Morgunblaðið - 12.03.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.03.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1969 3 VERZLUNARRAÐ- STEFNA Sjálfstæðis- manna hófst í Víkingasal IBátel Loftleiða í gær og var fundarsalurinn þétt- skipaður þátttakendum, atvinnurekendum og laun- þegum úr verzlunarstétt og áhugamönnum um verzlunarmál. Hörður Einarsson, for- maður Fulltrúaráðs Sjálf- stæðisfélaganna í Reykja- vík setti ráðstefnuna með ávarpi og skipaði Pétur Sigurðsson, formann Kaup mannasamtaka íslands, fundarstjóra. Þá flutti Haraldur Sveinsson, for- maður framkvæmdanefnd- arinnar ávarp, skýrði frá Bjarni Benediktsson, forsætisráðhera. flytur ræðu sína á Verzlunarráðstefnu Sjálfstæðismanni, sem hófst í jær. T. v. er fundarstjóri, Pétur Sigurðsson, formaður Kaupmannasamtakanna, en t. h. sitja Hörður Einarsson, formaður Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík og Har- aldur Sv,einsson, forraaður Verzlunarráðs íslands, sem er formaður framkvæmdanefndar ráð- stefnunnar. flokksins í viðskiptamálum og rakti nokkuð þróun þeirra mála undanfarna áratugi og afskipti Sjálfstæðisflokksins í þeim málum. Að lokinni ræðu Bjarna Benediktssonar voru flutt tilhögun ráðstefnunnar og ræddi nokkur helztu hags- munamál verzlunarinnar. Bjarni Benediktsson, for- sætisráðherra, flutti siðan ræðu um stefnu Sjálfstæðis- þrjú erindi. Sveinn Snorrason hrl. ræddi um verðlagsmál verzlunarinnar og opinber af- skipti af þeim málum og gerði ítarlega grein fyrir þróun þeirra mála fram á þennan dag. Síðan flutti Sigurður Magnússon, framkvæmda- stjóri Kaupmannasamtakanna erindi um stöðu smásöluverzl unarinnar og Björgvin Schram, formaður Félags ísl. stórkaupmanna ræddi um stöðu heildsöluverzlunarinn- ar. Að loknum þessum ræðum og erindum var gert kaffihlé en síðan hófu umræðuhópar störf. I dag hefst ráðstefnan með hádegisverði á Hótel Loftleið- um en að honum loknum tal- ar Ólafur Björnsson, prófess- or um verzlunina og neytend- ur. Magnús L. Sveinsson, frámkvæmdastjóri VR talar um viðhorf launþega í verzl- unarstétt. Höskuldur Ólafsson, bankastjóri flytur erindi um fjárhag og fjármögnun verzl- unarinnar. Önundur Ásgeirs- son forstjóri ræðir um skatta- mál verzlunarfyrirtækja og umræ’ðuhópar starfa. Verzl- pnarmálaráðstefnan heldur síðan áfram á fimmtudag en þá er gert ráð fyrir að fundi ráðstefnunnar verði frestað til miðvikudagskvölds í næstu viku og verði þá gengið end- anlega frá ályktunum ráð- stefnunnar. Fundarsalurinn var þéttskipaður þátttakendum og sést hér um helmingur þátttakenda. Engan rétt til þess að segja öðrum fyrir verkunt Tito forseti gagnrýnir Sovétstjórnina fyrir innrásina í Tékkóslóvakíu. Rúmenar senda einir Varsjárbandalagsþjóðanna fulltrúa á flokksþingið r Belgrad BELGRAD 11. marz — AP-NTB. Tito, forscti Júgóslavíu, lajgði í dag ítrekað áherzlu á sjálfstæði lands síns og lýsti því yfir, að enginn kommúnistaflokkur hefði rétt til þess að segja öðrum kommúnistaflokkum fyrir um stefnu. Án þess að hann nefndi Tékkóslóvakiu á nafn eða Sovét- rikin, fordæmdi hann innrásina í Tékkóslóvakíu í ágúst í fyrra, sem Sovétrkin stóðu fyrir. — t nafni æðri hagsmuna sósalism- ans, að því er sagrt er, eru gerðar tilraunir til þess að réttlæta jafnvel hreina skerðingu á full- veldi sósíalistisks ríkis og her- valdi er beitt til þess að hindra sjálfstæða sósíalistíska þróun þess, sagði Tito. Tito sagði þetta við setningu 9. flokksþings kommúnistaflokks Júgóslavu. í ræðun.ni ræddi Tito einkum um hálfrar aldar afmæli flokks-ins og sögu hans. Hann minntist aðeims litillega á, að þeir kommúnistaflokkar Austur-Evrópu, sem lúta stjórn- arvaldi í Moskvu, hafa farið að fyrirmælum þaðan og ekki sent neina fulltrúa á flokksþingið, þar á meðai kommúnistaflokkur Tékkóslóvakíu. — Við hörmum það mjög, að þess'ir kommúnista- flokkar frá sósíalistalöndunum, þar á meðal kommúnistaflokkur Tékkóslóvakiu hættu við að koma, sagði forsetinn, Kommún- istaflokkur Tékkóslóvakíu var eini flokkurinn, Sem hann nefndi með nafnL Tito gat þess í ræðu sinni, að það hefði verið einn erfiðasti tírninn í sögu kommúnistaflokks Júgóslavíu, er Stalin hefði látið reka flokkinn úr