Morgunblaðið - 02.03.1969, Side 24

Morgunblaðið - 02.03.1969, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. MARZ 1969 Það sem hún sá, var líkast skugga af barni. Andlitið var eitthvað svo lítið og tært, hör- gula hárið svo slétt, og neglurn ar á fingrunum svo óhugnanlega hreinar, og ljósrauðar og hvítar. Hana langaði ekki að horfa á þetta lengur. Gildvaxin systir klappaði á handlegginn á henni og ýtti henni hægt út í ganginn. Þetta var mjög langur gangur með ein hverjum gulum blómum í , og steinkrukku á borði úti í end- anum. Hávaxinn maður í regn- kápu stóð við borðið og horfði út um gluggann. Hún vildi ekki ónáða hann, en hinsvegar varð hún að ganga rétt hjá honum. En eitthvað kom henni þetta dökkhærða höfuð kunnuglega fyrir sjónir. Og hún fann, að hún var farin að horfast í augu Við Blake McCall. — Hvernig líður honum Símoni sagði hann. Hún varð alveg orðlaus, svo mjög hnykkti henni við, og trúði ekki því sem hún heyrði. Þetta voru orð, sem húnn hafði áður sagt og hún hafði ástæðu til að tortryggja. En nú reið á að láta ekki þetta núverandi eymdará- stand hafa áhrif á sig, heldur reyna að varðveita óbeitina á honum óskerta. Með hendur í vösum og horf- andi niður á gólfið, sagði hún honum hvað læknirinn hafði sagt, og reyndi eftir föngum að hafa hemil á tilfinningum sín- um. Þau gengu út saman og án þess að hugsa um nokkra sér- staka stefnu gengu þau út á göt- una. Hún kom auga á einhverja götu, sem hún kannaðist við og sá, að þaðan hafði hún komið. Hann tók að tala lágt um sína eigin bernsku í Kanada og síð- an um son sinn. Loksins þorði hún að líta á hann og furðaði sig á þessari óvæntu viðkvæmni hans og hreifst af fallegri röddinni. Það var óhugsandi, að þetta væri sama röddin, sem gat verið svo hvöss og kuldaleg. í flugvél- inni var hann vanur að snúa höfðinu ofurlítið til annarrar hliðar, með augun hálflokuð, rétt eins og til að bíða eftir svörum, sem hann gæti síðan rifið í tætl ur. En nú var hann öðruvísi. Þol- inmóður, rólegur og ótrúlega nærgætinn. Þau gengu áfram og reyndu að forðast umferðina, þegar far- ið var yfir gatnamót. Hún fann, að hún var sjáfl að verða ró- leg og fann til líkamiegrar þreytu, sem þó var ekki óþægi- leg, en samt óskaði hún, að þessi 45 %• 0WX#*** Leggjum peim lið ganga þeirra gæti haldið áfram . . . og áfram. Hann kom í sjúkrahúsið næstu sex kvöld í röð. Þetta var bezti tími dagsins, þegar hver trjá- grein stóð hreifingarlaus út í lygnt loftið. Fuglar með þanda vængi létu sig svífa í silfurglitrandi loftinu. Allur veruleiki var víðs fjarri. Heil vika leið, án þess að vera talin, og hafði ekkert inni að halda nema daglegar tilkynning ar sjúkrahússins og svo hina lífgandi nærveru Blakes, hvort sem hann var hjá henni eða ekki. Minningin um það sem hann hafði sagt nægði til að fylla upp í þær stundir, sem hann var hvergi nærri. Einn morguninn hringdi sím- inn hjá henni óvenju snemma. Systir Darby var glöð í bragði næstum hlæjandi. — Ég verð að hringja í yð- ur. En þér athugið, að þetta er einkamál, og Bromley læknir hringir seinna. Ég vil, að þér vitið að í morgun var Símon Við viljum iöggjöf um aðstoð við fðtœku pjóðirnar Herferð gegn hungri Æskulýðssamband íslands » ÁLFTAMÝRI 7 OMAHUSIÐ simi 83070 Opið alla daga öli kvöld og um helgar. Blómin, sem þér hafið ánægju af að gefa, fáið þér í Blóma- húsin.u. ftFUNA VARI ELDUARNAR MALNING FUNAVARI er plastbundin eldvarnarmálning, er blæs upp við hita og myndar frauö, sem logar ekki en einangrar vel gegn hita. FUNAVARI tefur því mjög fyrir íkviknun í eld- fimum vegg- og loftklæðningarefnum og hindr- ar þannig lengi vel útbreiðslu elds. Á sama hátt einangrar FUNAVARI stálbita og járnhurðir og vajnar því að málmurinn hitni og leiði hita til reiðslu elds. MALNIIMG í KÚPAVOGI Sími 40460 — Það var komið með eplakassa meðan þú varst úti, mamm. orðinn eins hress og hægt er að búast við af barni á hans aldri. Fyrir nokkrum mínútum, þegar ég fór að líta til hans, stóð hann á höfði í fótendanum á rúm inu og var að reyna að ná til lampaskermsins með fætinum . . — Hvað