Morgunblaðið - 04.02.1970, Side 11
MORGUNBLAÐIB, MIÐVIKUDAjGUR 4. FEBRÚAR 1970
11
Batnandi horfur í bókasölu
Rætt við nokkra útgefendur um
útkomu „jólavertíðarinnar44
Þegar bókaútgefenður gerðu
upp reikninga sína á s.l. vetri,
mun það hafa komið í ljós, að
mikill samdráttur hafði orðið í
bókakaupum fólks fyrir þau jól.
Segja sumir útgefendur að hann
hafi orðið allt að 50%, en aðrir
nefna aðrar tölur og lægri, —
fáir fara þó undir 30%. Kom
greinilega í Ijós, að samdráttur-
inn varð mestur í þeim kaup-
stöðum og kauptúnum þar sem
atvinnuástandið hafði verið
slæmt og launatekjur fólks
minnkað. Er það sönnun þess, að
það er allur almenningur sem
kaupir bækur, en ekki einhver
útvalinn hópur.
En þótt miður gengi, og marg-
ir útgefendur fylltust svartsýni
er þeir gerðu upp reikninga
sína, létu þeir ekki deigansíga,
og útgáfustanfsemin nú fyrir jól
in mun hafa verið mjög svipuð
og áður — sízt minni. En útgáf-
unni var hagað á nokkum ann-
Bin veg ein áðwr. Upphaf 'bólkamma
var minnkað til muna og þar af
leiðandi hækkaði verð þeirra
nokkuð. Tilkostnaðarhækkun
hafði einnig orðið mikil á árinu,
og má raunar furða heita að
bækur skyldu ekki hækka meir
en naun bar vitni.
Og nú er aftur komið að upp-
gjörinu. Reyndar verður því
ekki endanlega lokið fyrr en í
marz, en línumar eru famar að
skýrast. Mbl. hafði því samband
við nokkra útgefendur og spurð
ist fyrir um hvernig hefði geng-
ið hjá þeim. Auk þess var svo
ætlunin að reyna að komast að
því hvaða bækur hefðu selzt
mest fyrir síðustu jól. En bæði
vair að ekki náðist í alla útgef-
endur, og þeir voru ekki tilbún
ir að gefa upp tölur fyrtr en
verzlanimar hefðu lokið upp-
gjöri sínu. Ljóst er þó af um-
mælum þeirra að talin er góð
sala í bók er selzt hefur í 2000
einitökum, og fáar bækur náðu
þeimri tölu.
SÝNU SKÁRRA EN f FYRRA
Geir O. Björnsson hjá Bóka-
forlagi Odds Bjömssonar á Ak-
ureyri sagði:
— Eftir því sem ég bezt veit
hefur gengið sæmilega hjá okk-
ur að þessu sinni. Alla vega er
mér ólhætt að segja að betur
gekk nú en í fynra, enda það
sennilega óhagstæðasta árið í
sögu bókaútgáfu á íslandi. Ég
reikna með að þá hafi samdrátt-
urinn orðið um 50%, a.m.k. í
Reykjavík.
— Hvaða bók seldist bezt hjá
ykkur?
— Það mun hafa verið skáld-
sagan Gullna farið eftir Arthur
Hailey. Ættbók og saga ís-
lenzka hestsins eftir Gunnar
Bjamason seldist einnig ágæt-
lega, þrátt fyrir að það værj
mjög stór bók, og þar af leið-
andi nokkuð dýr.
VOLVAN S'ELDIST UPP
Oliver Steinn forstjóri bóka-
útgáfunnar Skuggsjá í Hafnar-
firði sagði að þetta yrði senni-
lega þolanlegt ár. — Það gekk
hvorki vel né illa, sagði hann.
Oliver sagði eninfremur að árið
í ár mundi verða betra en í fyrria
og ánægjulegt væri til þess að
vita að sú óheillaþróun sem þá
virtist hafin skyldi stöðvast. —
En það var eins og útgefendur
vildu ekki trúa því í fyrna að
bókasalan myndi minnka og þá
gerðu þeir ýkki nauðsynlegar
ráðstafanir. Ég hygg hins veg-
a<r að flestir hafi nú minnkað
upplög bóka sirrna og búið sig
undir minni sölu en vair á beztu
árunum, sagði Oliver.
Aðspurður um beztu sölubæk
ur Skuggsjár sagði Oliver:
— Bókin Völva Suðurnesja
seldist alveg upp hjá forlaginu.
í»á er alltaf góð sala í bókum eft
ir Theresu öharles — hún á
sinn fasta lesendahóp, Bækum-
air Sigurjón á Garðari og umPét
ur Ottesen seldust einnig þokka
lega. Ég varð hins vegar fyrir
nokkrum vonbrigðum með söl-
ima á þeim íslenzku skáldsögum
sem ég gaf út. En að lokum vildi
ég svo geta þess að mér finnst
vænt um þann mikla áhuga sem
kemur fram um Islendingasög-
umar, gem ég er að gefa út. Þær
eiga greinilega vaxandi vin-
sældum og stækkandi lesenda-
hópi að f agna.
