Morgunblaðið - 18.03.1969, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1969
L
Ég heiti Melissa Grindley. Ég
er tuttugu og þriggja ára og elzt
systkina minna. Næstur er Nicho
las — alltaf kallaður Nick —
tuttugu og tveggja þá Kay, átján
ára og Lucy sautján, en Mark,
sextán ára skólastrákur rek-
ur svo lestina.
Foreldrar okkar fórust í bíl-
slysi fyrir þremur árum. Það var
Ihræðilegt áfall, en einhvernveg
inn komumst við þó yfir það. Ég
held meira að segja, að það hafi
sameinað okkur enn betur.
Ég hef reynt að taka að mér
móðurhlutverkið gagnvart syst-
kinum mínum. Það er ég, sem
stjórna heimilinu. Það er ágætt
heimili, sem okkur þykir öllum
vænt um, enda þótt það sé ekki
neitt glæsilegt. Sanmast að segja,
er það hálf-draslaralegt. Þetta
er gamalt sveitahús, með hvítum
og svörtum bitum, skotgluggum
og stein'lögðu eldhúsgólfi.
Faðir minn var bóndi og það
var líka faðir hans á undan hon-
NATHAN & OLSEN HF.
&
^JVfelrose's te^
r Eftirlæti
A alirar fjölskyldunnar
bocoa Pnffq
meó súkkulaðibragði I U11U
Melfose’s te^
^gleðuryður
kvöldá og morgna^
Hvað er betra á morgnana eða á
mæðusömum vinnudegi? Lífgar hugann
og léttir skapið. Og hvað er betra á kvöldin?
Örvar samræður og rænir engan svefni.
Notalegur og hagkvæmur heimilisdrykkur.
um. Ég veit, að pabbi var að
vona, að Nick mundi taka við
af sér, en Nick var því algjörlega
andvígur. Hann 'hefur aldrei haft
neinn teljandi áhuga á búskap.
Hann er einskonar umboðsmað-
ur hjá John Frinton, sem er rík-
ur piparsveinn og á stóran bú-
garð í útjaðrinum á Breiðueik,
en svo heitir þorpið okkar.
Þegar pabbi dó, var ég í vafa,
hvað gera skyldi. Ég vildi ekki
selja jörðina. Ég ræddi málið
við Bob Johnston, verkstjóra
pabba, og við urðum ásátt um
að reka búið í félagi.
Ég hef oft verið að velta því
fyrir mér, hvernig farið hefði
fyrir mér, ef Bob hefði ekki ver-
ið. Hann hafði verið hjá föður
mínum í eitt ár, fyrir hið sorg-
lega fráfall foreldra minna.
Hann hafði komið eftir auglýs-
ingu, sem pabbi hafði sett í sveit
arblaðið, og þeim hafði sam-
stundis litizt vel hvorum á ann-
an og pabbi ráðið hann. Bob
leigði sér herbergi í þorpinu, en
vann á búinu allan daginn. Pabbi
sagði oft, að Bob væri meiri bú-
maður en hann sjálfur.
Hann varð bráðlega mikill vin
ur okkar allra. En þótt einkenni
legt væri, var hann nokkur eitt-
hvað framandi, þrátt fyrir dag-
lega umgengnd. Kay hafði ein-
hverntíma sagt: „Ég hefði ekki
getað trúað því að hægt væri að
þekkja nokkurn mann svona vel
og samt vita jafnlítið um hann.“
Og hún hafði líka sagt: „Hvers
vegna reynirðu ekkiað fræðast
eitthvað nánar um hann, Mel
7
issa? Þú ert hvort sem er uppá-
haldið han.s Ég held bara,
að það gæti verið ágætt ef þið
Bob giftuð ykkur. Ég er viss um
að hann er alveg vitlaus í þér,
og hver sem hefur augu í höfð-
inu, getur séð, að þú ert alveg
vitlaus í honum.“
Nei, það vonaði ég að eng-
inn sæi. Sízt af öllum Bob sjálf-
ur. Þó að það væri ekki nema
satt, að ég var ástfangin af Bob,
þá vildi ég ekki að hann vissi
það. Af þeirri einföldu ástæðu,
að ég þóttist vita, að hann væri
ekkert ástfanginn af mér.
Auk þess þótti mér Kay vera
óþarflega berorð. En Kay glopr
aði nú alltaf út úr sér sam-
stundis, hverju, sem henni datt
í hug. Og Kay var það systkina
minna, sem ég hafði mestar á-
hyggjur af. Hún var með eld-
rautt hár og stór brún augu og
hættulega mikinn kynþokka.
Hún var þegar búin að eiga
heila lest af aðdáendum, sem
sumir hverjir voru ekki sem
heppilegastir. En mér til nokkurs
léttis var Don Lipscomb sá nú-
verandi. Hann las lögfræði í
Cambridge. Foreldrar hans
höfðu setzt að í Höfuðbólinu
svokallaða, sem var eitt stærsta
húsið í sveitinni, og flutt þang-
að ásamt Emmu, dóttur sinni fyr
ir svo sem einu ári.
Þennan dag átti að halda árs-
hátíðina — til ágóða fyrir Rauða
krossinn — í garðinum hjá þeim,
og við ætluðum þangað öll.
Meðan ég var að hafa morgun
verðinn til, leit ég út um eld-
húsgluggann og sá, mér til gleði,
að veðrið ætlaði að verða ágætt.
Það sást ekki ský á himninum.
