Morgunblaðið - 18.03.1969, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.03.1969, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 196» Holrœsaflóðin r Keflavík: „Það var öldugangur í ganginum þegar ég kon fram“ „Það var allt kolmórautt hér i ibúðinni' nýtt holræsi er lausnin í ANNAÐ skipti eftir áramót hefur fióð valdið stórskemmd um á mörgum íbúðum í Keflavík. í miklum rigning- Tim annar hluti af holræsa- kerfi bæjarins ekki vatns- Vatnselgur á Keflavíkurgötu. álaginu og það hefur valdið því tvisvar á rúmum mánuði að flætt hefur upp um niður- failsrör margra húsa og aur- vatn streymt inn í húsin. Aðalvandræðin hafa verið á ákveðnu svæði í bænum þar serp aðalskolprörið er 9 tommu svert, en það var lagt 1939. Úr þessu holræsi hefur elg- urinn bullað upp um niður- föll í kjalaraíbúðum, fyrst þann 10. febr. sl. og aftur sl. sunnudag, en þá var mikil rigning um nóttina og því óhemjuálag á þessu þrönga holræsakerfi. Sl. sunnudag flæddi inn í 12 hús í Kefla- vík. Það var ömurlegt um að litast á heimilum fólks, sem hafði orðið fyrir þessu óhappi og þó var búið að hreinsa eins og hægt var í íbúðunum þegar blaðamann Mbl. bar að garði á sunnudagskvöld. Við ræddum stuttlega við heim- ilisfólk í nokkrum íbúðum sem höfðu orðið fyrir skemmdum af völdum hol- ræsavatns. „Þetta er alveg hryllingur“, sagði Blsa Júlíusdóttir hús- freyja í kjallaraíbúðmni að Aðaígötu 21, „Maður verðxrr að flýja úr íbúðinni með 3 börn, þetta er óskaplegt“. Allir gólfdúkar og gólÆflísar losnuðu í íbúðinni og eru ónýtar og hluta af innbúi var búið að bera yfir í rnæsta hús. Eiginmaður Elsu kom heim úr vinnu aðfaranótt sunnu- dags um kl. 4 og þá var al'lt í lagi í íbúðinni. Um 5 leytið voru þau hjón vaikin með símahringingu og þegar Elsa steig fram úr rúm- inu stóð hún í vatni, sem var fet á dýpt. Kolmórautt klóak- vatn. Mest vatnið flæddi um niðurfal'lsrör í útigangi og þeg ar Blsa opnaði dyrnar í gang- inum var hreinlega öldugang- ur í ganginum. Svo mikill var vatnselgurinn, sagði Elsa. Það hækkaði mjög ört vaitn ið, en auik flóðsins í niður- fallinu á útigaingi flæddi einniig inn í baði og þvotta- húsi. Þau hjón fengu strax hjálp og byrjað var að bjarga því sem, var næst igólfi. Strax var byrjað að ausa, en vatns- flaumurinn linaðist ekki fyrr en um hádegisbil. í flóðunum í febrúar skemmdust öll teppi á gólf- um í íbúðinni að Aðalgötu 21, en vatnstrygging heimila mwn ekki ná yfir tjón af þess um orsöfcum sem um ræðdr. „Við gsturn ekki verið hér í nótt með börnin", sagði Elsa. „Það var svo mikill ó- þverri, sem kom hér inn að það er alls ekki óhætt fyrr en eiftir nánari hreinsun". — Elsa sagði að þegar flóðið toefði orðið í holræsunum í febrúar, hefði eigandi íbúð- arinnar fengið reikninig fyrir holræsakerfi tveim dögum seinna. f kjallaraíbúðinni á Aðal- götu 19 býr ung kona, en eig- andinn, Sigurður Guðbrands- son, býr á efri hæð hússins. Leigjandinn vaknaði rétt fyrir kl. 5 aðfararnótt sunnu- dags og þá var vatn komið á gólfin. Nágrannar komu strax til hjúlpar og var rétt hægt að halda í horfinu með stöð- uigum austri, en einnig komu tveir menn frá bænum með dælur, sem dældu stöðugt vatni út úr íbúðinni til há- degis, utan 30 mínútna, sem rafmagnið fór af húsinu. í þessari kjallaraíbúð flæddi upp um holræsakerfið í þvottahúsi og við útidyr. — Öllu varð