Morgunblaðið - 30.07.1969, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ,. MIÐVIKUDAGUR 30. JÚLÍ 106«
JtoigMttHiiftfr
"Últgieílandi H.f. Árvafcut', Reykjavik.
Fxamfcvæm,dastj óri Haraldur Sveinsaon.
•Ritstjórax* Siguröur1 Ejaœason frá Yigluir.
Matthías Johannesslen.
Eyj ólfur Konr áð Jónsson.
Eitstj ómarfulltrúi Þorbjörn Guð'naundsson,
Fréttaiatjóri Bjiöirn Jóhannsson’.
Auglýsingastj óri Árni Garðar Kristinsson.
Eitstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auiglýsingaii? Aðalstræti é. Sími 22-4-80.
Ásfcriftargjald kr. 150.00 á mánuði innanlands.
í lausasölu fcr. 10.00 eintakið.
AD BREGÐAST
Á ÖRLA GASTUND U
egar nú hefur gefizt hlé
í þeim stórviðrum, sem
geisað hafa í íslenzku efna-
hagslífi, fá menn tóm til að
líta yfir farinn veg, hyggja
að frammistöðu manna og
flokka meðan á mestu erfið-
leikunum stóð. Slíkir tímar
eru oft prófraun á manndóm
og heilindi og því ástæða til
að fólk geri nú upp hug sinn
til þeirra manna, sem með
málefni þess fóru, þegar
boðar og brim stefndu þjóð-
arfleyinu í bráðan voða.
Þegar menn líta til baka er
það deginum ljósara, að einn
flokkur sker sig úr um mann-
dómsleysi og ógæfulega af-
stöðu á örlagastundum. Þessi
flokkur er Framsóknarflokk-
urinn. Þegar þjóðinni var það
lífsnauðsyn að beita upp í
vindinn hljóp forysta Fram-
sóknarflokksins út undan sér,
sat í sínu horni og kyrjaði sín
sígildu öfugmælavers.
Á haustmánuðum, ér hinir
yfirþyrmandi erfiðleikar út-
flutningsatvinnuveganna
blöstu við sjónum, viður-
kenndi Framsóknarforystan
í öðru orðinu, að við
mikla og óhjákvæmilega erf-
iðleika væri að etja. Rík-
isstjórnin tókst á við vand-
ann með efnahagsráðstöfun-
um og þeirri gengisfellingu,
sem gera varð, ef horfast átti
í augu við raunveruleikann.
En Framsóknarforystan stakk
höfðinu í sandinn þegar á átti
að herða og hefur ásakað rík-
isstjórnina fram á þennan
dag fyrir „óþarfa skerðingu
gjaldmiðilsins“.
í vaxtamálum hefur Fram-
sóknarflokkurinn rekið ein-
hverja undarlegustu stefnu,
sem getur norðan Alpafjalla.
í öðru orðinu er fjargviðrazt
yfir verðbólgunni, en í hinu
er heimtuð vaxtalækkun, er
virka myndi sem hvati á
verðbólguna. Hækkun for-
vaxta er í öllum löndum eitt
fyrsta ráðið, sem gripið er til
gegn verðbólgu. Nægir þar að
nefna Bretland og Danmörku,
en þar voru forvextir þjóð-
bankanna nýverið hækkaðir
úr 6% í 9%, en almennir
vextir eru mun hærri. Ef
Framsóknarmenn fengju
nokkru ráðið myndu þeir
með vanhugsaðri „stefnu“
sinni kynda stórum undir
verðbólgunni.
í lánamálum er sama uppi
á teningnum. Framsóknar-
menn halda því fram, að rík-
isstjórnin beiti sér fyrir fjár-
magnsfrystingu, en þegar
þeir eru spurðir að því hvar
taka eigi fjármagnið til auk-
inna útlána, verður þeim
svarafátt. Helzt hefur mönn-
um skilizt að bæta eigi úr fjár
magnsskortinum með því að
prenta fleiri peningaseðla.
Þessi prentstefna Framsókn-
ar gæti þó riðið íslenzkum
gjaldmiðli að fullu og væri
sannarlegt óðs manns æði.
