Morgunblaðið - 18.03.1969, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 19«9
- BÆNDUR
Framhald af bls. 8
En það er ýmislegt, sem bænd
iir hafa fjárfest, sem stofnlána-
deildin hefur ekki lánað út á.
Hún lánar ekki út fé til bifreiða-
kaupa, kaupa á heimilistækjum
eða ððru 3líku. Og með tilliti til
þess, að stofnlánin eru ekki nema
hluti af framkvaemdakostnaðin-
um í ýmsum greinum og engin
stofnlán eru veitt til annarra fjár
festinga, verður skiljanlegt að
lausaskuldir hafi myndast. Ör-
uggt er þó, að lausaskuldir bænda
væru mun lægri nú, ef árferðið
hefði ekki versnað.
ÓHAGSTÆTT ÁRFERÐI
Þrjú síðustu árin hafa ekki
verið hagstæð fyrir landbúnað-
inn. Harðindi hafa verið óvenju
mikil, grasspretta og heyöflun
víða um land með minna móti.
Kostnaður við framleiðsluna hef
ur því aukizt vegna fóðurbætis-
og áburðakaupa. Frá árinu 1965
munu bændur hafa fengið ekki
lakari tekjur en aðrar stéttir,
þótt eftirvinna og atvinna yfir-
leitt væri óvenjumikil hjá laun-
þegum á þeim tíma.
Það var vegna batnandi af-
komu bænda á þessu tímabili að
þeir réðust í hinar umsvifamiklu
framkvæmdir, sem vissulega bér
að fagna og þjóðin öll mun njóta
góðs af í framtíðinni, en vegna
harðindanna og aukinnar greiðslu
byrði bænda, ákvað ríkisstjórnin
á sl sumri að láta fram fara ítar
lega könnun á efnahagslegri af-
Lomu bænda. Var harðærisnefnd
falið að safna gögnum og vinna
að fullnaðarathugun ^ á þessu.
Réði nefndin til sín Árna Jóns-
son fyrrverandi bússtjóra, sem
hefur síðan unnið mest að þess-
ari gagnasöfnun. Athuguninni er
nú lokið og hefur nefndin sent
greinargerð til ríkisstjórnarinnar.
Er hún mjög fróðleg og gefur
heildarmynd af efnahag bænda,
tekjum þeirra og afkomumögu-
leikum.
MISJAFN EFNAHAGUR
Það kemur í ijós, sem reyndar
var vitað áður, að efnahagur
bænda er mjög misjafn og einnig
tekjur þeirra. Greinargerðin sýn
ir, að mikill meiri hluti bænda
er tiltölulega vel settur efnahags-
lega, þótt nokkur hluti þeirra búi
við lítil efni og greiðsluerfiðleika.
Upplýsingar um efnahag og
tekjur eru teknar úr skattaskýrsl
um hvers bónda fyrir árið 1967
og einnig fórðagæzluskýrslum.
Nefndin ákvað að fella burtu frá
frekari athugun þá, sem höfðu
minna bú en 80 ærgildi og þá
einnig, sem höfðu meiri tekjur af
öðru en landbúnaði. Alls var
unnið úr framtölum 6129 fram-
teljenda, en af þeim voru af fram
angreindum ástæðum 1360 tald-
ir úr. Athugunin náði því til
4769 bænda. Ljóst er, að greiðslu-
geta bænda fer ekki síður eftir
möguleikum þeirra til tekjuöfl-
unar heldur en eftir eignum mið-
að við skuldir. Nefndin ákvað
því, að flokka bændur í hverri
sýslu eftir því hvað þeir skuld-
uðu miðað við nettótekjur ann-
ars vegar og brúttótekjur hins
vegar. Var bændum skipt í tvo
megin hópa, annars vegar þá,
sem skulda minna en tvöfaldar
nettótekjur.
2747 bændur, eða 57,6% af
þeim, sem athugunin nær til,
skulda minna en sem svarar tvö
földum nettótekjum þeirra. Álíta
verður, að þessir bændur séu all
ir efnalega vel settir og eru ekki
í neinum greiðsluerfiðleikum.
2022 bændur, eða 42,4% skulda
meir en tvöfaldar nettótekjur.
