Morgunblaðið - 19.08.1970, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÍWJKUDAGUR 19. ÁGÚST 1970
HVERFISGÖTU 103
VW Sendiferðabifreið-VW 5 manna-VW svefnvagn
VW 9manna-Landrover 7manna
Bílaleigan
UMFERD
Simi 42104
SENDUM
«■
Okukennslo
GUÐJÓN HANSSON
Simi 34716.
BÍLAR
1967 Rambler Classic 4ra dyra
eirKkabffl í atgjörum sérftokki.
Ekinn 30 þ. m. Skipt’i möguleg.
1967 Peugeot 404 nýinnfiuttur.
(eðurklæddur.
1966 Opel Kadett Fastback
fattegor bíl og mjög góöur.
1966 Volvo Amazon 2ja dyra.
1967—9 Opel Rekord nýinnfl.
1968 Taunus 17-M Station
nýinrrfiuttur.
1970 Cortina 2ja dyra.
1964 M-Benz 220-SE. BíM í sér-
ftokki. Hagstæð lén.
1967 Rússa jeppi með bús'i.
1967 Fiat 600T sendibíH.
VIÐ SELJUM ALLA BÍLA.
Skúlagata 40 — 15-0-14, 1-91-81.
3-Símar 38900
38904 38907
BILABUÐIH
Ch&vrolet Impala '66
Vauxha’W Victor '63 og '68
Vaiuxball Vetox '63
Scout '66 og '67
Opel Caravan '60 og '62
PMC Gtonia '66 og '67
Toyota '67
Dodge Dart '66
C om mer Cuto '63
Taunus 12 m Station '62
Renauílt R8 '64
Raimbter Classic' 65 og '66
Rambter American '65 og
'67
Tawus 17 m 4ra dyna '67
Taiumius Tram®it semdii-
fenöaibffl '67
UAZ 452 sendiiferðab. '67.
0 Skilvísi þökkuð
Sendiherra Frakka á íslandi,
Philippe Benoist, hefur sent
Velvakanda afrit af bréfi, sem
hann skrifaði hótelstjóranum í
Hótel Reynihlið í Mývatnssveit
(Skútustaðahreppi) í síðustu
viku. Bréfið er svohljóðandi:
„Reykjavík, 12. ágúst 1970.
Herra hótelstjóri!
Stjórn gistihúss yðar var svo
elskuleg að senda hingað í
sendiráðið veski, sem landi
minn, hr. Olivier Goeau-Briss-
onniere, týndi, er hann var á
ferðalagi í Mývatnssveit. í
veskinu var nafnskírteini hans
og 7.900,00 krónur íslenzkar í
seðlum.
Ég vil þakka yður fyrir
Ibúð í Hafnarfirði
Til sölu rúmgóð 3ja til 4ra herbergja íbúð á meðri hæð í tví-
býlishúsi á góðum stað við Álfaskeið.
Söluverð 1050 þúsumd krómur, útborgun 400—500 þús. kr. —
Teppi á stofu.
Árni Gunnlaugsson, hrl.,
Austurgötu 10,
Hafnarfirði.
Sími 50764 kl. 9.30—12 og 1—5.
Raðhús — einbýlishús í Knpavogi
5—6 herb. raðhús eða einbýlishús óskast til
leigu í 1 ár.
Upplýsingar í skrifstofunni.
ROLF JOHANSEN & CO.,
Laugavegi 178.
Sími 36840 og 37880.
Falleg
SÆTAÁKLÆÐI
og mottur
í alla bíla
tA' Auðvelt að þrífa.
★ Verð við allra hæfi.
Fljót afgreiðsla.
niTiKnBúflin
FRAKKASTIG 7 SIMI 22677
þessa sendingu og óska yður
innilega til hamingju með það
að hafa svo heiðarlegt starfs-
lið, því að slik ráðvendni er
þvi miður sjaldgæf í heiminum,
þótt hún sé ef til vill eðlileg á
Islandi og hinum Norðurlönd-
unum.
Virðingarfyllst,
Philippe Benoist,
sendiherra Frakka
á íslandi."
0 Umhverfi
Leifsstyttunnar
„Austurbæingnr" skrifar:
„Umhverfi Leifsstyttunnar á
Skólavörðuhæð fékk snyrtileg-
an bráðabirgðafrágang fyrir
nokkrum árum, en áður hafði
Leifur verið svo óheppinn, að
þeir, sem báru ábyrgð á stytt-
unni (hún er ríkiseign), höfðu
gleymt að ganga forsvaranlega
frá umhverfi hennar. — Úr
þessu bætti okkar röggsami
borgarstjóri og garðyrkjustjóri
hans. — Nú fór svo illa s.l. vet
ur i öllum snjómokstrinum
þarna á hæðinni, sem ýtur fram
kvæmdu, að lág og snotur tré-
girðing umhverfis svæðið hef-
ur farið úr skorðum á nokkr-
um stöðum, þ.e.a.s. trébönd
hafa brotnað. — Nú vorum við
nágrannar Leifs að vænta þess,
að menn garðyrkjustjóra
mundu kippa þessu í lag, um
leið og þeir gróðursettu plönt-
ur i beðin í svæðinu — eftir
verkfallið í sumar. Þetta gerð-
ist því miður ekki, og því er
réttum aðilum bent á þetta.
