Morgunblaðið - 17.04.1969, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1%'9
3
Þorbjörg Magnúsdóttir fulltrúi
ungu kynslóöarinnar 1969
— Hljómar og Flowers valdar hljómsveitir unga fólksins 1969
FULLTRÚI ungu kynslóðar-
innar 1969 var kjörinn Þor-
björg Magnúsdóttir Bugðulæk
11 í Reykjavík. Kjörið fór
fram á skemmtun í Austur-
bæjarbíói í fyrrakvöld þar
sem einnig var valin hljóm-
sveit unga fólksins 1969. Dóm
nefnd sem valdi hljómsveit-
ina gat ekki gert upp á milli
Hljóma og Flowers og eru
báðar hljómsveLirnar því í
fyrsta sæti.
Karnabær og Vlkan hafa
staðið fyrir keppni sem þess-
ari sl. 3 ár og hafa þær ávallt
tekizt með ágætum. Nokkuð
bar þó á drykkjulátum fá-
einna unglimga á skemmtun-
inni í fyrrakvölid og setti það
leiðinlegan svip á atihöfnina,
en þar var aðeins um a'ð ræða
fáeina unglinga af þéttsetnu
Austurbæj arbíói.
Sex stúlkur tóku þátt í
keppninni um fulltrúa ungu
kynslóðarinnar, en þær heita:
Nana Egilson 15 ára, Þorbjörg
Ma.gnúsdóttir 17 ára, Margrét
Halldórsdóttir 17 ára, Karen
Mogensen 15 ára, Oddný
Artbursdóttir 17 ára og Rósa
Björg Helgadóttir 15 ára.
Sérstök fiirnn manna dóm-
nefnd valdi fulltrúa ungu kyn
slóðarinnar eftir að hafa rætt
við stúlkunar um ýmis mál
og kyrinst þeim persónulega
og m.a. var rætt yið hverja
stúlku á skemmtuninni sjálfri.
Hver stúlka sýndi hæfileika
sinn á einhverju sviði á
skemmtuninni sjálfri og
gerðu þær ýmist að dansa eða
lesa ljóð. Fóru þær allar mjög
vel með þau atriði sem þær
völdu.
Hljómsveitirnar Hljómar,
Flowers og Roof Tops
skemimtu á skemmtun ungu
kynslóðarinnar og auðheyrt
var að þær höfðu la.gt mikla
vinnu í hljómflutning sinn,
sem tókst með ágætum.
Brezkum starfsmanni Bítla-
fyrirtækisins Apple var boðið
sérstaklega hingað til lands
í sambandi við þessa skemmt
un og þá aðallega til þess að
kynnast hljómsveitunum.
Eftir skemmtunina sagði
þe&si starfsmaður, sem heitir
Tony Branwell, að þessar
hljómsveitir væru þær beztu
sem hann hefði heyrt á sviði
siðustu 6 mánuði og hefði
hann þó fari'ð víða um í Bret
landi.
Dómnefndin sem valdi
hljómsveit ungu kynslóðarinn
ar gat ekki gert upp á milli
hljómflutnings Hljóma og
Fkvwers á skemmtuninni og
eru því hlj ómsveitirnar Hljóm
ar og Flowers báðar í fyrsta
Fyrir ofan er hljómsveitin Hljomar á skemmtun unga fólksins og fyrir neðan er hljóm-
sveitin Flowers.
Þorbjörg Magnúsdóttir full-
trúi ungu kynslóðarinnar 1969.
Þorbjörg var krýnd af Soffíu
Wedholm sem var fulltrúi
ungu kynslóðarinnar sl. ár, en
þar áður var Kristín Waage.
Ljósm. Mbl. Kr. Ben.
sæti. Dómnefndina skipuðu
Baldvin Jónsson, Jóri Múli
Árnason, Þuríður Sigurðar-
dóttir, Pétur Steingrímsson og
Árni Soheving.
Á skemimtuninni í Austur-
bæjarbíói var hverri hljóm-
sveit aflhentur bikar sem við-
urkenning fyrir hljómflutning
inn og einnig var Hljómum
veittur glæsilegur bikar fyrir
mest seldu hljómplötu á ís-
landi s.l. ár. Hljómsveitina
Hljóma skipa: Gunnar Þórðar
son, Erlingur Björnsson, Rún
ar Júlíusson, Shady Owens og
Engillbert Jensen. Hljóm-
sveitina Flowers skipa: Karl
Sighvatsson, Björgvin Hall-
dórsson, Gunnar Jökull Há-
konarson, Arnar Sigurbjörns-
son og Jóhann Kristinsson.
Við spjölluðum stuttlega
við fulltrúa ungu kynslóðar-
innar 1969, Þorbjörgu Magnús
dóttur, en hún er dóttir hjón-
anna Önnu Gestsdóttur og
Magnúsar Thorvaldssionar, og
er hún næst elzt fjögurra syst
kyna.
— Ert þú í skóla, Þorbjörg?