Þessum hópi hefur verið skipt
niður í 5 flokka eftir því hve
skuldirnar voru miklar. 609
bændur, eða 12,8% af öllum bænd
um sem úrtakið tók til skulda
meira en tvöfaldar tekjur, en
minna en þrefaldar nettótekjur.
Talið er, að þessir bændur séu
einnig sæmilega settir efnalega
og séu ekki í greiðsluerfiðleik-
um. 369 bændur, eða 7,7% skulda
meira en þrefalda, en minna en
fjórfalda upphæð nettótekna. Tal
ið er, að aðstaða þessara bænda
sé ekki slæm, enda þótt vaxta-
byrðin sé nokkuð þung vegna
skuldanna. 423, eða 8,8% skulda
meira en fjórfaldar, en minna
en fimmfaldar nettótekjur. Fyr-
ir þessa bændur kemur það sér
áreiðanlega vel að breyta lausa-
skuldum í föst lán, til þess áð
létta þannig árlega greiðslubyrði
vegna skuldanna. Aðstaða þeirra
ætti að vera sæmileg, eftir að
skuldum hefur verið breytt. 209
bændur, eða 4,7% skulda meira
en sexfaldar en minna en sjö-
faldar nettótekjur. Enginn vafi
er á því, að vaxtabyrðin hjá þess-
um bændum er þung og greiðslu
erfiðleikar miklir. 412 bændur,
eða 8,6% skulda meira en sjö-
faldar nettótekjur. Álitið er, að
þeir, sem skulda meira en sex-
faldar nettótekjur eigi yfirleitt
í greiðsluerfiðleikum.
HEILDARSKULDIR 1250
MILLJ. KR.
Heildarskuldir allra bænda á
landinu, sem athugunin nær til,
eru 1250 millj. kr. Meðalskuld
á bónda er 262 þús. kr. Þeir sem
skulda minna en tvöfaldar nettó
tekjur skulda aðeins 109 þús. kr.
að meðaltali.
Heildarlausaskuldir þ e i r r a
bænda sem athugunin nær til
eru 491 millj. 416 þús. kr. Heild-
arlausaskuldir þeirra bænda sem
s'kulda meira en sexfaldar nettó-
tekjur eru 176 millj. 786 þús. kr.,
eða 36% af öllum lausaskuldum
bænda. Meðallausaskuldir allra
bænda eru 103 þús. kr., en
þeirra, sem skulda minna en tvö-
faldar nettótekjur, aðeins 36 þús.
kr. Hins vegar nana þær 194
þús. kr. að meðaltali hjá öllum
þeim, sem s'kulda meira en tvö-
faldar nettótekjur og fara stig-
hækkandi í flokkum í 303 þús.
kr. í heild eru lausaskuldir
33,9% allra gkulda þeirra bænda
sem athugunin nær til.
SVIPABAR BRÚTTÓTEKJUR
Meðalnettótekjur bænda eru
123 þús. kr. Munur eftir sýslum
er mjög mikill. í þeirri sýslu,
sem nettótekjur eru hæstar, eru
177 þús. kr. á bónda, en lægstar
80 þús. kr. Vegið meðaltal brúttó
tekna. allra bænda er 400 þús. kr.
og eru furðulega jafnar yfir land
ið, frá 300 þús. til 500 þús. kr.
mest. Rúmlega 1000 bændur
skulda meira en sem nemur
brúttótekjum sínum, og hafa
þeir, að sjálfsögðu, allmikla
vaxtabyrði og eiga í greiðsluerf-
iðleikum. Þetta fer þó eftir að-
stæðum og tilkostnaði fram-
leiðslunnar, hverju sinni. Þessi
fjöldi bænda er 22,3% af þeim
fjölda, sem athugunin nær til.
77,7% af bændum eru hins vegar
vel settir, þar sem skuldir þeirra
eru ekki það miklar, að greiðslu-
byrði þeirra vegna sé óeðlilega
þung. 3,4% af bændum skulda
meira en tvöfaldar brúttótekjur,
eða 160 bændur sem eru bú-
settir í öllum sýslum landsins.
