Morgunblaðið - 08.03.1969, Síða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MARZ 1969.
að fá frískt loft inn í stofuna.
Svo lokaði hún glugganum aftur
og setti rafmagnsofninn á.
Öll blómin stóðu i vatni í eld-
húsvaskinum. Hún ákvað að láta
þau vera þar kyrr eins lengi og
hægt væri. En hún tók eftir,
að flest þeirra voru hvit o g
henni datt í hug, hvort hún hefði
haft hvíta litinn of yfirgnæfandi.
Hún hitaði sér te og henni
fannst blómailmurinn þarna inni
of þungur og sterkur.
Hún fór i rúmið sitt með bakk-
ann og er hún hafði matazt og
litið sem snöggvast í dagblað, fór
hún í gamlan bómul'arslopp og
svuntu og tók að undirbúa veizlu
matinn.
Þarna voru litlar braúðsneiðar
með lifrakæfu og tómötum, stór
diskur með sundurskornum harð
soðnum eggjum með ansjósum,
svínasteik og sperglasnúðum. Að
alrétturinn átti að koma úr búð-
inni og heitar pylsur og kampa
ÁLFTAMÝKI 7
)MAHÖSIÐ
simi 83070
Opið alia daga öll kvöld og um
helgar.
Blómin, sem þér hafið ánægju af
að gefa, fáið þér í Blómahúsinu.
vín var væntanlegt á hverri
stundu.
Hún var rétt byrjuð að laga
til blómin, þegar dyrabjöllunni
var hringt. Hún þerraði sér um
hendurnar í snatri og þaut nið-
ur. Peter stóð fyrir utan.
— Mér datt í hug, að þú þyrft
ir á einhverri hjálp að halda,
sagði hann, kindarlega.
Hún reyndi að hleypa í sig
kjarki og vísa honum burt, en
er hún sá á honum svipinn, dró
hún hann inn fyrir og sagði: —
Jæja, hvort viltu heldur sjá um
blómin eða þvo upp?
- Ég er ágætur að þvo upp
— lofaðu mér bara að byrja.
Hann virtist ekkert taka eftir
þesum einkennilega klæðaburði
hennar. — Ég skal taka svunt-
una, sagði hann og seildist með
hendinni eftir mittinu á henni til
þess að finna hnútinn. — Þú
þarft hennar ekki til þess að
stinga nokkrum blómum í vasa.
En svo hikaði hann eitthvað, og
roðnaði er hann leit framan í
hana. Þá uppgötvaði hún fyrst,
að hún var í náttkjólnum, undir
þunna sloppnum. Hún dró sig
fljótt í hlé, tók af sér svuntuna
og rétti honum.
Hún flýtti sér að sýna hon-
um, hvað hann ætti að þvo, en
sjálf tók hún sér nokkur dag-
blöð í hönd og bar blómin inn
Vymura vinyl-veggfóður
ÞOLIR ALLAN ÞVOTT
E
UTAVER Grensósvegi 22-24
Simi 30280-32262
. • • • •.*•
V
BYÐUR
VBUR
HELGARMATINN
i kantlkagu n unihiiðum lil að taka
HEIM
i«*&*
- „id sendu*
GIjÓÐARST. grísakótelettur
GRILLAÐA KJUKIJNGA
ROASTBEEF
GIJÓÐARSTEIKT LAMB
HAMBORGARA
IMTjPSTEIKTAN FISK
í stofuna. Hún kom þeim ekki
fyrir jafn vandlega og hún hafði
ætlað sér, en það varð þá að
hafa það.
Peter var að blístra lagið um
„Dansandi Matildu“ með sjálfum
sér, og hafði enn ekki lokið upp
þvottinum. Hún hálfskammaðist
sín og kállaði til hans: — Fáðu
þér eitthvað að drekka, þegar
þú ert búinn. Ég ælta snöggvast
í bað.
En þegar hún steig upp í bað-
kerið, tók síminn að hringja. Hún
greip stórt handklæði, vafði því
um sig og kallaði: — Ég skal
fara, þegar hún heyrði að Pet-
er hljóp til að svara í símann.
— Halló, já, þetta er heima
hjá ungfrú Brown^ en hún er
í baði rétt eins og er. Get ég
tekið skilaboð? Hver? Já, já.
