg-
ing reist 1939.
— Og hváð er nú um starf-
semina að segja?
— Gefjun og Hekla hafa
hafið starfsemi nokkum veg-
inn eðlilega eftir brunann, og
gera má ráð fyrir að gærusút-
unin kornist af stað eftir u.þ.b.
viku til hálfan hánuð. En allt
er enn óljóst um hvenær leð-
ursútun og skógerð hefst
aftur.
Erlendur Einarsson, for-
stjóri SÍS, sagði, að fram-
kvæmdastjórar Sambandsins
hefðu verið á fundi í gær og
rætt um tjónið af brunanum,
og hv.emig bezt yrði bruigðizt
við því í sambandi við nýja
uppbyggingu. Hann sagði enn-
fremur.
— Það sem við leggjum
höfuðáherzlu á, er að gera
allt, sem hægt er, til þess að
atvinnutjón vegna brunans
verði sem allra minnst. Á
morgun verður hægt að skýra
nánar frá því, sem við ráð-
gerum í sambandi við upp-
bygginguna, en þá munu end-
anlegar ákvarðanir teknar.
Skókþing, bikarkeppni og
jólahraðskókmdt
Skákþing Reykjavíkur hefst
kl. 2 e. h. á sunnudaginn kemur
í skákheimili félagsins að Grens-
ásvegi 46. Keppt verður í fjórum
styrkleikaflokkum, meistara-
flokki, 1. flokki, 2. flokki og
unglingafloki. Öllum er frjáls
þátttaka. Sigurvegari í meistara-
flokki hlýtur titilinn skákmeist-
ari Reykjavíkur 1969 og svo verð
laun fjárstyrk til keppni á skák-
móti erlendis. Við setningu skák
þingsins fer fram verðlaunaaf-
'hending.
Innritun fer fram miðvi’kudags
og fimmtudagskvöld eftir kl. 20,
sími 83540.
Bikarkeppni Taflfélags Reykja
víkur 1968, (5 tapa) — útsláttar-
keppni, hófst um miðjan nóvem-
ber og lauk nú rétt fyrir ára-
mótin. Keppt var í tveim flokk-
Viðsjdr á
Norðor-írlondi
Londonderry 5. jan. NTB.
MIKLAR viðsjár voru með mót-
mæiendum og kaþólskum í Lond
onderry á Norður-frlandi um
helgina, en kyrrð var að mestu
komin á að nýju á mánudag. Sam
kvæmt fréttum munu að minnsta
kosti 125 manns hafa slasazt
meira eða minna. Kaþólikkar
skipulögðu mikla mótmælagöngu,
sem lauk um helgina, en hún
varð tvisvar að nema staðar,
þegar æstir mótmælendatrúar-
menn köstuðu benzínsprengjum
að göngumönnum og hlóðu götu-
vígi til að vama þeim vegarins.
Lögreglan átti í miklum erfið-
leikum með að stilla til friðar
og mikill f jöldi manna var hand-
tekinn. Forsætisráðherra Norður
írlands hefur lýst jrfir því, að
hann telji að enn sé langt til að
sættir náist milli kaþólikka og
mótmælendatrúarmanna á Norð-
ur írlandi.
um og voru keppendur alls 39
(28+11). Sigurvegari í 1. flokki
var Jón Pálsson (3% tap), en í
2. sæti var Jóhann Sigurjónsson
og í 3. sæti Magniús Gunnars'son.
í 2. flokki bar Páll Ammendrup
sigur úr býtum.
Jólahraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur fór fram dagana 29,
og 30. des. 1938. Þátttakendur í
undanúrslitum voru 45 talsins og
var keppt í þrem riðlum. í úr-
slit kornust 18 manns. Bragi
Kristjánsson og Björn Th'eódárs-
son og Björn Theódórsson urðu
efstir og jafnir með 14 vinninga
hvor af 18 mögulegum, en í 3.
sæti varð Ingvar Ásmundsson
með 1214 vinning.
Skámeistari Taflfélags Reykja
víkur, Björn Sigurjónsson, (19
ára að aldri), keppir þessa dag-
ana í hinu árlega alþjóðlega skák
móti í Hastings. Björn teflir í
næst efsta flokki (challengers),
en í þeim flokki keppir margt
sterkra skákmanna, þar á meðal
alþjóðlegir skákmeistarar. Engar
fréttir hafa en borizt af árangri
Björns.
ísrastir teygja sig
í átt að Horni
Á SUNNUDAG fór flugvél Land-
helgiisgæzlunnar, TF-SIF, í ís-
könnunarflug við Vestur og
Norðurland. ísbrún, 7-9/10, er nú
um 73 sjm. NV af Látrabjargi og
um 34 sjm. NV af Rit, og liggur
síðan í hub. 54° r/v út og N. frá
landinu. íbrúnin 4-0/10 beygir
meir austur á við, út af Kögri og
liggur um 23 sjm. N. af Horni og
iskammt norðan við Kolibeinsey
og um 58 sjm. norður við Sléttu,
og liggur þaðan á ská austur og
út, frá landinu.
Stór íseyja, um 45 sjm. löng og
6 sjm. breið, liggur frá 12 sjm.
fiskveiðitakmörkunum, út af
Hælavíkurbjargi, og vestur um,
í boga, upp á Halann. ísrastir og
eyjar teygja sig inn úr ísnum, í
áttina að Horni.
lö-2l5 sjm. breitt ísbelti, 1-3/10,
liggur innan við alla ísröndina og
er í um 20 sjm fjarlægð norður af
Grímsey og smá íshrafl komið
nálægt henni, bæði að austan og
vestan. ísbelti þetta er um 30
sjm. N af Sléttu og gengur þar út
í NA-læga stefnu frá landinu.
Mikið krap og ísmyndun er enn
í sjónum þegar komið er í h.u.b.
60 sjm. fjarlægð NA af Langa-
nesi.
Nýjasta ískortið