Morgunblaðið - 18.05.1969, Síða 16

Morgunblaðið - 18.05.1969, Síða 16
16 MORGUN’BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. MAÍ 1909 ar en> fuindurinn í Alaska. J Einnig er lögð á það alherzla | að tækist að opna Norðvest- urleiðina væri greiður að- gangur fundinn a«ð hinum miklu málmauðaafum á norð- ureyjum Kanada. Ákvörðain olíufélaganna hefur vakið aðdáun sérfræð- inga í málum er varða heim- skautahéruðin. Sumir eru mjög efins um, að tilraun þessi takist. En allir eru hrifnir af mikilleik þes'sarar tilraunar, hins gífurlega fjár- magns sem til hennar verður varið, og hraða framkvæmda. 115.000 tonna olíuskip fetar í fótspor Amundsen sem stœrsti ísbrjótur heims — Olía í Alaska er aðdráttaraflið NÝ og mjög ailvarleg tilraun til þess að sigla NwrðVestur- leiðina svonefnd/u, þ. e. ságl- ingaleið uim Heimsikautahöfin fyrir norðuíhluta meginlands N-Evrópu til Alasfka, vekíur nú verulegan áhuga ka/nad- ískra og bandarislkra embætt- ismanna, gvo og kaiupsýslu- banmit. Tvö bandaríslk ollíufé- lög og eitt brezkt hyggjast hætta 26 milljónum dollara (um 2,2 milljörðum ísl. kr.) til þessarar tilraiunar. Liikunn- ar á því, að húri heppnis/t eða eklki eru taidar jafnar. Takmarkið er að opna sjó- leið til hinna ríku ol'íusvæða, sem tviö Ibandarísk olíufélög hafa fundið við Prudboe-flóa, en félögin eru Humble Oil & Refining oig Atlantic Rich- fiield. British Petroleium, þriðja fyrirtækið, sem stend- ur að tilraun þessar.i, er einn- ig s-agt Ihafa fundið olíu við Prudhoe. Lítill vafi leikur á því, að bæði Kanada og Bamdaríkin eiga gífurlegra hagsmuna að gæta, ef tækist að finna sigl- ingaleið er tentgdá Atlantshaf Heimskatutsihafinu, Ef hægt væri að flytja ol'íu sjóleiðis um þessi ísi þöktu höf, mundi austurströnd Bandaríkjanna verða tryggð- ur aðganigur að gífurlegum olíulindum, sem aftur myndi tryggja stöðugt verðlag á olíu á þeim s'lóðum. Jarðfriæðmgar eru einnig sannfærðir um að meiri olía munl finnast 'í norðurhéruð- um Kanada. og jafnvel sunn- 115.000 TONNA ÍSBRJÓTUR Frumtilraunin á að hefjast í júlí nk. Verður Það risa- ol'iuskipið „Manhattan“, sem fyrstu tilraun.ina gerir. Stefni Framhald á bls. 25 Hér sésit „Manihattan' á sig lingu fyrir breytingamar, sem yeriSS er að framkvæma á skipinu. Það mun hafa ótrúlegasta útbónað um borð. En hvað g erist ef fyrir verður 40 metra þyklk íshella á Beauifoit-hafi? Hér sést siglinjgaleiðin, sem r isaoliunkipið „Manhattaní“ ráðgerir að fara í júlí. SUNDRAÐIR STJÓRN- ARANDSTÆÐINGAR CJtjórnarandstæðingar gátu ^ með engu móti leynt inn- byrðis sundurlyndi og mál- efnaleysi í eldhúsdagsum- ræðunum á Alþingi, sem fram fóru í sl. viku. Er vafa- samt, að þetta hafi nokkru sinni komið jafn berlega í ljós og að þessu sinni. Þórarinn Þórarinsson not- aði tækifærið í þessum um- ræðum til þess að vega að fyrrverandi formanni Fram- sóknarflokksins Eysteini Jónssyni. í harkalegri árás á Eystein lét Þórarinn svo um mælt, að það væri fyrst eft- ir að Eysteinn lét af for- mennsku, sem Framsóknar- menn hefðu gert tilraun til þess að móta einhverja stefnu í þjóðmálum. Að vísu hafa menn ekki orðið varir við árangur af þessari nýju viðleitni Framsóknarmanna en árás Þórarins er hins veg- ar glöggt dæmi um þá sundr- ung sem nú ríkir í röðum Framsóknarmanna. Þeir hafa ekki enn skilið hversvegna forsjónin hefur verið þeim svo andsnúin síðasta áratug- inn og líta á það sem brot á guðs og manna lögum, að Framsóknarflokkurinn hefur ekki átt sæti í ríkisstjórn í rúman áratug. Ástandið í þingflokki kommúnista kom einna skýr ast fram í ræðu Karls Guð- jórnssonar í Iok eldhúsdags- umræðnanna og mátti marka fremur af því, sem hann sagði ekki en hinu sem hann sagði. Allir talsmenn kommúnista í umræðunum eyddu nokkru af ræðutíma sínum til þess að vegsama hinn endurskipulagða komm- únistaflokk — nema Karl Guðjónsson. Hann minntist ekki einu orði á kommún- istaflokkinn í ræðu sinni og er það áreiðanlega engin til- viljun. Þessi þingmaður hef- ur um langt skeið verið í fullkominni andstöðu við þann flokk, sem hann situr á Alþingi fyrir og hefur ekki farið dult með