EF TIL VILL HEF ÉG
ORÐIÐ AFSKIPTUR
— Maður veit ekki svo glöggt
um útkomuma ennþá, sagði Guð-
mundur Jakobsson í Ægisútgáf-
unni. — Ég ©r samt hræddur
um að hún varði lítið betri en í
fyrra, en þá vair hún sannast
sagna heldur óglæsileg. Ef til
vill hef ég bara orðið eitthavð
afskiptur að þessu sinni. Nú er
farið að tíðka það svo mikið að
ganiga í hús og selja bækur, og
er ekki ósennilegt að sú sala
driagi nokkuð úr hjá manni.
— Hvað va<r bezta sölubók
forlagsins?
— Ætli það hafi ekki verið
bókin Mennimir í brúnni. Hún
gekk sæmilega.
HLUTUR ÚTGEFANDANS
MINNKAR
Baldvin Tryggvason fram-
kvæmdastjóri Almenna Bókafé-
lagsins, sagði að salan hefði
gengið mjög sæmilega hjá félag
inu s.l. ár, — hefði alls ekki ver
ið verri en við var búizt. — En
þess ber að gæta, sagði Baldv-
in, — að verðlagning á bókum
er nú miklu lægri en verið hefur
undanfarin ár, ef miðað er við
útgáfukostnaðinn, þannig að
hlutur útgefandans verður ekki
eins góður og skyldi.
Aðspurður um beztu sölubæk-
ur A.B. sagði Baldvin:
— Sú bók sem seldist í flest-
um eintökum hjá okkur á s.l. ári
mun hafa verið Um daginn og
veginn eftir Jón Eyþórsson. Þá
hefur sala á skáldverkum Guð-
mundar Kambans gengið mjög
vel. Hvað öðrum íslenzkum
skáldverkum viðkemur þá var
góð sala í bók Guðmundar Hall
dóinsisianiar, Umdir Ijáisáms egg, og
í bók Guðnýjar Sigurðardóttur,
Dulin örlög. Þær tvær ljóðabæk
ur sem við gáfum út, eftir ungar
skáldkonur, fengu einnig ágæt-
ar viðtökur. Þær munu hafa
selzt í 590—600 eintökum.
GEFUM MINNA ÚT
— Það eir skemmst frá því að
segja að það hlýtur að koma við
bókakaup eins og önnur við-
skipti þegar kaupmáttur fólks
minnka,r almennt, sagði Arbjörn
Kristinsison framkvæmdastjóri
Setbergs. — Bókasala hefur því
minnkiað verulega þrjú síðustu
misseri. Við þóttumst sjá þá þró-
un fyrir og höfum því dregið
saman útgáfustarfsemina.
— Hvaða bók seldist bezt hjá
Setbergi?
— Þalð var án affls eifa bók
Gylfa Gröndals um Róbert
Kennedy.
ÖFUGÞRÓUN
Valdimar Jóhannsson hjá Bóka
úitgiááúminá Iðiummi, saigðiisit vena
búinn að gefa út bækur í 25 ár.
— Þróunin á þessum árum hefur
verið heldur skuggaleg, sagði
Valdimar, — svo skuggaleg að
manni fallast eiginlega hendur.
Fyrir nokkrum árum var mjög
algengt að bækur seldust í 2500
eintakia upplögum, en ef slíkt
kemur fyrir núna er það talin
bárniarkissialia. Um það hvem-
ig útlkioimam. verðiur að þessu
sdinmá er eiklki gotit um að
segjia emmiþá. Em miér heyr-
ist hlj'óðið ver'a þammiig í bók-
söliumium að þeir hafi einigan
veginn náð þeinri aukningu í
krónutölu sem svaraði til al-
mennra verðhækkania á bókum.
Ég gæti því trúað að einlhver
samdráttur hefði orðið frá ár-
inu í fyrra, en þá varð mjög
mikill samdráttur frá árunum þar
á undan. Einkum virðist bóka-
sala minmlkamidli í Reylkljlaivik.
Greinilegt er að útgerðarstaðir
úti á landi, þar sem atvinna var
nægjanleg á síðasta ári halda
fullkomlega sínum hlut.
— Hvaða iðunmarbækur seld
ust bezt fyrir jólin?
— Það er ekkert leyndarmál
að lang beztu sölubækur forlags
ins undanfarin ár hafa verið
bækur eftir Alistair Maclean, og
munu þær seljast flestum bók-
um betur. Þó hygg ég að Hetj-
urnar frá Navarone hafi ekki
selzt eins vel og fyrri bækurn-
ar. Bezta íslenzka sölubókinhjá
mér í ár var Vér íslands börn
eftir Jón Helgason ritstjóra.
