Morgunblaðið - 18.03.1969, Side 5
MOBGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1988
5
í senn góöir íslendingar
og góðir Kanadamenn
— viðtal við sendiherra Kanada á íslandi
— Það er yfirleitt sagt að
það taki eitt ár fyrir nýjan
sendiherra að kynnast öllu
því, sem nauðsynlegt er að
kynnast í landinu, svo að hann
geti orðið því og sínu eigin
landi að liði. Vafalaust tekur
það lengri tíma, þegar maður
hefur ekki aðsetur í landinu,
eins og raunin er með mig
hér. En ég mun gera mitt
bezta og reyna að koma hing-
að tvisvar til þrisvar á ári og
halda eins góðum tengslum
við fsland og mér er unnt.
Þetta segir George K.
Grande, sem skipaður var
sendiherra Kanada á íslandi í
nóvember sl. en aðsetur hans
er í Osló. Kom hann hingað
í stutta heimsókn í byrjun des
ember og afhenti forseta ís-
lands trúnaðarbréf sitt, en nú
dvelst hann hér í tæpa viku
ásamt konu sinni. ísland tók
á móti þeim með roki oig rign
ingu á laugardaginn, en sýndi
brátt á sér fegurri hlið —
hvítan vetrarskrú’ða.
— Nú er það draumur
minn að fá tækifæri til að
ferðast um landið í sumar,
sagði Grande er Mbl. hitti
hann snöggvast að máli í gær,
er hann var nýkominn frá því
að heimsækja Alþingi. Sendi-
herrahjónin eiga annríkt hér
því að þau hafa mörgum opin
berum skyldum að sinna. En
þau reyna einnig að kynnast
sögu íslands og menningu.
— Við reyndum að skyggn-
ast aðeins inn í liðna tíð á
íslandi í heimsókn okkar á
Þjó’ðminjasafninu. Varð ég
sérstaklega hrifinn þar, því
að mér finnst það mjög vel
upp sett á a’llan hátt. Eftir
heimsókn mína í Asgrímssafn
hefði ég ekki haft mikið á
móti því að eignast svo sem
eitt af verkunum, sem þar
voru, en slíkir dýrgripir liggja
vist ekki á lausu. — Á sunnu-
dagskvöld fór ég í Þjóðleik-
húsið skoðaði það og sá Fiðl-
arann á þakinu og mér finnst
aðaileikarinn alveg stórkost-
legur í hlutverki Tevje. Hljóm
sveitin og uppsetningin öll var
mjög góð og hafði ég við að
mi'ða sýningu á leiknum í
írskui
námsstyrkur
ÍRSK stjórnarvöld bjóða fram
styrk handa íslendingi til náms
við háskóla eða hliðstæða stofn-
un á írlandi háskólaárið 1969-
70. Styrkfjárhæðin er 350 sterl-
ingspund, en styrkþegi þarf sjálf
ur að greiða kennslugjöld. Styrk
urinn veitist til náms í írskri
tungu, bókmenntum, sögu eða
þjóðfræðum, eða í enskri tungu
SKODAEIGENDUR
ENN ÞÁ EICUM VIÐ FYRIRLIGCJANDI
NOKKRAR NÝJAR SKODAVÉLAR,
INNFLUTTAR FYRIR GENGISLÆKKUN
VIÐ MJÖC HAGSTÆÐU VERÐI.
EF GAMLA VÉLIN ER ORÐIN SLITIN,
SPARIÐ ÞÉR STÓRFÉ MEÐ ÞVÍ AÐ
ENDURNÝJA NÚNA.
VIÐ TÖKUM GÖMLU VÉLINA UPP í
NÝJA OG BJÓÐUM YÐUR AUK ÞESS
GREIÐSLUSKILMÁLA.
Ný bifreið kostar nál. kr. 230.000.—
Ný Skodavél kostar innan við einn
tíunda af verði nýrrar bifreiðar.
0 SHODR
Sími
32881
BU0IN
George K. Grande sendiherra
Kanada á íslandi.
