Morgunblaðið - 19.08.1970, Síða 16

Morgunblaðið - 19.08.1970, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGtíST 1970 Albert Þorvarðarson vitavörður í Gróttu Fseddur 17. ágúst 1896. Dáinn 12. júní 1970. „Hann var alinn upp við sjó, ungan dreymdi um skip og sjó, stundaði alla œvi sjó, aldurhniginn fórst í sjó.“ Þau ótiðindi bárust mér til eyma 12. júní s.l., að Albert vin ur minn, vitavörður i Gróttu væri horfinn úr heiminum. Þau fim fylgdu þeirri frétt, að hann hefði drukknað skammt undan landi, þá hann vitjaði hrogn- kelsaneta sinna. Logn var veð- urs. Það skal fúslega játað, að það þóttu mér fim mikil, að Al- bert skyldi í sjó drukkna, á það næsta lítið skylt við rökhyggju, en hitt er og, að rökræn hugs- un flýr flesta, þá þeir spyrja vá- leg tíðindi. Vitaskuld er þeim mönnum, er sjó stunda, hættara miklu við sjódauða, en þeim sem sjaldan stíga á fljótandi fj61. Albert fæddist í Gróttu, og voru foreldrar hans Guðrún Jónsdóttir frá Morastöðum í Kjós og Þorvarður Einarsson, ættaður austan úr Skaftafells- sýslu. Þorvarður var fyrsti vita- vörður í Gróttu, og erfði Albert embættið og gegndi því til dauða dags. Ekki mundi Albert sjálfur, hvenær hann fyrst steig á ferju f jöl, en hitt er skjalfest, að fáum dögum eftir ferminguna réðst hann á skútu og hafði áður en langt leið stundað sjó á flestum tegundum þeirra farkosta, sem til fiskveiða héldu. Hann tók farmannapróf árið 1923, hugðist þá fara í siglingu, en Grótta kall aði. 111 eða góð örlög. — Ekki skal það tíundað hér. Eftir að Albert tók við vita- vörzlu í Gróttu, gerði hann út tvo vélbáta. 1 lok siðari heims- styrjaldar seldi hann stærri bát inn, en sjó stundaði hann annað veifið, meðan fiskbröndu var að fá í Faxaflóa svo og hrognkelsa- veiðar sem fyrr segir. Albert var fáum eða engum mönnum líkur, þeim er ég hef þekkt á langri ævi. í sjón var hann þó ekki sérkennilegur. Hann var meðalmaður á hæð, ágæta vel farinn í andliti, ennið hátt og gáfulegt, hárprúður fram á hinztu stund. Augun voru snör og var engu líkara en þau skiptu litum eftir skapbrigðum hans. Riðvaxinn var hann, karlmenni að burðum og snarmenni mikið. En þetta var aðeins ytra borð ið. Albert var að minu viti síð- asti sjálfstæðis- eða öllu heldur sjálfræðismaðurinn, sem ég hef þekkt. Vitaskuld varð hann stundum að lúta hátigninni, en hann stóð á réttinum. Og störf hans virtu bæði yfirmenn sem aðrir, enda féll aldrei skuggi á þau. Albert átti fjölda góðkunn- ingja en valdi sér fáa að vinum. Það tók nú tímann sinn að verða vinur hans, en tækist það áttu þeir sem slíkrar gæfu nutu eng- an trölltryggari vin. Hann var höfðingi mikill heim að sækja, enda löngum gest- kvæmt í Gróttu. Hann vildi leysa hvers manns vanda. Mér er því ljúft og skylt að þakka alla hina frábæru gestrisni og drengskap, sem ég og min fjölskylda höfum notið í Gróttu síðastliðin 30 ár. Albert var harðgreindur að eðl- isfari og óvenju fjölhæfur. Hann naut prýðilegrar barnafræðslu og tók síðan farmannapróf eins og fyrr segir, og þótti það mennt un á þeim tímum. Snyrtimenni var Albert mik- ið, hjá honum hafði hver hlutur sinn stað. Flest lék honum í hönd um; hagur á tré og jám og skytta, svo af bar. Hann var gæddur mikilli og fagurri söng- rödd, og gat náð langt í þeirri list hefði hann lært. Allir sem Albert litu, hvort — Mig langar Framhald af bls. 17 — Það hefur alltaf verið mikil vinna hér. — Hvemig lízt þér á æsk- una? — Unga fólkið í dag er vel alið. — 1 gamla daga, þegar vtð Stefán bróðir minn fórum á mannamót, þá stóðum við upp úr hópnum. Núna kemur það oftar fyrir, að ég horfi upp í nefið á þessum ungu mönn- um. — Varla oft? — Nei, en það kemur fyrir. — Það er algengara