Morgunblaðið - 18.03.1969, Side 18
18
MOBGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 196S
Pétur Björn Jónsson
— Minningarorð
MÁNUDAGINN 17. marz var til
moldar borinn Pétur Björn Jóns-
son, fyrrum skipherra á varð-
skipum ríkisins, aðeins tæplega
42 ára að aldri, en hann var einn
þeirra sjómanna er biðu bana í
eldsvoða um borð í togaranum
„Hallveigu Fróðadóttur“ aðfara-
nótt 6. marz síðastliðinn, en í
slysi þessu fórust sex skipverjar.
Pétur B. Jónsson var vest-
firzkrar ættar, sjómannssonur,
fæddur á Þingeyri við Dýrafjörð
26. júní árið 1927, sonur hjón-
anna Lilju Björnsdóttur og Jóns
Erlendssónar, sjómanns þar. Um
ættir þeirra er mér ekkj kunn-
ugt, en Lilja móðir hans er hinn
kunna skáldkona og systir þeirra
Pétur Björnssonar, fyrrum skip-
stjóra á Gullfossi og Þorvarðar
Björnssonar fv. yfirhafnsögu-
manns í Reykjavík.
Pétur var sjómannaættar og
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi
Elías Guðmundsson
andaðist sunnudaginn 16.
marz. Jarðarförin ákveðin
síðar.
Anna Elíasdóttir
Marianna Elíasdóttir
Jón Ó. Elíasson,
tengdabörn, barnabörn
_____og barnabamaböm.
t
Eiginmaður minn
Baldur Teitsson
húsasmiður,
Langholtsvegi 185
lézt að heimili sínu laugar-
daginn 15. marz 1969.
Fyrir hönd vandamanna.
Ásdís Elísabet Petersen.
t
Eiginmaður minn
Þórði - Hjaltason
Safamýri 59
andaðist i Borgarspítalanum
15. marz.
Fyrir hönd dætra, tengda-
sona og systkina hins látna.
Kristín Guðmundsdóttir.
t
Lúther Guðnason
Eskifirði
andaðist að heimili sínu
laugardaginn 15. þ.m.
Páil Lúthersson
Unnur Lúthersdóttir
Sverrir Arnar Lúthersson
Sigríður J. Xómasdóttir.
rann fljótt blóðið til skyldunn-
ar. Hann hóf um fermingaraldur
sjósókn frá Patreksfirði á mótor-
báti og tók að deila óblíðum kjör
um við vaska sægarpa við yzta
haf og hlaut þar skólun, er varð
honum mikils vixði síðar á æv-
inni.
Árið 1948 fluttist fjölskylda
hans til Reykjavíkur og hótf hann
þá sjósókn þar.
Liðlega tvítugur settist Pétur
í Stýrimannaskólann og lauk
farmannaprófi með góðri eink-
unn árið 1950 og réðst skömmu
síðar stýrimaður á vitaskipið
Hermóð og var þar stýrimaður í
nokkur ár, en fluttist síðaT yfir
á varðskipin og varð þar stýri-
maður. Árið 1956 lauk hann
ásamt 3 öðrum skipstjóraprófi á
varðskipum ríkisins, og var hann
í hópi þeirra fyrstu eT því prófi
luku. Upp úr því starfaði hann
hjá landihelgisgæzlunni, lengst af
skipherra á varðskipunum Óðni,
sem þá var, og Maríu Júlíu.
Reyndist hann hinn traustasti
skipstjórnarmaðuT, áræðinn og
vaskur.
Hinn 3. ágúst árið 1'960 kvænt-
t
Eiginmaður minn. og faðir
okkar
Sumarliði Gíslason
sjómaður, Hverfisgötu 104a,
andaðist í Landakotsspítala
sunnudaginn 16. marz.
Bóthildur Jónsdóttir,
börn og tengdabörn.
t
Eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir, systir og mágkona
Rósa Kristín Jóhannsdóttir
andaðist í Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri mánudag-
inn 10. þ.m. Jarðarförin fer
fram frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 19. marz kl.
13.30. Blóm afbeðin, en þeim
sem vildu minnast hennar er
bent á Slysavarnafélag ís-
lands.
Ólafur Eyland
Erna María Eyiand
Jóhann Gísli Eyland
Aðalbjörg Helgadóttir
Jóhann Jónsson
Jón Jóhannsson
Kristín Einarsdóttir.
t
Móðir okkar
Marta Brynjólfsdóttir
Kolsholtshelli
verður jarðsungin frá Vill-
ingaholtskirkju® miðvikudag-
inn 19. marz kl. 1. Bílferð
verður frá Umferðarmiðstöð-
inni kl. 11 f.h.
