Morgunblaðið - 09.02.1969, Síða 30

Morgunblaðið - 09.02.1969, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. FEBRÚAR 1969. - BÖKMENNTIR Framhald af hls. 12 hvað varðar sölu bóka? — Það held ég ekki. Ef við tökum ljóðabækurnar fjórar sem dæmi, þá fengu þær misjafna dóma í blöðunum en seldust hins vegar mjög áþekkt. Ég er að sjálfsögðu fylgjandi því, að dag- blöðin hafi bókmenntagagnrýn- endur, sem skrifi um sem flestar bækur, en þeir góðu menn verða að hafa það hugfast að með skrifum sínum mega þeir ekki eyðileggja svo fyrir bókaútgef- endum og höfundum með hvat- víslegum og stundum vanhugs- uðum dómum, að þeir drepi nið- ur bókmenntaáhugann. Þeir gera kröfur til vandaðra vinnubragða útgefendans, og við hljótum því að krefjast á móti að þeir vandi vinnubrögð sín. Þeir geta ef til vill ekki nema í fáum tilfellum eyðilagt sölu á bók, en þeir geta haft varanleg áhrif á unga höf- unda, sem eru viðkvæmir fyrir hvatvísi og jafnvel ósanngirni er stundum birtist í ritdómum þeirra Þeir vinna ekki bókmenntunum gagn með því að fá útrás fyrir persónulegt áiit sitt á viðkom- andi bók, eða jafnvel viðkomandi höfundi. — Ég lit bjartari augum á út- gáfu ljóðabóka, eftir þá reynslu sem við höfum fengið að undan- förnu, sagði Baldvin að lokum. — Og ef hægt væri að tryggja að bókasöfnin í landinu keyptu einhvert ákveðið magn þeirra bóka sem taldar eru hafa bók- menntagildi, yrði útgáfa þeirra vitanlega á allan hátt önnur og öruggari. Ég geri mér þess ljósa grein, að það er ekki hægt að skylda bókasöfnin til að kaupa ákveðnar bækur, en óneitanlega væri æskilegt ef hægt væri að finna einhvern sanngjarnan með alveg. En auðvitað verður Ijóð- ið sjálft ævinlega það sem mest segir og bókin stendur og fell- ur með. SKÁLD ÞARF ÁKVEÐINN TÍMA TIL AÐ SKAPA SÉR NAFN Sigfús Daðason hjá Máli og menninigu, sagði, að foriagið befði ekki gefið út neina nýja ljóðabók á síðasta ári, en það væri raunar undantekning, því venjulega gæfi það út 2—4 ljóða- bækur árlega. — Upplag ljóðabóka uuigra höfunda, er yfirleitt heldur lítið, sagði Sigfús, —• hjá okkur 700—1000 eintök. Miðað við sum- ar aðrar bækur, er þetta ekki há tala, en segja má þrátt fyrir allt að sala þessara bóka sé nokkuð örugg. Það er ákveðinn hópur manna sem kaupir og les nútimaljóð. Flestar þessar bæk- ur seljast alveg upp á nokkrum árum, en eðlilega fer sala þeirra, sem annarra bóka, mikið eftir því hver höfundurinn er. — Seljast ljóðabækur eldri skáldanna betur? — Já, það er áberandi hvað Ijóðabækur þeirra seljast betur, og yfirleitt .selst fyrsta bók höf- undar verst. Ljóðabók virðist þurfa ákveðinn tíma til að slá í gegn, ef við getum orðað það svo. Það fer ákveðinn tími í það hjá skáldi að skapa sér nafn, bækur þeirra vinna á smátt og smátt. — Telur þú að færri Ijóða- skáld komi nú fram en áður? — Nei, ég hef enga ástæðu til að ætla það. Að vísu eru alltaf nokkur áraskipti að þessu. — Þegar ungur höfundur kem ur með handrit sinnar fyrstu ljóðabókar. Hvað ræður því hvort hún er gefin út eða ekki. — Fyrst og fremst hæfileikar höfundarins. Ef við teljum að eitthvað sé í bókina spunnið reynum við að gefa hana út. MENN EIGA AÐ HATA ÞAÐ SEM ÞEIR EKKI SKILJA Brautryðjandinn í útgáfu nú- tímaljóðlistar og jafnframt mik- ilvirkasti útgefandi þessarar bókmenntagreinar er Ragnar Jónsaon í Smára. Ragnar gaf út nokkrar af bókum Steins Stein- ars, sem af flestum er talinn fyrsta íslenzka nútímaljóðskáld- ið, og síðan hefur Ragnar gefið út fjölmargar bækur nútíma- ljóða, einkum hin síðari ár. — Ég man eftir þvi, sagði Ragnar, að bók Steins Steinars, Tíminn og vatnið, var fyrst gef- in út í 150 eintökum. En ljóðin fóru eigi að síður víða og sköp- uðu sér traustan sess. Það er raunar athyglisvert, að þótt niú- tímaljóðabækur séu yfirleitt gefnar út í mjög takmörkuðu upplagi, ná þær til ótrúlega margra. Það er nokkuð stór hóp- ur Bem fylgist vel með og gleyp- ir þessi ljóð í sig. Minnsti hlut- inn kaupir ef til vill