Morgunblaðið - 18.03.1969, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. MARZ 1989
27
Betri færð um landið
SAMKVÆMT upplýsing'um Vega
gerðarinnar var helclur að greið-
ast úr umferðarörðugleikunum
undanfarna daga. Góð faerð var
•aust'ur um Hellisheiði í gær og
yfirleitt um Suðurlandsundir-
lendið. Greiðfaert var um Hval-
fjörð í gær og flesta vegi í Borg-
arfirði, nema nokkra útvegi sem
voru lokaðir. Þar á meðal má
mefna Dragaveg á Hesthálsi og
(Lundarreykjadalsveg.
í gær var kominn talsverður
snjór á Snæfellsnes og færð far-
in að þyngjast þar þess vegna.
í dag er áætlað að ryðja vegi
á Snæfellsnesi. Ólafsvíkurenni
er aðeins fært jeppum ennþá. Þá
•er fært norður til Akureyrar og
Húsavíkur, en færð var farin að
þyngjast á Holtavörðu- og Öxna-
dalsheiði, en áætlað er að ryðja
vegi norður í dag.
Þá er fært til Hólmavíkur um
Strandir, en þar urðu skemmdir
sunnantil vegna vatnavaxta.
Á Vestfjörðum er fært nú frá
Patreksfirði og Bildudal og gert
er ráð fyrir að opna yfir Kleifa-
heiði á milli Patreksfjarðar og
Barðastrandar í dag. í gær var
unnið að því ð opna veginn til
BolungarVíkur en aðeins stórum
bílum var fært að aka til Flat-
eyrar og Þingeyrar.
Allsæmileg færð er um Fljóts-
dalshérað og á milli Egilsstaða
og Reyðarfjarðar og Eskifjarðar.
Þá er Suðurfjarðarvegur fær allt
til Hornafjarðar og Öræfa.
Skógarstrandavegur á milli
Stykkishólms og Dala er lokaður
vegna s’kriðufalla í Narfeyrarhlíð
og sömuleiðis er vegurinn í sund
ur við Keisbakka.
F1
Bezta auglýsingablaðið
Hafsteinn Björnsson, miðill
Hnisteinn miðill heldur fyrir-
lestur hjú Stúdentoiélugi H.Í.
STÚDENTAFÉLAG Háskóla
íslands hefur fengið Hafstein
Björnsson miðil til þess að
flytja erindi fyrir Stúdentafé-
lagið um sálarrannsóknir og
hefur Hafsteinn þekkzt boðið.
Mun hann væntanlega flytja
erindi sitt eftir páska og verð-
ur skyggnilýsing á eftir er-
- BRETAR
Framhald af bls. 2S
að halda tafarlaust á brott. Segir
Whitlock að eyjan sé algerlega á
valdi vopnaðra glæpamanna.
Brezka stjórnin hefur sent um
200 manna fallhlífali’ð til eyjunn-
ar Antigua, sem er um 110 km
frá Anguilla, og auk þess er 40
manna hópur frá Scotland Yard
á leið þangað. Þrjár brezkar frei
gátur eru á þessum slóðum, og
auk þessa hafa Bretar um 250
manna herlið í Brezka Honduras.
Er talið líklegt að Bretar geri
innrás á eyjuna á næstunni, ef
ekki takazt samningar fljótlega.
— í hungurverkfalli
Framhald af bls. 28
Heimildir segja, að hungur-
verkfallið hafi hafizt, er
fanga, sem sagðist vera „póli-
tískur fangi“ í samtali við
fangavörð, var neitað um leyfi
til þess að hitta konu sína,
sem komin var í heimsókn.
Svipað verkfall átti sér stað
í þessum sömu þrælkunarbúð
um fyrir um ári, og var þá
rýmkað um heimsóknarreglur,
en fangamir telja að þeir
hafi aftur veri'ð sviptir því,
sem þá ávánnst. — Auk
Daniels er vitað að rithöfund-
urinn Alexander Ginsburg,
sem dæmdur var fyrir ári fyr-
ir „neðanjarðarbókmennta-
starfsemi", er meðal hungur-
verkfallsmanna.
Paul Mc Cartney kvæntur
indinu. Stúdentafélagið hefur
áætlað að fá hátíðarsal Há-
skóla íslands til fyrirlestra-
haldsins.
London, 12. rearz.
BÍTILLINN Paul McCartney,
sá allra vinsælasti, gekk i dag
að eiga bandaríska konu, frá-
skilda, Lindu Eastman, og
kynntust þau er hún tók af
honum myndir í Bandaríkjun
um.
