Morgunblaðið - 08.03.1969, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1969.
Sundrung í kommúnistaflokki Pðllands
Samsœristilraun gegn Comulka
Dregið úr Cyðingaofsóknum
vegna flótta menntamanna
BRUXELLES, 1. MARZ
Nýlega birtist í einu virt-
asta blaði Belsríu, „La Libre
Belgique", grein um stjórn-
málaástandið í Póllandi. Þar
eð greinarhöfundur, en nafns
hans er ekki getið af örygg-
isástæðum, virðist hafa mikla
þekkingu á þess» efni og skýr
ir glögglega erfiðleika Gom-
ulka og annarra fiokksieiðtoga
Póllands, birtist greinin hér
í lauslegri þýðingu:
Mikil spenna virðist ríkja
í stjórnmálalífi Póllands um
þessar mundir. Flokksforyst-
an virðist helga krafta sína
innri baráttu, þar sem einsk-
is er svifizt og öllum vopn-
um beitt í því skyni að auka
eigin vold. Stuðningsmenn
þriggja valdamestu manna
flokksins, Gomulka, Mozzar
og Gierk auk stuðnings-
manna annarra minni spá-
manna heyja innbyrðist harð-
vítuga leynilega baráttu svika
og undirferlis. Á flokksþingi
kommúnistaflokksins í nóv-
ember s.l. var engum jákvæð-
um tillögum sinnt. Starf
þings var raunverulega lam-
að og í stað þess að sinna
efnahagsmálum landsins var
þingstörfum stöðugt spillt, ann
ars vegar vegna andúðar ó-
trúlegs meirihluta almennra
flokksmanna og borgara og
hins vegar vegna minnkandi
baráttuvilja þeirra, en síðast
og ekki sízt vegna þess, að
flokksleiðtogarnir sátu allir á
svikráðum hver við annan og
þeir áttu nóg með að sinna
einkaóvinum sínum í flokks-
ráðinu.
Samkvæmt þrálátum orð-
rómi í Varsjá undanfarið var
nýlega stofnað til samsæris
gegn Gomulka og fylgismönn
um hans. Gomulka aðalritari
flokksins og forseti stjórnar-
innar, Kloszko, nánasti sam-
starfsmaður hans, auk fjölda
annarra háttsettra flokks-
manna, eru sagðir hafa getað
haldið völdum með því að
neyta aflsmunar.
FALDIR HLJÓÐNEMAR
Raunar komst upp um sam-
særið, þegar faldið hljóðnem-
ar fundust í einkaíbúðum Gom
ulka, Kliszko og annarra fylg
ismanna þeirra. Mál þetta
Björn Bjarnason
skrifar frá Brtissel
minnir nokkuð á Rankovitch
málið fræga í Júgóslavíu. Ran
kovich, sem var annar æðsti
maður stjórnarinnar í Belg-
rad, nánasti samstarfsmaður
Títos, marskálks, og fyrrver
andi yfirmaður hinnar valda-
miklu leyniþjónustu landsins,
var eitt sinn bendlaður við
mál af þessu tagi. Að rann-
sókn lokinni var hann svipt-
ur ö'llum virðingarstöðum og
féll við svo búið í gleymsk-
unnar dá.
Rannsókn sú, er framkvæmd
var í Varsjá eftir fund hljóð-
nemanna, leiddi til hinnar
furðulegustu niðurstöðu. Það
kom í ljós, að hljóðnemarnir
höfðu verið settir á framan-
greinda staði samkvæmt bein-
um fyrirmælum Szlachcic, að
stoðar-innanríkisráðherra
landsins. En hann er náinn
vinur Moczars, leiðtoga „Part
isan“ (föðurlandsvina) hreyf
ingarinnar innan kommúnista
flokksins, sem nú er í forsæt-
isnefnd flokksins og var áður
um langt skeið innanríkisráð-
herra og yfirmaður leynilög-
reglunnar. Hann varð aðsegja
af sér þeim embættum er hann
var fulltrúi í forsætisnefnd-
inni, en þrátt fyrir það er
talið, að hann hafi enn haft
nokkur ítök í þesaum valda-
miklu stofnunum. Og um langt
skeið hefur hið nána vináttu
samband milli Moczars og Szla
chcic, sem raunverulega stjórn
ar innanríkisráðuneytinu,
enda þótt hann sé aðeins að-
stoðarráðherra, verið lýðum
ljóst.
