Morgunblaðið - 19.08.1970, Side 6

Morgunblaðið - 19.08.1970, Side 6
6 MORGUKBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 1970 TÚNÞÖKUR til sölo. Heimkeyrt. Sími 99-3713. KEFLAVlK — SUÐURNES Ung bamlaius t>jón 6&ka eftir að taika á tehgiu eins tíl tveggija 'heribengija íbúð. — Upplýsi'ngar í síma 1612. ÞRJÁR MÆÐGUR utan aif lamd'i ásika eiftir þniggija henbengija !búð, helzt sem næsit Kenmarasikóilamuim. Upplýsingair í síma 35644 eftr lol. 5. VANTAR 350 ÞÚSUND KR. lán giegn önuggri tryggingiu. T»#boð sendiiist í afgmeiðsliu Morgwrvbl. mienkt „4201" fyrir 25. þessa mánaðar. HEY TIL SÖLU Upplýsinigar í síma 40682. REGLUSÖM KONA óskar eftiir hálfs- eða heite- dagis atvinniu. Upplýsingar í síma 22746. TIL SÖLU rmúnspraiuta með benisínmótor sem ný. Upplýsimgar í sfma 41845 eftiir kil. 7 á kvöldiin. DRENGJA TERYLENE BUXUR einmig telipna og dömuibuxur. Fra'ml'eiöstuverð. Saumastofan Barmahlið 34, simi 14616. ÓSKA EFTIR 4—6 fm miðstöðvarkatli. Uppl. í Síma 37109 eftir kl. 8 á kvötd in. HLJÓÐFÆRI Tid söl'u Vox baissamaginari með tveimur boxum (18") ásaimt mjög góðum G'ilbsom baissagítar. Uppl. í s. 25264 fná kl. 6—8 á kivö'ldin. TIL SÖLU ný þniggja henbergija íbúð. Upplýsingar í siíma 35148 frá kl. 13—18 í dag. REGLUSAMAR skólastúlkur óska eftir 2ja'— 3ja henbergija íbúð á tehgu frá 1. eða 15. september. Uppl. í síma 34730. MÓTATIMBUR Mótatimibur óskaist. Upplýs- ingar í síma 26404 eftir kl. 7. WILLY'S STATION óskaist. Má vera vélarlaus. Sími 52277. YTRI-NJARÐViK Óskað er eftir vanni búðar- stúllku. Valgeirsbakarí, sírmi 2630. i Kvæði mitt er kveldljóð í daft kynntim vlð skáldið Stefán Sijíiirðsson, sem jafn- an er nefndur Stefán frá Hvítadal. Stefán fæddist 11. október 1887 á Hólmavík, son ur hjónanna Sigurðar kirkju smiðs frá Felli í Kollafirði, f. 1828, d. 1916, Siffurðssonar (b. á Felli, f. 180«, 1884, Sigurðs sonar bónda á Broddanesi, f. 1763, Björnssonar) og Guð- rúnar f. 1852, Jónsdóttur. Ólst upp hjá Jóni bræðrungi sínum Þórðarsyni, bónda í Stóra-Fjarðarhorni, tii 1903 og síðan í Hvítadal, þá í Tjaldanesi og loks í Búðar- dal. Stefán gerðist bóndi í Bessatungu í Saurbæ. Hann var hneigðari til bókar en vinnu, en naut samt litillar fræðslu i æsku. Átján ára gamall hélt hann burt úr átt- högum sínum og hafði ofan af sér við margs konar störf. Hann hóf prentnám, en varð að hverfa frá þvi, eftir að hann hafði orðið fyrir þvi slysi að missa hægri fótinn ofan við öklalið. Um það leyti kynntist Stefán ungum menntamönnum, sem allir höfðu einsett sér að verða skáld. Haustið 1912 sigldi Stefán til Noregs og vann þar í skipasmíðastöð, unz hann veiktist af berklum og kom aftur heim til islands ár- ið 1915. Hann tók rómversk- katólska trú. Fyrstu ljóða- bók sina, Söngva förumanns- ins, gaf hann út 1918. Árið eftir kvongaðist Stefán Sig- ríði Guðbjörgu dóttur Jóns Elís Jónssonar bónda á Ballará og víðar. Söngvar