Morgunblaðið - 18.03.1969, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1960
ísland þarf aö vinna Austur-
ríki til að ná lokakeppninni
Lendir siðan, ef Jboð tekst i all sterkum
riðli meðal annars gegn Dönum
ÍSLAND á að leika gegn Aust-
urríki í undankeppni Heims-
meistarakeppninnar í handknatt-
leik karla. Ber löndunum að
leika hér á íslandi 15. eða 16.
nóvember og í Austurríki 29. eða
30. nóvember. Fyrirkomulag
HM-keppninnar í vetur var end-
anlega ákveðið á fundi í Basel á
laugardaginn.
Þar var ákveðið að 5 þjóðir
kæmust í lokakeppnina án und-
ankeppni: 4 efstu lönd frá síð-
ustu keppni; þ.e. Tékkar, Danir,
Rúmenar svo og gestgjafarnir
Frakkar og Japan sem er einasta
þátttökuland í Asíu og þar sem
of dýrt væri að efna til undan-
keppni vegna langra ferðalaga.
Tuttuðu og tveimur þjóðum
var skipt í 11 riðla og komast
sigurvegararnir í lokakeppnina
(þ.e. 11 lið áiamt hinum 5 sem
áður voru talin). Riðlarnir eru:
Júgóslavía — Spánn
Sovétríkin — Finnland
Svíþjóð — Portúgal
Noregur — Belgía
V-Þýzkaland — Holland
ísland — Austurríki
A-Þýzkaland — ísrael
Pólland — Marokkó
Ungverjaland — Búlgaría
Sviss — Luxemborg
Bandaríkin — Kanada
Þá var og rætt um tillhögun
lokakeppni landanna 10 sem til
lokakeppninnar koma í Frakk-
landi og hafði HSÍ aðeins laus-
legar fréttir af henni í gær.
Þær fréttir sem HSÍ náði í eru
frá Danmörku, og þar segir að
Danir séu í D-riðli i fyrstu um-
ferð lokakeppninnar ásamt sig-
urvegurum í eftirtöldum leikj-
um: Ungverjaland/Búlgaría; ís-
land/Austurríki og Pólland/
Marokkó.
í A-riðli verða sigurvegarar í
þessum leikjum: Sovét/Finn-
Haukar reyndust
ofjarlar ÍR-inga
Unnu auðveldiega 26:20
HAUKAR og ÍR mættust í 1.
deildarkeppninni á sunnudag og
var búizt við miklum baráttu-
leik, því Haukar höfðu viku áður
sýnt heldur slakan leik og lR-
ingar þurfa nauðsynlega á fleiri
stigum að halda til að halda rétti
sínum í 1. deild.
En Haukarnir tóku snemma
allt frumkvæði í leiknum og
voru aldrei í erfiðleikum með
ÍR-inga. Hin snöggu skot Þórðar
Sigurðssonar og Stefáns Jónsson
ar réði ÍR-vörnin sjaldan við, þó
að hún á öðrum tímum hefði ver
ið öllu betri en oft áður og við
markverðina verður ekki sakazt
því þeir áttu báðir góða leik-
kafla og björguðu oft frá enn
stærri ósigri.
í heild var leikurinn heldur
daufur, en Haukarnir áttu þó
flest það góða sem sást og hafa
verulega hrist af sér slenið, þótt
nú sé möguleikinn til sigurs næst
um horfinn. En það eru þó Hauk
ar einir sem möguleika hafa til
að ná FH — með þremur sigr-
um (gegn FH, KR og Fram) og
að PH tapi öllum sínum leikjum
sem eftir eru (gegn Haukum,
Fram og ÍR).
Beztir voru Þórður og Stefán,
en Ómar markvörður sýndi og
góð tilþrif og sömuleiðis Þórar-
inn Ragnarsson.
Haukar
AÐALFUNDUR handknattleiks-
deildar Hauka verður haldin í
Félagsheimilin á Hvaleyrarholti
næstkomandi laugardag 22. marz
og hefst kl. 2 e.'h.
