Morgunblaðið - 13.04.1969, Side 22

Morgunblaðið - 13.04.1969, Side 22
22 MORGUNRLAÐIÐ, SUNNURAGUR 13. APRÍL 106'9 Þórunn Eyjólfsdóttir Kolbeins — Minning 4 FÖSTUDAGINN LANGA sl. andaðist að heimili sínu, Flóka- götu 65, frú Þórur.n Kolbeins, eiginkona séra Sigurjóns Þ. Árnasonar fv. sóknarprests i Hallgrímsprestakalli. Var útför hennar gerð í gær frá Fossvogs- kirkju. Með Þórunni sálugu er gengin mcrk kona, grein af sterkum stofni. mikilsanetin af aettmenn- um öllum og þeim fjölmenna vinahópi, er hún átti. Þegar komið var að kvöldi lífs hennar og leiðin lá til æðri heimkynna, var umsvifamiklu ævistarfi góðr ar eiginkon»u og ástrikrar móð- ur margra barna ]okið. Þeir, sem þekktu Þórunni og horfðu á eftir henni út í móðuna miklu, vissu, að þar hvarf af sjónar- sviði hæfileikakona, sem bjó yf- ir góðum gáfum og miklum sál- arþroska. Þórunn Kolbeins fæddist að Staðarbakka í Miðfirði 23. jan.ú- ar 1903. Foreldrar hennar voru hjónin sérá Eyjólfur Kolbeins 'Eyjólfsson, prestur á Staðar- bakka og Þórey Bjarnadóttur, valinkunn sæmdar- og dugnaðar kona. Faðir séra Eyjólfs Kol- beins var Eyjólfur prestur í Ár- t Hjartkær sonur okkar og bróðir Arnþór Bjarni andaðist 4. apríl á Barna- deild Landspítalans. Jarðar- förin befur farið fram. Þökk- um auðsýnda samúð. Valgerður ísleifsdóttir, Tómas Úskarsson. t Unnusti rhinn og sonur okkar Haukur Friðbertsson frá Súgandafirði er andaðist 5. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju máhudaginn 14. þ.m. kl. 1.30. Fyrir hönd aðstandenda. Steinunn Adólfsdóttir, Jóna Magnúsdóttir, Friðbert Guðmundsson. t Fósturmóðir og fóstursystir okkar Nikolína Guðmundsdóttir Steinholti, Eskifirði verður jarðsungin frá Eski- fjarðarkirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 2 Svala Auðbjörnsdóttir, Jónas Þórðarson og Baldur Einarsson. t Jarðarför fö’ður okkar, tengda föður og afa Guðmundar Gíslasonar simamanns, frá Vilborgarstöð um, V estmannaeyjum sem andaðist 8. þ.m. að Elli- heimilinu Grund, fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudag- inn 15. apríl kl. 3 e.h. Margrét S. Guðmundsdóttir, Haraldur Guðmundsson, Jónas Þ. Guðmundsson, tengdabörn og barnabörn. nesi Jónsson, en Þórey var dótt- ir Bjarna bónda á Reykhólum Þórðarsonar. Föðurbróðir Þór- •unnar sálugu var séra Böðvar Eyjólfsson í Árnesi, en móður- bróðir hennar var séra Böðvar Bjarnason á Hrafnseyri. Öll þessi prestanöfn í ætt hennar voru eins og fyrirboði þess, að hún sjálf átti eftir að eignast sem lifsförunaut mann, er gegndi umisvifamiklu prests- starfi um langan tíma. Kom það í hennar hlut að standa við hlið hans í blíðu og stríðu í hálfan fimmta áratug. Þriggja ára gömul fluttist Þór- unn með foreldrum s'ínium og systkinum að Melstað í Miðfirði, ■er Staðarbakka- og Melstaða- sóknir voru satneinaðar. Átti hún þar bernskuheimili fram á tíunda aldursár. En þá urðu mikil þáttaskil í lifi lítillar stúlku. Ástkær faðir hennar andaðist langt um aldur fram, aðeins 46 ára. Stóð Þórey. móð- ■ir Þórunnar, nú ein Yneð 10 börn, það yngsta þriggja ára, en hið elzta nítján ára að aldri. Þarf eigi að fara mörgum txrðuim um það, hvílíkt reiðarslag þettá hef ur verið fyrir prestsfjölskyld- una á Melstað, en æðrulaus og með óbilandi kjark hélt ekkjan suður á bóginn til ReykjaVíkur með barnahópinn