Morgunblaðið - 18.03.1969, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1»6®
Nær 80% bænda eru vel
settir efnahagslega
— breyting lausaskulda í föst lán mun
verða til mikils hagrœðis fyrir bœndur
— úr rœðu Ingólfs Jónssonar, landbún-
aðarráðherra á Alþingi í gœr
INGÓLFUR Jónsson landbúnað-
arráðherra mælti í gær fyrir
stjómarfrumvarpinu um breyt-
ing á lausaskuldum bænda í föst
lán. Var frumvarpið lagt fyrir
efri-deild, og við 1. umræðu tók
Ásgeir Bjarnason til máls auk
ráðherra.
f framsöguræðu sinni sagði
Ingólfur Jónsson landbúnaðar-
ráðherra m.a.:
Frumvarp það sem hér um
ræðir, er flutt til þess að gera
mögulegt að breyta lausaskuld-
um bænda í föst lán. Það er flest
um kunnugt, að bændur hafa
ráðist í fjárfrekar framkvæmd-
ir á undanförnum árum. Þeir
sem tækifæri hafa til að gera
samanburð á framkvæmdum í
sveitum landsins síðustu 10 árin
sjá glöggt hversu framkvæmd-
irnar hafa verið miklar. Fjöldi
íbúðarhúsa hefur verið endur-
byggð og aukin á þessu tíma-
bili, sömu sögu er að segja um
peningshús, bændur keyptu
meira af vélum á þessu tímabili
Ingólfur Jónsson
landbúnaðarráðherra.
en nokkru sinni fyrr og má nefna
að láta mun nærri að tvær drátt-
arvélar séu á hverju býli auk
annarra véla. Þá hafa einnig
heimilistæki innan húss verið
keypt á seinni árum, sérstaklega
eftir að rafmagn kom inn á sveita
heimilin.
Allt hefur þetta kostað mikla
fjármuni og ekki við því að
búast að allt hafi verið greitt
með samtímatekjum. Ræktunin
hefur einnig kostnað mikla fjár-
muni umfram ríkisframlögin.
Láta mun nærri, að á þessu tíma
bili hafi ræktað land aukizt um
50 þús. hektara, en allir munu
vera því sammála að bændur
hafi verið athafnasamir í ræktun
ekki síður en í öðrum fram-
kvæmdum síðustu árin.
MIKLAR FRAMKVÆMDIR
Þegar vitnað er í hinar miklu
framkvæmdir, sem orðið hafa í
sveitum landsins, mun flestum
skiljast, að eðlilegt er, að lausa-
skuldir hafi safnast, a.m.k. hjá
þeim bændum, sem ekki eru
efnalega vel stæðir. Stofnlán frá
stofnlánadeild landbúnaðarins
hafa, að sjálfsögðu verið veitt
eins og ætlast er til, en þau nægja
ekki nema fyrir hluta fram-
kvæmdakostnaðarins. Venjan er
að lána úr stofnlánadeild 50-60%
af matsverði húsa. Þá hefur einn
ig verið síðustu árin lánað úr
stofnlánadeild út á vélar, 33%
af kostnaðarverði. Lán hafa einn
ig verið veitt út á ræktun.
Framhald á bls. 20
Umrœður um menntaskólafrumvarpið:
Æskilegt aö frumvarpiö
verði afgreitt á þessu þingi
1 gær var fram haldið í neðri-
deild Alþingis umræðum um
menntaskólafrumvarpið. Fluttu
þá ræðu Sigurvin Einarsson,
Magnús Kjartansson og Glyfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra.
Var frumvarpið síðan afgreitt til
menntamálanefndar deildarinnar
og 2. umræðu.
Sigurvin Einarsson sagði a'ð um
ræður um frumvarp þetta hefðu
á ýmsan hátt verið óvenjulegar.
Því hefði verið tekið með litlum
fögnuði, sérstaklega af þingmönn
um Sjálfstæðisflokksins, sem þó
væru stuðningsmenn ráðherrans.
I þessu frumvarpi væru margar
merkar nýjungar og ferskur og
frjálsræðislegur andi. Það hefði
einkum verið 1. grein frumvarps
ins sem sætt hefði gagnrýni og
það ekki að ástæðulausu. Með
einu pennastriki ætti að þurrka
út gildandi lög um tölu mennta-
skólanna, og þar með skýlaus
ákvæði um menntaskóla á Vest-
fjörðum og Austurlandi, sem sett
voru í lögin fyrir 4 árum. Ákvæði
þessi hefðu náðst í gegn eftir
harða baráttu margra manna.
