Morgunblaðið - 17.04.1969, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.04.1969, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. APRÍL 1069 HVENÆR KOMUMST VIÐ INN Á JAPANSKA MARKAÐINN? * Norðurlöndin selja þangað osta og smjör og fjölda annarra vara Myndin er úr japanskri verk smiðju sem notar norsku ostana við framleiðslu sína. Sarfsmennirnir sneiða norska ostinn. Þetta ostamagn, 6.000 lestir, er það sama sem Norðmenn seldu til Japan í fyrra. Hafa þeir þarna greinilega náð fótfestu á markiaðnum og hugsa sér gott til glóðarinnar. Þessi innflutning ur Japana á osti byggist þó eklki á því að þeir borði svo gífur- lega mikinn ost í þeirri mynd, sem hann er snæddur í Evrópu. Þeir bræða meginihluta ostsins upp og nota hann til ýmiss kon- air matargerðar. Mysuostinn bræða þeir og nota til súkku- laiði og kexgerðar. Norðmenn selja Japönum aðallegá þrjár teg undir osta. Mysuost, Goudaost og Jarlsbergost. Alsl fluttu Norðmenn út vörur til Japans fyrir 112 millj n.kr. á síðasta ári, eða nokkuð. á ann- an miUjarð ísl. kr. SELJUM NÆR EKKERT TIL JAPAN. Hér á síðunni hefur áður ver- ið um það ritað hve furðuleg- ur viðskiptajöfnuðuir okkar við Japan hefur veirið á undanföm- um árum. Um jöfnuð er þar Það þarf ekki alltaf að vera stór eða merkilegur hlutur, sem vinnur sigur á heimsm-arkaðin- um, ef framsýni og hugvitssemi er með í spilinu. Það sannar sagan af norska svampklútnum, sem hefur farið sigurför um allan heiminn. Ævin týrið byrjaði fyrir 18 árum í gömiu trésmiðaverkstæði. Nú vinna 100 manns í verksmiðj- unni, Kongsfoss Fabrikker A,S og 95 prs. framleiðslunnar eru fluttir út til 70 lunda. Verksmiðjan er nær ein um hituna og ræður þannig yfir heimsmarkaðnum í þessari grein. Svampklútinn má nota við öll reyndar alls ekki hægt að tala. Við höfum keypt fyrir allt að 300 millj. kr. (fyrir gengisbreyt inguna) frá Japan, en ekki selt þeim nema fyrir 2—3 millj. kr. Nú breytist þetta örlítið við það að Japanir 'hafa keypt af okkur nokkur hundruð tonn af loðnu, en það eru engin þáttaskil í viðskiptum við þá. Það gefur auga leið að Japan verður áfram eitt merkasta verzl unar og viðskiptaland veraldar- innar. Þar búa yfir 100 millj. manna og velmegun fer þar mjög vaxandi. Skýrslur OECD sýna að innflutningsaukningin er 10—05 prs. árlega. Það þýðir að fyrir vestlæg lönd verður Japan æ þýð ingarmeira viðskiptaiand. Nú er verið að aflétta tollum og inn- flutningshömlum af 121 vönu- tegundum, en helminginn af þeim vörum eru alis kyns laindbúnað- arafurðir. Af þeim flytja Japan- ir mikið inn, því þar eru þeir ekki sjálfum sér nógir. Er bú- izt við því að imnflutningur til Japan verði nánast alfrjáis árið 1972. húsverk og það er einmitt á- stæðan til þess hve vel húsmæð- ur í 70 löndum hafa tekið hon um. Og svo hefur tekizt að fram leiða þetta einfalda hjálpartæki húsmóðurinnar mjög ódýrt. Forstjórinn, Knut Olsen, segir að það sé galdurinn — og einin ig kynningarherferð, í þessum löndum sem skýrir húsmæðrun- um frá því til hve margs má nota þennan einfalda litla