Morgunblaðið - 02.03.1969, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969
BlLALEIG AN FAUIRH f
carrental service ©
1^5 ilM'1-44-44
mmiR
Hverfiseötu 103.
Simi eftir lokun 31100.
MAOIMÚSAR
«iPHom 21 «mar21I90
eftir loVun slmi 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
Bergstaðastraeti 13.
Sími 14970
BÍLALEIGAN
AKBBAUT
Mjög hagstætt leigugjald.
SÍMI 8-23-47
Sebannongs minnisvarðar
Biðjið um ókeypis verðskra.
ö Farirnagsgade 42
K0benhavn 0.
TRÉSMIÐIR
Höfum ennþá á gamla
verðinn:
HEFILHAUSA
KÚTTARAHAUSA
FRÆSIBAKKA
FRÆSITENNUR
KÍLTENNUR
Z — JÁRN o. fl.
r r ^ 1
r LUDVIG
i STI R R j
L Æ
Laugavegi 15
Sími 1-33-33
EndurbyggiÖ
eldhúsið með
Husqvarna
0 Skrípi-orðið „pop-
messa"
„Gestur að sunnan" skrifar:
„Heiðraði Velvakandi!
Geta þessir ungu menn, sem
ætla að frelsa kirkjuna úr fjötr-
um Mnnar öldruðu sveitar í þjóð
félaginu með því að flytja daegur-
ið hrátt upp úr dönskum sorp-
skólablaðaskrif sín í guðshúsi,
ekki byrjað á því að frelsa móð-
urmálið?
Orðið „pop-messa“ er dæmigert
um máltilfinningu og rökvísi
þessa fólks.
í fyrsta lagi er orðið frámuna-
lega Ijótt, óþjált og fáránlegt.
í öðru lagí er orðið útlent (tek-
ið hrátt upp úr dönskum sorp-
blöðum), og ætti að vera lítill
vandi fyrir Mna menntuðu og
glæsilegu (að ekki sé talað um
hina „þjóðlegu" æsku landsins að
finna íslenzkan búning handa
þessu hugtaki. Hér er aðeins átt
við þann hluta æskulýðs lands-
ins, sem hefur Iag á að láta á
sér bera og telur sig réttkjörinn
fulltrúa allra annarra ungmenna I
landinu.
í þriðja lagi hefur orðið
„messa" alveg sérstaka, ákveðna
merkingu í íslenzku máli, en at-
höfn sú, sem „pop-messa“ á að
tákna, á ekki á nokkurn hátt
skylt við messu.
I fjórða lagi vita unglingarmr
ekki einu sinni, hvað „pop þýðir,
og þekkja alls ekki uppruna orðs-
ins. Ég hef beðið marga unglinga
um að skilgreina orðið „pop“ fyr
ir mig, en engum hefur tekizt
það.
Það er hastarlegt, þegar ungl-
ingar, sem fyrirfram eru á móti
kirkjunni, fá aðgang að guðs-
húsi safnaða, að þeim forspurð-
um, til þess að flytja þar níð um
þá stofnun, sem sumum er kær-
ust allra. Það geta þeir gert ann-
ars staðar.
Það er hlægilegt, þegar mið-
aldra karlar þykjast ætla að vera
frjálslyndir, umburðarlyndir og
„skilmngsríkir“ gagnvart æskunni
og láta allt eftir henni, af ein-
skærum ótta við að vera stimpl-
aðir það, sem þeir eru: guðs-
volaðir, miðaldra, æskulýðssnobb
aðir sauðir".
Hér setur nú Velvakandi bara
amen eftir efninu, — en annars
var bréfið lengra, og tók ekki
betra við. — En sé bréfritara jafn
illa við athöfnina og orðið, ættu
þau að hæfa hvort öðru.