sinn. Góðir menn komu því til leiðar, að hún fékk ábúðarrétt að Lamba- stöðu.m á Seltjarnarnesi. Stund- aði Þórey þar búskap af mynd- arskap, en' með sameiginlegu átaki hennar og barnanna tókst ■að afla fjölskyldunni viðurvær- is og forða því, að hún þyrfti að sundrast. Eins og að líkum lætur urðu börnin, hver.t eftir •sinni getu, að taka þátt í heim- ilis- og bústörfunum án þess þó ■að ofgert væri. Varð þeim það igagnleg reynsla og gott vega- nesti síðar á ævinni. Fór svo að lokum. að prestsekkjan frá Mel- stað fékk ríkuleg laun fyrir lífs- starfið. Börnin hennar tíu kom- ust öll vel til manns' og voru ávallt tengd hennj og hvert öðru sterkum kærleiksböndum. Þurfti hún ekki að sjá á bak neinu þeirra meðan hún lifði. Þórunn hafði mikla námshæfi- leika. Gekk hún í kvennaskóla, en að námi þar loknu hélt hún utan til Danmerkur til frekara náms og dvaldi þar um eins árs skeið. Kom hún heirn að hausti og réðist þá til kennslustarfa vestur í Arnarfjörð til móður- bróður síns, séra Böðvars á Hrafnseyri. Árið 1922 fékk elzti bróðir Þórunnar, Halldór Kol- beins, sem þá var orðinn guð- fræðingur, veitingu fyrir Flat- eyjarprestakalli. Var séra Hall- dór ókvæntur á þeim tíma. Bað t Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð við and lát og jarðarför Gróu Hannesdóttur. Vandamenn. t Þökkum hjartanlega alla vin- semd og samúð við andlát og jarðarför Gunnars Árnasonar frá Þverárdal. Sérstakir þakkir viljum vi'ð einnig færa læknum og hjúkr uriarliði Fjórðurigssjúkrahúss- ins á Akureyri. tsgerður Pálsdóttir og bömin. ^ . hann Þórunni systur sína, sem þá var 19 ára, að standa fyrir heimili á prestssetrinu. Varð hún við þeirri beiðni bróður síns og stjórnaði búi hans um tíma. Árið 1924 varð Þórunni einn gæfuxíkasti tbni á lífsleiðinni. í janúamiánuði þess árs giftist hún eftirlifandi eiginmanni sín- um, séra Sigprjóni Þ. Árnasyni. Varð hjónaband þeirra framúr- skarandi farsælt. Reyndist Þór- unn eiginmanni sínum tryggur ■förunautur, stoð og stytta í löngu hjónabandi. Daginn eftir brúðkaupið var séra Sigurjón settur sóknarprest ur í Vestmannaeyjum og skip- aður í embættið skötmmu síðar. Kom Þórunn til Eyja á afmælis- degi sínum 23. janúar 1924 og áttu þau hjónin þar síðan heima nær óslitið í rúmlega tvo ára- tugi. Þórunn og séra Sigurjón unnu mikið og gott starf í Vestmanna- 'eyjum og er það enn í minnium haft þar. Sóknarbörnin dáðu og virtu prest sinn, en prestsfrúin var einnig frábærlega vel látin. Var hún mjög félagslynd, blanid- iaði geði við safnaðárfólkið og tók þátt í gleði þess og sorg. Er mér tjáð af þeim, sem vel þekkja til, að hún ha.fi átt vináttu allra í Vestmannaeyjum. í byrjun ársins Í945 kom Þór- unn til Reykjavíkur með fjöl- skyldu sinni, er séra Sigurjóni var veitt Hallgirímsprestakall. Lifði hún þar ög starfaði til ævi- loka. Þórunn tók allmikinn þátf í safnaðarstarfi, einkum á fyrri ár um meðan barnahópurinn var ekki osðinn eins stór og síðar var. Heimilið var þó alla tíð aðalvettvangur starfs herinar. Þau hjónin eignuðust 7 börn, sem öll eru á lífi ásamt 16 mann vænlegum barnabörnum. Börnin eru Eyjólfur Kolbeins löggiltur endurskoðandi. kvæntiur Unni Friðþjófsdóttur, Árni fulltrúi, kvæntur Þorbjörgu Kristinsdótt ur, Líney, gift Matthíasi Matt- 'híassyni rafvirkjameistara. Þór- ey Jóhanna