bókina, en það nær í hana hjá 'kunningjum sínum, á bókasöfnum eða jafn- vel les þær hjá okkur. Ef nýti- legar setningar eru í þessum bókum, eru þær komnar út með- al hópsins fyrr en varir. — Og er það eins úti á landi? — Fólk nær sér einhvern veg- inn í það sem það hefur áhuga á. Þessar bækur eru lesnar í vax- andi mæli úti á landi. Ég tel, að leikferðir leikhúsanna hafi haft mjög mikil menningaráhrif um allt landið. Það hefur verið farið með fyrsta flokks stykki í leik- för og sýningarnar hafa verið vel sóttar og áhorfendur tekið þátt í þeim af lífi og sál. — Stækkar hópurinn sem les nútímaljóðlist? — Hann stækkar já, en ekki svo mjöig mikið. Útvarp og sjón- varp eiga sinn þátt í því. Út- varpið hefup ekki verið nærri því eins duglegt að kynna bók- menntir og tónlistina en það verður að segjast eins og er, að það hefur haff geysilega mikil áhrif á músikmenntina í landinu. Sjónvarpið hefur fyrsta flokks aðstöðu til þess að kynna bók- menntir og getur haft mikil k- hrif. Við höfum þess dæmi. Ég man t. d. eftir þvi að þær Herdís Þorvaldsdóttir og Helga Bach- mann hafa komið fram og lesið ljóð. Það var framúrskarandi. — Er unga fólkið í meiri hluta í hóp þeim sem les nútímaljóð? — Á því er enginn vafi. Unga fólkið hefur hæfileika til að gleypa það nýja í sig og það hættir ekki fyrr en það hefur náð eér í bækurnar og kynnt sér þær. Unga fólkið er alltaf áhuga- samara um bókmenntir en það eldra. Þannig var þetta a.m.k. í mínu ungdæmi. Það var unga fólkið sem barðist duglegasi; fyr- ir því að fá bækumar inn á heimilin. Mesta spurningin er því, h,vað sé hægt að gera til þess að kveikja í þeim eldri — fá þá í liðssveitina. — Var bókmenntaáhugi í „gamla daga“ meiri en núna? — Hann var almennari. Ég held, að fólkíð hafi verið opnara fyrir bókmenntum og listum. Ég ólst upp á Eyrarbakka og var um fermingaraldur er Svartar fjaðrir Davíðg og Barn náttúr- unnar eftir Laxness komu út. Það komu ef til vill ekki nema 3—4 bækur í þorpið, en þær fóru í hvert hús og voru lesnar upp til agna. Og alstaðar skildu þær eitthvað eftir. Þannig var málum einnig háttað með leik- sýningar. Þær voru sóttar jafn- vel af smákrökkum, og hlutu þau vitanlega sinn þroska af því. Já, það eru örugglega fleiri núna sem snúast kringum glingur og hégóma, eru börn þægindadýrk- unarinnar. — Hvað er al.gengasta upp- lag nútimaljóðaibóka hjá for- lagi þínu? — Svona fjögur-fimm hundr- uð, en eins og ég sagði áðan nær þetta eigi að síður til ótrúlega margra. Þetta þykir gott ef mið- N auðungaruppboð sem auiglýst var í 13., 15. og 17. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1968 á húseigninni Lindarbraut 2 A, Selltjamar- nesi, þiinglesin eign Hafsteins Guðmumdsisonar, fer fram á eigninni sjálfri eftir kröfu Innlheimtu rilkissjóðs, mið- vikudaginm 12. febrúair 1969, kl. 4.30 e.h. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. N auðungaruppboð sem auglýst var í 34., 36. og 38. tölublaði Lögbintinga- biaðsins 1968 á húseigninni Kirkjubraut 10, Jnnri-Njarð- vik, þinglesin eign Reynis Leóssonar, fer fram é eign- inni sjálfri eftir kröfu Sveiins H. Vaildimarssonar, hrl., miðvi'kudagiinn 12. febrúar 1969, kl. 2.30 e.h. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu. N auðungaruppboð sem auglýst var í 14., 16. og 17. tölublaði Lögbirtinga- blaðsins 1967 á skreiðaT<hjöllum við Krýsiuivíkurveg, taiin eign Bátafélags Hafnarfjarðar, fer fram á eigninmi sjálfri, eftir kröfu Innheimtu rikissjóðs og bæj argja'ld'kerans í Hafnarfirði, þriðjudaginn 11. febrúar 1969, kl. 5.00 e.h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. N auðungaruppboð sem auglýsit var í 19., 21. og 23. tölu'blaði Lögbirtinga- blaðsins 1968 á frystiihúsi á Langeyrairimiöilum, Hafnar- firði, þinglesin eign Fisks h/f, fer fram á eigniinini sjátfiri, eftir kröfu Benedikts Sveinssonar, hdl., Lands'bainka íslands, Arnar Þór, hrl. og Innheimltu rikissjóðs, þriðju- daginm 11. febrúar 1969, kl. 2.00 