Aðdáendur veinuðu af von-
brigðum fyrir utan vígslustað
inn, en þau voru gefin saman
í borgaralegt hjónaband.
Paul sló tvær flugur í einu
höggi og varð eiginmaðúr og
stjúpfaðir um leið. Hann er
26 ára ,en aldur hennar er
sagður frá 25 upp í 27 ár.
Heather dóttir hennar er sex
ára.
Róstursamt varð meðal að-
dáenda ,er hjónin gengu út
fyrir að vígslu lokinni og
kysstust á tröppum bygging-
arinnar.
Tryllingsöskur táninganna
kváðu við hvaðanæva að:
„Paul, við elskum þig“. Ung-
píurnar höfðu safnazt saman
snemma um morguninn fyr-
ir utan og biðu þolinmóðar eft
ir að allt væri um garð geng-
ið og um 150 manns ruddust
í gegnum raðir lögreglumann
anna.
Heather litla fór á undan
parinu í fangi lögregluþjóns,
og fengu þau að fara inn um
hliðardyr.
Paul var í svörtum fötum í
rósóttri silkiskyrtu og með
breitt gult hálsbindi. Linda
var í gulri kápu utan yfir ljós-
brúnum kjól, brúnum sokkum
og klossuðum tízkuskóm.
Þð var rigning og allir biðu
þolinmóðir eftir að vígslunni
- FLUGSLYS
Framhald af bls. 28
ins sé enn ókunn. Sjónarvottar
telja sig hafa fyrir satt að vél-
in hafi rekizt á háspennustreng
og hafi þá orðið sprenging í henni,
en aðrar heimildir segja að spreng
ingin hafi orðið fyrr.
Björgunarsveitir komu strax á
vettvang og í fyrstu fréttum var
talið að nær því 150 manns hefðu
beðið bana í slysinu. Björgunar-
menn unnu sleitulaust að því að
slökkva eldinn og grafa fólk und
an húsarústum, og bráðlega varð
ljóst, að dánartala myndi hækka
stórkostlega, og í gærkvöldi var
vitað með vissu um 280 látna,
og jafnvel búizt við að enn fleiri
hefðu týnt lífi.
Nákvæmur farþegalisti hefur
ekki verið birtur enn, þó er vit-
Enski deildarbikarinn, úrslit:
Swindon sigraði Arsenal 3-1
— í œsispennandi leik á Wembley
SWINDON Town tókst hið
„ótrúlega" sl. laugardag er fé-
lagið sigraði Arsenal í úrslita-
leik um Deildabikarinn að 100
þús. áhorfendum viðstöddum á
Wembley-leikvanginum, með
þremur mörkum gegn einu, eftir
framlengdan leik.
Swindon, sem leikur í 3. deild,
skoraði fyrsta markið, eftir mis-
tök hjá miðverði Arsenal, Ure,
og markverðinum, Wilson. Roy
Smart hirti lausan knöttinn og
skoraði. Þetta var á 35. mín. og
Swindon hafði þetta mark yfir
eftir fyrri hálfleikinn.
í síðari hálfleik náði Arsenal
allgóðum tökum á leiknum og
sóttu fast. Sem dæmi um sókn-
arþunga 1. deildarliðsins, þving-
aði Arsenal fram 9 hornspyrnur
á 20 mínútum og mæddi þá mik-
ið á vörn Swindon og þá sérstak-
lega markverðinum, Downs-
borouglh, sem stóð sig með stakri
prýði, varði stórkostlega m.a.
skot frá McNab og Sammels. En
allt kom fyrir ekki, Swindon hélt
marki sínu hreinu þar til á 87.
mín. er Bobby Gould tókst loks
að jafna fyrir Arsenal. Staðan eft
ir fullan leiktíma var jafntefli.
1-1.
Eftir stutt hlé hófst framleng-
ing (2x15 mín.) og var nú al-
mennt búizt við að betra úíhald
Arsenal-manna myndi færa þeim
sigur, en það var þó öðru nær,
því nú fyrst náði Swindon sér á
strik og hinn snjalli útherji Don
Rogers, skoraði tvö mörk, hið
fyrra úr þvögu við Arsenalmark-
ið í fyrri hluta framléngingar-
innar. Síðara markið skoraði Rog
ers eftir glæsilegan einleik rétt í
lokin.
Mikil fagnaðaralda steig upp i
leikslok frá hinum mörgu þús-
undum viðstöddum og flestir
voru snortnir af þessum atburði.
Don Rogers, Swindon
— skoraði 2 mörk.
