Morgunblaðið - 02.03.1969, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969
Hundrað kall f rd kónginum
Og nú röltum viö f rólegheit-
um, niöur brekkurnar frá Eir-
ikshólnum, niður í Eiríkshóls-
grófirnar, þar sem einu sinni
var verið á engjum í þá daga
var allt graslendi nýtt, einkan-
lega það sem greiðfært kallað-
ist. Þeim þótti það þægilegra,
gömlu mönnunum, að slá á því-
líkum stöðum, en að vera si-
fellt að berja þúfnakollana.
Snemma vors er það alltaf
öruggt að finna gnægð Vetrar-
blóma í melbörðunum neðan
Eiríkshólsgrófa, en Vetrarblóm-
ið er einhver mesta skartjurt
hériendis, sú sem fyrst blómstr
ar og vekur manni vorsins von
í brjósti.
í þetta sinn erum við aftur
stödd á gamalkunnum slóðum
við austanverðan Hvalfjörð, Eir
íksbóll liggur í þjóðbraut og
þó eru það fáir, sem um hann
vita, og aka þó tugþúsundir
framhjá honum árlega.
Það er sumar og sól. Nátt-
úran er í essinu sínu og skart-
ar skrautklæðum. Geldingahnapp
ur prýðir græna þúfu og blóð-
bergið ilmar. Lambagrasið smáa
vekur upp gamlar minningar.
menn löguðu sér te af blóðbergi
hér áður fyrri. Við komum í agn
arlítið daldrag. Þar er örlítið
vott undir fótinn, líklega dýja-
bleyta. Þar sjáum við dýr, sem
vekur athygli okkar. Það er
gljáandi svart á búkinn, fall-
ega rákað, og teygir sig leti-
lega áfram í grasinu og sól-
skininu. Því liggur ekkert á.
Þarna er á ferðinni Svarti
snigill (Arion ater). Hann er
stærsti snigill okkar, að land-
sniglum til. Marga eigum við
snigla í sjó og við fjörur, en
þó nokkuð margar tegundir la.nd
snigla eru til, og sumir þeirra
hafa til skjóls raunverulega
kuðunga. Ekki þurfa menn langt
að ganga til að rekast á þessi
litlu dýr, sem hamast við að
lifa, og láta sennilega hverjum
degi nægja sína þjáningu. En
hugum nú aftur að Svarta snigli
Hann er glæsilegastur allra land
snigla hérlendis, ber yfir þá höf
uð og herðar, og um hann hafa
myndast þjóðsögur.
Svarti snigill hefur oft verið
Hann er föngulegur Svarti Snigillinn, og það sýnist auðvelt
að grípa í hornin hans
nefndur Brekkusnigill á ís-
lenzku, þótt vísindin hafi eign-
að annarri sniglategund það
nafn á síðari tímum. En engin
vafi er á, að þegar þjóðtrú
talar um Brekkusnigil á hún
við Svarta snigil. Brekkusnigill
nútimans er svo miklu ósjálegri
að engar þjóðsögur hefðu um
hann myndast.
Rekjum nú stundarkorn al-
þýðutrúna um Svarta snigil eða
Brekkusnigil, en það er auðvit-
að sami snigillinn.
Ef maður gat náð í fimmta
horn brekkusnigilsins, kemur það
fram, sem maður óskar sér.
Skyldi bera gullhring að hausi
snigilsins og segja:
Brekkusnigill, brekkusnigill,
réttu út miðhorn,
ég skal gefa þér gullhring
á hvert eitt þitt horn.
Eftir annarri kreddu var nóg
að hann rétti fram þrjú horn-
in:
Brekkusnigill boginn
ég skal gefa þér uxa og kú,
ef þú rekur út hornin þrjú.