Vitna mætti til ræðu Matthíasar
Bjarnasonar um þetta mál, og
lýsingu hans á baráttu Isfirðinga
fyrir menntaskóla. Sú lýsing
væri sönn og rétt.
Sigurvin Einarsson sagði að
þingmenn Vestfjahða hefðu ár
eftir ár flutt tillögur á Alþingi
um það að stofnsettur skyldi
menntaskóli á ísafirði, en sá til-
löguflutningur hefði lítinn árang
ur borið. Síðan hefðu heima-
menn gripið til sinna ráða, og
safnað áskriftum um 2000 alþing
iskjósenda í kjördæminu og hefði
það erindi verið sent Alþingi.
Við þetta hefðu orðfð nokkur
veðrabrigði, en þó ekki skjót.
Þau hefðu ekki komið fram fyrr
en undir vor, er menntamálaráð-
herra sjálfur mælti fyrir mennta
Hefi til sölu m. a.
3ja herb. risíbúð við Drápuhlíð.
íbúðin er nýstandsett og lítur
mjög vel út, um 80 ferm., útb.
400 þús. kr.
4ra herb. íbúð viö Kleppsveg um
100 ferm., auk þess eitt her-
bergi í risi, útb. 550 þús. kr.
4ra herb. nýtizkuleg íbúð við
Fögrubrekku í Kópavogi, 117
ferm., útb. 700 þús. kr.
Einbýlishús við Garðaflöt, Garða-
hreppi. Húsið er 120 ferm. auk
þess bilskúr og ræktuð lóð.
Glæsilegt einbýlishús við Sunnu
braut í Vesturbænum í Kópa-
vogi, laust strax.
Lítið einbýlishús, timburhús, við
Njálsgötu. Húsið er hæð og
kjallari, grunnflötur um 70
ferm.
Raðhús við Hraunbæ, selst fok-
helt eða tilbúið undir tréverk.
Baldvin Jónsson hrl.
Kirkjutorgí 6,
símar 15545 og 14965.
Kvöldsimi 20023.
TILISÖLO
Sími 19977
2ja herb. íbúð á 1. hæð við Öldu-
götu.
3ja herb. íbúð á 1. hæð við
Safamýri. Harðvíðarinnrétting-
ar, sameign fullfrág., falleg
íbúð.
3ja herb. kjallaraíbúð við Lang-
holtsveg.
5 herb. íbúð við Háaleitisbraut,
harðviðarinnréttingar.
5 herb. sérhæð við Borgarholts-
braut, harðviðarinnréttingar,
lóð fullfrág., bilskúrsréttur.
Einbýlishús á Flötunum, fullfrág.
Húsið er 130 ferm., lóð fuil-
frágengin, bílskúr.
Raðhús við Látraströnd með inn-
byggðum bílskúr.
Raðhús í Fossvogi, fokheld og
tilbúin undir tréverk.
150 ferm. iðnaðarhúsnæði á 1.
hæð i Austurborginni, fullfrá-
gengin.
Einbýlishúsalóð á fallegum stað
i Kópavogi. Teikningar fylgja.
MIOðBOIÖ
FASTEIGNASALA1
VONAR STRÆTI 4
JÓHANN RAGNARSSON HRL. Síml 1908Í
Sölumaöur KRISTINN RAGNARSSON Slml 1997?
utan skrifstofutíma 3107?
skólafrumvarpi. Var þá ákveðið
að skólar þessir skyidu stofnaðir
þegar fé væri veitt til þeirra á
fjárlögum. Fjárveitingar til þess-
ara skóla hófust síðan árið eftir
og hafa þeir verið á fjárlögum
sfðan. Eru þær nú orðnar 7,3
millj. kr. fyrir hvorn skólann,
en af þessari fjárhæð hefði ekki
verið notuð ein einasta króna
ennþá til framkvæmda.
Sigurvin sagði að menntamála
ráðherra hefði nú drepið á það í
framsöguræðu sinni, að mennta-
skólar á Vestfjörðum og Austur-
landi yrðu litlir, einnar deildar
skólar. Þessu kvaðst hann vilja
mótmæla, enda væri ekki ljós
þau rök sem fyrir þessu ættu að
vera. Nýir menntaskólar á þess-
um stö’ðum mundu greiða úr
Framhald á bls. 20
16870
2ja herb. litil íbúð á þak-
hæð í háhýsi við Ljós-
3ja herb. ófullgerð íbúð á
hæð við Sæviðarsund.
Sérhitaveita. Suðursvalir.
Húsn.st.lán áhvílandi.
4ra herb. suðurendaíbúð á
3. hæð við Eskihlíð. Laus
fljótt.
