Morgunblaðið - 12.08.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.08.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. ÁGÚST 11909 * 3 Olíu skvett á Þjóðliátíðarbáli®. Bálkösturinn var eins og þrigg ja hæða hús. (Ljóam. Sigurgeir) Þjdðhátíðin fauk, en fdlkið náði henni aftur Herjólfsdalur kúrði í þoku og roki huldubœr — „þrátt tyrir böl og al- heimsstríð, þá var haldin Þjóðhátíð" Föstudagurinn rann upp. Dumbungaveðu'r, en milt. Að- 'feomufóllk streytmdi til Eyja flugleiðis og sjóleiðis. Hátíðin skyldi -eett í Herjálifsdal kl. 14. Um hádegisbil lyftist brún in á mönnuim, því þá lyiftist þokuslæðan af fjallatoppum og sól rákaði Eyjairnar. — SkyQidá Þj óðlhá tíðarveðrið vera að kama?“ spurðu menn. Lúðrasveit Vestmannaeyja kwn mansérandi inn í Her- jólfsdal undir stjóm Martins Hunger laust fyrir hátíðar- setningu og þá var hátíðin sett af fonmanni Týs, Sturlu JÞorgeirssyni. Síðan var guðs- þjónusta í Dalnum og þá fóru fram íþróttir og ýrnás atriði önnur. En þjóðhátíðarveðrið gaifet eikki ag síðari hluta föstudags gatf í vindinn og skúraský læddust ytfir. Fólk sat í tjöldum sínum yfir kaffi bolla og veitimgum, sömg og spjallaði saman í spafklegri ró, bíðandi eftir kristilegu hátíð- arveðri. Bjargsigi varð að fresta vegna vindstrengja við bergsniasir. Á föstudagskvöldið átti að vera fjölbreytt skemmtidag- dkrá á leilksviði Dalsins og hófst hún með því að hljóm- sveitin Dúmbó og Guðlmundur Haukur léku Þj óðhátíðariagið 1969, en lagið er eftir Þorgeir Guðmiundsson Ærá Háagairði og ljóðið við lagið heitir Draum- blóm Þjóðhátíðarnætur og er einmig eftir Eyjaskeggja. Var lag þetta síðan kyrja-ð út í gegnuim hátíðahöldin af Dúmbó, sem stóð sig með mik Framhald á bls. 17 ÞJÓÐHÁTÍÐ Vestmanna-eyja var haldin um síðustu helgi, en aðalhátíðisdagarnir eru þrír, föstudagur, laugardagur og sunnudagur. Að vanda var mjög mikill undirbúningur fyrir hátíðina, skreytingar, fjölbreytt dagskrá o. fl., en í ár sá íþróttafélagið Týr um há tíðina. Segja má að Þjóðhátíðin hafi fokið að þessu sinni, því að stormveður og rigning gerðu það að verkum að mikil röskun varð á hátíðinni og varð hún ekki svipur hjá sjón miðað við venjulega. Aðfaranótt laugardags var stormveður í Herjólfsdal og flúðu þá margir dalbúar með hafurtask sitt inn í bæ og fengu inni í verbúðum frysti- húsanna og heimahúsum. Ekki var þó gefizt upp við svo búið og voru hin margþættu þjóð hátíðaratriði tínd saman svo sem kostur var og raðað sam an eins og púsluspili. Þó nokkra myndarhluta vantaði, en fólkinu kom yfirleitt sam- an um að úr því yrði bætt á næstu Þjóðhátíð. Það sýnir nokkuð seiglu Þjóðhátíðargesta að ekkert að komufólk hélt frá Eyjum aft ur fyrr en síðari hluta sunnu dags og margir sem átt pant- að með flugi á sunnudag létu flytja sig á flugskrá mánu- dagsins. Strax á firmntudag var komi'n þj óðh á t í ða rst eimim n i n g í Eyjum. Tjöldun vair leyifð í Herjóltfsdal kl. 13 á fimmtu- dag og flyklktu-st Eyjaislkeggj- ar þá með húetjöld sín og tjöilduðu við þair til gerðar göt ur í grösuguim dalnum og báru þær hin ýmsu nöfn, svo sem Ástarbrgut, Veltuisund, Þórs- og Týsgata Aðkomuifólk tjaldaði tjöldum sinum í út- hvetr'fuim dalsins, en svo er kallað það svæði sem er fyrir utan gatniaislkipulag Þjóðhá- tiðairinnar Menn drifu snarlega upp tjaldgrindurnar, settust s-íðan á rökstóla og fleygum sást bregða fyrir Um kvöldið voru dansil'eiki-r í bæ-nurm og fjöríð var að byrja Veðurútlit var éklki gott og menn voru með ýrosar bolla'leggingar um veð urspár. Flestiir voru bjartsýn ir. Vörubílarnir, sem venjulega eru notaðir til þess að aka