Morgunblaðið - 08.03.1969, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1989.
17
Sjóprófin vegna Hallveigu FróÖadóttur
SJÓPRÓF vegna slyssins um
borff í Hallveigu Fróffadóttur
hófust í gær og mætti þá Guff-
björn Jensson, skipstjóri fyr-
ir dóminum. Guðmundur
Björnsson, verkfr., og Kristj-
án Flygenring, verkfr., hafa
veriff skipaffir til aff rannsaka
upptök eldsins og sérstaklega
kynditækiff, sem er aftan viff
vistarverur hásetanna frammi
í togaranum. Dómforseti er
Emil Ágústsson, borgardóm-
ari.
í sjóprófunum í gær var
lögð fram dagbók togarans og
skipstjórinn gaf skýrslu sína.
Hann kvaðst hafa gengið til
hvílu um hálf eitt um nótt-
ina og þá var allt með eðli-
legum hætti um borð. Laust
eftir kiukkan fjögur var hann
vakinn og honum sagt, að eld
ur væri kominn upp frammi
í skipinu. Klukkan tíu mín-
útur yfir fjögur kom skipstjór
inn í brúna og lagði þá mik-
inn reyk upp úr lúkarnum.
Mestöl'l skipshöfnin var þá
kominn upp á þiljur og sá
Skipstjórinn tvo menn koma
út úr reyknum, þá síðustu,
sem upp komust.
Litlu síðar heyrði skipstjór
inn kæfandi hvell, eins og
rétturinn orðaði það, og sá
eidsúlu rísa upp um lúkars-
dyrnar og fylgdi henni gífur-
Séff inn í kyndiklefann viff íbúff háseta. Dýnan, sem á er
minnzt í fréttinni frá sjópróf unum sést greinilega.
Ljósm. Mbl. Ól. K. M.)
Guffbjöm Jensson, skipstjóri
kemur til sjóprófsins í gær.
legur svartur reykjarbólstur.
Slökkvistarfinu var einfcum
hagað á tvennan máta, ann-
ars vegar var sjó dælt niður
um lúkarsdyrnar og hins veg-
ar var farið gegn um neta-
lestina og sprautað upp um
l'úgu í stigaganginum í neðri
lúkar. — ítrekaðar tilraunir
voru gerðar til að komast að
mönnunum, en reykurinn og
eldurinn koxhu allitaf í veg
fyrir, að þær tækjust.
Skipstjórinn kvað engin eld
Efri lúkar, stjórnborðsmegin
fim efni hafaverið geymd í
lúkarnum.
Að öðru leyti var frásögn
Skipstjórans sam'h/Ijóða frétt
Morgunblaðsins í gær.
Dómsforseti gait þess, að
dýna, sem fannst íkyndiklef-
anum við hásetaíbúð, hefði ver
ið sett þar eftir að togarinn
kom til Reykjavíkur í fyrra-
kvöld og skiptir hún því engu
máli í rannsókninni um upp-
tök eldsins.
Nokkrar umræður urðu um
olíu á gólfi kyndiklefans og
kvaðlst skipstjóri ekfci geta geif
ið skýringu á henni. Olíutank
ur er aftan við keðjuikassann
og hæðardunkur undir hval-
bak út í síðu bakborðsmegin.
Ekki rak skipstjóra minni til
þess, að hafa gefið fyrirskip-
un um að loka fyrir rennslið
úr hæðardunknum og í
Skýrslu rannsóknarlögreglunn
ar var þess ekki geitið, hvort
leiðslan frá hæðardunkmiim
niður í kyndinguna var at-
huguð.
— Aðspurður um ástand á-
hafnarinnar, þegar lagt var
úr höfn, svaraði skipstjóri því
til, að vín hefði sést á nokkr-
um mönnum en hvað það
snerti, hefði ástandið verið
betra en oft gerist.
Sjóprófunum verður háldið
áfram í dag.