ÍR-liðið átti daufan dag og eft-
ir að Haukar náðu 3ja marka
forskoti á fyrstu 10 mín og 14:9
í hálfleik, höfðu þeir verulega
brotið ÍRliðið. Lokatölurnar
urðu 26:20.
Mörk Hauka skoruðu: Stefán
10, Þórður 6 (1 víti), Þórarinn 5
(1 víti) og 5 aðrir eitt hver.
Mörk ÍR: Vilhjálmur 10 (4
víti), Ágúst og Gunnar 3 hvor,
Brynjólfur 2 og 2 aðrir eitt hver.
Dómarar voru Magnús Péturs-
son og Reynir Ólafsson og
dæmdu veL
land; Sví'þjóð/Portúgal Noregur/
Belgía og A-<Þýzkaland/ísrael.
Um B og C-riðill lokakeppn-
innar var ekki vitað, en þar
munu Tékkar og Rúmenar vera
sitt í hvorum riðli samkvæmt
þeirri ákvörðun að fyrstu þrjár
þjóðir frá síðustu HM komizt
beint í lokakeppnina.
Um Austurríki er lítið vitað
hér hvað handknattleik snertir.
Þar eru 4—500 handknattleiks-
lið og alls um 10 þús. iðkendur
í karlaflokkum. Ekki er vitað um
neina landsleiki þeirra í vetur,
en í fyrra timabili töpuðu þeir
fyrir Ungverdjum í Búdapest
21:24, unnu Hollendinga í Aust-
urríki 21:15 og töpuðu með 3
marka mun fyrir Frökkum í
París. Aðalgeta Austurríkis hef-
ur lengi legið í útihandknattleik
og hann er öllu vinsælli en inni-
leikurinn.
Hér hefur Geir stokkið upp — en það er barizt af hörku á lín-
unni.
KR hafði forystu yfir FH
þar til 3 mínútur voru eftir
En lokamínúturnar fœrðu FH 2 marka
sigur í hörðumbaráttuleik
KR-ingar voru sannarlega nærri
því að gera það, sem engu liði
hefur tekizt í 1. deild í vetur —
að sigra FH-inga í 1. deildar-
keppninni. Allan tímann voru
KRingar yfir ef undan eru skil-
in jafntefli á tveimur augna-
blikum (2:2 og 10:10) og síðan
síðustu 4 mín leiksins.
Það var fyrst og fremst þétt
vörn KRinga sem skapaði for-
skot þeirra og þá ekki sízt t.mil
Karlsson markvörður. KR-ingar
voru nokkuð harðir í vörninni
og fengu ótal áminningar — en
sluppu við brottrekstur nema
Karl í 2 mínútur.
Hilmar Björnsson og Karl Jó-
hannsmn stjórnuðu leik KR-inga
af mikilli festu og voru oft 3
mörk yfir, en í hálfleik var stað-
an 9:7 KR í vil.
Þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir tókst FH-ingum ekki
að jafna bilið fyrr en undir
lokin. Þá var allmikil harka
komin i leikinn og er Geir
náði í fyrsta sinn forskoti fyr-
ir FH 17:16 var hann rekinn
af velli litlu síðar fyrir ítrek-
uð brot.
En þetta nægði ekki KR-
ingum til að jafna metin og
ná sér í dýrmætt stig. Örn
Hallsteinsson bætti 18. mark-
inu við og sekúndum síðar
rekinn af velli. En þótt bræð-
urna báða vantaði í lið FH
síðustu mínútuna breyttist
staðan ekki og FH er enn
Valur vann landsliöiö 3-2
Barizt af hörku í góðum leik þrátt fyrir snjó
LANDSLIÐIÐ lék sinn 16. æf-
ingaleik samkvæmt vetraráætl-
un KSÍ og mætti nú Valsmönn-
um á Háskólavellinum. Vals-
menn fóru með sigur af hólmi,
skoruðu 3 mörk gegn 2.
Nú hrepptu liðin eitt versta
veður sem komið hefur í þess-
um æfingaleikjum frá desember
byrjun. Snjókoma var allan leik
inn og hún yar svo þétt að á
stundum sást vart á milli marka.
En það var engan bilbug að
finna á knattspyrnumönnunum.