0 Popp-prestar eða ekki
poppprestar
„Kæri Velvakandi
Ég hef ekki skrifað þér áður
ég hef heldur ekki haft tilefni,
en nú hef ég það. Þetta er út
af ummælum séra Árelíusar Níels
sonar um Pop-messuna, sem var
haldin síðastliðinn sunnudag Hann
segir í Vísi, að ekki verði aftur
haldin Pop-messa í sínum messu-
tíma, og að ræðumar, sem flutt-
ar voru þar hafi verið hroka-
fullar, (þó sagði hann eftir mess-
una, að önnur ræðan hefði verið
svo til eins og ræða, sem hann
hélt sjálfur fyrir stuttu) og segir,
að þetta hafi ekki verið nein
messa. Ég vil spyrja, skilur séra
Árelíus okkur unga fólkið? Veit
hann, hvað við viljum? Við vilj-
um ekki hafa kirkjuna, eins og
hún er, ekki staðnaða, við viljum
hafa hana áhrifamikla og láta
hana taka afstöðu til ýmissa
stærri mála. Láta hana aðlagast
nútánanum. Eftir Pop-messuna á
sunnudag var séra Árelíus spurð-
ur, hvað prestar myndu segja um
þessa messu. Hann svaraði „Þeir
verða áreiðanlega ekki allir sam-
mála en ég held, að hver prestur
mundi hugsa sig tvisvar um áður
en hann neitar svona stórum hóp
um að sækja messu“. Þetta voru
hans orð, og nú er hann búinn
að neita þessum hópi um að sækja
messur, því að fæstir gera það
(þ.e.a.s, sækja messur) við núver
andi ástand. Sem sagt hann vill
aðeins hafa eldra fólkið og láta
kirkjuna þar af leiðandi fjarlægj-
ast okkur unga fólkið. Við erum
framtíðin, ef okkur semur ekki
við kirkjuna, þá lognast hún út-
af í framtíðinni. Ég er ekki að
segja, að allt hafi verið rétt, sem
gert var £ pop-messunni, en eitt-
hvað verður að gera, einhverju
verður að breyta Ég vona, að
þeir, sem stóðu að þessari messu,
láti ekki orð séra Árelíusar á sig
fá, heldur haldi áfram baráttunni
og hafi pop-messur í hverjum
söfnuði í Reykjavík og gaman
væri að heyra álit fleiri presta á
þessu máli.
POP“.
0 Æskan þrýstir á
prestana
„Gu. Jó“ sferifar:
„Kæri Velvakandi:
Þar kom að þvi. Loks létu
prestar undan þrýstlngnum frá
„æskunni". Vonandi stafar þessi
þrýstingur frá þeim, sem trúa á
Guð og Jesúm Krist, en ekki frá
Mnum, sem vilja öll trúarbrögð
feig, og þá ekki sízt kristMna.
Hins vegar mun þeim sumum
þykja „fínt“ að blaðra um Búdd
isma, sem þeir vita ekkert um,
enda jafnmikill heiðindómur og
Ásatrú og litlu framar í siðgöfgi
og mannbætandi áhrifum, en þetta
tvennt verður þó að teljast und-
irstöðuatriði þess, að mannkynið
geti iifað saman í sátt og sam-
lyndi, en eyðist ekki af eigin
vonzku.
0 Andlegt skran í
tómann maga
Það er gaman að vera á móti
ÖIXu hinu „viðtekna". Þó skyldu
menn athuga sinn gang, áður en
öllu gömlu er afneitað, því að þá
verður eftir tómarúm, sem alltof
auðvelt er að fylla með andlegu
skrani. Það sannar reynslan, ekki
sízt nú á dögum, þegar annars
frjálslynd æska getur iátið smit-
ast af Miaó-fasisma löngu afgreidd
um aldamóta-ainarkisma. Castro-
dictatorism og öðrum álíka geðs-
legum en gamalkunnum sjúkdóms
einkennum rótslitinnar aldar.
Raunverulegur kommúnismi er
ekki í tizku lengur, nema þá
þessi venjulegi rauðfasismi. —
En allt er þetta drasl, sem hver
og einn sxðmenntaður og lesinn
maður hefur losað sig við um
tvítugsaldur.
0 Andfýla
En Ieiðinlegast er, þegar and-
legrar stéttar menn gugna og
bogna undan andblæstri, sem þeir
ímynda sér í ástæðulausri skelf-
ingu sinni, að sé ferskur andi nýrr
ar kynslóðar, er þeim verði fyr-
ir alla muni að þefa af og láta
síðan blása í segl kirkjudeildar
sinnar, þótt þar sé kannski bara
um að ræða fúlan þef úr vitum
þeirra, sem vilja kirkjunm illt.