Mannvirki þurfa eftirlit og við
hald, til þess að þau þjóni vel
hlutverki sínu. Mannvirki í nið
urníðslu eru leiðigjörn og út-
litsspillandi. — Sameignir okk
ar borgarbúa þyrftu og ættu að
vera undir bæði góðu og reglu
legu eftirliti. — Vonandi fær
nefnd girðing lagfæringu nú í
sumar. — Ög í leiðinni: Sökk-
ullinn undir Leifsstyttunni er
þvi miður oft misnotaður (sem
W.C.), og nú i marga mánuði
hefur hann verið útbíaður í
fernis eða öðru þvíliku, sem
ekki rignir burtu — eins og
hitt. Eigum við sjálf að sætta
okkur við þetta lengur og
bjóða erlendum gestum okkar
upp á þessa sjón? Eins og áð-
ur getur, eiga landsmenn allir
(ríkið) þessa styttu. — Hverj-
um höfum við trúað fyrir um-
sjón með þessari sameign
okkar? Vill sá hinn sami ekki
bregða skjótt við og láta
hreinsa makið af styttusökkl-
inum, en til þess þarf líklega
vandvirkan steinsmið. —
Austurbæingur."
Q Ekki eingöngu tak-
mörkun á fiskmagni
Loftur Júlíusson skrifar:
„Kæri Velvakandi!
1 sambandi við bréf Islend-
ings í Sviþjóð í dálkum þín-
um, sem vill fá íslenzkan fisk
á matborðið, og svar forstjóra
Sölumiðstöðvar hraðfrystihús-
anna þ. 12. þ.m., langar mig til
að leggja nokkur orð í belg.
Að ísl, fiskur sést ekki á
sænskum fiskmörkuðum, tel ég
ekki vera eingöngu vegna tak
mörkunar á fiskmagni i sjónum
hér í kringum landið, borið sam
an við afla ýmissa annarra
þjóða, eins og forstjóri S.H. vill
halda fram. Fremur tel ég ástæð
una vera vegna samdráttar í
bolfiskveiðum á þeim árum, sem
síldveiðar hér við land voru I
hámarki. Svéiflur í sjávarafla
eru vel þekkt fyrirbæri meðal
fiskveiðiþjóða og núna, eftir að
síldin hvarf af nálægum mið-
um og fjöidi minni síldarbáta
hefur snúið sér að botnvörpu-
veiðum, hefur orðið mikil og
vaxandi aukning í bolfiskveið-
um.
Þó að sjálfsagt og rétt sé að
skjóta fleiri og öruggari mátt-
arstoðum undir okkar litla þjóð
félag, megum við ekki draga
svo mikið úr sjávarútvegi okk-
ar að hann sé alltaf í lágmarki,
jafnvel svo mikið, að sumar
greinar hans þurrkist alveg út.
Tökum t.d. togaraflotann okk-
ar sem nú er að syngja sitt síð-
asta lag vegna aldurs. Þetta
eru fleyturnar, sem selja afl-
ann í Englandi og Þýzkalandi
fyrir 3—5 millj. kr. í ferð. Þetta
eru einnig skipin, sem halda líf
inu í hraðfrystihúsum Reykja-
víkurborgar, Akureyrar og
Hafnarfjarðar. Þennan flota
þurfum við að endurnýja og
margfalda og það strax. Það er
engin meining í. að láta út-
lenda togara moka upp ís-
lenzka fiskinum hér úti í út-
köntum okkar grunnsvæða. Við
eigum að gera það sjálfir á ný-
tízku skipum, og þá fyrst er
hægt að bjóða Islendingum í
Svíþjóð og í öðrum löndum næg
an íslenzkan, ómengaðan fisk á
disk.
Með þökk fyrir birtinguna.
Loftur Júlíusson."
Framkvœmdastjóri
Kaupmannasamtök Islahds óska eftir að ráða framkvæmda-
stjóra fyrir samtökin.
Æskilegt er, að viðkomandi hafi viðskiptafræðimenntun eða
verzlunarskólamenntun og áhuga á viðskipta- og félagsmálum.
Umsóknir, er tilgreini menntun, fyrri störf og aðrar nauðsyn-
legar upplýsingar, sendist til formanns Kaupmannasamtakanna,
Marargötu 2, fyrir 1. september næstkomandi.
Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál.
Stjórn Kaupmannasamtakanna.