Þegar ég var að alast upp og
vaxa úr grasi hafði þjóðtrúin
tekið á sig allt annað gerfi. Nú
var ekki lengur talað um að
gefa sniglinum neitt, heldur
þótti það öruggt, ef maður næði
til að grípa í, þótt ekki væri
nema eitt horn snigilsins, þá átti
maður að rífa það af, setja í
Svona getur Svarti snigill dregiö sig í hnút, þegar hann vill
ekki að neinn nái i homin.
umslag, senda það kónginum
í Kaupmannahöfn, og innan tíð-
ar myndi hann senda manni
hundrað kall fyrir hornið. Þetta
var einskonar happdrætti þeirra
tíma. En fæstir náðu að grípa
um horn snigilsins máski eng-
inn.
Svarti snigill er félagsvera.
Sá ég eitt sinn að kvöldlagi
í snarbröttum brekkunum ofan
við Skólasel Menntaskólans í
Reykjakoti, hvar hundruðir
svartar snigla voru saman komn
ir á fundi. Vafalaust hafa þeir
verið að ræða aðkallandi efna-
hagsvanda, hvernig skipting
þeirra þjóðartekna skyldi fram
(fara. Það lá við að maður
beyrði masið í þeim. Pálma
rektor þótti þetta merkileg tíð-
indi, enda var hann þá Alþing-
ismaður.
Þótt lítið fari fyrir kuðungn-
um á svarta snigli hefur hann
kítínbrynju undir húðinni til
hlífðar viðkvæmustu líffærun-
um.
1 einni bóka sinna segir Dar-
win frá atviki, sem bent gæti
til þess, að sniglar hefðu eitt-
hvert andlegt líf.
Hann gaf gaum að tveimur,
sem höfðu skriðið inn í líf-
vana garð. Sá þeirra, sem var
ævintýragjarnari og meir leit-
andi, yfirgaf félaga sinn, skreið
yfir steinvegg og fann þá snigla
paradís.
í staðinn fyrir að setjast þar
að og lifa í vellystingum prakt
uglega og setjast einn að krás-
unum, sneri hann til baka, fór
aftur yfir vegginn, og gat talið
félaga sinn á að fylgja sér yfir
í paradísina. Darwin fannst þetta
benda til einhvers minnis, og
einnig til þeirra mannlegu óska
að deila með öðrum hamingj-
unni.
Látum við svo staðar num-
ið að tala um Svarta snigil í
Eiríkshólsgrófum að sinni
Fr.S.
ÚTI
Á
VÍÐAVANGI
FRÉTTIB
Hvítabandskonur
Munið aðalfund félagsins að Hall
veigarstöðum þriðjudaginn 4 marz
kl, 8.30. Kaffidrykkja Áríðandi að
konur fjölmenni
Árshátíð Sjálfsbjargar
verður í Tjarnarbúð laugardaginn
15. marz.
Helga á Sæbóli 70 ára
Nokkrir vinir hennar hafa ákveð
ið að heiðra hana með samsæti
að kvöldi afmælisdagsins, mánu-
daginn 3 marz kl. 8.30 í Félags
heimilinu í Kópavogi. Þeir, sem
vilja taka þátt í samsætinu til-
kynni það í síma 41616 eða 41391
Kvenféiagið Seltjörn, Seitjarnar
nesi. Fundur verður haldinn í Mýr
arhúsaskóla miðvikudaginn 5. febr.
kl 830 Guðmundur Illugason verð
ur gestur fundairns og segir frá
Seltjarnarnesi í fyrri daga
Kirkjukvöld • Háteigskirkju.
Kirkjukvöld í Háteigksirkju kl.
8.30 Herra biskupinn Sigurbjörn
Einarsson flytur erindi Kammer-
kórinn syngur undir stjórn Ruth
Magnússon. Auk þess verður al-
mennur söngur og organleikur. Að
gangur er ókeypis og öllum heim-
ill meðan húsrúm leyfir.
Sóknarnefndin.