bjargað af gólfi, en teppi héngu rennvot á Axel Schiöth i íbúS sinni. Bækurnar í neðri hillunni voru á kafi í vatni þegar hann kom heim. Á gólfinu er vatnsdælan. urðu miklar skemmdir í þess- ari íbúð og m. a. skemmdust öll teppi í íbúðinni. Þá og nú flæddi upp um niðurföll í Elsa Júlíusdóttir með tvo syni sína. Reynir Guðmannsson með Sonju litlu. handriðum utan dyra þegar okkur bar að. Reynir Guðmannsson býr ásamt konu sinni og tveim börnum í kjallaraíbúðinni að Kirkjuvegi 13. Eldri dóttir þeirra hjóna, Sonja, 6 ára gömul, hafði vaknað um 7 leytið á sunnudagsmorigun, en sængin hennar hafði þá dott- ið á gólfið og henni var kalt. Þegar hún teygði sig eftir sænginni stakk hún hendinni niður í ískalt vatnið, sem var þá á gólfinu. Sonja vakti for- eldra sína og pabbi hennar hljóp strax út í næsta hús þar sem verið valr að dæla og þau fengu dælu um 8 leytið. Dælan hafði sæmiLega við alveg til hádegis, en þá var hætt gð flæða upp um niður- föllin. í flóðunum í febrúar þvottahúsi, baði og á útigangi Reynir fékk teppin úr hreins- un sl. föstudag, en hann hafði látið hreinsa teppin til bráða- birgða. Reynir lauk við að setja teppin á gólfin um mið- nætti á sunnudagskvöld og þau voru því aðeins þurr í 6 tíma á gólfinu. „Ég er búinn að henda teppunum núna“, sagði Reyn- ir, „það var allt kolmórautt hér í íbúðinni í mongun af leir, skít og öllu mögulegu, sem kemur upp úr holræs- um. Við erurn búin að búa hér í 4 ár og það hetfur aldrei neitt svona komið fyrir fyrr en í vetur. En það er augljóst mál að bæjaryfirvöld komast ekki hjá því að gera eitthvað í þessu máli. Það stendur að minnsta kosti ekki á því að rukka holræsagjöldin. Þetta er bara alls ekki hægt“. Á Hringbraut 78 á Ágúst Sigurðsson kjallaraíbúðina, sem hann leigir. Þar flæddi vatn inn af götunni og var um 10 sentimetra djúpt vatn í allri íbúðinni. Dú'karndr eru lausir og hurðir bólgnuðu upp að neðan af völdum vaínsins. í nokkrum húsum við Hringbraut flæddi upp um holræsarör og miklar skemimdir hl-uitust af. í kjall- araíbúðinni á Hringbraut 82, var urn tíma 30 sm djúpt vatn á gólfum og miklar skemmdir hlutust af og mið- stöð hússins stöðvaðist, en víða munu miðstöðvar hafa stöðvazt af völdum valtns. Á Smáratúni 16 flæddi inn um niðurföll, en skemmdir urðu ekki mi-klar. Aftur á móti urðu miklar skemmdir í kjallaraíbúðinni á Smára- túni 14, en þar býr Axel Sohiöth. Þegar Axel kom heim á sunnuidagsmorgun úr vinnu, komst hann eikki innn vegna vatnselgs og varð hann að fá lánuð hnéhá stígvél til þess að geta igengið inn í stotfuna hjá sér. Vatnið í stofunni var fet á hæð og neðri hillan i bókaskápnum hans var á kafi í vatni. Vatnið ikom í íbúðina úr niðurfalli á útigangi.. Þeg- ar við heimsóttum Axel var hann að þurnka bækurnar sín ar og reyna að bjanga þeim. Axel var ekki búinn að dæla vatnimu úr íbúðinni fyrr en um 4 leytið á sunnudag, en hann sagði að það hefði verið ömuhleg heimikoma að þurfa að vaða kolmórautt skolp- vatn í íbúðinni sinni. í flóð- uwum í tfebrúar flæddi einnig í kjallairaíbúðina á Smáratúni 14. — Flestir eigendur íbúðanna hafa sett fram skaðabóta- krötfuf á hendur bænum, en í bígerð njun vera að setfja nýja holræsalögn á þeasu svæði, og þá mun stærri en nú er. Með því móti, líklega einu, fæst lausn á þessu vandamáli.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.