Morgunblaðið - 12.03.1969, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 12. MARZ 1969
19
fólk í f réttunum
EFTIR sjö Bergmannsmyndir
er Ingrid Thulin nokkurs kon-
ar samnefnari fyrir andlega
togstreitu, margstrend, hálf-
geggjuð og náföl (sennilega
grænleit í hugum manna).
í daglegu lífi er hún rjóð,
masar á fjórum tungumálum
og full af lífcþrótti, sem hún
kyndir undir með því að
hlaupa á harðaspretti upp í
íbúð sína á fimmtu hæð í
Róm eða upp 100 þrep í vill-
una sína við hafið í San Felice
Circeo. í fyrri Bergman-mynd
um sínum, lék hún venjulega
gjáUfa konu. Hún er mjög
ungleg og fjörug og það eina
sem hún segir af alvöru er
það, að hún geri aðeins hluti
sem hana langar til að gera.
Nú er ungfrúin að vinna að
kvikmynd, sem hún ætlar að
stjórna sjálf, „ef henni þykir
gaman að því“. Hún hefur
þegar stjórnað þremur leikrit
spakmœlð
ssÆvikunnar
Ég hef ekkert á móti persónu-
leika. Sumir beztu vina minna
eru með persónuleika.
Harold Wilson.
Það er ekki rétt af okkur að
vera að senda gamla ryðkláfa
of nærri óvinaströndum.
Hugh Scott senator.
(Um Pueblo).
f Ameríku eru konur svo mik-
ilvægar og eigingjarnar, að þær
geta hérumbil lifað mannlausar.
Gina Loliobrigida.
um og einni stuttri kvik-
myn-d. Hún er líka að leika
Sophie ,sterka móður í þýzkri
stálverksmiðjuéigendafjöl-
skyldu í „The Damned“ eftir
Luchino Viscounti. Sagan ger
ist á árunum 1933—35. Sophie
er mjög hagsýn og metnaðar-
gjörn og er í sögunni nauðgað
af syni sínum, úrræðalausum,
sem svo fremur sjálfsmorð á
afar þýzkan hátt í sögulok.
„Það er ávallt gaman að
leika illræmdar konur“, sagði
ungfrú Thuhn. „Þessi kona
hefur ágætan smekk fyrir
völdum og þau eru henni eins
konar ástaratlot. Það ex til
dæmis ein sena í rúminu, sem
svipar til ástarsenu, en Sophie
er aðeins að hugsa um völd.
Ég held að tilfinningar henn-
ar hljóti að vera svipaðar
þeim, er Eva Braun bar til
Hitlers — hún var hjá honum
enda þótt hann væri henni
ekkert sem elskhugi, vegna
þers, að hún hafði hina ást-
ríðuna. Ég veit ekki hvort
þetta kemur allt til með að
sjást, en það setur mér mæli-
kvarða að miða við. Ef mað-
ur rýnir of mikið ofan í kjöl-
inn er það ekki gott. Þegar ég
verð að leika svona sterkar
ástríður, reyni ég að vera í
vissu hugarástandi. í kvik-
mvndum geri ég ekki sérlega
mikið við hápunkt ástríðn-
gnna. í „The Silence“, „Wint-
er Light“ og „Brink O'f Life“,
var dálítið um tiRinninga-
streitu.
Ungfrú Thulin finnst mest
gaman að grínmyndum Berg-
mans. Hún kynntht honum
fyrst 1954 í Malmö og lék
reglulega í kvikmyndum hans
þá mánuði, sem leikhúsm
voru lokuð. Síðasta myndin
hennar með Bergman er „The
Ritual", sem verður frumsýnd
í sænska sjónvarpinu í marz.
Sú fyrsta var „Villtu jarðar-
berin“, en þar lék hún
beizkjufulla tengdadóttur.
„Mér fannst það ósköp
ómerkilegt. Mér fannst hlut-
verkið mitt vera meira gam-
anhlutverk en nokkuð annað.
Ég virsi ekki einu sinni þegar
verið var að taka af mér
myndirnar. Og ég hélt, að ég
væri ekki með í einu atriði,
sem ég var með í“.
Ungfrúnni finnst fólk utan
Svíþjóðar kunna bezt að meta
Bergman. Og hún segir
sænska áhorfendur kunna
lang bezt að meta amerískar
kvikmyndir. „Einu sinni fór
ég á jónsmessuba1! í heima-
bæ mínum. Herrarnir vp.ru
allir klæddir eins og kúrek-
ar“, segir hún.
Hún er gift auðugum aust-
urískum viðskiptamanni, sem
stofnaði Sænska kvikmynda-
félagið. Ingrid er fædd í
Solleftea, rétt við Lappland.
„Þegar ég var lítil“, segir
hún, „komu Lapparnir alltaf
hejm að selja húðir og kaupa
kaffi og salt. Þeir eru svo til
hættir því. Þeir eiga allir
heima í nýtízku húsum í dag“.