4ra herb. efri hæð við
Hjallaveg. Sérhitaveita.
4ra herb. 117 ferm. neðri
hæð við Köldukinn, Hafn-
arfirði, sérhiti.
5 herb. 154 ferm. neðri
hæð við Gnoðavog. Sér-
hiti. Suðursvalir.
5 herb. neðri hæð við
Hrísateig. Sérhitav. Góð
kjör. Laus.
Endaraðhús, pallhús, i
Fossvogi, tilbúið undir tré
verk. Verð 1450 þús.
FASTEIGNA-
PJÓNUSTAN
Austurstræti 17 tSilli S Valdi)
I fíagnar Tómasson hdl. simi 24645
sölumaóur fasteigna:
Stefán J. fíichter sími 16870
kvötdsimi 30587
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur fund í Sjálfstæðis-
húsinu miðvikudaginn 19. marz kl. 8.30 e.h.
Dagskrá: 1. Frú Alma Þórarinsson læknir flytur erindi:
Ferðasaga og rannsóknir.
2. Frú Sigrún Aðalsteinsdóttir: Frásögn
frá Dublin.
Vorboðakonur fjölmennið og takið með ykkur gesti.
STJÓRNIN.
SÍMAR 21150 ■ 21370
íbúðir óskast
2ja—3ja herb. góð íbúð, helzt í
Vesturborginni eða i nýlegum
hverfum.
3ja—4ra herb. góð íbúð, helzt í
Safamýri, Háaleitisbraut eða í
Vesturborginni. Mjög miklar
útborganir.
Höfum ennfremur góða kaupend
ur að 2ja, 3ja, 4ra og 5 herb.
íbúðum, hæðum og einbýlis-
húsum.
Til sölu
Byggingarlóð fyrir raðhús við
Barðaströnd.
2/o herbergja
2ja herb. góð kjallaraíbúð við
Kambsveg. Útb. kr. 250 þús.
2ja herb. nýjar og glæsilegar
íbúðir í Árbæjarhverfi.
2ja—3ja herb. ný og falleg íbúð
rúmir 70 ferm. á jarðhæð við
Hraunbæ. Verð kr. 700—750
þús., útb. 250—300 þús.
3/o herbergja
3ja herb. góð íbúð á hæð í stein-
húsi í Suðurborginni. Nýtt
bað, nýir harðviðarskápar í
svefnherb. Verð kr. 900 þús.,
útb. kr. 450—500 þús.
3ja herb. góð kjallaraibúð í Hlið-
unum með sérhitaveitu og sér-
inngangi, lítið niðurgrafin.
3ja herb. íbúð á hæð í timbur-
húsi í gamla bænum. Hita-
veita og inngangur sér, útb.
kr. 200—250 þús.
3ja herb. góð íbúð með bílskúr
í Vesturbænum í Kópavogi.
4ro herbergja
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
ofarlega i háhýsi við Sólheima.
4ra herb. ný og glæsileg íbúð
við Hraunbæ, sérþvottahús.
Húsnæðismálastjórnarlán xr.
415 þús. fylgir.
4ra herb. góð endaíbúð við Laug-
arnesveg.
4ra herb. góð kjallaraíbúð við
Rauðalæk, um 100 ferm., útb.
um kr. 300 þús.
5 herbergja
5 herb. nýleg endaibúð við Háa-
leitisbraut, teppalögð, og í
góðu standi.
5 herb. nýleg íbúð 117 ferm. í
Austurbaenum í Kópavogi.
5 herb. hæð i gamla Vesturbæn-
um ásamt tveimur herb. og
salerni í risi, sérhitaveita.
Einbýlishús
Raðhús í smiðum i Fossvogi
Glæsilegt einbýlishús í Sigvalda-
hverfi í Kópavogi. Skipti á
4ra—5 herb. ibúð æskileg.
Glæsilegt einbýlishús 135 ferm.
næstum fullgert á bezta stað
í Mosfellssveit.
Hafnarfjörður
Einbýlishús um 160 ferm. á
Hraununum með 5 herb. glæsi
legri íbúð og bilskúr. Rúmlega
tilb. undir tréverk.
Raðhús samtals 150 ferm. i smið
um í Hraunum. Tilb. undir tré-
verk. Góð kjör.
Ennfremur hæðir og séríbúðir
í Hafnarfirði. T Mörgum tilfell-
um mjög hagstætt verð og
góð kjör.
Komið og skoðið
VIÐ SÝNUM OG SELJUM
AIMENNA
FASTEIGkflSALAK
UNDAR6ATA > SIMM iliárSÖ