Barizt var af hörku allan leik-
inn og sýndu ýmsir menn góðan
leik, t.d. Þórólfur Beck, sem kom
ínn sem varamaður, en átti nú
einn sínn bezta leik í æfinga-
leikjunum.
Tilgangurinn með vetrarknatt-
spyrnunni var af æfa landsliðs-
menn og knattspyrnumenn við
allar hugsanlegar aðstæður,
hversu erfiðar sem þær kunna
að verða. Þetta hefur verið gert
og tekizt vel og nú eru piltarnir
vel undir þa ðbúnir að mæta erf-
iðum aðstæðum. Það sýndi leik-
urinn á sunudaginn og einnig að
úthald piitanna er að verða mjög
gott — og á þó væntanlega eftir
að aukait enn.
Landsliðið var komið yfir 2:1
í síðari hálfleik er tveir leik-
menn, Guðni Kjartansson og
Birgir í Val, rákust saman. Hlaut
Guðni smáskurð á enni og Birg-
h á augabrún og voru sett tvö
saumspor í hvorn þeirra á Slyia-
varðstofunni. Guðni hlaut auk
þess bióðnasir, svo slysið leit illa
út er það varð.
En í heild var leikurinn góður
og fullur baráttu og er ánægju-
legt til þess að vita, því KSÍ er
að ná tilganginum með vetrar-
æfingunum.
Mörg verkefni eru framundan
í knattipyrnunni í sumar og
kunna enn að aukast — svo ekki
má slaka á æfingunum þó illa
viðri og knattspyrnumenn hafi
verið óheppnir með veður bæði
á sunnudag og stundum áður.
Eyleifur skoraði fyrsta mark-
ið fyrir landsliðið, en síðan jafn-
aði Ingvar Elís^on fyrir Val. Her
mann Gunnarsson skoraði síðan
síðara mark landsliðsins, en Vals
menn jafna með marki úr þvögu
og sigurmarkið kom eftir skot í
þverslá og knötturinn hrökk af
baki markvarðar í netið.
— A. St.
ósigrað og KR enn á botni
deildarinnar þrátt fyrir hetju
lega framgöngu í þessum leik.
Leikur þesii undi; strikaði að
það eru aðeins nokkrir menn
sem ha'ida FH-liðinu uppi og sé
þeirra vel gætt minnkar geta
liðsins í heild mjög. Að vísu
voru reyndir nú nokkrir ungir
menn, en stutt í einu og eiga
enn langt í land með að ná hin-
um gömlu.
KR-ingar áttu í þessum leik
einn sinn bezta í vetur. Mcmun-
urinn á liðunum var engan veg-
inn sá sem réttlætir það, að ann-
að liðið hafi 2 stig í mótinu en
hitt 14. KR hefur eins og reynd-
ar ÍR-liðið, hlotið minni upp-
skeru í stigum en getan í ýms-
um leikköflum sýnir.
Liðin
Beztu menn KR voru Hilm-
ar Karl og Emil í markinu, en
flestir stuðluðu vel að þe^sum
óvænta árangri og sigurinn unnu
F'H-ingar meir fyrir heppni en
yfirburði í leiknum. Þetta var
einn af skemmtilegri baráttu-
leikjum í mótinu.
Hjá FH bar að venju mest á
bræðrunum, en aðal aðstoðar-
menn þeirra eru svo Auðunn og
Birgir. Kringum þessa snýst allt
of mikið af spilinu til tjóns fyrir
liðið í heild, þ.e.a.s. meðan hinir
ekki nálgast getu þessara fjög-
urra meir en nú er.
Hjalti átti góða leikkafla, en
hefur oft tekizt betur í heild.
Dómarar voru Hannes Sigurðs
son og Gylfi Hjálmarsson. Áttu
þeir er á leið erfiðan dag, en
verða ekki að mínum dómi sak-
aðir um hlutdrægni.
Mörk KR skoruðu: Hilmar 6,
Karl og Geir Friðsteinsson 3
hvor, Árni Indriðason 2 og Sig.
Oskarsson 1.
Mörk FH: Geir 7, Örn 6 (2
víti) og 5 aðrir eitt mark hver.
— A. St.