Kvennadeild Skagfirðingafélags-
ins í Reykjavík heldur skemmti-
fund í Lindarbæ mðivikudaginn
5. marz kl. 8.30 Á fundinum verða
birt úrslit í skoðanakönnun, kvart-
ett syngur, sýndar skuggamyndir
Heimilt að taka með sér gesti
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur samkomu í félagsheimili
Hallgrímskirkju, þriðjudaginn 4.
marz kl. 8.30 öldruðu fólki í
söfnuðinum er sérstaklega boðið á
fundinn. Guðrún Tómasdóttir söng
kona sýngur við undirleik Ólafs
Vignir Albertsosnar Kaffiveitingar
Góukaffi kvennadeidlar Slysa-
varnafélagsins í Reykjavík verð-
ur sunnudaginn 2 marz í Tjarn-
arbúð kl. 2 Hlaðborð með allskon-
ar kræsingum. Nefndin heitir á fé-
lagskonur að gefa kökur og hjálpa
til á sunnudaginn.
Snjóbíll Til sölu góður snjóbíll með 8 til 10 manna húsi. Góð vél, gott hús og ný belti. Skipti á bíl koma til greina Uppl. í s. 34526 á kvöldin. Til leigu 3—4 herbergi á götuhæð í Miðbænum. Gott fyrir tann lækna eða hárgreiðslust. Tilb. til Mbl. merkt „Mið- bær 6730“ fyrir 7. marz.
Helma auglýsír Klæðum og gerum við
Japanskar stretschbuxur, nýkomnar. Helma, sími 11877. við bólstruð húsgögn. — Bólstrarinn, Hverfisgötu 74 Sími 15102.
Ung barnlaus hjón Sófasett
óska eftix 2ja—3ja herb. íbúð til leigu í Rvík frá og með maí—júní. Uppl. í sma 33320. á gamla verðinu. Sjónvarps hornsófinn kominn aftur. Bólstrarinn, Hverfisgötu 74 Simi 15102.
íbúð til leigu 3ja herb. íbúð í Vesturborg inni til leigu frá 1. apríl, góð umgengni skilyrði. — Tilb. sendist Mbl. fyrir 15 þ. m. merkt: „6255“. Tapað - fundið Kvengullúr tapaðist í Vest ur- eða Miðborginni. Finn- andi vinsamlegast hringi i síma 16229 gegn fundar- launum.
Bíll Keflavík — Suðurnes
Til sölu Willy’s station, model ’57 ásamt varahlut- um. Góður fjallabíll. Upp- lýsingar i síma 37234. Nýkomin ullarefni í dragt- ir, flauel í fermingarkjól- ana, margir litir. Verzl. Femina.
2ja—3ja herb. íbúð Fundizt hefur
i óskast 1. apríl. Góðri um- gengni heitið. Uppl. í gíma 1515Á lítið telpnahjól, tvíhjól við Nýbýlalaug. Uppl. i síma 83067.
Sængn rveradamask Breidd 1 m og 140. Hamrað léreft í náttföt o.fl., br. 1,15 Verzlunin Anna Gnnnlangsson, Laugavegi 37. Japönsku stretchbuxurnar komnar nr. J—12. Verzlunin Anna Gunnlaugsson, Laugavegi 37.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Skrifstofuherbergi óskast í eða nálægt Miðbænum. Tilb. sendist afgr. Mbl. fyr- ir mánudagskvöld merkt: „Skrifstofa 6302“.
ARABIA-hreinlætistæki
Hljóðlaus W.C. — kassi.
Nýkomið: W.C. Bidet
Handlaugar Baðker
Faetur f. do. W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Glœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumhoð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.
íbúðir óskast:
Höfum kaupanda að 2ja herb. íbúð.
Útb. kr. 400—600 þús.
Höfum kaupanda að 3ja herb. íbúð.
Útb. kr. 500—700 þús.
ÍBÚDASALAN
Ingólfsstrœti gegnt Gamla Bíói
sími 12180
Sölumaður Heimasími
Höfum kaupanda að 4ra herb. íbúð. Gísli ÓlaíSSOIl
Útb. kr. 600—800 þús.
83974.
Höfum kaupendur að sérhæðum.
Miklar útborganir.
Höfum kaupendur að einbýlishúsum
í Reykjavík, Kópav. og Garðahreppi.
Höfum kaupanda að verzlunarhús-
næði.