ÚTGEFENDUR EFNI TIL
ÞINGHALDS
Hjá Bókaútgáfunni Öm og Ör
lygur varð Örlygur Hálfdánar-
son fyrir svörum. Hann stað-
festi, að bókasala hefði greini-
lega orðið meiri fyrir síðustu
jól en hún varð fyrir jólin þar
á undan. Hann sagði, að bóka-
útgáfan ætti þó almennt í vök
að verjasit og heildarþróunin
væri sú, að bókasala færi minnk
andi þótt útkoman væri misjöfn
milli ána. Þá vék hann að þeinri
útbreiddu skoðun, að bækur
hlytu að lækka í verði í sam-
bandi við niðurfellingu tolla á
pappír, nú á næstunni, en hann
sagðist ekki sjá betur en að bæk
ur myndu samt hækka. Því ylli
söluskattshækkunin, sem væri
miedri heldair em toiMiailiæiklkiuinim.
— Norðmenn hafa, sagði örlyg
ur, — fellt niður bæði söluskatt
og hinn nýja meirvirðisshatt af
bókum, þar í landi. Þeir segja,
að Noregur sé svo lítið málsam-
félag, að bókaútgáfa sé lífsnauð
synlegt menningaratriði. Þetta
e.r þó nokkurra milljón’a þjóð.
Hvað þá um íslenzka málsam-
félagið, er því ekki nauðsyn á
íslenzkri bókaútgáfu?
— Bezta sölubók okkar var
Björgunar- og sjóslysasaga fs-
lamds, Þrautgóðir á raunastund,
eftir Steinar J. Lúðvíksson. Bók
Frímanns Helgasonar, Frarn til
orustu, seldist einnig mjög vel
og hið sama má segja um bók
Birgis Kjarans, Skaftafell —
Þingvellir.
Að lokum sagði Örlygur: Ég
vil að lokum leggja til að útgef
endur efni til þinghalds með
hækkandi sól og ræði þar fram-
tíð íslenzkrar bókaútgáfu, það er
löngu tími til kominn að farið
verði að ræða vandamálin af
alvöru.
VARÐ EKKI VAR VH>
SAMDRATT
— Það er gott hljóð í mér,
sagði Guðjón Ó. Guðjónsson, —
salan gekk ágætlega og ég varð
ekki var við neinn samdrátt,
ekki heldur í fyrra. Ég held að
salan hafi verið betri hjá mér
nú en þá, jafnvel þótt sjónvarp-
ið hafi ekki tekið mig með þegar
rætt var við útgefendur. Það hef
ur það vafalaust gert vegna þess
að ég er búinn að fást við bóka-
útgáfu í 50 ár. Þeir slepptu líka
ísafold sem er elzta útgáfufyrir-
tæki á landinu.
— Roðskinna eftir Stefán
Jónsson var bezta sölubókin
okkar í ár, en aðrar bækur
gengu líka ágætlega.
ALLTAF HREYFING
— Þetta var ágætis ár, sagði
Gissur Eggertsson er rekur bóka
útgáfurnair Fróða og Norðra. —
Ég gaf reyndar minna út af nýj-
um bókum en oft áður, en þess
meina af endurútgáfum. Ég
reyndi að stilla verði bókanna í
hóf og kostuðu þær yfirleitt
350—365 kr. og barnabækurnar
voru innan við 200 kr. Það má
ef til vill segja að þetta sé of
lágt verð. Nú stendur til að
fella niður tolla af pappír, en
því miður tel ég að bækumar
lækki ekki við það, þar sem
söluskattshækkun kemur á móti.
■— Baimiabæfcuimiair voru beztu
sölubækumar hjá mér, og segja
má að þær seljist töluvert fyrir
utan jólamarkaðinn. Ég afgreiði
frá mér bækur alla mánuði árs-
ins meiira og minna. Sumar end-
urnútgáfúimiar hreyfast aMtaf
töluvert eins og t.d. Ritverk Jón
asar Jónssonar frá Hriflu, Snjó
flóð og skriðuföll eftir Ólaf
Jónsson, Gönguir og réttir,
Sagnaþætti'r landpóstanna, Ljóð
mæli og leikrit eftir Pál Árdal
og Listaverkabók Ríkarðar
Jónssonar.
Sœlgœtisverzlun
Sælgætisverzlun með kvöldsöluleyfi til sölu. Góður lager,
nýleg tæki.
Upplýsingar veitir (ekki í slma).
RAGNAR TÓMASSON, HDL.,
Austurstræti 17 (Silli og Valdi).
Atvinnurekendur
Ungur vel menntaður maður, sem talar bæði ensku og
sænsku, skilur vel dönsku og norsku og er þaulvanur af-
greiðslustörfum, óskar eftir góðri atvinnu sem fyrst, margt
kemur til greina.
Tilboð sendist afgreiðslu Morgunblaðsins fyrir laugardag
merkt: „Reglusamur — 3884".
Sendisveinn
óskast allan daginn, eða eftir samkomulagi.
Fiskifélag Islands