að sjá þá stóra og stæðilega í dag. Áður fyrr hafði ekki fólkið þetta góða viðurværi, sem það nú hefur, og svo var það kuldinn í húsunum, sem fór með það. — Þú hefur þetta yndis- lega umhverfi hér alls staðar. — Hefurðu nokkum tíma orð ið svartsýnn? sem þeir voru tryggðarvinir, skyndigestir eða allt þar á milli, muna hann fyrst og fremst sem sögumann. Frásagnarlist kunni hann flestum betur. Af leiftrandi snilld gat hann sagt frá smæstu atvikum, svo að af urðu ævin- týri, en þegar hann tók á honum stóra sínum, límdi hann saman stóð og stjörnur eins og segir í Þorsteinssögu Víkingssonar um kóng í Indíalandi, sem var galdra meistari mikill. Albert hafði tungutak í bezta lagi, talaði mál okkar alþýðumanna, skýrt og hreint. Stundum skaut hann inn í frásögnina klassískum setning- um, sem að vísu gáfu frásögn- inni gildi, en voru þó eins og þrumufleygar. Þótt mér og mínum þætti með firnum, hvernig vinur okkar fór að heiman, er forsjónin ekki með öllu án liknar. Albert hafði lifað — Ég hef yfirleitt ver- ið bjartsýnismaður frá fyrstu tíð. Enda þarf ég engin mál- verk á veggina hjá mér. Það er auðvitað allt í lagi, þótt maður eigi þau. Ég haf bara gluggana mína fyrir mál- verk. — Það eru margir sem eiga einmitt málverk af þessu sem við sjáum hérna út um glugg- ann: Hafrafelli og Strút, með Eiríksjökul í baksýn. — Þetta er aðal fíneriið. Maður kemur varla inn í stofu, sem er sæmilega búin i bænum, að maður sjái ekki heim til sín. Því að flest mál- verkin hefur hann Ásgrimur máiað hingað i þessa átt. — Þú færð þá varla heim- þrá, ert ekki öllu sviptur, meina ég, þótt á mölinni sért? — Alveg rétt. En þegar ég er búinn með öll mín verk í Reykjavík, þá er ég ekki í rónni, fyrr en ég er búinn að ákveða, hvaða dag ég fer heim til mín. Og alltaf jafn himin sæ!l, auðvitað, yfir heimkom- langa ævi sem einn hinn frjáls- asti og óháðasti maður meðal Is- lendinga. Nú var honum elli fall in í fang, þótt hann glímdi við af karlmennsku. Elliheimili eða sjúkrahús mundu hafa verið hon um verri miklu en hin vota gröf. Albert var meira miklu en vita vörður. Hann svaf jafnan með annað augað opið eins og sagt var í mínu ungdæmi. Ófáir eru hérlendis sem erlendir, er hon- um eiga líf að launa. Að lokum vil ég þakka þér ó- rofa vináttu, mér og minu til handa og kveðja þig með vísu skáldjöfursins á Sandi: Blundar nú á dökkri dýnu drengur sá er vakti löngum; geymir hann í silki sínu sjávargyðjan út hjá dröngum. Hjörtur Kristmundsson. unni? — Auðvitað, segir þessi sæti maður, og brosir inni- lega. Það er alltaf það skemmtilegasta í túrnum: Að koma heim. — Og þó held ég, að konan mín sé miklu harðvítugri í þessum efnum, heldur en ég. Síðan pabbi og mamma henn ar féllu frá, þá má hún ekki vera að því að stoppa nema augnablik. — Það er hver sæll, sem á svo gott heimili, að hann hlakki til að koma heim. Degi er tekið að halla, og mál að lofa húsráðendum aftur að fá næði. Því eru þessi glæstu hjón, börn og barnaböm kvödd. Ónæðið er sjálfsagt ekkert lítilfjörlegt sem búið er að gera, og margt handtakið hef ur sjálfsagt orðið að bíða betri tíma á heimilinu, en ég væri hræsnari, ef mér dytti í hug að sjá eftir því að hafa tafið þau. M. Thors. rakarastólum Yoshikawa á rakarastofunni sinni ÞAÐ ER peningaskortur víða, og hárvöxtur vel þokkaður, og það í vaxandi mæli, því marg ur maðurinn hefur býsna langt á milli klippinga. Rakar ar í sumum borgum gefa það til kynna, að viðskipti þeirra hafi minnkað um 25—50%. En viðskiptamissir rakaranna virðist ekki vera mikill sam- anborið við þá sem framleiða rakarastólana. Lengi vel gekk framleiðsla þeirra skínandi. Nokkur fyrir tæki höfðu stöðuga fram- leiðslu, framleiddu 