Morgunblaðið - 04.05.1969, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. MAÍ 196®
Afli Sandgerðisbáta
nær 20 þúsund tonn
SANDGERÐI 3. mai. — Alls
ihafa borizt hér á land 19.090,
8 tonn í 2025 sjóferðuan. Heild-
anafli í fyrra á sama tima var
14.649, 3 tonn í 1775 róðrum, stvo
aflinn er orðinn góður hér.
AJ þorski .hafa borizt á land
'14.850 tonn í 1777 róðrum, af
loðnu 6793,9 tonin í 45 sjóferðum
og af síld 111,8 tonn í 3 sjóferð-
um.
Aflahæstu blátarnir hér nú eru
Náttfari með 785 tonn og 245
kg. og Anidri með 784 tonn oig
30 kg.
í gæir var sæmilegur afli. Bát-
amir komu mieð uipip í 20 tann,
lÁsgedr Maignús&on II hafði 19,8
tonn. Trollbátarnir höfðu 13'—14
tonn. — P.P.
Rússneskt olíuskip
bíður í Reykjavík
— Fœr ekki að landa olíunni
RÚSSNESKT olíuskip liggur nú
á ytri höfninni í Reykjavík og
getur ekki losað vegna verkfalls
ins. Er skipið með 11 þús. tonn
af gasolíu. Það kom til Reykja-
víkur 1. maí og hefur beðið síð-
an. En verkfallið á losun olíu er
ótímabundið.
ísjoki reif
togaiunn
ÍSAFIRÐI 3. maí. — Brezki tog-
arinn Primella kom inn til ísa-
fjiarðlar til að fá viðgerð á rifu,
sem komið hafði á togarann rétt
aftan við formiastrið stjórnborðs-
megin, er skiipið rakst utan í ís-
Ijaka út af Dýrafixði, þar sem
skipið var að toga. Va<r um
mietralöng rifa á fcogaranum, sem
soðið var í og er hann að fara
aftur út á veiðar.
Þetta gerðist snemima í gaer-
mor.gun og fylgdi annar brezk-
ur togairi, Chrisella, togaranum
inn til öryggis. — J.P.
46 biantskióðii
fió Iðnskólannm
I Keflavík
Keflavík, 2. maí: —
SKÓLASLIT Iðnskólans í Kefla
VÍk fóru fram 30. apríl í Ung-
mennafélagshúsinu. Þetta var
28. starfsár skólams, og voru nem
endur alls 104. Skólastjóri, Her-
mann Eiríksson, rakti sögu skól-
ans og lýsti starfi síðasta árs.
Að þessu sinni voru brauitskráð
ir 46 nemendur úx 6 námsgrein-
um iðnaðarmana. Flestir voru
úr byggingaiðnaði-num, smiðir,
múrarar og rafvirkjar.
Skólastjóri rakti nokkuð fram
tíðarhorfur skólans og áframhald
andi nám í tæknifræði og þær
kröfur, sem til þess eru gerðar.
11 kennarar störfuðu við skól
ann, sem var síðdegis- og kvöld-
skóli. Hæstu einkunni við burt-
fararpróf hlutu Eiður Vilhelms-
son, 9,29 og Anton Jónason, 9,27.
Sigurður Erlendsson fiulltrúi
Iðnaðarmannafélag3 Suðurnesja
var mættur við skólaslit, flutti
þar ræðu og afhenti verðlaun,
m.a. fyrir bezita tímasókn á skóla
árinu, og hlutu þau Guðmundur
AðaLsteinsson og Þórður Hall-
dórsson.
Á liðnum árum hafa 309 nem-
endur verið brautskráðir frá skól
anum. Áhugi er nú mikill á að
bæta aðstöðu skólans með bættu
húsnæði og breyttu skipulagi.
Hermann skólastjóri sagði að
ekki mætti dragast lengiur að
gera nokkrar úrbætur. Að lok-
um vax nemendum afhent próf-
akírteini sín og var athöfnin öll
hin virðulegasta. — h-sj.
Mbl. hafði oamiband við Vil-
hjálm Jónsson, framkvæmdastj.
Olíufélagsins og spuxðist fyrir
um hve mikið væri til af gas-
olíu og hvort um skort á henni
yrði að ræða ef skipið ekki los-
aði og héldi á brott. Villhjálmur
kvaðst búa®t við að til væru viku
til 10 daga birgðir í landinu, svo
að fljótlega yrði skortur á gas-
olíu. Ekki mætti koma fyrir að
skipið sneri við, því svo lang-
an tima tekur að fá gasolíu alla
leið frá Svarta/hafi. En hann
hafði ekkert heyrt frá skipinu
um að skipverjar væru orðnir ó
rólegir.
Von er á tveimur olíuskipum.
Þann 6. maí kemur skip með
fueLohu og 10. maí annað með
benzín og ga'soMu.
Auk þess sem löndun úr skip
um hefur verið stöðvuð, er fluitn
ingur á oMu út á land með smá
skipum líka stöðvaður. Hafa
ekki orðið vandræði af því enn,
því yfirleitt voru góðar birgðir
úti á landi, að því er Vilhjálmur
sagði.