Fraser hér. Hvernig líður þér?
Gott. Já, ég skal segja henni
það. Sé þig seinna. Bless.
— Hver var þetta? sagði Lísa
og opnaði ofurlítið dyrnar á bað
herberginu.
— Það var bara hann Svarti
Mack. Hann segist kannski geta
náð hingað í veizluna hennar Joy
en kunni að koma með seinna
móti. Ég skal bölva mér uppá, að
hann brýtur nú heilann um, hvað
ég hafi verið að gera hér, og
þú í baði. En þér er sama, er
það ekki?
— O, ætli mér megi ekki vera
50
suðurlandsbraut lj. simi 38550
sama, sagði Lísa, en röddin var
hálfkæfð, og hún skellti í lás.
Hún stóð fyrir framan gufu-
þakinn spegilinn og deplaði aug-
unum, til þess að hafa hemil á
tárunum. Nei, það var engin sann
girni í þessu. Góði guð, láttu
hann ekki leggja þetta út á versta
veg. Láttu allt verða eins og
þegar Símon var veikur —- áður
en hann fór. Láttu hann ekki
misskilja . . .
Peter var farinn að kalla í
hana. Hún herti sig upp. Hún
þurrkaði sér og lagaði vandlega
á sér andlitið.
Hraustlegi sólbruninn á henni
fór vel við rjómagula ullarkjól-
inn. Og með perlurnar og krókó
dlíaskóna var hún snyrtileg, án
allrar tilgerðar. Dyrabjallan
hringdi og hún heyrði að Peter
fór niður. Svo hringdi hún aft-
ur og hún heyrði að verið var að
rogast með kassa og böggla upp
stigann. Hún gæti eins vel hvílt
sig dálitið. Héðan af gat ekki
verr farið en þegar var orðið.
Hún lagaði á sér neglurnar og
flýtti sér ekkert að því.
Hún var ekki fyrr búin að
leggja síðustu hönd að skenki-
borðinu og glasaborðinu en fyrstu
gestirnir komu. Forstjórinn sýnd
ist alveg fylla litlu forstofuna.
Og glymjandi röddin í honum
minnti hana á daginn þegar þau
hittust í fyrsta sinn, og nú
kynnti hann hana fyrir litiu,
íbyggnu konunni sinni. Næstur
kom Benny í snyrtilegum ítölsk
um fötum og bar gítar í hendi.
Og svo heyrðist hlátur um allt
sem tilkynnti komu Hamish og
eiginkonu hans og amerísku kunn
ingjanna hans, sem höfðu verið
svaramenn.
Þau tróðu sér öll upp stigann,
sem kona flugstjórans sagði að
væri svo „skrítinn" og inn í setu
stofuna. Joy var stórhrifin af því
hve blómin væru fín og hún var
með tárin í augunum, er hún
vafði Lísu örmum og sagði —
Æ, þú ert hreinasti engill, elsk-
an. Get ég nú tekið ofan þenn-
an hatt? Er augnasvertan á mér
farin nokkuð að renna?
Lísa strauk hárið á Joy og
sagði að hún væri í bezta lagi
falleg.
Fleira starfsfólk frá félaginu
og einn gamali vinur Joy — ó-
boðinn en ekkert sérlega niður
dreginn — komu næst og Peter
hafði nóg að gera að opna
kampavínsflöskur.
Nú var drukkið og skálað og
Hamish hélt ræðu, sem var
furðanlega viðeigandi og fynd-
m. Allir tóku til matar síns og
brátt voru allir ánægðir óg
skemmtu sér hið bezta.
Joy hafði farið úr þröngu
skónum og sat nú á bríkinni á
legubekknum og lét fæturna á
sokkaleistunum hvíla á ristunum
á eiginmanni sínum. Frú Craw-
ford-Cobb hafði nákvæmlega
auga með glasi mannsins síns og
lagði höndina yfir það, hvenær
sem Peter eða Benny mynduðu
sig til að bæta í það. En hún
lagði enga hönd yfir sitt eigið
glas, tók Lísa eftir, og því
meir sem hún drakk þvi meir á-
■berandi varð draftónninn í mál-
rómi hennar — Ameríkumönn-
•unum þarna til mikillar gleði.