London.
— Já, það er margt, sem
mann langar til að sjá og
heyra á íslandi, en aðalstarf
mitt er að sjálfsögðu að hafa
samband við ríkisstjórnina oð
ræða við framámenn hér,
skiptast á upplýsingum ,um
sameiginleg áhugamál og
skiptast á skoðunum um
vandamálin í heiminum í dag.
— Sameiginleg áhugamál
íslands og Kanada eru fyrst
og fremst fiskveiðar, því að
Kandamenn eru mikil fisk-
veiðiþjóð þótt þeir eigi ekki
eins mikið undir fiskinum og
íslendingar. Hef ég í því sam-
bandi átt mjög gagnlegar vi'ð-
ræður við utanríkisráðherra
og ráðuneytisstjóra hans.
— Þótt áhugamál íslands
og Kanada mætist í fiskinum,
þá eru tengsli Kanada og ís-
lands fyrst og fremst gegnum
Vestur-íslendinga. Þeir hafa
reynzt góðir innflytjendur
því að þeir hafa í senn reynzt
góðir íslendingar og góðir
Kanadamenn og hvarvetna
komið sér vel. Reynslan er
sú að þeir íbúar Kanada, sém
halda tryggð við þjóðerni sitt
eru beztu Kanadamennirnir
og stuðla mest a'ð sameinuðu
Kanada.
George K. Grande er af
brezkum og pólsk-þýzkum
ættum, en Margaret kona
hans er af brezkum ættum.
Þau eru bæði frá Montréal,
og þar lauk Grande háskóla-
námi. A stríðsárunum var
hann í kanadíska flughernum,
en nokkru eftir stríð réðst
hann í utanríkisþjónustuna.
Hefur hann m.a. starfað í
Grikklandi, Ceylon, Berlín og
hjá Sameinuðu þjóðunum í
New York. Sl. haust var hann
skipaður sendiherra Kanada
í Noregi og á íslandi með að-
setri í Osló.
og bókmenntum.
Umsóknir um styrk þennan
sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, Reykjavík, fyrir
20. apríl n.k. Umsókn fylgi stað-
fest afrit prófskírteina ásamt
tvennum meðmælum og vottorði
um kunnáttu umsækjanda í
ensku eða írsku.
Umsóknareyðublöð fást í
menntamálaráðuneytinu.
(Frá Menntamálaráðunevtinul
Ki lf 11} iTi
Bilor af öllum gerðum til sýnis
og sölu i glæsilegum sýningar-
skála okkar að Suðurlandsbraut
2 (við Hallarmúla).
Gerið góð bíiqkaup — Hagstæð
greiðslukjör — Bílaskipti —
Taunus 17 M '67
Volkswagen Fastback '66
Ford Fairlane '65
Bronco '66
Cevy Nova '67
Willys '6 og '67
Opel Rekord '65
Cortina '67
Comet '63
Taunus 12 M '63
Opel Caravan '61
Taunus 17M st. '59
Daf '63
Volkswagen '63
Taunus 17M '65
Fiat 600 D '66
Reno sendib. '66
Simca 1000 '63
Ford Galaxia '64
Austin Gipsy '63
DuPont '64.
Tökum vel með farno bila i
umboðssölu — Innanhúss eða
utQn _ MEST úrval
_ MESTIR MÖGULEIKAR
m i n n
HR HRISTJÁNSSDN H F
SUÐURLANDSBRAUT 2, VIÐ
HALLARMÚLA
SÍMAR 35300 (35301 - 35302)
Philip Morris vekur athygli
á mest seldu
amerísku filtersigarettunni
í Evrópu.
Reynið pakka af Marlboro og þér sannreynið hvað kallað er
raunverulegur tóbakskeimur.
Keimur, réttur keimur. Fullþroskað fyrsta flokks tóbak gefur Marlboro
þennan góða keim, Er þetta ekki það sem þér leitið að í filtersigarettunni?
„FILTER“ • RÉTTUR KEIMUR • „FLIP TOP“ PAKKI.