Hreppamir á öllu landinu eru
nokkuð á þriðja hundrað, en
talsvert vantar á, að til jafnaðar
sé einn bóndi í hverjum hrepp,
sem býr við svo slæma aðstöðu.
Samkvæmt áliti nefndarinnar er
talið, að þes«ir bændur hafi von-
litla aðstöðu til búrekstrar nema
sérstök aðstoð komi til.
FASTEIGNIR BÆNDA
í gkattaframtölum í árslok
1967 eru fasteignir bænda metn-
ar á gamla fasteignamatinu,
margfaldað með 4. Þetta er ó-
raunhæft mat, og fékk nefndin
því upplýsingar hjá yfirfast-
eignamatsnefnd um samræmdar
tölur undirfasteignamatsnefnda,
en yfirfasteignamatið hefur efcki
enn ákveðið endanlegt mat á
fasteignum eftir aðstöðu. Þar
sem verðgiildi fasteigna er mjög
háð hvernig þær eru í sveit sett-
ar, áleit nefndin hinar sam-
ræmdu grundvallartöliu- héraðs-
fasteignamatsnefnda of fáar í
einstökum héruðum og sýslum.
Lækkaði nefndin því matið frá
grundvallartölum héraðsnefnd-
anna í ýmsum sýslum. Nefndin
talur, að þetta mat sé í sjálfu
sér ekki mjög nákvæmt, en tel-
ur, að eðlilegt sé að miða við
það, þar sem e'kki &’é við annað
að styðjast og úr þeim gögnum
unnið eftir beztu sannfæringu.
Meðalfasteignir bónda yfir
landið er 687 þús. kr. Er það
misjafnt eftir sýslum. Hæsta
meðalfasteign bónda í sýslu er
998 þús. kr., en lægst 417 þús.
kr. Meðalbrúttóeign bænda, sem
athugunin nær til, er 1 millj. 48
þús. kr. Mesta brúttóeign á
Ibónda í sýslu er 1431 þús. kr.,
en minnsta meðalbrúttóeign á
Ibónda 714 þús. kr. í sýslu. Með-
alskuldalaus eign á bónda í land-
inu er 778 þús. kr. Mesta skuld-
•laus eign á bónda í sýslu er
11062 þús. kr., en minnsta meðal-
eign 510 þús. kr.
AÐEINS 34% HAFA SLÆMA
AÐSTÖÐU
Tölur þær, sem hér hafa verið
nefndar, gefa allgott yfirlit yfir
efnahag bænda og aðstöðu þeirra
yfirleitt. Athyglisvert er, að
77,7% af bændum eru tiltölulega
•vel s'ettir efnalega og eru vænt-
anlega ekki x greiðsrluerfiðlikum,
'12,8% af bændum virðast eftir
■gögnum, s’em fyrir liggja vera
allvel settir, þótt að sjálfsögðu
komi sér allvel fyrir þá að geta
breytt lausaskuldum í föst lán.
6,1% virðist vera. samkvæmt
skýrslunni, með þunga v.axta-
byrði og að sjálfsögðu eiga í
nokkrum greiðs’Iuerfiðleikum. —
'Það vekur athygli, að ekki er
talið að nema 3,4% bænda hafi
vonlitla aðstöðu. Má vera, að
tbezta aðstoðin við þá verði í
'því fólgin að hjálpa þeim til
þess að hætta búskapnum og
koma sér í önnur störf. Verður
það vitanlega athugað nánar,
þegar til framkvæmda kemur
um breytingu á lausaskuldum í
'föst lán.
Athuganir þær, sem vitnað
hefur verið til sýna, að bændur
hafa efnast á siðustu árum og
skuldir þeirra eni miklu minni
en ástæða var ti'l að ætla, þegar
litið er til hinna gífurlegu fram-
kvæmda er þeir hafa ráðizt í.
Eigi að síður eru ýmsir bændur
þannig settir, að æs'kilegt er að
létta undir með þeim á þann
hátt að gefa þeim kost á að
hreyta lausaskuldum í föst lán.
