Morgunblaðið - 03.09.1970, Page 5
MORGUNB’LAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. SEtPTEMBER 1970
5
— Forseta-
heimsóknin
Framhald af bls. 1
taka á móti forsetahjónunum, svo
og Margrét ríkisarfi, klœdd brún-
röndóttum kjól með barðastóran,
drapplitan hatt á höfði, en prins
Henrik var í dökkum fötum með
rauða nelliku í jakkaboðungnum.
Knud prins og prinsessurnar
Benedikta og Caroline Mathilde
voru í fylgd með konungshjón-
unum og þeim, sem fyrst heils-
uðu hinum íslenzku gestum sín-
um. Var þetta konungborna fólk
allt hið glaðlegasta í viðmóti.
Forseti vor var glaður í bragði,
er hann heilsaði gestgjöfum sín-
um-og var hann klæddur í rönd-
óttar buxur og dökkan jakka.
Forsetafrúin var klædd í ljósa
dragt. Gengu þeir nú saman fyr-
ir heiðursvörðinn, konungurinn
og herra Kristján Eldjárn, en
lúðrasveitin lék danska fánamars
inn, „Nu kommer Jens medfan-
en“. Þaðan gengu þeir inn í mót-
tökugjaldið, þar sem biðu þeirra
ráðherrar, embættismenn ríkis og
borgar, svo og fulltrúar frá her,
flota og fiugher. Kynnti konung-
urinn hvern og einn fyrir gest-
um sínum.
Móttakan í fiughöfninni tók
ekki langan tíma, en síðan var
ekið rakleitt að sumarhöll kon-
ungs i Fredensborg, en þangað
er um klukkustundar akstur og
var ökuleiðin mjög falleg fyrir
utan borgarmörkin. Veður fór
batnandi eftir þvi sem á daginn
leið. Aðeins konungshjónin og
forsetahjónin, og fáeinir aðrir,
óku til Fredensborgarhallar, þar
sem bústaður forsetahjónanna
verður á meðan þau verða gestir
dönsku konungshjónanna. Fred-
ensborgarhöll var fullgerð árið
1722 og er sumarhöll konungs-
hjónanna. Þau munu flytja aftur
inn í Amalienborg síðar í þess-
um mánuði. Fredensborgarhöll
er ákaflega falleg og staðarlegt
heim að sjá eftir eins kílómetra
heimreið, sem liggur að hallar-
garðinum.
TÖÐUILMUR í LOFTI
Forseti Islands, herra Kristján
Eldjárn, ók í bíl konungsins, en
frú Halldóra í bíl drottningar-
innar. Er bílarnir áttu ófarna um
kílómeters leið að konungshöll-
inni komu til móts við þau 46
húsarar úr lífverði konungs á
fallegum gæðingum brúnum, grá
um og steingráum og fylgdu þeir
bílunum í hlað. Var þetta mjög
eftirminnileg sjón, þvi að nú var
komin glampandi sól, sem gerði
þessa ferð heim að konungshöil-
inni ennþá litrikari. Er þeir
renndu í hlað og stigu út úr bíl-
unum, tókum við eftir því,
fáeinir Islendingar, sem þarna
vorum, að töðuilmur var í lofti,
því að bændur hér „i det skönne
blide Nord-Sjælland“ eru bún-
ir að hirða tún sín og kornakra.
Frá Kastrup-flugvelli í gaerniorgun. Forseti Isiands og Danakonungur ræðast við á göngu frá flugvéiinni. Á eftir þeim koma
forsetafrúin og drottningin.
Blaðaljósmyndurum var nú
gefin bending um það, að þeir
mættu fylgja konungshjónunum
og forsetahjónunum til stofu á
vinstri hönd í veglegu anddyri
þessarar konungshallar og þar
Frú Halldóra Eldjárn og Ingiríður Danadrottning ræðast við
framan við Gullfaxa. Konan í röndótta kjólnum að baki forseta-
frúnni er Margrét ríkisarfi, þá er Knútiir prins í einkennis-
búningi og milli hans og drottningarinnar sést Henrik prins..
Konan í hvítu kápunni með hvíta hattinn er kona Knúts prins,
Carolina Matliilda prinsessa.
voru teknar ljósmyndir af þjóð-
höfðingjunum, en þessu næst
var þeim íylgt til stofu á heim-
ili dönsku Konungshjónanna.
BLÓMSVEIGAR I ÍSL.
FÁNALITUM
Síðdegis i dag lagði forsetinn
svo leið sína til Hróarskeldudóm-
kirkju, en þangað er um 45 mín-
útna akstur frá Fredensborgar-
höll. Þegar komið var að kirkj-
unni var þar fyrir mannfjöldi,
sem veifaði til þjóðhöfðingjanna
og veifuðu þeir glaðlega á móti.
Hans Kvist, biskup kirkjunnar,
tók á móti þjóðhöfðingjunum, en
í Dómkirkjunni í Hróarskeldu
eru grafir dönsku konunganna.
1 grafhýsi því, sem kistur þeirra
Kristjáns X og Aleksandrinu
drottningar eru, lagði forseti ís-
lands, herra Kristján Eldjárn,
blómsveiga. Blómsveigarnir, sem
forsetinn lagði að kistum síð-
ustu konungshjóna íslands, voru
í íslenzku fánalitunum. Við
hvorn, sveiginn var og borði í
fánalitunum og á hann letrað:
„Islands president — forseti Is-
lands“. Athöfnin í kirkjunni var
virðuleg.
VÍKINGASKIP SKOÐUÐ
Frá kirkjunni var síðan ekið
til hinnar nýju deildar danska
þjóðminjasafnsins — í vikinga-
skipasafnið. Er það stofnun, sem
er i byggingu að heita má, þar
eð hún er svo ný af nálinni. 1
vikingaskipasafninu verða 5
skip, sem fundust í Hróarskeldu
firði árið 1962 og var þeim
sökkt þar á firðinum um árið
1400 til að loka innsiglingunni
inn á fjörðinn. Er hér um að
ræða mjög merkilegt víkinga-
skipasafn og meðal þeirra er
knörr einn, sem verið er að
vinna við og tókst að bjarga
heilum í land 70% af viðum
hans. Er nú verið að vinna við
knörrinn, sem fyrr segir — setja
hann saman undir stjórn safn-
varðarins, O. Crumlin Pedersen.
Það vakti athygli danskra
blaðamanna, sem voru riærstadd
ir, hve lifandi áhugi forsetans
var á þessu safni og var staðið
þarna við í fulla klukkustund.
Síðan varð forsetinn að hraða
för sinni til baka að Fredens-
borgarhöll, en þar beið hans það
að taka á móti öllum sendiherr-
um erlendra ríkja, sem aðsetur
hafa í Kaupmannahöfn. Að
þeirri athöfn lokinni fór svo
fram hin opinbera móttaka kon-
ungshjónanna, þ.e.a.s. að í Fred-
ensborgarhöll var efnt til kvöld-
verðarboðs í Kuppelsalen og
fluttu þjóðhöfðingjarnir þar
Framhald á bls. 17
Herra Kristján Elcljárn legg^ir blómsveiga í íslenzku fánalitunum að kistum Kristjáns X og Al*
fónarnir biía
eftir nýrri
SG-hljómplötn,
sem kom út
i morgun
eksamlrínu drottningar. Að baki forsetann m er Friðrik konungur.