Hið furðulega hafði skeð, Arsen-
al, í 4. sæti í 1. deild, með sitt
allrabezta félagslið í áraraðir,
hafði orðið að lúta í lægra haldi
fyrir félagi úr 3. deild í stórúr-
slitaleik á Wembley!
Ekkert land í heiminum getur
státað af slíkri „breidd" í knatt-
spyrnunni, sem England.
Paul, Linda og Heather litla.
lyki.
Síðan gerðu aðdáendurnir
aðsúg að svartri gljáandi bif-
reið hjónanna, og urðu þau að
hafa sig ÖH við til að komast
inn í hana.
Stúlkurnar, sem ekki
hrepptu Paul, stóðu grátandi
með blómvendi í fanginu og
börðu á þak og vélarhlíf bif-
reiðarinnar og fleygðu sér
upp á hana til að koma í veg
fyrir að hún æki á brott.
Þetta endurtók sig nokkru síð
ar er hún varð að nema stað-
ar við umferðarljós, og lög-
reglan leiddi fjórar grátandi
stúlkur burt, en hélt öðrum
tveimur föstum.
Gráturinn hélt enn áfram
um stund eftir brottför brúð-
hjónanna. Einn stúlknahópur-
inn vældi svo hátt og lengi, að
myndasmiðir hópuðust þar að
og þá þurfti einnig lögreglu-
lið til að bjarga grátkonun-
um.
A hvítmálaðar súlur við
heimkeyrsluna að Cartney-
heimilinu voru hundruð að-
dáendur búnir að krota með
krít og varalit: „Paul, við
elskum þig“. Ein daman hafði
þó, að því er bezt varð séð,
hugrað ráð sitt og hafði henni
snúizt hugur, því að hún hafði
bætt við skrif sín: „Ekki leng-
ur“.
Samskonar flugvél og fórst.
að að af 84 sem voru með vél-
inni voru a.m.k. 45 Bandaríkja-
menn sem ætluðu til Miami á
Florida. Af þeim tæplega tvö
hundruð fórnardýrum öðrum í
þessu hörmulega slysi voru flest-
ir íbúar indiánaþorpsins Ziruma.
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfir á slysstaðnum og miklar ör-
yggis- og heilbrigðisráðstafanir
hafa verið gerðar.
Mesta slys í farþegaflugi, áð-
ur en þessi atburður varð á sunnu
dag, varð þegar tvær flugvélar
rákust á yfir New York 16. des-
ember 1960. Þá fórust 84 farþeg-
ar sem voru í vél frá United
Airlines DC-8 og 44 um borð í
Super Constellationvél frá Trans
World Airlines. Auk þess biðu
tíu manns bana á jörðu niðri,
þegar DC-8 vélin steyptist brenn
andi á íbúðarhús í Brooklyn.
Hlaut úverko
ú hölði
SJÖTÍU og sjö ára maður varð
fyrir bíl á móts við Elliheimilið
Grund í gærmorgun. Hann hlaut
áverka á höfði og var fluttur í
Slysavarðstofuna og þaðan í
Borgarsjúkrahúsið.
Maðurinn var á leið eftir gang
braut suður yfir Hringbraut.
Bíllinn kom vestur götuna og er
talið, að maðurinn hafi orðið fyr-
ir vinstra framhorni bílsins.
BROTIZT var inn í geymsluhús-
næði Síldar- og fiskimjölsverk-
smiðjunnar h.f. að Kletti um helg
ina og þar unnin mikil skemmd-
arverk. M.a. voru eyðilagðar mat
vælabirgðir í björgunarbátum.
Fyrir nokkru var brotizt inn
í þetta sama geymsluhúsnæði og
þá einning unnin mikil skemmd-
arverk, m.a. á björgunarbátum.
Talið er, að unglingar hafi ver
ið þarna að verki.
BILAR
Nýr bíll er mjðg dýr. Þess vegna
er betra að kaupa lítið notað-
an nýlegan bíl.
1968 Plymouth Valiant 4ra dyra,
ekinn þrjú hundruð km. Skipti
möguleg á nýlegum minni bíl.
1968 Volvo Amazon, 10 þ. km.
1969 Toyota Corona, 5 þ. km.
1968 Volkswagen 1300, rauður.
1967 Chevy II Nova.
1967 Toyota Crown.
1967 Plymouth Satellite.
1967 Fiat 1100 Station.
1967 Renault R 10.
1962 Volksw. 1200, nýr mótor.
1966 Bronco klæddur.
1967 Willys með húsi.
1966 Landrover.
All IA | BÍLASALAN
Htl IH Kr—\ d
Skúlagata 40 við Hafnarbíó.
S. 15014 - 19181.