Hlustið til dæmis á klerkana,
sem eru að reyna að tala um dæg-
urmál og pólitík í ræðuhöldum
sínum, einkum þegar þeir kom-
ast í útvarp á sunnudagsmorgn-
um. Þá sefur raunar allt ungt
fólk út, en örfáir, árrisulir gaml-
ingar liggja vakandi í fleti sínu,
vantandi morgunkaffi frá sofandi
og timbraðri tengdadóttur eða
öðrum nákomnum, og neyðist til
þess að hlusta á. Áróðurinn fer
algerlega á skakkan stað
0 Prestar í tímans
straumi
Að slepptu kjaftæði um túna-
slátt, gæftaleysi lóukomu og svo-
leiðis trikkum, sem sumir prest-
ar halda, að gæði boðskap þeirra
lífi og „inntaki", þá er vinsælt
að þrugla í hálfkveðnum vísum
um Víetnam og Grikkland. Það
á að sýna, að þeir hrærist í tím-
ans straumi, þótt þeir vanræki
boðskap frelsarans. Það er líka
OK að rövla um Grikkland. Allt
vinstra sinnað dót hugsar með
sér: Honum er þó ekki alls varn-
að, helv. . . klerkinum, en hvað
um það, hann er klerkur samt
Lítið þakklæti fær hann úr
þeirri átt, en sleppur kannski
við gagnrýni á prenti um skeið
Segði hann hins vegar, sem satt
er, að í rikjum kommúnismans
ríkti miklu meiri andleg og Ifk-
amleg kvöl, þá myndu allir lands
ins laumu-, kvart-, hálf- og heil-
kommúnistar rísa upp á aftur-
lappirnar og fordæma hann fyrir
pólitískan óróður, og enginn svo
kallaður íhaldsmaður mundi rísa
upp honum til varnar. — Þetta
vita klerkar og haga sér eftir þvL
Svei þessu öltu saman.
Gu. Jó“.
Velvakandi hefur engu við öll
þessi ósköp að bæta, nema því, að
einu sinni á skólaárum hans (fyr-
ir mörgum öldum, að dómí nú-
verandi skólaæsku) var sá „frasi“
vinsæll meðal þeirra, sem þá, eins
og nú, hafa leyst öll vandamál
heimsins í einu vetfangi, að
„Búddhatrú væri afslappandi, Ása
trú uppstrammandi, marxismi
myrðandi, en kristindómur niður-
lægjandi", (hér töluðu að sjálf-
sögðu otfurmenni)
Annars er það mesta furða, hve
Velvakanda hafa borizt mörg
bréf um þessi mál, og kannske er
hér loksins komin sú raunsanna
„rökræða í þjóðfélaginu“, sem þeir
hafa helzt verið að óska eftir,
sem kjósa yfirleitt heldur að rök-
ræða með handvélbyssum en tal-
færum. — Það væri svo sem eftir
öðru, að Velvakandi gamli yrði
heizti vettvangur slíkra rökræðna
Margt fær hann að þola. En vegna
bréfafjölda, sem ber vott um
mikinn áhuga, inun Velvakandi
reyna að láta bréf um þessi efni
ganga fyrir öðrum fram eftir
næstu viku.
0 Friðarbær
Miklar umræður hafa farið fram
um nafn á skemmtistað unga
fólksins, og menn þar ekki á eitt
_sáttir. Þegar unga fólkið sjálft
kaus um nafnið voru skoðanir
einnig mjög skiptar, þótt Tóna-
bær hafi hlotið flest atkvæði. —
Einn bréfritari Velvakanda sting
ur upp á því að skemmtistaðn-
trm verði valið heitið Friðarbær
með þeirri ósk og trausti til æsk-
unnar að það yrði réttnefni.
Væntanlega á æskan það traust
hans skilið hvert svo sem nafn
staðarins verður, en meðal gár-
unganna gengur gamla Lido nú
undir nafninu Villingaholt.
Nú er rétti tíminn til að panta giugga í húsin, sem
byggjíist eiga í sumar.
Góðir gluggar eru aðalatriðið í hverju húsí.
Helztu kostir
Cafda,
^CfLUCGAj^
eru:
1. Þar skyggja engir póstar á og útsýnið nýtur sín
fullkomlega.
2. Hægt er að snúa þeim alveg við um 189° og hrcinsa
þá og mála algjörlega innan frá.
Þetta sparar mikið fé og fyrirhöfn og húsmóðirin
er alltaf ánægð með sinn hreina glugga.
3. Hægt er að hafa gfugga opna i hvaða stöðu sem er
án þess að eiga á hættu, að rigni inn um þá.
4. Loftræsting er mjög góð.
5. Þeir eru algjörlega vatnsþéttir.
6. Þeim fylgja þéttilistar, sem gera þá vindþétta.
7. 1 árs áhyrgð fylgir giuggtmum.
15 ára reynsla í smíði
Þegar haía verið
smíðaðir um 10000
timburvebzlunoí völundur hf.