Morgunblaðið - 18.03.1969, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1989
Stytzti leiðtogafundurinn
í sögu Varsjárbandalagsins
Alexander Dubcek fundarstjóri þessa fyrsta
fundar eftir innrásina í Tékkóslóvakíu
Búdapest 17. marz (AP-NTB).
Fundur leiðtoga Varsjárbanda-
lagsríkjanna átti að hefjast ár-
degis í dag í Búdapest. Þegar
leið að fundartíma var tilkynnt
að fundinum hafi verið frestað
um nokkrar klukkustundir, og
hófst hann ekki fyrr en klukkan
þrjú síðdegis. Búizt hafði verið
við að fundurinn stæði í tvo til
þrjá daga, en tveimur klukku-
stundum eftir að fundurinn hófst
var tilkynnt að honum væri lok-
ið. Er þetta því stytzti leiðtoga-
fundur, sem haldinn hefur verið
hjá Varsjárbandalaginu.
Fundinn sóttu þjóðarleiðtogar
allra sjö aðildarríkja Varsjár-
bandalagsins, þ. e. Sovétríkj-
anna, Tékkóslóvakíu, Rúmeníu,
Búlgaríu, Ungverjalands, Pól-
lands og Austur-Þýzkalands auk
utanríkis- og varnarmálaráð-
herra margra aðildarríkjanna.
Fundarstjóri var kjörinn Alex-
ander Dubcek flokksleiðtogi frá
Tékkóslóvakíu, en þetta var
fyrsti fundur bandalagsleiðtog-
anna frá því innrásin var gerð
í Tékkóslóvakiu 21. ágúst í fyrra.
Sat tékkóslóvakska sendinefndin
— undir forustu Ludviks Svo-
boda forseta — nú í fyrsta sinn
augliti til auglitis við leiðtoga
kommúnstaríkjanna fimm, er að-
ild áttu að innrásinnL
í frétt frá Prag er það haft
eftir Dubcek að allar lokasam-
þykktir leiðtogafundarins hafi
verið einróma samþykktar. Bú-
izt var við því að niðurstöður
fundarins og sameiginleg yfir-
lýsing leiðtoganna yrði birt um
miðnaetti í nótt.
Leiðtogafundurinn var haldinn
í þinghúsinu í Búdapest, og með-
al fundargesta voru Leonid
Brezhnev og Alexei Kosygin
frá Sovétríkjunoim, Nioolae
Ceaucescu forseti og Ion Maurer
forsætisráðherra frá Rúmeníu,
Svoboda Dubcek og Oldrich
Cernik forsætisráðherra frá
Tékkóslóvakíu Wladyslaw Gom-
ulka flokksleiðtogi og Josef Cyr-
ankiewicz forsætisráð'herra frá
Póllandi, Todor Zivkov forsætis-
ráðherra frá Búlgaríu, og gest-
gjafarnir Janos Kadar flokksleið
togi og Jeno Fock forsætisráð-
herra frá Ungverjalandi.
Þegar ljóst varð að leiðtoga-
fundurinn hófst ekki á tilsettum
tíma í morgun, var birt tilkynn-
ing frá leiðtogunum þess efnis að
fundartíminn hafi alls ekki veríð
fyrirfram fastákveðinn, heldur
hafi það aðeins verið tillaga
fundarmanna að fundurinn hæf-
ist fyrir hádegi. Seinna hafi svo
verið ákveðið að hefja fundar-
störf ekki fyrr en s-íðdegis. Telja
erlendir fréttaritarar í Búdapest
að ástæðan fyrir frestun fundar-
ins hafi verið sú að nauðsynlegt
hafi reynzt að halda undirbún-
ingsviðræður áður en fundur
hæfist til að tryggja einingu á
sjálfum leiðtogafundinum. Aðal-
lega er talið að þær viðræður
hafi fjallað um afstöðu Rúmena
til deilu Kínverja og Rússa.
Rúmenar hafa ekM tekið af-
stöðu í deilunni til þesa, en
ladamæraárektrar Kínverja og
Rússa voru meðal þeirra mála,
sem fuLlvíst var talið að rædd
yrðu á fundinum.
Aðallega voru það þrjú mál,
sem ræða átti á leiðtogafundin-
um, að sögn erlendra frétta-
manna. Auk deilu Kínverja og
Rússa voru það ástandið í Ví-
etnam og öryggismál Evrópu.
Að leiðtogafundinum loknum
þökkuðu þeir Leonid Brezhnev
flokksleiðtogi og Alexei Kosygin
forsætisráðherra Dubcek fundar-
stjóra og tékkóslóvakísku sendi-
nefndinni í heild innilega kom-
una. Sérstaklega var Dubcek
þökkuð góð fundarstjórn, og
sögðu sovézku leiðtogarnir að
honum væri það meðal annars að
þakka hve mikil eining ríkti á
fundinum.
Fer Asplin
skemmtir.
Hátíðokvöldvoba í Norræna húsinu
í KVÖLD kl. 20.30 hefst hátíð-
arkvöldvaka í Norræna húsinu
til þess að minnast hálfrar aldar
afmælis Norrænu félaganna.
Wilhelm Paues, forstjóri Iðn-
aðarmálastofnunar Svíþjóðar,
flytur erindi um efnahagssam-
vinnu Norðurlanda, kvartett
Björns Ólafssonar leikur, Sig-
urður Bjarnason, formaður Nor-
Á gúmbát niður Elliðaárnar í vexti
HESTAMENN, sem voru að
sinna hestum sínum í Kardi-
mommubæ við Elliðaár sl.
laugardag, ráku upp stór
augu, þegar þeim var litið
yfir Elliðaárnar, sem voru þá
í allmiklum vexti. Þar sem
straumurinn var hvað mestur
sáu þeir mann berast á mikilli
ferð niður ána í örlitlum bát.
