Morgunblaðið - 13.04.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.04.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. APRÍL 1969 3 sjóður um Armunn Sveinsson STOFNFUNDUR minningarsjóðs um Armann Sveinsson verður haldinn mánudaginn 14. apríl í Átthagasal Hótel Sögu og hefst kl. 17.15. Þeir, sem vilja gerast styrktar- menn sjóðsins, en hafa ekki gert það raú þegar, eru hvattir tíl að sækja fundinn eða hafa samband við Ragnar Kjartansson í sima 18192. ÞEIR EINIR STANDAST SAMKEPPNI NUTÍMANS, SEM FYLGJAST MEÐ NÝJUNGUM STÓRA NORRÆNA RYGGINGARSÝNINGIN í KAUPMANNAHÖFN 23.-30. APRIL WORLD FISHING EXHIRITION LONDON 28. MAf - 3. JÚNÍ Eldhúsið í happdrættishúsi DAS. Vinningaskrá DAS glæsi- legri en nokkru sinni fyrr — Reynt að hefja byggingu íbúðar- húsa handa gömlum hjónum á á þessu ári eða i byrjun þess nœsta AÐ GARÐAFLÖT 25 í Garða-1 Pétur Sigurðsson, alþingismað hreppi er risið stórt og glæsilegt ur, sagði að nú væru 380 vist- einbýlishús. Það verður aðal- vinnmgur happdrættis DAS á náesta ári, og er metið á 2 Vt mill jón króna. Forstöðumenn DAS kvnntu húsið og vinningaskrá síðastliðinn fimmtudag, og sögðu m.a. að vinningum hefði mjög verið fjölgað, og vinningaskráin þvi glæsilegri en nokkru sinni fyrr. Bílavinningar verða 100, dregið verður um íbiíðir fyrir kr. 500 þúsund, mánaðarlega og utan- landsferðirnar verða 36. Mánað- arverð miðans hefur verið hækk að upp í 100 krónur, en tala út- gefinna miða verður óbreytt. Heildarverðmæti vinninga er 46.8 milljón krónur. menn á Hrafnistu, og mikill fjöldi umsókna lægi fyrir. Fram undan er nú lokaátak byggingar húsa fyrir öldruð hjón, en það hefur greinilega komið í ljós að mikil þörf er fyrir slíkar íbúðir. Reiknað er með ðð íbúúr þessara húsa hugsi sem mest um sig sjálfir, en njóti að öðru leyti sömu ábyrgðar, réttinda og skemmtana, sem aðrir vistmenn Hrafnistu.' íbúðirnar verða alls 54. Þær verða um 4’2 fermetrar að stærð: stofa, svefnherbergi, baðherbergi, lítið eldlhús og geymsla. Einbýlishúsið að Garðaflöt er sem fyrr segir mjög glæsilegt. Það er með bílskúr, 193 fermetr- ar, fullgert og að auki er 110 fer- metra steypt hlað (verönd). Hús ið verður til sýnis almenningi frá kl. 6-10 virka daga og 2-10 um helgar. Það er því sýnt með fullum húsbúnaði og hafa fjöl- margir aðilar lagt harm til. Það eru m.a. Valbjörk hf., sem Ás- björn Ólafsson hefur söluumboð fyrir, Skeifan, Kjörgarði, Vefar- ir\n hf., Ljós og Orka, Zeta sf.. Giuggar hf., Ásbjörn Ólafsson, Véladeild SÍS, Viðtækjavinnu- stofan Laugavegi 178, Geysir hf. og Þorvaldur Steingrímsson. Myndir á veggjum eru eftir Atla Má, og höggmynd er eftir Jó- hann Eyfells. Skipulag annaðist Gunnar Magnússon, húsgagna arkitekt. Arkitektar hússins voru Hrafn kell Thorlacius og Björn Emils- son, en byggjandi var Breiðlholt hf. Arkitektarnir tveir unnu starf sitt þannig að tiltölulega auðvelt væri að gera einhverjar breytingar á húsinu, ef væntan- legur eigandi æs'kti þess. Þannig má t.d. færa til veggi eða bæta við dyrum með lítilli fyrirhöfn og tilkostnaði. En þótt húsið við Garðaflöt sé glæsilegt þá er það í rauninni ekki það sem skiptir máli. Aðal- atriðið eru minni íbúðir og ekki eins íburðarmiklar sem eiga að risa inn við Hrafnistu og gera bjart og þægilegt ævikvöld þeirra sem eru að renna sitt skeið á enda. Vonandi verður einbýlishúsið fallega til þess að sú áætlun verði að veruleika =.em allra fyrst. Námskeið fyrir unga leikstjóra Námskeið fyrir unga