Rannsókn sú, sem Kliszko
ásamt sérstaklega skipaðri
• nefnd, leiddi til þeirrar niður
stöðu, að raunverulega hefði
Gomulka
verið um samsæri gegn Gom-
ulka að ræða. Þá taldi rann-
sóknarnefndin, að á bak við
samsærið stæðu fjö'lmargir
áhrifamenn úr „partisana“-
fylkingu Moczars, hátbsettir
embættismenn öryggisþjónust
unnar, nokkrir herforingjar
og einnig einhverjir forystu-
fanna hinnar frægu hálf-
kaþólsku hreyfingar, sem
nefnist „Pax“.
Jafnskjótt og þessu hafði
verið ljóstrað upp greip Gom
ulka til harkalegra gagnráð-
stafanna. Moczar, hershöfð-
ingi var sviptur öllum ítök-
um í valdamiklum stofnunum
leyniþjónustunnar. f innan-
ríkisráðuneytinu fóru fram víð
tækar hreinsanir. Hafnar eru
refsiaðgerðir gegn Szlachicic
Nokkrum öðrum háttsettustu
starfsmönnum ráðuneytisins
hefur verið sagt upp störfum,
Walichnowski, nokkurn sem
má þar t.d. sérstaklega nefna
var einn höfuðpaurinn í þeirri
ofsókn gegn Gyðingum, er
undanfarið hefur geisað í Pól-
landi: Gontarz, trúnaðarmann
Moczars í málefnum blaða,
sjónvarps og útvarps, og Maj
chrzycki. En rétt er að geta
þess, að má'lið virðist aðeins
vera á byrjunarstigi nú.
TIL ÞESS Að HEMJA
GYðlNGAOFSÓKNIRNAR.
Það virðist þannig hafa ver
ið gripið til harðra ráðstaf-
ana gegn „partisönum" Moz-
ars, hershöfðingja, en það
voru þeir, sem hófu og stjórn
uðu gyðingaófsóknunum í Pól
landi. Eftir að til þessara ráð
stafana kom hafa ofsóknir-
nar ekki verið jafn ákafar og
áður. Raunar eru ekki meira
en 20.000 Gyðingar í Póllandi
nú.Milli fimm og tíuþúsund
yfirgáfu landið vegna síðustu
ofsókna í þeirra garð.
Nú er hins vegar farið að
bera á því, að stjórnarvöld
leggi sig fram um að reyna
að sannfæra þá Gyðinga, sem
enn eru í landinu, en þó eink-
um menntamenn, um að þeirra
sé mikil þörf í Pollandi og
þeim verði ekki gert nokkurt
mein, heldur metnir að verð-
leikum með velvild og bróður
hug. Og það hafa jafnvel
verið stigin nokkur spor í þá
átt, að biðja menntaða Gyð-
inga, sem nýlega hafa flúið
land um að snúa aftur til
baka, þar sem þeim er ekki
aðeins heitið sömu embættun-
um og þeir áður höfðu held-
ur jafnvel boðnar skaðabætur
fyrir það tjón er þeir hafa
orðið fyrir.
Þegar allar aðstæður eru
kannaðar vekur þetta enga
Framhald á bls. 18
Dansar af öryggi og léttleika
— Helgi Tómasson fœr hrós í New York
HELGI TÓMASSON, ballett-
dansari dansaði nýlega í
nýjum dönsum með Hark-
ness-ballettinum á Broadway
i New York í þrjár vikur, og
fékk frábæra dóma. Nú er
ballettflokkurinn á ferðalagi
um miðhluta Bandaríkjanna
og til Florida með sömu sýn-
ingarskrá. Helgi hefur undan-
farin ár dansað með Harkness-
ballettinum sem hóf sýning-
ar i Music Book leikhúsinu
um miðjan janúar. Af New
York blöðunum sést að ball-
ettinn hefur fengið einstak-
lega góða dórna, og er Helgi
alls staðar talinn annar aðal-
dansarinn í karlhlutverkum.