Nú var kominn tími til að fá
einhverja tónlist. Lísa skauzt nn
í svefnherbergið og setti í gang
einhverja tóniist. Lísa skauzt inn
lágværri salghörputónlist. Dyra-
bjöllunni var enn hringt. Benny
bauðst til að fara til dyra. Peter
kom til hennar og stakk glasi í
hönd hennar.
— Þú ert alltaf að gleyma glas
inu þínu kelli mín, sagði hann.
— Sittu nú kyrr og skálaðu við
mig einan.
Hann tók sitt glas og klingdi
við hana. Síðan lagði hann arm-
inn um herðar henni og sagði?
Okkar skál!
Lísa leit upp og yfir gólfið.
Blake McCall var að horfa á
hana utan frá dyrunum. Hún
reif sig lausa frá Peter, og henni
féll stórilla, hvernig Blake horfði
á þau og var sýnilega að para
þau saman.
Ég er svo fegin, að þú skyld
ir geta komið sagði hún. En
röddin var eins og hálfbrostin.
Og ennþá vandræðalegri varð
hún er hún rétti út höndina.
Hann tók í hana, mjög svo form-
lega og setti upp þetta neyðar-
lega bros sitt.
Lísa flýtti sér að gefa honum
kampavín og leiða hann yfir til
brúðhjónanna. Hún skildi hann
þar eftir að tala við þau og
læddist fram í svefnherbergið.
Hún horfði æðisgengin í spegil-
inn og greip greiðu til að laga
á endann. Hana hitaði í allt and-
litið. Það hlaut að vera kampa-
víninu að kenna. En hversvegna
hafði hún svona mikinn hjart-
slátt?
Hún rótaði í hljómplötunum
og rakst á „Einskonar bros“ og
hálfskammaðist sín er hún setti
plötuna á grammofóninn. Hún
skrúfaði magnarann ofurlítið upp
og gekk síðan inn í mannþröng-
ina í stofunni.
Allir, sem þar voru inni, töl-
uðu eins hátt og hver gat nema
Blake McCall. Hann stóð og hall
aði sér að gluggakistunni og virt
ist horfa meira á húsgögnin en
fólkið. Þegar hann sá hana,
tæmdi hann glasið sitt og setti
það síðan frá sér, kom til henn-
ar, gægðist yfir öxlina á henni
inni í svefnherbergið, en leit síð
an framan í hana. Hafi hann
heyrt tónlistina, þekkti hnn hana
að minnsta kosti ekki. Og það
gerði hana bara ennþá ringlaðri
Þau byrjuðu að tala bæði í
einu, en snarþögnuðu. Hann hélt
áfram: Því miður get ég ekki
tafið lengur. En þetta virðist ætla
að verða prýðilegasta veizla. En
g. MARZ 19S9
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
Smáflækjur eru á leið þinni, því að þú ætlar þér um of.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Þessi dagur er líkastur smá hrekk. Njóttu hans, og láttu aðra
ráða.
Tvíburarnir 21. maí — 20. júní
Vinir þínir fylgja þér aftur
Krabbinn 21. júní — 22. júií
Njóttu helgarinnar með fjölskyldu og vinum, og talið þið eins-
og þið mögulega getið afkastað.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Sumir hafa hugmyndir og aðrir hafa nef. Þau geta festst í
frystikistum nágrannans, ef ekki er farið að með gát.
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Minningarnar geta sparað þér tíma og erfiði.
Vogin 23. september — 22. október
Reyndu að láta málefni þín verða dálítið aðlaðandi, einu
sinni. Reyndu að fá hjálp til að borga skuldirnar.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Reyndu að kynna þér ný málefni Því fastar, sem þú keppir að
íettu marki því betur gengur að finna leiðirnar.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Farðu snemma á fætur, og ef þú ert ekki ánægður með, þá
skaltu reyna að finna nýjar leiðir.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Reyndu að sjá spaugilegu hliðina á allri vitleysunni I dag.
Of skipulag sporðrisist, svo að ákvarðanir yfirboðaranna falla
um sjálfar sig.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. apríl
Þú hittir einhvern, sem þú hefur ekki séð lengl.
Fiskarnir 19. apríl — 20. marz
Samvinna setur svip sinn á daginn. Láttu það sem liðið er
liggja kyrrt.
i