sagði hann .. . ? — Hann sagðist vera glorsolt inn og nú er hann að tæma stór an disk af hafragraut. Hún sagði síðustu orðin næstum hlæjandi. — Hvað þetta var dásamlegt, og ég þakka yður, systir. Þetta eru beztu fréttir, sem ég hef fengið á ævinni. Get ég komið út til ykkar srtax? — Það getið þér, ef þér vilj- ið, en ég mundi nú ráðleggja yður að tala fyrst við Bromley lækni. Því að ég verð að taka fram, að það, sem ég hef sagt yður, er algjörlega óformlegt. Ég veit bara, að héðan af fer hanrij að verða plága á okkur, þessi litli oróðir yðar! lauk systirin máli sínu. — Viljið þér segja Símoni, að ég fari alveg að koma. Lísa var frá sér numin af feg inleik við þessar huggunarríku fréttir. Þegar hún hafði klætt sig varð hún að setjast á rúm- stokkinn, vegna svima yfir höfði. Skárri var það nú vitleysan, þegar allt var bjartara útlits, en þá varð hún þess vör, að hún hafði ekki bragðað mat 1 meira en sólarhring. Hún fór fram í eldhús og fékk sér heljar mikla brauðsneið og þegar hún hugsaði til Símonar og matar- lystarinnar hans jókst henni mat arlyst að sama skapi. Símon sat uppi í rúminu sínu, óeðlilega hreinn og horaður, en augun ljómuðu. Hann veifaði til hennar handan við rúðuna og deplaði augunum en hjartað í henni hoppaði. Hjúkrunarkon- an sagði, að hún mætti fara inn í stofuna en bara ekki snerta barnið. Hún kyssti á fingur til hans og brosti. — Þú hefur verið nokkuð lengi á leiðinni, sagði Símon. — Get ég farið á fætur í dag? — Það veit ég ekki. Við verð- um að spyrja lækninn. Kannski ekki í dag en mjög bráðlega, sagði Lísa. — Hvað á ég að færa þér? Einhverjar Orlando- bækur eða byggingarkubba? — Komdu með eina Orlando- bók — þessa um sveitabæinn, og svo litina mína. En ég er bara orðinn svo þreyttur á að liggja í rúminu. Mig langar mest til að fara í fimleika. Ég er far- inn að geta snert lampasnúr- una með fætinum. Á ég að sýna 2. MARZ 1969 Hrúturinn 21. marz — 19. apríl Vera má, að kvöldið verið ekki sem rólegast Vinir þínir færa þér fréttir, sem koma óþægilega við þig. Leggðu við hlust- irnar þvi að það er miklu flóknara mál, en í fyrstu virðist. Nautið 20. apíi — 20. maí Reyndu að stilla þig, er þú færð óvæntar fréttir Hugsaðu ráð þitt með kvöldinu. Tvíburarnir 21 maí — 20. júní Farðu til kirkju á réttum tíma í dag. Þú verður því feginn eftir á. Allskonar tilviljanir verða á vegi þínum í dag, en láttu það ekki glepja þig. Krabbinn 21. júní -— 22 júlí Kirkjuferðir og fleiri samkomur eru ofarlega á baugi Gættu eigna þinna og fjármuna. Ljónið 23. júlí — 22. ágúst Það borgar sig að hafa munninn fyrir neðan nefið Vertu einangraður, en ofgerðu þér ekki á mælsku. Hafðu vaðið fyrir neðan þig, og mundu umgengnisvenjunar. Meyjan 23. ágúst — 22 september Það er óborganlegt að kunna að þegja, þótt þig blóðlangi til að láta í ljós álit þitt á fólki. Gættu heldur heilsunnar. Vogin 23. september — 22 október Ef þú ferð ekki gætilega, taka allir eftir því Allt, sem þú ætlar að leita til annarra með í trúnaði, verður misskilið. Rólegt yfirbragð þitt gefur betri raun, en þú átt von á. Spoððrekinn 23. október — 21. nóvember Þú fréttir leyndarmál, en ekki nærri alla söguna Farðu varlega. Bogamaðurinn 22 nóvember — 21. desember Því skyldari sem málin eru þér, því líklega er, að fólk finni allt til foráttu. Rex og rifrildi eru ofarlega á baugi. Steingeitin 22. desember — 19 janúar Þennan sunnudag verðurðu fegin því að hafa haldið þig heima við Forðaztu dómhörku í kjaftasögum, sem kunna að berast langt að, eða sleggjudóma hægindastólasérfræðinganna. Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar Margir eru þeir, sem hafa allt aðra skoðun en þú á því, hvernig nota beri fjármuni þína Haggaztu ekki, heldur bíddu átekta. (í næstu viku). Láttu svo sparifé þitt í friði. Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz Ávinningur þinn er mikill í því að neita þér um að rífast við fólk. Þetta getur fært þér mikla gleði síðar meir. Þegiðu og sittu á þér, þar til þú hefur hugsað þig um, að minnsta kosti.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.