UngviSið leikur sér á vorin
(Ljósim. Sv. Þonm.)
Nýtt svæði undir kartöf lugarða fyr-
ir Reykvíkinga á Korpúlfsstöðum
NÝTT SVÆÐI verður tekið und-
ir kartöflugarða fyrir þá Reyk-
víkinga, sem vilja fá garðholu
og rækta sjálfir kartöflur. Þetta
svæði, sem á að undirbúa í vor,
er i landi Korpúlfsstaða við
bakka Úlfarsár. Mikil eftirspurn
er nú eftir garðiöndum, fleiri á
biðlista en nokkru sinni fyrr.
Þó þetta land verði tekið á
Korpúlfstöðum gerir það ekki
meira en að fullnægja eftirspurn
inni, því 150 voru á biðlista nú
Þær eru sýnilega góðar vinkonur hún Valgerður lita í Grinda-
vík og Píla hennar. Ljósmyndari blaðsins hitti þær er hann
átti lelð um Grindavík fyrir skömmu og festi þær á mynd.
um helgina, sagði Hafliði Jóns-
ion garðyrkjustjóri. En nú er út
runninn fresturinn til að greiða
aif garðlöndum, sem fólk hefur
haft á leigu, og því má búast
við að eldri garðlönd Losni. —
Leigan, sem er 350 kr. af landinu
átti að greiðast fyrir 1. maí Á sl.
ári voru öll garðlönd í leigu, en
þau eru í Borgarmýrið ofan við
Jörfa, og svo í Skammadal og í
Reykj aihUðarlandi.
ÆtLunin er að taka nýju garð-
löndin á Korpúlfsstöðum í notk
un í sumar. Klaki er að visu enn
í jörðu, aðeins skóflustunga nið
ur á klakann enn; sagði Hafliði,
en strax og hægt er verðuT farið
í að vinna landið undir garða.
Ef næsta vika verður góð, ætti
það að breyta miklu.
Fegrunarvika
í Reykjavík
FEGRUNARNEFND ákvað ný-
lega að efna til fegrunarviku í
sumar, og yrði þá sérstaklega rek
inn áróður til fegrunar í borg-
inni, þó allar vikur ársins eigi
auðvitað að vera fegrunarvikur,
eins og Hafliði Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fegrunarnefndar
orðaði það, er Mbi. spurðist fyrir
um störf nefndarinnar.
Þá hefur verið gent sérstakt
rrterki Fegrunarnefndar, sem
Gísli Björns.on hefur teiknað, en
það er táknrænt fyrir verkefni
nefndarinnar og er á því mynd
af þremur laufblöðum innan í
húsmynd.
f fyrra skrifaði Fegrunarnefnd
fjölda fyrirtækja og benti á á-
galla í umgengni og snyrti-
m-ennsku við hús fyirirtækjanna
og á lóðum. Víða hefur verið
bætt úr, en sumir hafa látið til-
mæli um betri umgengni sem
vind um eyruin þjóta Veiður
haldið áfram að reyna að hvetja
þá til úrbóta.
Veturinn hefur ekki verið erf-
iður trjágróðri og runnium, en
slæmur fyrir fjölærar jurtir
vegna frostanna. Hefur mikið af
þeim farið forgörðum, sagði Haf
liði. Gravfletir koma víða slæmir
undan vetri vegna þess að hol-
klaki hefur verið í jörðu. Og ekki
síður vegna allrar umgengni ibúa
bæjarinS. Er það eitt af verkefn
um Fegrunarnefndar að reka á-
róður fyrir betri umgengni í
skrúðgörðum og á grasiflötum
borgarinnar.
Eldur í skógræktar-
giröingu á Selfossi
Selfossi, 3. míd: —
SÍÐASTIAÐINN miðvikudag
kviknaði eldur í skógræktargirð
ingru á Selfossi. Barst lögreglunni
tilkynning um eldinn lau:st fyrir
ki. 14.00, en þá var kominn mik-
ill eldur í sinu og mosa.
Slökkvilið Selfoss fór á stað-
inn auk lögreglu og fjölda sjálf-
boðaliða, og tókist að hefta út-
breiðslu eldsins á rúmri klukku
stund. Þá hafði brunnið á að
gizka einn hektari af skóglendi.
Að vísu brunnu ekki trén sjálf,
en talið er vafalaust að þau
munu ekki hafa þolað eldinn.
— Eldur hefur fyrr, eða
nær því árlega kviknað í þessa'i
skógræktargirðingu, og hefur sú
orðið raunin, að trén hafa ekki
þolað eldinn, þótt ekki sæi á
þeim í fyrstu.
Grunur leikur á að óvitabörn
hafi tendrað eldinn í íánunni við
skógræktargirðingu-na, en allmik
ið hefur verið um það að börn
hafi kveikt í sinu á Selfossi, og
hefur þá stundum orðið að kalla
til slökkvilið, til að ráða niður-
Lögum eldisins. — Tómas.