barnalæknir, Ha>nn- es Páll byggingaverkfræðingur, kvæntur Sigríði Gísladóttur, Þór unn Ásthildur, gift Bjarka Elías syni yfirlögregluþjóni o.g Snjó- laug Anna kennari. Foreldrarnir voru samhentir í t Við þökkum innilega ölíum þeim sem sýndu samúð og vináttu vegna andláts og út- farar móður okkar, tengda- móður og ömmu Magðalenu Daníelsdóttur Hafnarfirðl. Stefán Sigurðsson, Laufey Jakobsdóttir, Georg Sigurðsson, Aðalbjörg Halldórsdóttir, Lárus Sigurðsson, Guðlaug Hansdóttir og barnabörn. því gem öðru að búa börnum sín 'um fallegt heimili, þar sem ávallt ríkti friður og gleði. Þar nutu þau fómfúsrar um'hyggju kærleiksríkrar móður, sem mót- aði hvert þeirra djúpt og varan- lega. Vann Þórunn mairkvisst að því að þau fengju öll hið bezta uppeldi og þá menntun, sem hug ur þeirra stóð til, Margvísleg og mikil störf hvíldu á húsfreyj- unni á gestkvæmu prestsheimili, en bæði hjónin gerðu sitt til þess að þangað væri gott að koma fyrir vini og vandamenn, hvort heldur sem var til þess að taka þátt í gleði eða leita hugg- unar í sorg. Frú Þórunn Kolbeins var mikil gæfukona. Hún átti eiginmann, sem hún dáði mest allra. Hún lifði í ástríku hjónabandi um langt árabil, var trúhneigð mjög, hafði næman skilning á störfum manns síns og var honum því andleg stoð. Hún sá börn sín öll vaxa upp og verða að þrosk- uðu, og vel gerðu fólki. Hún skildi eftir hjá ástvinium sínum margar fagrar og dýrmætar minningar, ,sem munu verða þeim til blessunar á ókomnum árum. Sigurjón SigurSsson. Allt vort líf stefnir eina braut áð kveðjustund við banabeð. Sú stund kemur oft fyrr en varir, ög ekki vor mannanna að velja hana. Mér þykir kveðjustund Þór- unnar frænku minnar alltof fljótt yfir oss ættingja og vini komin. Hún er burtköíluð aðeins 66 ára og ævi hennar orðin oss öll- um minning, sem þekktum hana. Sú minnitig er mæt. Hún geym ir persónulegar minningar, sem ættingjunum eru perlur í sjóði, þvi að þannig var henni farið prestsdótturinni á Staðarbakka, frú Þórunni Kolbeins. Frú Þórunn var 7. barn prests hjónanna sr. Eýjólfs Kolbeins, prests að Staðarbakka í Mi'ð- firði 1890—1906 og að Mel í Miðfirði 1906' tíl dánardags 1. marz 1912 og frú, Þóreyjar Bjarnadóttur, Þórðarsonar á Reykhólum. Faðir sr. Eyjólfs Kolbeins var sr, Eyjólfur Jónsson síðast prest- ur að Árnesi á Ströndum 3. ætt- liður frá Þórði bónda Pálssyni á Kjarna í Eyjafirði, sem fjöl- mennar ættir eru frá komnar. Móðir sr. Eyjólfs Kolbeins var frú Elín Elísabet Björnsdóttir, 3. ættliður frá sr. Birni Jónssyni í Bólstaðarhlfð, sem fjölmargir rekja ættir sínar til. Frú Þóray kona sr. Eyjólfs var einni.g af kunnum ættum. Móðir hennar Þórey Pálsdóttir á Reyk- hólum var systurdóttir sýslu- (mannsins Jóns Thoroddsens skálds í Haga á Barðaströnd og Leirá í Borgarfirði. Faðir hennar Bjarni Þórðar- son, stórbóndi á Reykhólum var af gildum bændaættum úr Borg- arfirði. Frú Þórunn fæddist 23. janúar 11903 að Staðarbakka og ólst upp með foreldrum sínum. Að sr. 