förumannsins komu út í ann- arri útgáfu 1919. Óður ein- yrkjans kom út 1921, Heilög kirkja, sextug drápa árið 1924. Eins og áður segir bjó hann lengst af i Bessatungu í Saurbæ. Hann andaðist 7. marz 1933. Við birtum til kynningar á kveðskap Stefáns, kvæðið: Erla, góða Erla, ég á að vagga þér. Svif þú inn í svefninn i söng frá vörum mér. Kvæðið mitt er kveldljóð því kveldsett löngu er. Úti þeysa álfar um ísi lagða slóð. Bjarma slær á bæinn hið bieika tunglskinsflóð. Erla, hjartans Erla, nú ertu þæg og góð! Æskan geymir elda og ævintýraþrótt. Tekur mig með töfrum hin tunglskinsbjarta nótt. Ertu sofnuð, Erla? Þú andar létt og rótt. Hart er mannsins hjarta að hugsa mest um sig. Kveldið er svo koldimmt, ég kenni í brjósti um mig. Dýrlega þig dreymi, og drottinn blessi þig. Spakmæli dagsins Síðan Kristur lifði og dó, er sá einn virðingarverður, sem þjónar. Þú verður að þjóna og þjást, ef þú vilt rikja. Þess vegna verða allir kóngar að þyrnikrýnast, vilji þeir heita sannir kóngar. . . . Þú getur ekið í dýrri bifreið og drukkið guðaveigar, en þú ert og verður smámenni, nema þú elskir og þjónir mannkyninu, sem þú ert brot af. — Studdert Kennedy. DAGBÓK Þvi að hver sem þjónar Kristi í honum (þ.e. heilögum anda), liann er Guði velþóknanlegur og fullreyndur manna á meðal. (Kóm 14—18) 1 dag er miðvikudagur 19. ágúst og er það 231. dagur ársins 1970. Eftir lifa 134 dagar. Árdegisháflæði kl. 7.46. (Úr jslands almanakinu.) AA- samtökin. '’iðlalstími er í TjarnarÉ'ötu 3c a’la virka daga fíá kl. 6—7 e.h. Sími •-Ö373. Almonnar uppiýsmgar um læknisþjónustu í borginnl eru gefnar símsvara Læknafélags Reykjavíkur, sima 18888. Lækningastofur eru tokaðar á laugardögum yfir sumarmánuðina. Tekií verður á móti beiðnum um lyfseðla og þess háttar að Gr.rðastræti 13. slmi 16195, frá kl. 9-11 á laugardagsmorgnuui Tannlæknavaktin er í Heilsuverndarstöðinni, laugar- daga og sunnudaga frá kl. 5—6. Næturlæknir í Keflavík 18.8. Guðjón Klemenzson 19.8. og 20.8 Arnbjöm Ólafsson 21., 22. og 23.8. Guðjón Klem- enzson 24 8. Kjartan Ólafsson. Læknisþjónusta á stofu á laugar- dögum sumarið 1970. Suimarmáncuðina (júní-júlí-ágúst- sept.) eru læknastofur í Reykja- vík lokaðar á laugardögum, nema læknastofan í Garðastræti 14, sem er oplin alla laugardaga í sumar kl, 9—11 fyrir hádegi, sími 16195. Vitjanabeiðnir hjá læknavaktinni sími 21230, fyrir kvöld- nætur- og helgidagabeiðnir. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið alla da.ga, nema laugar- daga, frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. VÍSUKORN Vá. Sækja að brjóstum sorgarský, svalur gjóstur næðir. Þöggum róstur þanka í. Það er ljóst, að blæðir. Syrtir fyrir sólar-brún, svölu dynja hreggin. Glöpin lægjum. Glögga rún, Guð á letrar vegginn. St. H. Leiðrétting Undir kveðju frá kvenfélaginu Hringnum vegna andláts Ingi- bjargar Cl. Þorláksson, misrit- aðist nafn höfundar. Átti