I 40 gagnrýnis'greinum, sem
við höfum séð, og sem birtust
frá 15. janúar og út mánuðinn
er Helga hrósað.
Sex sinnum þennan hálfa
mánuð skrifa gagnrýnendur
stórblaðsins New" York Times
t. d. um Harkness- ballettinn
og bera lof á Helga og með
fyrstu greininni er mynd af
honum og dansmeynni Elisa-
beth Carroll, sem dansar á
móti honum í ballettinum
„Canto Indio“, þar sem fjall-
að er um mexikanska indíána.
Segja gaignrýnendur New
York Times dans þeirra glæsi-
legan. Og um dans Helga í
„Sylvia Pas de Deux“, sem
uppfærður var 24. janúar seg-
ir annar af gagnrýnendum
N. Y. Times, að hann og mót-
dansmær hans geri þessum
ballett einstaklega góð skil.
Þó þau dansi af hógværð, þá
sé sýning þeirra yndisleg frá
upphafi til enda. Helgi hafi
leyst „cabriolurnar“ mjög
hreinlega af hendi og hann
hafi haft hinn rétta klassíska
dansmáta, fína tástöðu og
haifi haft stökkin og „pirúett-
urnar“ fullkomlega á valdi
sínu. Og daginn eftir segir
gagnrýnandi sama blaðs, þar
sem hann hrósar dönsurunt
Harkness-ballettsins, að allir
hafi dansað vel, þó einkum
Helgi Tómas'son, sem nú hafi
yfir sér nokkurs konar
hreystiljóma, sem sé svo sjald
fundinn hjá karlmönnum í
ballettdansi.
í þeirri grein, er ræðir um
Harkness ballettinn í heild og
velgengni hans, segir, að
flokkurinn hafi á þeim fjórum
árum, síðan hann kom fyrst
fram, fært upp 50 balletta. og
séu nú 16 á sýningarskrá. Þeg-
ar gagnrýnandinn sá flokkinn
fyrst í Cannes fyrir 4 árum,
varð hann stórhrifinn af aðal-
döntsoruinum sex, og nefnir
hann Helga þá strax einn í
þeirra hópi. Þeir séu enn á-
kaflega góðir dansarar, eink-
um þó Helgi Tómasson.
í öðrum blöðum er gerð
nokkur grein fyrir þessum
ballettflokki og uppruna hans
í sambandi við frumsýning-
una í New York og nýju sýn-
ingarskrána. Stofnandinn, og
sú sem enn rekur ballett-
flokkinn, er Rebekaih Hark-
*' ♦ * J
Helgi Tómasson í dansi. Báðar myndirnar eru úr nýrri sýningarskrá Harkness ballettsins.
Helgi Tómasson.
ness, sem áður var stuðnings-
maður ballettflokks Joffreys,
en stofnaði svo sinn eiginn
ballettflokk fyrir fjórum ár-
um. Helgi Tómasson hafði þá
dansað með Joffrey, en flutt-
ist nú yfir í þennan nýja
dansflokk. Rebeckah Harkness
er auðug kona og listaunn-
andi. Hún fæst sjálf við tón-
smíðar og höggmyndalist, og
hefur eytt milljónum dala í
ballett, segir blaðið The
Record, Hún sé ákveðin í að
koma á framfæri því bezta
sem til sé í ballett, þó það
kunni að kosta hana fleiri
milljónir. Ekki sé vafi á því
að henni hafi tekizt með
Harknes's ballettflokknum að
skapa einn af beztu ballett
flokkum Ameríku.
Helgi Tómasson fór. sem
kunnugt er fyrst til náms í
Danmörku eftir að hann fór
að heiman og dansaði þá í
Tívolí á sumrin, en eftir að
Jerome Robbins sá hann
dans'a í Reykjavík, fékk hann
skólavist í New York, og síðar
komst hann í hinn kunna
flokk Roberts Joffreys, þar
sem hann varð sólódansari.
Með þeim flokki dansaði hann
Framhald á bls 'S