leikstjóra á Norðurjöndum á vegum Nor- ræna leikhússambandsins verður að þessu sinni haldið í Bácka- skogshöll á Skáni í Svíþjóð 31. maí til 8. júní. Aðalefni námskeiðsins verður: „Menntun leiklistarfólks á Norð- urlöndum“. Meðal kennara og fyrirlesara við námskeiðið verða Kalle Holmberg frá Helsingfors, Christoffer Fettes frá London, Andris Blekte frá Málmö og fleiri. Umsóknir um þátttöku sendist Guðl. Rósinkrans, þjó’ðleikhús- stjóra, fyrir 10. apríl. Fundur Sum- bunds ísl. sveiturfélugu ÁRLEGUR fundur fulltrúaráðs Sambands íslenzkra sveitarfé- laga verður haldinn í fundarsal iborgarstjórnar Reykjavíkur n. k. þriðjudag og miðvikudag, 15. m(g 16. apríl. Fundinn setur formaður sam- bandsins Páll Líndal, borgar- lögmaður, Eggert G. Þorsteins- 'son, félagsimálaráðheirra ávarpar fiun.dinn, en síðan flytur dr. Jó- ■hannes Nordal, geðlabankastjóri erindi um fjármálamarkaðinn og sveitarfélögin. Aðalverkefni fundarins verð- ur verkaskipting milli ríkis og sveitairfélaga og verður lögð 'fram á fundinum skýrsla um það efni. Minningur- Forráðamenn DAS fyrir framan happdrættishúsið — hinn glæsilega vinning. Ljósm. Sv. Þorm. Dýrlingurinn kvænlur í unnuð sinn London, 12. apríl, NTB. BREZKI leikarinn Roger Moore, heimsþekktur sem „Dýrlingur- inn“, gekk að eiga itölsku leik- konuna Luisa Mattioli í gær. Þau hafa búið saman í átta ár og eiga tvö börn. Moore skildi ný- lega við fyrri konu sína, söng- konuna Dorothy Squires, sem er 49 ára. Þegar Moore hélt upp á brúðkaupið í gær mætti hún fyrir rétti, ákærð fyrir ölvun við akstur." Skoru d heil- brigðisyfirvöld FRÁ Sambandi sunnlenzkra kven.na hefur Mbl. borizt eftir- farandi: Stjórn Sambands sunnlenzkra kve.nna skorar á heilbrigðisyfir- völd og Alþiingi að afgreiða til- lögu Bandalags kvenna, seim s©nd var þingmönnuim á yfir- standandi þingtímabili, um við- byggingu við Fæðinigardeild Landsspítalains, á þann veg, að framkvæmdir geti hafizt án taf- ar, og eigi síðar en vorið 1970. SÝNINGIN „BYGGT FYRIR MILLJARÐA" er stærsti viðburðurinn á sviði byggingarlistar og tækni á Norð- urlondum. Á sýningu þessari er kynnt allt það nýjasta í sam- bandi við vinnubrögð og verktækni í byggingariðnaðinum, ásamt nýjasta úrvali hvers konar byggingarefna, tilbúinna húshluta og heimilistækja Þarna er tækifærið til að skyggnast inn í framtíð- ina og kynnast þeim nýjungum, sem munu ryðja sér til rúms á næstu árum. ÚTSÝN ANNAST HÓPFERÐ A SÝNINGUNA 1 SAMVINNU VIÐ BYGGINGAÞJÓNUSTU ÍSL. ARKITEKTA. ÓDÝRT FAR- GJALD. — HÆGT AÐ FRAMLENGJA FERÐINA Á HANOVER MESSE DAGANA 26. apríl tii 4. maí. DRAGIÐ EKKI AÐ GANGA FRÁ FARPÖNTUN YÐAR. FÁIÐ ÓKEYPIS EINTAK AF SKRÁ ÚTSÝNAR UM VÖRUSÝN- INGAR OG KAUPSTEFNUR 1969. HEIMSSÝNINGIN UM FISKVEIÐAR, FISKVERKUN OG FISK- SÖLU, SÝNING UM NÝTINGU AUÐLINDA HAFSINS OG ALÞJÓÐLEG RÁÐSTEFNA UM FISKSÖLUMÁL. Enn eru fiskveiðarnar undirstaðan í þjóðarbúskap Islendinga. Hér gefur að líta allt það nýjasta í þessari atvinnugrein, s. s. í smíði fiskiskipa og tækni I fiskveiðum, nýjustu vélar, stjórn- tækí, siglingatæki, öryggisbúnað á sjó, veiðarfæri, hraðfrysti- útbúnað og tæki til fiskvinnslu. Allir, senr byggja afkomu sína á fiskveiðum, fiskvinnslu og fisksölu sækia hingað nýjustu tækni og þekkingu á þessu sviði. Ókeypis aðgangskort að sýningunni og ódýrt fargjald með leiguflugferð Útsýnar. Dragið ekki að tilkynna þátttöku. Ferðaskrifstofon ÚTSÝN Austurstr. 17 — símar 20100/23510.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.