grip. Myndin er úr þýzkum auglýs- inga og leiðbeiningabækling frá þessu snjalla norska firrna. Þessi saga sýnir, að ef sölutæknin er í lagi má ná langt í útflutningi og efnast vel á erlendum mörk- uðum. LEIÐIR INN Á MARKAÐINN Eftir upplýsingum sem er að fimna í _ síðasta hefti tím'arits norSka Útflutningsráðsins geta erlendir innflytjendur, sem selja vilja vörur sínar í Japan, farið ýmsar leiðir. Má vera að ein- hverjir íslenzikir útflytjendur hafi hug á að heyra um þetta efni, og því skal nokkuð frá þvi greimt hér á eftir. Alla vega sýnist ekki vanþörf á því, að íslend- ingar gefi japanska markaðnum meiri gaum en verið hefur hing- að til sbr. tölumar sem nefnd- ar voru áðan. Um það bil 85 prs. innflutn- ingsins á sér stað á vegum himna risa stóru japönsku vöruhúsa. Þau ráða markaðnum að mjög miklu leyti og er því milkilvægt að fá samning við eitthvert slíkt hús um sölu vörunnar. Það er þó reynisla norrænna firma, að oft er betra að snúa sér til hinna minni vöruihúsa, sem sér- hæfa sig í ákveðnum vöruflokk- um, því þar er meiri áhuga að finna oft á tíðum. VÖRUMIÐSTÖÐVAR Ein helzta leið erlendra ríkja inn á japanska markaðinn er að stofna verzlunarmiðstöðvar í Japan, aðallega í Tokyo (trade- center) Bandarikin, Frakkland og Ástralía hafa þegar stofnað slíkar verzlunarmiðstöðvar, og nú undirbúa Svíair slíka miðstöð í Tokyo. f þeirri miðstöð er ekki aðeins ætlunin að hafa skrifstof ur og sýningarsali, heildur og verzlanir, sem selja sænsk hús- gögn, sænskar miatvörur, sænisk föt og alls kyns innianhúsbúnað og vefnað. Sænski verzlumarfuli- trúinn í Tokyo telur að unnt sé að tvöfalda útflutning Svía til Japan á fáum árum með stofn- un þessarar miðstöðvar. STARF VERSLUNARFULL- TRÚA Loks er að geta um verzlunar fulltrúa sendiráðanna. Þeir vinnia mikið starf á japanska markaðn um fyrir lönd sín. Öll Norður- löndin, nema ísiand, hafa sendi- ráð í Japan og við þau starfa sérstakir verzlumarfulltrúar. Er það hlutverk þeiira að gefa firm um í sínu heimalandi sem rmest- ar og beztar upplýsingar um japanska markaðinn og koma á samböndum við japömsk firmu. Annast þeir þar að auki alia hugsanlega viðskiptaþjónustu, er um er beðið. Vitanlega er þetta til mikilla bóta fyrir innflutning Norður- landa til Japan og ‘hér er um að ræða atriði, sem við ‘höfuim enn ekki haft efni á að koma í kring. Hinsvegar er ekki úr vegi að geta þess í þessu sambamdi að þótt ísliand hafi ekkert sendi- ráð eða verzluinarfulltrúa í Jap- an, er þar ræðismaður fyrir ís- land, sem gætir hagsmuna ís- lendinga þar og veitir upplýsing ar um verzlun og viðskiptasam- bönd ef óskað er. Aðalræðismaður þessi nefnist KunitoShi Okazaki. Er skrifstofa hans í 1 4-Chome, Shiba-Shin, BaShi, Minto Ward, Tokyo. Að- alræðismaðurinn er sjálfur eiinn af aðalforstjórum eins þekktasta japainska verzlunar og iðmaðar- hringsins, og gjörkunnugur við- Skiptahlið japanska þjóðlífsins. HEIMSSÝNINGIN VEITIR TÆKIFÆRI. Á næsta ári verður heimssýn- ingin haldin í Japan (Osaka). Er þegar afráðið að ísland mun hafa þar sýningardeild, væntan