VERULEGT HAGRÆÐI
Frumvarp það til laga, sem
‘hér er til umræðu, er í megin-
atriðum eins og lög um sama
efni, frá árinu 1962. Þá var 68
millj. kr. af lausaskuldum bænda
breytt í föst lán með því að veð-
deild Búnaðarbankans gaf út
sérstakan flokk bankavxtabréfa
'í þessu skyni. Samkvæmt ákvæð
Um þessa frumvarps, er gert ráð
'fyrir, að sami háttur verði á
'hafður, — að veðdeild Búnaðar-
'bankans fái heimild til að gefa
út nýjan flokk bankavaxtabréfa.
Bréf þessi skulu eingönigu notuð
'til þess að breyta í föst lán
lausaiskuldum bænda, sem ekki
‘hafa fengið nægileg lán til hæfi-
legs tíma, vegna fjárfestingar,
sem þeir hafa ráðis’t í á jörðum
sínum á árunum 1961—1968, að
báðum þeim árum meðtöldum.
Frumvarpið kveður einnig á
um, að lán skulu aðeins veitt
gegn veði i fasteignum bænda,
ásamt mannvirkjum sem á jörð-
inni eru. Lánstími skal vera allt
að 20 ár. Vaxtakjör skulu ákveð-
in af stjórn veðdeildarinnar að
höfðu samráði við ráðherra. Þá
ieru í frumvarpinu nánari ákvæði
um framkvæmd þessara lána og
nánar ®kýrt frá kvöðum sem
þeim eru fylgjandi.
Að lokum sagði landbúnaðar-
ráðherra: Það er öruggt að verði
þetta frumvarp að lögum og
.framkvæmd þeirra fari vel úr
hendi þá munu þau verða þeim
bændum, sem búa við miklar
lausaskuldir til mikillar hjálpar,
eins og lögin frá 1962 hafa óneit-
anlega orðið. Bændur munu nota
það tækifæri, sem nú er gefið og
sækja um það til réttra aðila að
lausaskuldum þeirra verði breytt
í föst lán. Sérs’ta.kt mat verður
að fara fram á fasteignum til
þess að fá raunhæft verðgildi
þeirra. Það er vitað. að verðmat
ífasteigna hefur breytzt vegna
■gengisbreytingarinnar og þau
irnöt, sem fram fóru fyrir 1—2
árum, eru í mörgum tilfellum
ekki raunhæf, auk þess, sem
millimöt vantar.
— Menntaskólinn
Framhald af bls. S
fyrir gömlu menntaskólunum,
hvað húsnæðismál snertir og því
væri brýn þörf á að hafa þetta
myndarlega skóla með sömu að-
stöðu og í öðrum menntaskólum,
því ella væri hætt við að nem-
endur fengjust ekki til að sækja
þá.
Magnxis K jartansson, sagðist vilja
bera fram fyrirspurn til mennta-
málaráðherra. í framsöguræðu
hans hefði komið fram, að ekki
væri ætlast til þess a‘ð frumvarp
þetta yrði afgreitt á þessu þingi.
Slíkt mætti telja heldur óvenju-
lega orðsendingu, því venjulega
væru mál sem rikisstjórnin legði
fyrir Alþingi keyrð í gegnum
það á skömmum tíma. Magnús
sagði að hér væri um mikilsvert
mál að ræða og væri ágreiningur
um það ekki djúpstæður. Hann
vildi því spyrja ráðherra hvort
hann teldi það ekki æskilegt að
fnimvarpið yrði afgreitt sem lög
á þessu þingi.
Gylfi Þ. Gíslason menntamála-
ráðherra sagði það misskilning
hjá þingmanninum að hann hefði
ekkí gert ráð fyrir að frumvarp
þetta yrðí ekki afgreitt á þessu
þingi eða ekki óskað eftir því.
Það hefði komið fram i ræðu
sinni að vegna þeirra breytinga
á fræðslukerfinu sem nú væri
verið að gera þyrfti að afgreiða
þetta frumvarp í síðasta lagi á
næsta þingi. Sét væri hins vegar
mikil þökk að þvi, ef svo ötullega
yrði unnið að þessu máli nú, að
unnt væri að afgreiða það sem
lög í vetur.