'Eyjólfi látnum fluttist móðir Ihennar með fjölskyldu sína suð- ur að Lambastöðum á Seltjarhar >nesi. Þáð var stór hópur, þvi að Ibörnin voru 10 á aldrinum 19 til 4 ára, sem prestsekkjan frá Mel flutti með sér suður að Lamba- stöðum vorið 1912. í þeim stóra systkinahópi ólst frú Þórunn upp og menntaðist eftir því sem föng 'voru á. Nam hún í Kvennaskól- ánum í Reykjavík, fór námsferð >til Kaupmannahafnar og lagði Ihönd að öllum störfum hins dag- lega lifs á fjölmennu heimili móður sinnar. Hún fór lika til sumarvinnu norður í Miðfjörð til þess að skvnja fæðingarbyggð sína. Þangáð norður leitaði hug- urinn oft til daga fruimbernsk- unnar og föðurminningar henn- ar, sem var henni afar kær. Frú Þórunn var bráðgjör og vel að sér orðin um átján ára aldur og fór haustið 1921 vestur að Hrafns eyri við Arnarfjörð til móðurr bróður síns, sr. Böðvars Bjarna- sonar til þess að annast barna- kennslu um veturinn á heimili hans. Sama érið varð elzti bróðir 'hennar sóknarprestur í Flatey á Breiðafirði, sr. Halldór Kolbeins. Til hans fór hún eftir veru sína á Hrafnseyri og sfcóð fyrir heim- 'ili hans þar 5 Flatey vetrartíma? Um þær mundir átti hún við nokkra vanheilsu að stríða og ’leitaði sér lækninga við henni. Og um sama bil ævi hennar kynntist iiún ungum presti, sr. Sigurjóni Þ. Árnasyni, sem þá 'var aðstoðarprestur föður ,síns sr. Árna Björnssonar, prófast síðast á Görðum á Álftanesi. Þau giftu sig 4. janúar 1924 og þá var sr. Sigurjón tekinn við prestsþjónustu í Ofanleitispresta kalli í Vestmannaeyjum, sem hann þjónaði til 1945, er hann 'tók við þjónustu prestsembættis í Hallgrímsprestakalli í Reykja- vík, sem hann hafði á hendi meðan aldur leyfði til ársloka '1967. Þau settu saman heimili sitt áð Ofanleiti ungu hjónin og frú Þórunn tók við vandasömu starfi prestsfrúarinnar í prestakalli manns hennar. Hún átti minningar frá æsku- heimilinu, sem var prestssetur, frá prestsheimili móðurbróður síns og hafði einnig reynt sig við forstöðu prestsheimilis hjá hróður sínum. Það var því ekki ókunnur starfsvettvangur, sem hún byrj- aði húsimóðurstörf sín á. En henni var líka vandinn Ijós og tók þannig á störfum sínum og stóð í stöðu sinni við hlið eigin manns síns, a‘ð blessun fyligdi. 'Hún lifði og lagði önn sina alla í mófður og húsmóðurþiónustuna gædd ríkri fórnarlund fyrir börn sín, eiginmann og embætti hans. Þau eignuðust 7 börn. sem eru: Eyjólfur Kolheins Sigurións- son, lögg. endurskoðandi í ■Reykjavík kv. Unni Friðþjófs- dóttur. Árni Sigurjónsson. lögreglu- varðstjóri í Reykiavík kv. Þor- þjörgu Kristinsdóttur. Líney Sigurjónsdóttir, húsfrú Reykjavík gift Mattftíasi Matthíassyni verkstj. Rafmaignsv. Rvíkur. Þórey Jóhanna Sigurjónsdótt- ir, barnalæknir Reykjav. Hannes Páll Sigurjónsson, verkfræðingur við Búrfell kv. Sigríði Pálsdóttur. Þórunn Ásthildur Sigurjóns- dóttir, kennari Reykjav., gift Bjarka Elíassyni, yfirlögreglu- þjóni. Snjólauk Anna Sigurjónsdóttir, kennari Reykjavík. Fúsar móðurhendur frænku minnar höfðu nóg fyrir stafni að starfa að velferð allra sinna mannvænlegu barna með eigin- manni sínum. Ég man þær stund ir, þegar óg kom á heimili henn- Móðir okkai og stjúpmóðir, ASDtS M. ÞORGRÍMSDÓTTIR, Ásvallagötu 28. sem andaðist 9. apríl 1969, verður jarðsungin fimmtudaginn 17. apríl, Athöfnin fer fram i Fossvogskirkju kl. 3 e h. Jarðsett verður í gamla kirkjugarðinum. Þorgrímur V. Sigurðsson, Anna Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Margrét Sigurðardóttir, Aðalheiður Sigurðatdóttir, Ásberg Sigurðsson, Áslaug Sigurðardóttir, Valborg Sigurðardóttir og Kristín L. Sigurðardóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.