10.000 rak arastóla árlega til 100.000 rak arastofa í Bandaríkjunum. — 1957 var það svo að fyrirtæki í Osaka í Japan, Takara Bel- mont Co., renndi sér inn á Bandaríkjamarkaðinn og byrj aði á einni af þessum víð- frægu japönsku yfirtökuher- ferðum. Takara var svo fært í sinni grein, að það setti algerlega japanskt met í eftirlíkingu. Fyrsta framleiðslan var hér um bil eins og bandarísku stól arnir, framleiddir hjá fremstu fyrirtækjunum, Emil J. Pai- dar í Chicago. Meira að segja var hægt að setja hluti úr japönsku stólunum í þá banda rísku, svo mikil var nákvæmn in. Því var það svo, að ef fót brettið, eða armurinn á stól brotnaði, náðu dreifingarmenn Takara í Bandaríkjunum sér hiklaust í varahluti hjá Pai- dar i Chicago og sluppi þann ig við óþarfa flutningskostnað langar leiðir frá Japan, og enn dýrari viðgerðaþjónustu. Fyrir utan það, að geta selt stólana sína fyrir 20—30% lægra verð, en þá bandarísku, hefur Takara síðan átt hug- myndina að því að breyta stól unum, og koma þannig gömlu stólunum úr tízku, auðvitað af ásettu ráði. Hann framleiðir nýja gerð á 18 mánaða fresti. Þess vegna hefur hann á boðstólum fínni stóla en keppinautarnir, oft og eintt. Nýjasta gerðin kostar kring um 88 þús. kr. ísl. og er ímynd snyrtigæla. Stóllinn bókstaflega umvef- ur viðskiptavininn, fellur að líkamanum, ef svo mætti að orði komast, með bogalinum sínum, og hefur hann vökva- stýrða hækkun og lækkun. Getur hækkað sætið, eða hall að stólbakinu aftur til að nudda megi kúnnann á þægi- legri hátt, eða gefa heit and litsböð. Meðan verið er að klippa hár hans með hárfínni nákvæmni, nuddar rafmagns- kerfi í stólnum kálfana á hon um og bakvöðvana. Sölumennimir hjá Takara gorta af því, að stólarnir þeirra hæfi kóngafólki. Tveir, sem nota stóla frá þeim, eru Hirohito, Japanskeisari, sem lét setja upp svona stól í höllinni sinni, og Thumibol, kóngur í Thailandi. Takara hefur 70% af Bandaríkjamark aði og selur fyrir 25 milljónir dollara á heimsmarkaðinum árlega. I fyrra opnaði hann samsetn ingarverksmiðju í Somerset í New Jersey í Bandaríkjunum, og krækti sér í rakarastóla samsteypuna Koken Compan ies Inc. í St. Louis. í dag er að eins einn stórframleiðandi í Bandaríkjunum: Paidar. Fyrirtækið átti einu sinni vísan sölumöguleika á 70% keyptra vara, nú er Paidar í svo miklum vandræðum, að Nixon Bandaríkjaforseti hef- ur gefið sérstaka fyrirskipun um að útvega honum ríkis- styrk. Forstjóri hjá Takara er Hid enbou Yoshikawa, feitlaginn, sjötugur maður, sem stofnaði fyrirtækið fyrir 49 árum. — Hann er heittrúaður Búddatrú armaður og segi-st eiga allar hugmyndirnar sjálfur í sím- um viðskiptum, að meðtalinni hugmyndinni um að læðast inn á Bandaríkjamarkaðinn. Segist hafa fengið þær á bæn. Á heimssýningunni í Osaka, er nokkuð, sem heitir „Beaut illion“. Samsett úr Beauty = fegurð, snyrting og Pavillion = höll, skáli. Kostar hún eina billjón dala. Er það rakara- stofa m.m. Hún er mjög fram faraleg, öll úr stólpípum og plasti, á einni hæð, nokkurs- konar hylki. Er þetta hylki gott dæmi upp á snilligáfu Yoshikawa. Á þessari einu hæð, eru 48 rakarastólar, í lag inu eins og lótusblóan. Þeir lyfta viðskiptavinunum níu fet (3 m) upp, og þar geta þeir séð fáránlega sýningu í loftinu. Á hljóðrásinni er eitt hvert væl . . . er það Yoshi- kawa á bæn. Hann er alveg nauðasköllóttur, en samt fer hann vikulega til rakarans, sem stýfir þetta litla strý, sem eftir er, og nuddar hann. Ef fleiri færu vikulega í klipp- ingu, væri líklegra að friður kæmist á í heiminum, því að snyrtimennska skapar hugslök un. Það má með sanni segja, nema menn séu í samkeppni við Takara.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.