Fjórir danskir rithöfundar um
viðbrögð Halldórs Laxness
Gróf orð i marz — Lit á Laxness sem heiðursmann
— Öfundin sterk hvöt i Danmörku — Danir likir
öðrum, þegar um peninga er að ræða
SEM kunnugt er, hafa orffiff
talsverð blaðaskrif í dönskum
blöðum undanfama daga
vegna Sonning-bókmennta-
verfflaunanna, sem aff þessu
sinni vom veitt Halldóri Lax-
ness. f „Ekstra Bladet“ var
sú spurning lögff sl. fimmtu-
dag fyrir fjóra kunna danska
rithöfunda, hverju þeir
myndu svara, ef þeim yrffu
veitt þessi verfflaun. Jafn-
framt voru rithöfundarnir
spurffir um álit þeirra á af-
dráttarlausum viðbrögðum
Halldórs Laxness gagnvart
áskorun stúdentaráffs Kaup-
mannahafnarháskóla um að
taka ekki við verfflaununum
og afdráttarlausum ummæl-
um skáldsins um Dani yfir-
leitt.
Hér fara á eftir svör dönsku
rithöfundanna fjögurra viff
spurningum Ekstra Bladet:
GFÓF ORÐ f MARZ
R i th öf undu r i nn Halfdan
Rasmiusiseni: •— Ég myndi ekki
Framtiald á bls. 31
Leif Panduro.
Hilmar Wulff.
Anders Bodelsen.
Haifdan Rasmussen.
Afmæliskveðja til
Bjarna Snæbjörnss.
í DAG á áttræðisafmæli, heið-
ursborgari okkar Hafnfirðinga,
Bjarni SnæbjÖrnsson, læknir, en
hann er fæddur í Reykjavík, 8.
marz 1889, sonur hjónanna Mál-
fríðar Bjarnadóttur og Snæbjam
ar Jakobssonar.
Árið 1917 fluttisd Bjarni til
Hafnarfjarðar, þá útskrifaður úr
læknadeild Háskóla Íslands og að
lokinni tveggja ára dvöl á sjúkra
húsum í Danmörku.
í rúma hálfa öld, eða þar til
um síðustu áramót, hefur hann
því stundað læknisstörf sín við
óvenju miklar vinsældir og hef-
ur hans æfinlega verið vitjað og
hann vitjað sjúklinga laogt út
fyrir sitt umdæmi.
Þrátt fyrir miklar annir við
læknisstörf sín hefur Bjarni Snæ
björnsson ekki látið félagsmálin
afskipt. Af hálfu Hafnfirðinga
hafa honum verið falin fjölmörg
trúnaðarstörf á sviði félagsmála
og alls s'taðar reynst hinn ákjós-
anlegasti félagi.
Hann átti sæti í Bæjarstjórn
Hafnarfjarðar í mörg ár og var
alþingismaður Hafnfirðinga 1931
tii 1934 og aftur 1937 til 1942 af
hálfu Sjálfstæðismanna, enda
einn aðalforystumaður þeirra um
langt árabii og ötull baráttumað-
ur fyrir sj-álfstæðisstefnuna.
Þegar Bjarna lækni eru sendar
afmæliskveðjur og þakkir í dag,
eru konu hans, frú Helgu, ekki
síður siendar kveðjur og þakkir,
Bjarni Snæbjörnsson.
en hún hefur með einstökum
hætti staðið við hlið manns síns
og stutt hann í starfi með ráðum
og dáðum.
Ég veit, að ég mæli fyrir munn
Hafnfirðinga og reyndar fjöl-
marga annarra, sem notið hafa
starfa Bjarna læknis Snæbjörns-
sonar, þegar ég árna honum og
fjölskyldu hans allra heilla í til-
efni dagsins og þakka þeim hjón
um heilladrjúg störf um rúmrar
hálfrar aldar skeið.
Matthías Á. Mathiesen.