e.h. __________________Bæjarfégetinn í Hafnarfirði. Nauðungaruppboð sem auglýst vair í 34., 36. og 38. tötublaði Lögbirtimga- blaðsins 1968 á lýsis- og fiskimjölsverkBmiðju við Hvai- eyrarbraut 23, Hafnarfirði, þinglesin eign Lýsi og Mjöl h/f, fer fram á eigninni sjálfri eftir kröfu Jnmheimitu rikissjóðs þriðjudaginn 11. febrúar 1969, kl. 3.00 e.h. Bæjarfógetinn í Hafnarfirði. SOLEX BLÖNDUNGAR Höfum fyrirliggjandi SOLEX blöndunga í ýmsar tegundir bifreiða. Getum útvegað með stuttum fyrirvara SOLEX blöndunga í flestar tegundir bif- reiða. HEKLA H.F. varahlutadeild Laugavegi 170. að er við hvað gerist annars staðar. 1 milljónaborgum eins og t. d. Osló og Kaupmannahöfn eru upplögin ekki mikið stærri á bókum nýrra höfunda. — Finnst þér ungu skáldin standa sig nógu vel? — Mér finnst alltaf að málar- arnir standi sig betur. Sennilega er það af því að þeir dvelja meira utanlands. Það er athyglis- vert að beztu skáldin okkar hafa verið svo og svo mikið erlendis. Meðan fólk er að þroskast þarf það að fara um heiminn og liggja við. Mér finnst að nokkr- ar ljóðabækur vanti aðeins herzlumuninn til þess að vera góðar og hef það á tilfinning- unni að ástæðan sé sú að höf- undurinn hefur lítið verið er- lendis. Það eru einhver blæ- brigði sem vantar hjá þeim. Það þarf að senda skáldin til útlanda — loka fólkið sem fer til útanda til þess eins að hanga í búðum inni en senda skáldin. — Eru að verða breytingar á skáldskapnum? — Mér finnst vera teikn á lofti í öllum listgreinum. Hið mannlega er að sækja fram og ryðja því harðsoðna til hliðar. Það er líka ágætt. Það er t. d. mikill þáttur af stærð Laxness i bókmenntunum að þjóðfélaigið andar í gegnum hverja setningu í bókum hans. Skáld verður að finna til ábyrgðar í þjóðfélaginu, því hún er sterkasta aflið á þess- um sviðum, sem öðrum. — En koma ekki færri nú- tímaljóðskáld fram en t. d. fyrir 3—5 árum? — Það held ég ekki. Ég er með handrit eftir 2—3 höfunda, sem ekki hafa gefið út bækur. Hvað svo verður um útgáfu þeirra er of snemmt að segja nokkuð um. Æskilegt væri að sjóiwarpið tæki þátt í kynningu ungra höf- unda og ryddi þeim að nokkru braut. Slík kynning gæti verið stutt og laggóð t. d. eitt kvæði í senn, en væri þakkarvert oig auk þess gagnlegt fyrir stofn- unina. — Hvernig stendur á þeirri óvild og jafnvel hatri sem sumt eldra fólk sýnir nútímaljóðlist- inni? — Maður á að hata það sem maður skilur ekki, því að mað- ur verður þá þeim mun glaðari þegar skilningurinn kemur, og skipt er um skoðun. Allt sem kemur fram nýtt í listum færir til áhugasviðið og menn óttast þær breytingar, — þær geta snert persónulegan hag manna og móralinn sem þeir eru aldir, eða hafa sjálfir alið siig upp i. — Hvaða áhrif hefur svo and- staðan á skáldin? — Hún sfyrkir þau. Ef storm- arnir væru ekki hér á íslandi væri engin íslenzk þjóð til lengur. Hún væri öll flutt burtu. Andstreymið styrkir menn. Það er eitt af náttúrulögmálunum. Um daginn, þegar vitlausa veðr- ið var í ham, hitti ég kunnan •borgara niður á Skúlagötu. Hann sagði: „Mikils fara þær þjóðir á mis, sem þurfa ekki að berjast við svona illviðri". Þetta er al- veg rétt. Baráttan skapar hörku og seiglu. — Hefur þá ekki góðærið haft neikvæð áhrif á skáldin? — Menn bölsótast meira yfir erfiðleikunum en áður. Þá mætti fólkið erfiðleikunum af stórískri ró. Þegar kólnaði í óupphituðum húsunum flutti fólkið sig inn í eitt henbergi og naut ylsins hvort af öðru. Nú er það ekki lenigur hægt, því menn verða að vera að eltast við sprungna miðstöðv- anofna út um allt hús. Þegar minna fiskaðist og ver gekk, tóku menn skertum kjörum af þögn og karlmennsku. Lætin núna stafa af því að of margir hafa reist sér hurðarás um öxl, ætlað sér um of í þæg- indum og fjárfestingum. Ég held, að góðærði hafi verið slappandi fyrir listina, einkum þó rithöfundana, og að erfið- leikatímarnir verði fremur til þess að listin í landinu glæðist heldur en hitt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.