það að vera Sigþrúður Guðjónsdóttir. ÁHEIT 0G GJAFIR Dómkirkjan Aheit til Dómkirkj unnar frá Ó. Kr. B. kr. 1.000,00. Kærar þakk ir. Óskar J. Þorláksson. Strandarkirkja HÞ 200, ÓB 500, IR 100, Guðrún 200, MJ 100, KÁJ 100, OKA 175, SH 25, N Þórðarson 25, SP 5000, GÓ 200, Mímósa 200, JÞ og GB 200, NN 20, Ásta 100, NN 100, NN 150, XZÞ 15, BB 100, PS 1.000, Kona úr Bolungarvík 200, KS 200, KE 100, Ónefndur 50, ÁSÁ 300, TS 1.000, GMG 500, Gömul kona 500, EB 50, ÁT 100, Dúna 500, NN 10, Axel 100, Hulda 200, JG 1.000, Ónefndur 100, RB 100, Ólöf 600, NN (sent Velvakanda) 100, SJ 500, NN 50, MB 1.000. Sólheimadrengurinn BK 300.00. Guðmtindur góði Magnea Gísladóttir 200, Ragn- hildur 200, SG 200, Nafnlaust 1.000, Ónefndur 40, AJ 100, K. Magnúsdóttir 1.000, NN 1.000, JG 500, X 500. Verjumgróður verndum land Landið er að fjúka frá okkur. Þjóðin berst við illskeytt nátt úruöfl um verndun þeirra verð- mæta, sem gera það byggilegt. lugsunarlacus notlkun farartækja og vinnuvéla hefur lagt hinum eyðandi öflum lið. Hugsum um það, áður en við ökum út af vegimum, hvorum aðilanium við fylgjum. íslendingar, verjum gróður, verndum land. ( SÁ NÆST BEZTI Einu sinni í fyrndinni, þegar speglar voru sjaldséðir hér á landi, komu tveir ungir piltar og gamall karl saman inn í veitingastofu, en á einum veggnum hékk mjög stór spegill. Þremenningarnir tylltu sér við borð saman, og nutu veitinganna í ró og næði, en meðan þeir sátu og gæddu sér, var karlinum tiðlitið til spegilsins. Þeir urðu nú allir samferða út, en þá segir karlinn: „Tókuð þið strákar, eftir tveimur laglegu piltunum, sem sátu í hliðarherberg- inu og með þeim svo grimmilega ljótur karl.“ ÚR ÍSLENZKUM ÞJOÐSOGUM SKÓB HVEBFÁ Sögn Elínar Jónsdóttur 1875, dóttur Elínar Guðmundsdóttur. Er foreldrar hennar bjuggu í Butru, sátu þau í fjósi, eins og fátækt fólk í þá daga var vant að gjöra. Jón heitinn faðir henn ar var vanur á kvöldin að láta hengja skó sína á fjóshurð að utanverðu svo þeir stiknuðu eða fúnuðu ekki inni, því litið var um skæðaskinn, enda var það í þá daga siður. Eitt kvöld um haustið sendi hann Elínu með skó sína, þykka heminga (úr höm eða skekklaskinni af nauti). Hún hengdi skóna eftir vanda á hurðina og fór svo að sofa. Morg uninn eftir, er hún ætlaði að sækja þá, voru þeir horfMr. Þau leituðu með dyrum og dyngj um, öllum hornum, en það kom fyrir ekki, skórnir fundust ekki að heldur. Aðrir skór voru gjörðir, og þessir gleymdust. En einhverju sinni snemma um vet- urinn héngu skórnir á sama stað einn morgun, er þau komu á fæt ur, og öldungis óbrúkaðir, eins og þeir voru, er þeir hurfu. — Nágrannana afsakaði hún og kvað illa mögulegt, að þeir hefðu náð skónum og þó óhugs- anlegra, að þeir hefðu skilað þeim aftur og það jafngóðum. Huldufólkinu í klettunum fyrir ofan var kennt um það. Þjóðsögur Torfhildar Hólm).

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.