í kjaramálum sl. vetur op-
inberaðist tvískinnungur
Framsóknar þó betur en oft-
ast áður. Það var viðtekin
regla Framsóknarmanna á
Alþingi að eyða fyrri hlutan-
um af ræðutíma sínum í að
útmála erfiðleika atvinnufyr-
irtækjanna, en hinum síðari
var eytt í óábyrgari kaupkröf
ur heldur en nokkrir aðrir
höfðu uppi. Þegar í odda
skarst hvarflaði það hins veg
ar ekki að Framsóknarmönn-
um að láta samvinnufyrir-
tækin gera orð sín að veru-
leika, sem þeir höfðu þó
fyllstu aðstöðu til, ef hugur
fylgdi máli. Þóttust kommún-
istar vera illa sviknir af þess-
um orðræðum Framsóknar-
forystunnar, þegar til kast-
anna kom.
FRAMSÓKN OG
HEILBRIGÐ
SKYNSEMI
ll/|eð þennan ófagra feril
Framsóknarflokksins í
huga, þarf sannarlega engan
að undra þótt ástandið í her-
búðum hans sé upp á það
versta. í nærri áratug hefur
flokkurinn hamazt eins og
naut í flagi án nokkurs sýni
legs árangurs og stöðugt
hallar undan fæti fyrir
flokksforystunni. Flokknum
hefur aldrei tekizt að höggva
inn í raðir stjórnarflokkanna,
en þegar bezt lét tókst hon-
um með hentistefnu sinni að
reyta nokkur atkvæði frá
kommúnistum. Vinstra dað-
ur maddömunnar hefur þó
ékki borið meiri árangur en
það, að forystunni þótti
tryggast að bjóða þeim
Hannibal og Bimi Jónssyni
snarlega til sængur, áður en
þeir stofnuðu enn eitt vinstra
flokksbrotið.
Allt ber því að sama
brunni. Framsóknarflokkur-
inn hefur á engan hátt reynzt
THOR Heyerdahl og sex æv-
intýramanna áhöfnin hans af
„Ra“ er komin á þurrt land
í Barbados. Þar tóku eigin-
kona Heyerdahls, og þrjár
dætur, Bettina, Marian og
Annette á móti þeim.
Norsfci vísindamaðurinn og
áhöfn hans urðu, sem kunn-
ugt er að hætta við tilraun
síns til þess að sigla yifir Atl-
antslhafið á papyrusbátnum.
í þá tvo mánuði, sem ferð-
in stóð yfir, hrepptu þeir
óveður og hvers kyns óhöpp.
Þeir reyndu að gera við
skemimdir, sem þeir höfðu
orðið fyrir um borð í fylgi-
slkipi sínu, en urðu að lokum
að yfirgefa bátinn vegna
ágangs hákarla.
Heyerdahl og áhöfn hans um borð í fylgiskipinu Shenandoah. F. v. rússneski læknirinn Yuri
Senkenevitch, Egyptinn Georgge Sourial, Heyerdahl, Mexíkaninn Santiago Chabes, ftalinn Carlo
Mauri, siglingafræðingurinn Norman Baker og Abdullyae Djilrima frá Chad-Iýðveldinu.
Heyerdahl ásamt konu sinni og dætrum á Barbados. Siglingafræðingur hans til hægri.
- TUNGLLENDING
Framhald af bls. 3
hefði of mikið að giara. Ástæð
una fyrir þesisium mismium er
að finraa í sérstöku rafeinida-
lagu fyrirbrigðd sem befur
truiflandi áihráf á störtf töliv-
unmar. Ef til hefði koimíð, að
töivain hefði bruigðiat, mynidi
hún haifa spóiað tiil baka og
byrjað aftur á upplhafjmu og
hefði þá aliit farið út uim þúf-
ur.
Bftir að létt baifðii verið á
tölvunni senidi hún áfram
öðru hverj'u aðvöiruiniairmierki,
en stjóiriniuniairmönmum tókst
að halda öliu í horifimu þann-
ig, að töiivan gat haldi'ð áfram
að senda tungferjun.a í átt að
yfirborði tunigteinis unz hún
loiks lenti öllum til mikils létt-
is.
Eiginkonur geimfaranna voru glaðar í bragði, er þær hittu menn sína við komuna til Houston,
þó að þar væri þykkur giuggi á milli og þær yrðu að taia við þá í síma.
megnugur að valda lýðræðis-
legu hlutverki sitærsta stjórn
arandstöðuflokksinis. Hann
hefur reynt að tæla þjóðina
fram af hengibrún með villu
ljósum sínum. Málflutningur
hans er margþvælt og þver-
sagnakennt slagorðaskvald-
ur. Framsókniarflokkurinin
hefur fallið á prófraun sinni,
hann misbauð heilbrigðri
skynsemi.