kommúniista- hreyfingunni 1948. að hefði gerzt „sökum þess að Stalin vildi ekki viðurkenna, að sérstök viðhorf félagslegs og stjórnmálalegs eðl- is voru fyrir hendi í landi okk- ar“, sagði Tito ÓÁNÆGJA í PRAG Prace, málgagn verkalýðshreyf ingarinnar í Tékkóslóvakíu, sem er í senn mjög öflug og fram- farasinnuð, lýsti yfir óánægju sinni í dag með, að kommúnista- flokkur Tékkóslóvakíu skyldi ekki senda fulltrúa á flokks- þingið í Belgrad heldur aðeins kveðjubréf. Prace sendir sínar eigin hjart- anlegu kveðjur til flokksþings- ins og ber lof á stjórn Titos fyrir að hafa fylgt réttri stefnu jafn- vel þegar hvað mest bar á milli við stjórnarvöldin í Moskvu á Stalins-timabilinu. Án þe9S að minnast nokkuð á þann orðróm, sem mjög er á kreiiki, að kommúnistaflokkum i Austur-Evrópu, er lúta Sovét- stjórninni, hafi verið bannað að senda fulltrúa á flokksþingið í Belgrad, kallar Prace fjarveru sendinefndar frá Tékkóslóvakíu „staðreynd, sem við vonum ekki, að sé afleiðing neins djúp'stæðs' ágreinings en stafi aðeins að sinni vegna þess óljósa ástands, sem nú ríkir, en finna verður leið út úr ti'l víðfeðmari og ein- lægari sameiningar framfara- hreyfingarinnar“. Prace gaf það greinilega í skin í grein og í Framhald á bls. 27 STAKSTEIIVAR Beitir Framsókn skynsemi? Framsóknarblaðið kemst að þeirri athyglisverðu niðurstöðu í forustugrein sinni í gær, að atvinnurekendur verði að beita skynsemi í þeirn kjarasamning- um, sem nú standa yfir. í þess- ari forustugrein er lagt til, að Citvinnurekendur fallist í einu og öllu á kröfur verkalýðssam- takanna. Að loknum lestri henn ar er ekki ólíklegt, að atvinnu rekendur velti því fyrir sér, hvort Framsóknarblaðið og skrif finnar þess beiti skynsemi í skrif um sínum. A.m.k. sjást þess eng in merki í umræddri forustu- grein blaðsins. Framsóknarmenn hafa um langt skeið haldið því fram, að atvinnuvegirnir væru á heljarþröm. Nú bregður skyndilega svo við, að Fram- sóknarmenn telja að atvinnuveg irnir geti tekið á sig verulegar kostnaðarhækkanir. í þess stað * segja þeir að lækka eigi vexti og auka útlán. Ef innlánsvextir verða lækkaðir frá því sem nú er má telja víst, að innlán í við skiptabankana muni minnka verulega. Það þýðir að við skiptabankarnir hafa enn minna fé til útlána. Er ekki tími til kominn að Framsóknarmenn beiti skynseminni í skrifum, og umræðum um þessi mál? Hvað segja SÍS-menn Jafnframt væri ekki úr vegi, að Framsóknarmenn ræddu við forráðamenn Sambands ísl. sam- vinnufélaga um það, hvort at- vinnureksturinn geti tekið á sig auknar byrðar. Þeir eiga hægt um vik, þar sem Eysteinn Jóns- son er einn af stjórnarmönnum í SÍS og Helgi Bergs, ritari Framsóknarflokksins er einn af framkvæmdastjórum SÍS. Fram- sóknarmenn gætu t.d. rætt við framkvæmdastjóra sjávarafurð ardeildar SÍS og spurt hann um afkomu frystihúsanna og hvort þau séu þess megnug að taka á sig verulegar kostnaðarhækkan- ir vegna hærri launa. Framsókn armenn gætu líka snúið sér til Véladeildar SÍS og rætt við framkvæmdastjóra hennar, sem nýlega hefur lýst því yfir í við tali við tímarit, að hagsmunum verzlunarinnar hafi verið fórn- að í samningum við verkalýðs- samtökin á undanförnum árum. Enginn vafi er á því, að það væri mjög lieilsusamlegt fyrir Framsóknarmenn að eiga slíkar viðræður við forustumenn þess arar fyrirtækjasamsteypu, sem Framsóknarmönnum hefur verið svo handgengin á undanförnum árum. Kannski yrðu þær upplýs- ingar sem Framsóknarmenn fengju í slíkum viðtölum til þess að eitthvað rofaði til í skynsem- isátt hjá Framsóknarmönnum. Tökumst á við erfiðleikana Framsóknarblaðið kemst þrátt fyrir allt að þeirri niðurstöðu að það væri mikil þjóðargæfa ef samvinna tækist milli stétt- anna um bætt kjör atvinnuveg- M anna. Og það eru vissulega orð að sönnu. Reynsla undanfarinna ára á að hafa kennt okkur að það leiðir einungis til ófarnaðar að sliga atvinnufyrirtækin með byrðum, sem þau geta ekki stað ið undir. Þess vegna skiptir höfuð máli nú að gefa atvinnu fyrirtækjunum kost á að rétta við eftir áföll síðustu tveggja ára. Þá mun þess ekki langt að bíða, að þau geti bætt kjör starfs manna sinna — en fyrr ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.