— Já, ég er í gagnfræða-
skóla verknáms.
— Hvernig stóð á því að þú
tókst þátt í þessari keppni?
— í upphafi var hringt í
mig og ég beðin að ræ'ða við
forsvarsmenn keppninnar oig
Framhald á bls. 24
Fyrir 2000 krónur á mánuði
og 2000 krónur út
ÚRYAL
GÆÐI
ÞJÓNUSTA.
getið þér fengið borðstofusett
með 6 stólum.
Fyrir 1500 á mánuði og 1500 út,
fáið þér borð og 6 stóla.
KAUPIÐ STRAX
ÞAÐ BORGAR SIG.
,UI
■■■■ ■ ■■
im ■■■
■HllH !■
® 22900 LAUGAVEG 26
SIAKSTEIIVAR
Biður Framsókn
um gott veður?
í stjórnmálaályktun aðalfund-
ar miðstjórnar Framsóknar- -c
flokksins er reynt að hafa eitt-
hvað fyrir alla svo sem vera ber
í steínuyfirlýsingu flokks,
sem ekki veit í hvorn fótinn
hann á að stíga. Sérstaka athygli
vekja nokkur atriði, sem gætu
gefið til kynna, að Framsóknar-
flokkurinn biðji nú um gott veð-
ur hjá stjórnarflokkunum. Þessi
atriði eru nefnilega í mjög góðn
samræmi við núverandi stefnu
ríkisstjórnarinnar og stúðnings-
flokka hennar. Þannig segir t.d.
í ályktuninni að „breyta lausa-
skuldum atvinnuveganna í föst
lán“. úm þessar mundir er unn-
ið að því að breyta lausaskuld-
um iðnaðarins í föst lán og frv.
liggur fyrir Alþingi um breyt-
ingu á lausaskuldum bænda. Þá
hefur forsætisráðherra vakið at-
hygli þingsins á nauðsyn þess að
létta undir með verzluninni
með því að breyta lausaskuldum
liennar á sama veg. Það er því
ljóst, að Framsóknarflokkurinn
fylgir fast eftir stefnu ríkis-
stjórnarinnar í þessum efnum.
Þá segir að „auka (þurfi) rekstr-
arfjármagn". Forsætisráðherra
gerði Alþingi skihnerkilega
grein fyrir því fyrir skömmu að
víðtækar ráðstafanir hefðu ver-
ið gerðar og væri verið að gera
í þessu skyni. Framsóknar-
flokkurinn vill leggja áherzlu á
sparnað á vegum ríkis og opin-
berra stofnana. Svo sem kunn-
ugt er greip ríkisstjórnin til
mjög víðtækra sparnaðarráðstaf-
ana á sl. ári. Þá vill Framsóknar
flokkurinn takmarka erlendar
lántökur þjóðarinnar við „arð-
vænlegar framkvæmdir“. Afstaða
ríkisstjórnarinnar til erlendrar
lántöku hefur einmitt byggzt á
þessu meginsjónarmiði. Loks
vill Framsóknarfiokkurinn að* •*
íikisvaldið hafi „markvissa for-
ustu um eflingu og endumýjun
atvinnulifs um land allt í sam-
starfi við samtök launþega og at-
vinnurekenda . . . Þetta er ná-
kvæmlega það sem ríkisstjórnin
hefur gert með samkomuiaginu
um aðgerðir í atvinnumálum og
stofnun atvinnumálanefndanna.
Hræðsla
Því miður er þetta betri hlut-
inn af ályktun miðstjórnarinnar.
1 hinum heimingnum er eitthvafr
fyrir hina nýju viðmælendur
Framsóknarflokksiiis svo og fyr-
ir þau sundurleitu vinstri öfl,
sem Frainsuknaimenn reyna
stöðugt að laða til sin. En það
getur varla verið tiiviljun ein að
Framsóknarmenn taka með þess-
um hætti upp í stefnuskrá sína
nokkur atriði úr stefnu ríkis-
stjórnarinnar. Öll framkoma
Framsóknarmanna um þessar
mundir mótast greinilega af
hræðslu við það sem framtiðin
ber í skauti sér fyrir flokk
þeirra. Þeir horfa þvi til allra
átta um þessar mundir og vona
að einhver bíti á einhvers stað-
ar. En hætt er við að þe.-sar von-
ir bregðist. Framsóknarmenn
þurfa að læra sínar lexíur betur
áður en þeim gagnar að gera
hosur sínar grænar fyrir stjórn- f
arflokkunum og vera má, að
þeir ríði ekki feitara hrossi frá
samskiptum sínum við hina nýju
viðmælendur, en ýmsir aðrir
hafa gert á undan þeim. Hollráð
þeim til handa er því að fara að
öllu með gát. En vissulega er
ástandið illt í Framsóknarflokkn
um þegar varla líður sá dagur að
Framsóknai-menn gangi ekki um
klæddir biðilsbuxum — og nú
virðasit þeir jafnvel líta hýru
auga til stjórnarflokkanna! J