fiski, eru púss-aðir upp fyrir Þjóðhá tíðuia og klætt er yfir pallinn með seglum og síðan er Þjóð hátíðargestum ekið í Dalinn í þessum þriggja daga strætisvögnum. fc TEAK - ÁLMUR PALISANDER EF ÞÉR FINNIÐ AÐRA STERKARI ÞÁ KAUPIÐ ÞÁ Bólstrun Hurður Péturssonur Laugavegi 58, sími 13896. STAKSTEINAR „Ánægjan í ágúst“ Fréttamenn kvarta gjaman fréttaleysi á sumrin, þegar stjórn málamenn eru í fríum og lítið gerist markvert. Hér verður birt það, sem nýlega birtist í brezka blaðinu „The Guardian“ um á- standið í ágúst: „Með afsökunum til T.S. Eliots heitins, sem valdi apríl, þá er ágúst grimmilegasti mánuðurinn. Ar eftir ár, þegar júlí loksins lýkur, heyrast kveinstafir úr fréttastofnunum þjóðarinnar, sem bergmála næsta morgunn við ótal morgunverðarborð, um að ekkert sé í blöðunum. Þeir segja, að í ágúst gerist varla nokkur hlutur. Ríkisstjórnin er í útlegð á Scilly-eyjum. Fólkið flykkist út á þjóðvegina. Skjalaverðir leggja undir sig valdasetrin í ár- legri hreingemingu. En þó, hvers vegna heldur þessi þjóð- trú velli? Ágúst er framar öllum mánuð- ur stríða og orðróms um stríð. Á þessari öld er varla unnt að finna það stríð eða meiriháttar innrás, sem ekki hófst í ágúst, allt frá fyrri heimsstyrjöldinni til innrásarinnar í Tékkóslóvak- íu á síðasta ári, eða frá stríðinu milli Indverja og Pakistana (1965) til kínversku innrásarinn ar á norð-austurlandamæri Ind- lands (1959). í ágúst 1964 átti sér stað atburðurinn á Tonkin- flóa, sem Johnson .forseti, notaði sem forsendu til að fá samþykki fulltrúadeildarinnar til beinna og stórfelldra hernaðaraðgerða í Víetnam. í ágúst 1939 var griðar sáttmálinn gerður milli Nazista og Rússa, sem hafði strax í för með sér innrásina í Pólland og upphaf seinni heimsstyrjaldarinn ar. Fyrstu kjamorkusprengjunni var varpað í ágúst 1945. Berlínar múrinn var reistur í ágúst 1961. Og fyrir sagnfræðingana, þá hef ur ágúst ekki aðeins orðið stríðs óður á þessari öld. Hvað um ágúst 1642 (upphaf borgarastríðs 'ins á Englandi) og í ágúst 55 f. Kr., þegar Júlíus Cesar réðst fyrst inn í Bretland? Og við höldum áfram til þessa árs. Hvaða svæði virðast helzt vera í stríðshættU árið 1969? Mið- austurlönd virðast því mið ur enn hafa mestar sigurlíkur, ásamt Tékkóslóvakíu og landa- mærum Kína og Rússlands, þar sem mögulegt er að upp úr sjóðL Ekki má horfa fram hjá Rúmen- íu og Perú, og skyndileg óstöðv- andi árás frá Marz gæti komið okkur öllum að óvörum. Að sjálf sögðu er bezt að halda áfram eins og ekkert sé. Leyfa ríkis- stjóminni að fara í útlegð á Scilly-eyjum og okkur hinum að troðfylla þjóðvegina og strend- urnar Ekki vegna þess, að það eru engar fréttir í ágúst, heldur aðeins til að losna við þær.“ Á „friðarþingi" Margir velta því nú fyrir sér og ekki að ástæðulausu, hvers eðlis umræðumar á „heimsfriðar þinginu“ í Austur-Berlín hafi verið. Þrír þeirra íslendinga, sem sóttu og hafa skýrt frá þátttöku sinni í því, flytja ekki beinlínis friðarboðskap. Þeir keppast þvert á móti við að lýsa því, að þeir hafi fundið ákveðnar „for- sendur" fyrir innrás Varsjár- bandalagsins í Tékkóslóvakíu á þinginu. Næsta verkefni þessa fólks verður væntanlega að finna betur viðeigandi nafn á þetta þing sitt. Annars sýnir núverandi nafn þessa þings glöggt, hvemig kommúnistar reyna alls staðar að fela sitt rétta andlit á bak við blekkingarvef. Þeir vita manna bezt, að málstaður þeirra þolir varla dagsljósið. En áróðursmeist urum þeirra mistekst herfilega, þegar þátttakendur í „friðar- þingi“ koma þaðan sannfærðir um réttmæti og nauðsyn striðs- aðgerða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.