Börnin.
ist Pétur eftirlifandi konu sinni,
Viltoorgu Torfadóttur, sem ætt-
uð er frá Hafnarfirði. Áttu þau
sjö börn, fjóra drengi og þrjár
stúlkur, á aldrinum frá 10 til 23
ára. Bjuggu þau hjón alla tíð á
sama stað að Njálsgötu 20. Kom
ég oft á heimili þeirra, meðan
við störfuðum saman. Á heim-
ilinu var góður andi, 'hispurs-
leysi og glaðværð.
Á því tímabili, er ég var stýri-
maður hjá Pétri, kynntust við
allvel. Þó var hann fámáll. Skap
maður og skáldskapar, er gætti
stillingar í orðum.
Einhverra 'hluta vegna áttu
störf að landhelgisgæzlu ekki
huga hans. Að eðlisfarí var hann
hneigðari til fiskveiða og því
sagði hann stöðu sinni á varð-
skipunum lausri árið 1960 og
gerðist fiskimaður. Þetta kom
mörgum á óvart, er til þekktu,
en hann kaus að hafa þetta
svo. Var hann á ýmsum fiski-
skipum í nokkur ár og nú
síðast á togurum. Á „Halliveigu
t
Útför sonar okkar og bróður
Sigfúsar Sigurgeirssonar
Langholtsvegi 58,
sem lézt 4. marz sl. verður
gerð frá Fossvogskirkju mið-
vikudaginn 19. marz kl. 13.30.
Hlíf Gestsdóttir,
Sigurgeir Sigfússon
og systkin hins látna.
t
Útför móður okkar, tengda-
móður og ömmu
Láru Magneu Pálsdóttur
Grettisgötu 13,
fer fram frá Fríkirkjunni
þriðjudaginn 18. marz kl. 1.30
e.h.
Börn, tengdabörn og
barnaböm.
t
Útför mannsins míns, föður
og stj úpföður
Haraldar Valdimarssonar,
Hringbraut 39,
fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 19. marz kl.
10.30. Blóm og kransar af-
beðið.
Guðrún Jónsdóttir
Finnbogi Haraldsson
Hrönn Rasmussen.
t
Faðir okkar
Guðjón Ingimar
Magnússon
trésmiður,
andaðist í sjúkrahúsinu á
Hvammstanga 13. þ. m.
Guðmundur Guðjónsson
Gestur Guðjónsson
Sigríður Guðjónsdóttir
Magnús Guðjónsson.
t
Móðir okkar og amma
Ólína Sigurðardóttir,
Kirkjuvegi 10, Keflavík,
verður jarðsungin frá Kefla-
víkurkirkju miðvikudaginn
19. marz kl. 1.30 e. h.
Böra og bamabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir samúð
og vináttu við andlát og jarð-
arför eiginmanns míns og
föður okkar
Baldvins Pálssonar
Dungal.
Margrét Dungal
Sigrún Dungal
Gunnar Dungai
Páll Halldór Dungai.
Fróðadóttur“ réðist hann í des-
ember síðastliðnum ag þar fór
hann í sína síðustu sjóferð.
Pétur Jónsson var afburða sjó-
maður, að hvaða verki sem hann
gekk. Um það geta allir borið,
er honum votu samtíða. Mann-
kosta maður og drengur góður.
Hann var greindur og mun hafa
verið allgott skáld, þó eigi flík-
aði hann því, fremur en öðru,
heldur geymdi með sjálfum séT
og ekkert skrifaði hann niður.
Síðastliðið haust missti hann vin
sinn, er hann mat mikils og
mælti fram þess vísu til minn-
ingar um hann og hún á einnig
við um hann sjálfan, segir í
rauninni allt, sem segja þarf:
„Horfni vinur, fast þú sóttir sjó,
og sannuT drengur reyndist
vinum þínum.
Ég bið að guð þér gefi ró,
góð minning hverfur ei úr huga
mínum“.
PJ
Einmitt þannig, munu minn-
ingarnar um Pétur Jónsson geym
ast í hugum okkar, er með hon-
um störfuðu. Og við sendum fjöl-
skyldu 'hans samúðarkveðjur og
biðjum guð að styrkja hana og
hugga.
Jónas Guðmundsson
stýrimaður.
Sigurveig Magnús-
dóttir — Minning
I DAG verður til moldar borin
Sigurveig Magnúsdóttir, Berg-
staðastræti 61 í Reykjavík, sem
andaðist þann 11. þ.m. að Lands
spítalanum, áttræð að aldri.