Döggin glitraði á grasblettinum
og b'lómin höfðu aldrei verið fal-
legri. Gamli garðurinn var
uppáhaldið mitt. Hann vör nú
ekki neitt sérlega snyrtilegur,
enda var ég alltaf svo önnum
kafin. Það var alltaf í svo
mörgu að snúast. Því það að elda
ofan í fimm manns, halda hús-
inu þokkalegu, með sáralítilli að
stoð úr þorpinu og vinna auk
þess við búskapinn, eftir því sem
tími vannst til, er alveg nóg
lagt á eina manneskju.
En ég kunni því nú samt vel.
Ég héld, að ég hafi verið fædd
sveitakona. Ef bara hann Bob
lúldi nú verða ástfanginn af mér
og vilja eiga mig, held ég, að
ég yrði bara fyirrmyndar bónda
kona!
— Ég slekk ljósið svo þú getir sjálf séð að stafirnir eru sjálf-
lýsandi.
Við Kay vorum gjörólíkar.
Kay fannst svo leiðinlegt í sveit
inni. Hún vildi eiga heima í borg
— helzt London. En Breiðaeik,
þorpið okkar var í sjö mílna
fjarlægð frá Rye sem hefði
naumast getað talizt nein stór-
borg.
Kay vann i bókabúðinni hjá
Stourton í Rye. Hún fór þang-
að daglega með almenningsvagn
inum frá götuhorninu okkar og
þaut venjulega á morgnana, svo
að kembdi aftur af henni, því að
alltaf var hún á síðasta augna-
bliki.
Mark gekk þar í skóla, en
hann vi'ldi heldur hjóla.
Lucy gat ekkert farið. Fimm
ára gömul hafði hún fengið löm-
unarveikina. Þá vorum við
hrædd um að við ætluðum að
missa hana. Enda þótt ég væri
ung þá, mundi ég eftir þessu
eins og það hefði gerzt í gær.
Ég man eftir eymdarsvipnum á
foreldrum okkar, þegar hún var
flutt heim úr sjúkrahúsinu í stál-
lunga. Það eina okkar, sem bar
sig vel, var Lucy sjálf.
En svo gerðist kraftaverkið:
henni fór að batna. En annar
fóturinn var máttlaus og hún
varð að nota staf, til þess að geta
haltrað áfram, og almennt var
talið, að þar við mundi sitja.
Við tilbáðum öll Lucy og vild-
um allt fyrir hana gera. Jafnvel
Kay, en enda þótt mér þætti
vænt um hana, varð ég að játa
með sjálfri mér, að hún væri
bæði ónærgætin og eigingjörn,
en jafnvel hún sýndi aldrei neitt
slíkt af sér, ef Lucy var ann-
arsvegar.
Ég kallaði nú á Kay og Nick,
að morgunverðurinn væri tilbú-
inn, en Mark var þegar tekinn
að háma sinn mat í sig. Hann
var lítill eftir aldri og næstum
horaður. Ég hafði oft áhyggjur
af honum og óskaði þess heit-
ast, að hann vildi braggast svo-
lítið. En þá minnti ég sjálfa mig
á það, að hann var svoddan
fjörkálfur, svo að það væri ekki
nema eðlilegt, að hann liti svona
út, og auk þess gat ekki neitt
gengið að dreng, sem hafði aðra
eins matarlyst.
Kay kom þjótandi inn í eld-
hús og sagði, eins og hún var
vön, að hún væri að verða of
sein. Við borðuðum alltaf í eld-
húsinu, nema þegar gestir voru
— það var svo mil^lu hægara.
— Guð minn góður, er orðið
svona framorðið? sagði hún og
leit á gömlu klukkuna á veggn-
um.
— Hún er víst fimm mínútum
offljót, sagði ég.
Kay leit, án allrar hrifningar
á diskinn sinn með fleskinu og
Hrúturinn, 21. marz — 19. apríl
Treystu dómgreind þinni í dag, þótt skapið sé brátt.
Nautið, 20. apríl — 20. maí
Vertu leiðitamur, þá gengur starfið betur. Láttu fjármuni þína vera
í geymslu og eyddu ekki á aðra en sjálfan þig.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní
Þér gengur vel í dag, og þér er óhætt að halda upp á það.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí
Þetta ætti að vera tími breytinga í lífi þínu, hvort sem það á við
flutninga eða eitthvað annað.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst
Farðu yfir alla reikninga, tryggingar og þ.h. Óvarleg athöfn getur
skaðað tilfinningamálin.
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Hætt er við smá þrasi vegna peninga, en treystu á sjálfan þig. Þú
getur útskýrt útgjöldin seinan.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Enn er ekki tímabært að deila um vinnuskilyrðin. Hinir hafa enn
ekki fengið tíma til að skynja aðstæður til fulls.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Aðaláhugamál þín verða arðsamari næsta hálfa mánuðinn. Byrjaðu
að kynna þér möguleika til aukatekna.
Bogamaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
Einkamál þin og afkomumöguleikar glæðast. Metnaður þinn eykst.
Notfærðu þér þessa framvindu málanna og gæftir.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Talaðu út um aðstöðu þína og takmark. Líkindi til að hlustað verði
á þig eru meiri. Legðu áherzlu á allan frágang samninga eins fljótt
og ráðlegt er.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Endurskoðaðu aðstöðu þína til að sjá, hvað mætti betur fara. Ár-
angurinn verður áreiðanlega þess virði.
Fiskamir, 19. febr. — 20. marz
Þú átt annríkt allan mánuðinn framundan. Reyndu að finna þér
eitthvert skjól. Gerðu ráð fyrir að ættingjar og samstarfsmenn skapl
einhverja ringulreið.