Ráðherra kvaðst vildi láta í
ljós þakkir fyrir þær vinsamlegu
viðtökur sem frumvarpið hefði
fengið. Þrátt fyrir gagnrýni virt-
ust þingmenn sammála um meg-
in efni frumvarpsins og fram
hefði komið viljayfirlýsing frá
öllum flokkum. Frumvarpið
hefði verið lagt fyrir Alþingi
óbreytt frá því sem menntaskóla
nefndin skilaði því, og hefði ríkis
stjórnin ekki séð ástæðu til að
gera á því neinar breytingar,
þar sem það væri samið af mæt-
um og kunnum skólamönnum.
Ráðherra sagðist játa það, að er
hann las 1. grein frumvarpsins,
hefði sér ekki komið til hugar að
um hana yrði ágreiningur, eða
hún breytti neinu um það sem
Alþingi hefði þegar ákveðið. En
vegna þess að fram hefði komið
gagnrýni hefði hann í fx-amsögu-
ræðu sinni gefið ótvíræ’ða yfirlýs
ingu um að svo yrði ekki, og
ítrekað hana við umræðu máls-
ins. Vitanlega væri hægt að
breyta 1. grein frumvarpsins
þannig að þingmenn sættu sig
við hana, og mundi hann ekki
standa í vegi fyrir því. Hvað
varðaði ágreining um erindi
Kvennaskólans í Reykjavík, væri
eðlilegast að Alþingi skæri xír
því, og persónulega kvaðst ráð-
herra því fylgjandi að umrædd-
ur skóli fengi að útskrifa stúd-
enta.
- LÁRA
Framhald af bls. 17
ungar og er mér vel kunnugt
um hvern harm þær bera nú í
brjósti, það veit ég bezt vegna
kynna okkar nöfnu hennar, Láru
Davíðsdóttur. Á yndislega heim
ilinu hennar á Grettisgötu 13
var öryggið og þangað þótti
bamabörnxmum gott að geta allt
af komið til ömmu og hún réði
fram úr ýmsum vanda og var
félagi þeirra og skildi betur
æskuna en margir á hennar
aldri.
Ég votta börnum, barnabörn-
um og aðstandendum mina
dýpstu hluttekningu.
Þó að söknuðurinn sé oft sár,
þá er mikils virði a‘ð eiga góðs
að minnast.
Blessuð sé minning þín, elsku-
lega Lára.
Árdís Pálsdóttir.
- SIGURVEIG
Framhald af bls. 18
inlegri merkingu. Amma á Berg-
staðastrætinu gegndi sannarlega
stóru hlutverki í lífi barna-
barnanna, engu síður en barn-
anna — og er þar nú skarð fyrir
skildL
Sigurveig heitin var ekki kona
mikilla umsvifa í þjóðfélaginu,
og hávaðamanneskja var hún
engin. Hún vann störfin á sínu
stóra heimili i kyrrþey og um-
brotalaust, en af alúð og verk-
hyggni, og líf sitt og krafta helg-
aði hún manni sínum og ört
vaxandi fjölskyldu. Hún var
jafnlynd og glaðvær að eðlisfari,
og allt hennar dagfar einkennd-
ist af kyrrlátri elskusemi og eðl-
islægri prú'ðmennsku. Hún
leyndi á sér, þessi kona, sem
hvorki flíkaði góðverkum sínum
né bar kosti sína á torg. Þegar
ég minnist Veigu kemur mér í
setningin „hógvær og af hjarta
lítillátur", — það voru ekki orð,
sem hún bar sér í munn, heldur
lifði. Frá samvistunum við hana
er einungis góðs að minnast.
Tengdasonur.
HÆTTA A NÆSTA LEITI eftir John Saunders og Alden McWilliams
DON'T VOU UNDERSTANO'
yOU FOOLS ?...THERE 13
NO AXTEL.ATHOS " HE IS
IN HIS e«Avtl.1 -
Danny, bjáninn þinn, ætlarðu að láta
skjóta okkur? Ég hefði lagt lif mitt að veði
fyrir því að Athos gamli væri í þessari
káetu Troy. 2. mynd) Það veðmál hefði
haft slæmar afleiðingar, Raven, eins og
þér getiff séð. Svona, verið nú almenni-
legur, hvar er faðir yðar? 3. mynd) Skiljið
þið það ekki fíflin ykkar. Það er enginn
Axtel Athos til. Hann liggur í gröf sinni.