Sigurveig var fædd á Skúms-
stöðum á Eyrarbakka 14. nóvem-
ber 1888, dóttir hjónanna Gróu
Jónsdóttur og Magnúsar Orms-
sonar lóðs. Hún ólst upp í for-
eldrahúsum á Eyrarbakka, yngst
í hópi 6 systkina, sem nú eru öll
látin, nema elzti bróðirinn,
Magnús. Bernskuheimilið á Eyr-
arbakka var gott, og þar naut
Sigurveig mikils ástríkis. Hún
hlaut góða uppfræðslu á þeirra
tíma mælikvarða hjá Pétri Gu'ð-
mundssyni í barnaskólanum á
Eyrarbakka, og að lokinni skóla-
vist tóku við ýmis st örf; kaupa-
vinna á sumrum og fiskvinna og
ráðskonustörf á vetrum, eins og
tíðast var á fyrstu áratugum
aldarinnar.
Af bernsku- og æskuárunum á
Eyrarbakka stóð jafnan mikill
Ijómi í huga Sigurveigar, og úr
lind þeirra endurminninga jós
hún drjúgum síðar á lífsleiðinni.
Hún hafði líka margs góðs að
minnast frá vist sinni að Móeið-
arhvoli hjá Sólveigu og Þor-
steini Thorarensen. Hún var
tengd æskustöðvunum traustum
böndum, og alla tíð sýndi hún
þeim mikla ræktarsemi og átti
t
Hjartanlega þökkum við alla
samúð og virðingu vi'ð andlát
og útför
Jóns Magnússonar,
kirkjuvarðar við
Dómkirkjuna.
Við þökkum safnaðarstjórn-
inni, prestum, organista og
fyrrverandi Dómkór. Við
þökkum kirkjunefnd kvenna
Dómkirkjunnar og bræðrafé-
lagi kirkjunnar. Einnig öllum
öðrum sem heiðruðu minn-
ingu hans með nærveru sinni.
Guð blessi ykkur öll.
Sigríður Bjarnadóttir
Bjarni Jónsson
Ragna Halldórsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Jack Draughn
og barnaböm.
t
Alúðarþakkir til allra þeirra,
er sýnduo kkur samúð og
vináttu í veikindum og við
fráfall og jarðarför
Bjarnhéðins Árnasonar,
bifreiðastjóra,
Seljavegi 6, Selfossi.
Sérstakar þakkir flytjum við
læknum og hjúkrunarliði á
Lyfjadeild Landspítalans.
Vilný Bjarnadóttir
Guðný Gísladóttir
Guðni H. Bjamhéðinsson
Ásdís E. Bjarnhéðinsdóttir
Sævar Bjamhéðinsson.
ófáar ferðirnar á „Bakkann".
7. júní 1919 giftist Sigurveig
Karli Þorvaldssyni trésmi'ð frá
Eyrarbakka og settust þau hjón
að í Reykjavík, þar sem Karl
reisti þeirra framtíðarheimili að
Bergstaðastræti 61 þrem árum
síðar. Sigurveigu og Karli varð
átta barna auðið. Elztu dóttur
sína, Ásdísi, misstu þau hjón
tvítuga að aldri, og dreng að
nafni Óskar í bernsku. Önnur
börn þeirra eru: Þórhildur,
Karlotta, Magnea Gróa og Guð-
laug, allar giftar og búsettar í
Reykjavík, Þorvaldur, kvæntur
og búsettur í Garðahreppi og
Magnús, sem enn er í foreldra-
húsum.
Manni sínum og börnum bjó
Sigurveig hið ágætasta heimili.
Þau hjón voru svo samhent og
samhuga, þó ólík væru að skap-
gerð og yfirbragði, að því var
líkara að einn maður færi, þar
sem þau voru. Ástríki var alla tíð
mikið með þeim hjónum, og var
það orðtak meðal kunnugra, að
þau lifðu stöðugu tilhugalífi,
enda var hjónabandið með ein-
dæmum farsælt.
Börnum sínum var Sigurveig
umhyggjusöm móðir, og eftir að
barnabörnin komu til sögunnar,
sem nú eru or’ðin 17 talsins og
sum uppkomin og búin að stofna
heimili, umvafði hún þau sömu
elskuseminni og móðurhlýjunni
og stráði óspart gjöfum á veg
þeirra, bæði í eiginlegri og óeig-
Framhald á bls. 20
t
Innilegar þakkir færum við
öllum sem sýndu okkur sam-
úð og vináttu vi'ð andlát og
jarðarför sonar míns, unn-
usta og bróður okkar
Eggerts Kristjánssonar
Höfðaborg 3.
Kristján Eggertsson
Guðríður Sigfriedsdóttir
Guðbjörg Sigurðardóttir
Asgeir Sigurðsson
Hafsteinn Haraldsson
Unnur Haraldsdóttir
Katrín Kristjánsdóttir
Þorvaldur Kristjánsson
Kristján Kristjánsson
Sigrún Kristjánsdóttir
Halldóra Kristjánsdóttir
Rósa Kristjánsdóttir.