það, m.a. með því að þverneita kjöri í hvers konar trúnaðarstöður á vegum flokksins. Þögn Karls Guðjónssonar í út- varpsumræðunum um komm únistaflokkinn er hávær stað festing á því, að afstaða hans hefur ekkert breytzt. Málefnaleysi kommúnista- flokksins kom fram með eft- irminnilegum hætti í ræðu formanns í umræðunum. Þar sem þetta var í fyrsta skipti, sem hinn nýi flokksformað- ur fékk tækifæri til þess að skýra stefnu flokks síns í áheyrn alþjóðar mátti ætla að hann gerði það, en svo reyndist eicki. Það eina sem formaður kommúnistaflokks- ins hafði fram að færa var nöldur yfir því, að hann hefði ek'ki fengið að koma fram í sjónvarpi. Raunar voru landsmenn áður búnir að fá nóg af þessum pöntun- um stjórnarandstæðinga um að komast á sjónvarpsskerm inn en út yfir tekur þegar slíkt kvein verður megin- efni í ræðu formanns stjórn- málaflokks. Þegar á heildina er litið verður því ljóst nú í lok erfiðs vetrar, að stjórnar- andstæðingar þjást af meira sundurlyndi og málefnaleysi en nokkru sinni fyrr. Þeir eru ekki enn komnir á það stig, að hægt sé að ræða al- varlega við þá um vandamál og verkefni, sem blasa við hinni íslenzku þjóð. GUNNAR GUNN- ARSSON 80 ÁRA Gunnar Gunnarsson, skáld, er áttræður í dag. Hann er einn mesti rithöfundur, sem ísland hefur alið. Verk hans eru þekkt meðal mennt aðra manna um víða veröld og gleggsta dæmið um það hve djúpum rótum hann stendur með þjóð sinni eru viðtökur þær, sem heildar- safn ritverka hans hafa hlot- ið meðal íslendinga — ekki sízt æskunnar. Gunnar Gunnarsson er einn þeirra manna, sem .stað- ið hafa vörð um frjálsa hugs- un á okkar tímum. Hann hefur verið áhrifamikill liðs- maður í þeirri baráttu, sem háð hefur verið gegn einræði og kúgun meðal manna og þjóða á þessari öld. Sú bar- átta stendur enn og kannski lýkur henni aldrei. Gunnar Gunnarsson hefur hafið merkið hátt í þeirri baráttu og mætti það verða æsku- mönnum íslands verðugt fordæmi. í tilefni af 80 ára afmæli Gunnars Gunnarssonar í dag er Lesbók Mbl. að mestu helguð honum og verkum hans. Mbl. sendir honum hlýjar árnaðaróskir á þessum merkisdegi og íslenzka þjóð- in hyllir mikinn rithöfund, sem aukið hefur hróður þjóðarinnar um víða veröld. FRIÐARTILLÖG- UR NIXONS ¥>ichard Nixon, Bandaríkja- forseti, hefur nú lagt fram ítarlegar tillögur um frið í Víetnam. Kjarninn í tillögum forsetans er sá, að Bandaríkjamenn og N.-Víet- namar dragi herlið sín til baka frá S.-Víetnam á næstu 12 mánuðum, undir alþjóð- legu eftirliti og síðan fari fram almennar kosningar í landinu með þátttöku Víet- cong. Hefur Bandaríkjafor- seti lýst því yfir að Banda- ríkin muni virða úrslit slíkra kosninga og séu reiðubúnir til samstarfs við þá ríkis- stjórn sem við völdum taki í S.-Víetnam að þeim lokn- um. Ekki er enn Ijóst hver við- brögð kommúnista í N.-Víet- nam verða við þessum tillög- um Bandaríkjaforseta en þó er ástæða til að ætla að þeir muni athuga þær vandlega og nokkrar vonir um að þær komi hreyfingu á friðarvið- ræðurnar í París, sem staðið hafa lengi en lítinn árangur borið. Um allan heim hljóta menn að vona, að tillögur Nixons leiði ti'l friðar í Víet- nam. Styrjöldin, sem háð hef ur verið þar í landi um langt skeið hefur legið sem mara á mönnum og afleiðingar henn ar fyrir land og þjóð í Víet- nam hafa verið skelfilegar. Þess vegna er það almenn krafa, að henni linni. Tiil- lögur Bandaríkjaforseta eru sanngjarnar og fullnægja því grundvallaratriði, að fólkið í Víetnam fái sjálft að ráða örlögum sínum. Þess vegna verður þess vænzt, að þeim verði vel tekið í Hanoi. tjifcgefandi H.f. Árvakur, Reykjavlk. Fnamkvæmdiaistj óri Haraldur Sveinsson. itifcstjórar Sigurður Bjamaaon frá Vigur. Mafcthías Jolxanníesslein. Hyjólfur Konráð Jónsson. Bitstj ómarMlfcrúi Þorbjöm Guðtaundsson-. Fréttaisitjóri Björn Jóhannsson). Auglýsingaistjóri Árni Garðar Kristtasson. Eitstjórn og afgreiðda Aðalsfcræti 6. Sími 10-100. Auglýsingaa? Aðialsirae'ti 0. Sími 22-4-80. Áiskriiftargj'ald kr. 190.00 á mánuði Innanlands. í lausasöiu: kr. 10.00 eintakið. V&J [ JTA iN Ú RH IEIMI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.