Þótti mönnum þetta hið mesta
glæfrafyrirtæki, og biðu að-
eins eftir því að bátnum
hvolfdi.
Svo fór þó ekki, maðurinn
náði landi heilu og höldnu,
þar sem félagi hans beið hans,
og litlu síðar voru þeir farnir
að undirbúa aðra ferð niður
ána.
Þar sem þetta er æði nýstár
leg íþrótt hérlendis, fórum við
ástúfana, og ná’ðum tali af
öðrum mannanna. Sá heitir
Björn Halldórsson og tjáði
hann okkur, að bátur þeirra
væri gúmbátur, og hefði hann
sjálfur ásamt fleiri starfsmönn
um Gúmmívinnustofunnar
gert bátinn úr tveimur trakt-
orsslöngum. Væri hann nú orð
inn i. n 2ja ára.
„Þetta er spennandi og
skemmtilegt sport“, sagði
Björn. „Við hefðum þó aldrei
lagt í Elliðaáirnar, nema vera
búnir að þaulreyna bátinn
áður. Við höfum farið með
bátinn á ýmiss vötn hér í ná-
grenninu, og í fyrra fórum
við til að mynda með hann í
Sogið og sigldum á honum frá
Ljósafossi og niður að Álfta-
vatni. Þá fórum við einnig
Viðar lætur berast niður flúðirnar og stýrir ferðinni með árinni.
með hann í Elliðaárnar, og
reyndum hann þar, en þá var
ekki líkt því eins mikið va'n
í þeim og núna.“
„Er ekki hætta á því að bít-
urinn sö(kkvi?“
„Nei, hann flýtur eins og
korktappi, og virðist alls ekki
geta hvolft. Eina hættan er að
rekast utan í steina eða klapp
Vatnasiglingarmennimir — Viðar Halldórsson, Björn
Haldórsson og Pálmi Thorarensen.
Bjöm að leggja í straummn.
ir, og þess vegna er eiginlega
betra að eiga við þetta sport
eftir því sem meira vatn er í
ánum. Á siglingu okkar um
árnar í fyrra rifum vi’ð t.d.
gat á botninn á bátnum,
vegna þess að við lentum á
steinnibbu."
Björn sagði ennfremur, að
þeir félagar klæddust fallhlífa
stökksbúning, þegar þeir
sigldu í bátnum, og væri hann
algjörlega vatnsþéttur. Innan
undir búningnum hafa þeir
loftkút í öryggiaskyni, ef illa
skyldi fara.
ræaa félagsins, flytur ávarp,
Guðrún Á. Símonar synigur við
undirleik Guðrúnar Kristinsdótt-
ur og að lokuim mun hinn frægi
norski gaimanleikari og píanó-
leikari Per Asplin akemmta
gestum. Síðan er kaffidrykkja.
Meðlimir Norræna félagsins
eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Aðgangur er ókeypis en
gestir greiða veitingar sjálfir. —
Miðar verða afhentir á skrif-
stofu Norræna félaigsins kL 1—7
í dag.
Skoist ú
búðoigluggo
LÖGREGLAN rakst á stórslas-
aðan mann í Suðurgötu aðfara-
nótt sunnudags. Hann var mik-
ið skorinn í andliti og á höfði
og var fluttur í Slysavarðstof-
una en þaðan í sjúkrahús. Mað-
urinn var undir áhrifum áfengis
og er talið, að hann hafi hras-
að á búðarglugga í miðborginni
með fyrrgreindum afleiðingum.
Líðan mannsins var sögð góð í
gærkvöldi.
HveUhettum
stolið
Á ANNAÐ hundrað hvellhettum
var stolið úr geymsluskúr í Breið
holti um helgina. Hvellhettur
þessar eru stórhættulegar og
beinir rannsóknarlögreglan þeim
tilmælum til foreldra, sem kynnu
að verða hvellhettana varir í fór
um barna sinna, að taka þær af
þeim og láta lögregluna vita.
í geymsluskúr þessum var einn
ig geymt dýnamit, en ekki var
talið, að neitt hefði verið tekið
af því.
Ekið ú kyn-
stæða bíla
EKIÐ var á R-2219, sem er dökk
grár Opel Kadett, þar sem bíll-
inn stóð í stæði við Ármúla 3
frá klukkan 09 sl. fimmtudag til
klukkan 15 daginn eftir.
Ekið var á R-21820, sem er blá
grænn Skoda, þar sem bíllinn
stóð við Hæðargarð 6 frá klukk-
an 00 til 11 á sunnudag.
Ekið var á X-804, sem er rauð-
ur Skoda, þar sem bíllinn stóð
við Hótel Sögu 27. febrúar sl.
Allir bílarnir skemmdust og
skorar rannsóknarlögreglan á
ökumennina, sem tjónunum ollu,
svo og vitni að gefa sig fram.
KEFLAVÍK
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn,
Keflavík heldur skemmtifund í
æskuilýðahúsinu fimmtudaginin
20. marz kL 9. Spilað verður
bingó, góðir vinninigar. Kaffi-
veitingar verða á fundinum. Fé-
lagskonur eru beðnar að fjöl-
menna og taka með sér ge«ti.