Ingrid byrjaði að leika í
„French without tears“ eftir
Rattigan, og eftir það lék hún
í ótal hlutverkum aht frá ung
frú Júlíu uppí að leika Gittel
Mosca 1 „Two for the See-
saw“. 1967 kom hún stuttan
tíma fram í ,,Of love rememb
ered“ á Broadway.
,,Ég gerði það“, sagði hún,
„því að ég var forvitin og
mér þótti gaman að því. Mér
datt al'drei í hug, að leikur-
inn myndi hljóta góða dóma,
en það hlustar aldrei rieinn
á leikkonur. í Svíþjóð voru
fyrirsagnirnar á þessa leið:
Ingrid Thulin algjört hneyksli
og sænsku leikdómararnir
símuðu heim, að þeir hefðu
minnkazt sín fyrir mig“.
Fyrir utan Bergman-mynd-
irnar er hún frægust fyrir
mynd sína „la guerre est
finie“ undir stjórn A'ains
Resnais. Það eina sem hún
hefur afrekað í Hollywood
fram að þessu, var myndin
„The four horsemen -of the
apocalypse”, sem Vincente
Minelli lét taka aftur (gömul
Valentino-mynd), og lék
Glenn Ford hlutverk Valen-
tinos.
„Valentino varð frægur fyr
ir þessa mynd, en enginn man
eftir neinu kvenhlutverki. Ég
átti að gera eitthvert galdra-
verk í henni“, sagði Ingrid.
„Það voru 500 aukahlut-
verk. Bergman sagði dag
nokkurn: „Mig langar til að
gera mynd með 500 aukahlut-
verkum, en ég er svo vanur
Framhald á bls. 21
Nixon Bandaríkjaforseti ippusi prins, að viðstöddum
var boðinn til hádegisverðar Önnu prinsessu og Charles
í Buckingham höll, hjá Elísa- prine. Var það 25. febrúar sl.
betu Bretadrottningu, og Fil-
LES.BÓK BARNANNA
e*o«o
O*0*0*9*°
*o*o*o*o*
O*
*o
• llll
i illi in
llli <»>*
• iiii.ni;
■lii .ilt iin
I. <Hi .11» •
iiii iiii iin
i iili iiii
iiii iiii •
■ iiii
lll.
OýfO*0-)tO
*0*0 *0*lP*o *o *
0*0^0æí>ÍÍ=5#0 -*o.
4tn¥rO £>=z>>>=E>=E>>=0*0 I
oío*wmm*°*o
0*0*0 *00*0*0.t9t
*OO*0;*-*0*0*0*l
§0*0*0
o*o*o*™r
*°*o*2æ;
.. iii',
,»ii'
tiii
n. .ni
.1."';,ik
n.";.n.1
U. illi >
.11. 'ii'iiii
*• iHi,
Mi.
•«!• ,, ilI.,W
■“S’*
n l l....l I...I l—i l 110 Km.
xo-*
■ii/!!l.n.
w-
HVERT ER TAKMARK FERÐAR NNAR?
Með hjálp þessa korts skaltu reyna að finna hvert feiðinni er heitið. Fyrir
neðan koriið er kílómetramælir, heimshornin (W-vestur, S-suður, E-austur,
N-norður) og svo skýringar á merkjunum, sem eru notuð á kortinu, þ.e. 1:
skógur, 2: mýri, 3: akur, 4: haf, 5: hús, 6: mylla.
Og hér koma svo fyrirmælin: Þú hefur ferðina viö START merkið og held-
ur áfram þar til þú kemur að skógi. Þá hleypur þú inn í skóginn og í áttina
norður og heldur áfram þar til þú kemur að mýri. Mýrin er hættuleg. Þú verð-
ur að ganga meðfram henni þar til þú kemur að stig, sem liggur úr á breið-
an veg. Farðu nú eftir veginum 6 km. í austur. Núna eriu í m ðju þoi-pi. Veldu
nú veginn, sem liggur í suður og haltu áfram að öðrum vegi á vinstri hönd.
Fylgdu honum eftir 3 km., og þú ert kominn á ákvös ðunarstaðinn. Gangi
þér vel.
13. árg.
Ritstjóri: Kristján J. Gunnarsson 12. marz 1969.
Sagan af galdra-
karlinum gamla
EINU sinni var vondur
galdrakarl, sem hafði
rænt dreng og stúlku og
bjó með þeim í helli,
langt frá mannabyggð-
um. Hann iðkaði galdur
eftir galdrabók, sem
hann leit eftir eins og
augasteininum sínum.
En þegar galdrakarl-
inn fór úr hellinum og
börnin urðu ein eftir, þá
fór drengurinn að lesa í
galdrabókinni. Hann
lærði margar töfraþulur
upp úr henni og áður en
langt um leið, var hann
orðinn vel að sér í svarta
galdri.
Dag einn, þegar karlinn
var að heiman, ákváðu