lega í Sameiginlegum Norður- landaskála. Þar gefst einstætt tækifæri fyrir íslenzka framleið endur að gefa upplýsingar um afurðir og vörur símar, því að þótt heimssýningin sé ekki vöru sýning sem slík, verður ekki öðru trúað en framleiðendum verði gert kleift á einhvem hátt að koma á framfæri við gesti upplýsimgum um íslenzkar fram leiðsluvörur. Á fáu ríður meir þesssi miss- «ri en auka útflutninginn og þama ber því að grípa tæki- færið. Þá munu uigglaust aUmiarg ir fslendingar sækja Japan heim í tilefni heimssýningarinnar og þannig skapast nánari kjrnni á milli viðskiptamanna þjóðanna tveggja. Á miklu ríður að glata ekki því góða tækifæri sem þarna gefst til þess að auka sam skipti á verzlunarsviðinu. | !n aSkn Ráum^..... -"|p- Hugmynd, sent ffór um allcm heim Útflutn- ingslán Einn er sá þáttur útflutn- ingsmála, sem hér á landi á 1 eftir að komast í framkvæmd. Það eru hin svonefndu út- flutningslán, „exportcredit" I eins og það er nefnt í ná- grannalöndum okkar. Slík lán eru veitt af bönk- ím og lánastofnunum til þeirra fyrirtækja sem í útflutningi standa. Þau þurfa að geta boð ið kaupendum í öðrum lönd- um sem allra bezt kjör. Þar á ekki aðeins við um iágt verð og góða vöru, heldur einnig er þess oft krafizt að fyrirtækið, sem út flytur, geti lánað hluta af kaupverðinu til ákveðins tíma. Iðulega er það raunar forsenda fyrir því að fyrirtækið geti náð samning- um um sölu, t.d. þegar um vélar, skip og aðrar meiri- háttar iðnaðarvörur er að ræða. Það gefur auga leið, að ekki er það oft, sem fyrir- tækin sjálf geta þannig gerzt banki viðskiptamanna sinna erlendis. Því verða lánastofn anir i hlutaðeigandi landi að hlaupa hér undir bagga. Þar sem það er alls staðar talið þjóðhagslega nauðsynlegt að örva útflutning sem allra mest, hefur hið opinbera víða sett reglur, sem auðvelda slíka lánastarfsemi til fyrir- tækjanna, eða beinlínis átt þátt í því að koma á fót export-kredit lánastofnunum, sem orðið hafa ein megin mátt arstólpinn undir vaxandi út- flutning. Ef íslenzk fyrirtæki eiga í framtíðinni að geta spjarað sig á mörkuðum erlendis, er hin mesta nauðsyn að ein- hverju slíku fyrirkomulagi verði komið á hérlendis. Fyr- irtæki okkar eru það fjár- vana að fráleitt er að þau geti lánað vörur sínar til nokkurra missera, eða jafn- vel lengur. Þessvegna er það orðið tímabært að bankavald ið í landinu fari að láta eitt- hvað frá sér heyra um áætl- anir á þessu sviði, því hér er það tvímælalaust hlutverk bankanna að skipuleggja út- flutningslánastofnun. Raunar þarf það ekki að vera sjálf- stæð stofnun, heldur gæti sem bezt verið deild í einum ríkis bankanum. Er hér um hlut- verk að ræða sem heyrir til Seðlabankanum að hafa for- ystu um. Það fer ekki milli mála að slík lánastofnun yrði geysileg lyftistöng í íslenzkum útflutn ingi, og raunar forsenda þess að við getum notað þá mögu- leika sem skapast við væntan- lega EFTA-aðiId. Fyrir þessu máli þarf að fara að hugsa, og það fyrr en síðar. Wmgtei Ww&mæBsm

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.