Morgunblaðið - 09.10.1970, Qupperneq 3
MOR'GUNÍBÍLAÐEÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1970
3
Borgarfulltrúar
á skólabekk
Fyrsta borgarmálakynning Rvíkur
Geir Hallgrímsson gerði grein fyrir stjómkerfi borgarinnar. Páll
Líndal var fundarstjóri.
í GÆR settust borgarfulltrú-
ar og varaborgarfulltrúar í
Reykjavík á skólabekk, ef svo
má segja, en þá hófst í fyrsta
sinm borgarmálakynning fyr-
ir þessa kjörnu fulltrúa. Geir
Hallgrímsson, borgarstjóri
og nokkrir embættismenn
borgarinnar skýrðu ýmsa
málaflokka og svöruðu spurn
ingum borgarfulltrúanna.
Og skoðaðar verða í dag ýms
ar stofnanir borgarinnar.
Á þessu nýbyrjaða kjör-
tímabili er mikið af nýjum
borgarfulltrúum og vara-
borgarfulltrúum frá öllum
flokkum og gengst borgin
Karfa loftbelgs-1
ins f undin
Nýfundnalandi, 8. okt. t
— AP í
LBITABFLUGVKLAB hafa \
fundið körfu loftbelgsins t
FBEE LIFE á floti rúmlega 7
130 kni siiðaustur af Cape St. 1
Mary, á Nýfundnalandi. Ekk- \
ert er vitað mn áliöfnina, sem í
Ívar tveir menn og ein kona. 7
Skip kanadisku strandgæzl- J
unnar voru á leið þangað í}
dag, en mikið óveðnr er á þess i
iim slóðnm, og gengur ferðin 7
hægt. FBEE LIFE lagði upp J
frá New York, hinn 20. sept. \
sl. Síðasta skeytið frá þeim í
barst daginn eftir, og sagði /
þar að loftbelgurinn væri að ;
missa hæð, nndan strönd Ný- \
fundnalands. Mikil leit var i
hafin en hún hefnr ekki bor-1
ið árangnr fyrr en nú, að 7
karfa belgsins hefur sézt á \
floti. í
því fyrir þessari borgarmála
kynningu. Tóku 20 þátt í
kyniiingunni, sem bófst í gær
morgun kl. 9 í borgarstjórn-
arsalnum.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
hóf kynninguna og bauð borgar-
fulltrúa vel komna. Páll Línda\
borgarlögmaðuir, sem stjónnaði
fundi, skýrði í stuttu máli þró-
un sveitarstj ór.nar í Reykjavik.
Þá gerði borgarstjóri greiin fyrir
stjórnkerfi borgairinnar og
hvernig málaflokkarnir skiptast
á embættismenn borgarinnar.
Jón Tómasson, ritari borgar-
stjórnar, ræddi starfííhætti borg
arstjómar. Þá talaði Gunnlaug-
ur Pétursson, borgarritari um
fjármál Reyk j avíkurborgar og
undirbún ing fj árhagsáætlunar
Sigfinnur Sigfússon, borgarhag-
fræðingur skýrði áætlanagerð
borgarinnar. Og Gústaf A, Páls-
son borgarverkfræðingur ræddi
skiputag verklegra fram-
kvæmda. Eftir ' hádegi skýrðu
hann og borgaretjóri aðalskipu-
lag Reykjavíkur. Fóru fram um-
ræður og svöruðu starfsmenn
borgarinnar spumingum.
í dag hefst borgarmálakynn-
ingin kl. 9 á kynningu á staTf-
semi Reykjavíkurhafnar og
Bæjarútgerðar, og verður farin
kynnisferð um bækistöðvar þess
ara stofnana fyrir hádegi. Einn-
ig verður skoðaður Borgarepít-
alin.n og borðaður hádegisverð-
ur þar. En síðdegis verða skoðuð
dagheimilið Sunnuborg O'g leik-
skólinn Holtabong. Einnig Réttar-
holtsskóli. Þá verður kynnt
star&emi Hitaveitunnar.
8TAKSIEINAR
„Grandvar
og traustur“
Á liðnu sumri var það ein
helzta iðja ritstjóra dagblaðslns
Timans að skrifa langar og mikl-
ar lofgjörðir um prófessor Ólaf
Jóhannesson, formann Fram-
sóknarflokksins. En þegar lof-
gjörðir þessar höfðu birzt í Tím-
anum um hríð, fór einhvem að
gruna ritstjóra blaðsins um
græsku og taldi, að ofiof þetta
hefði verið á svið sett til þess
eins að spotta prófessor Ólaf.
En hvort sem eitthvað hefur ver-
ið hæft í slíkum ásökunum eða
ekki, þó fór svo, að upp frá því
var mjög dregið úr lofgjörðar-
flutningi þessum.
En fyrir rúmri viku tók Tím-
inn við sér á nýjan leik og fór
þá svofelldum orðum um hinn
ástsæla formann: „Allir sann-
gjamir menn viðurkenna, að Ól-
afur Jóhannesson, formaður
Framsóknarflokksins, hafi borið
af og styrkt það álit manna, að
hann sé grandvar, traustur og
umfram allt heiðarlegur stjóm-
málamaður, sem líklegastur sé
þeirra forsætisráðherraefna, sem
nú eru í boði, til að leiða þjóð-
ina farsællega til samstillts átaks
við lausn þeirra margvíslegu
erfiðu verkefna, sem hljóta að
bíða næstu ríkisstjómar á Is-
landi.“ (Menn athugi: tilvitnun
þessi er í Tímanum, en ekki
Pravda).
Trúiega munu fæstir draga það
í efa, að prófessor Ólafur er
bæði gegn og grandvar. 'En á hitt
er að líta, að hann er ekki slíkt
ofurmenni að hann megni að
bera núverandi hentistefnu
Framsóknarflokksins franj til
sigurs á vettvangi stjómmál-
anna, enda er það alger ofætlun
að búast við slíku af nokkrum
manni.
'En mikið þarf Tíminn á sig að
leggja til að „búa til“ leiðtoga úr
Ólafi, svo stórbrotnum manni.
Draumur
um tímamót
Síðastliðinn miðvikudag birt-
ist svo ritstjómargrein í Tíman-
um, sem bar augljósan vott um
draumsýn þeirra framsóknar-
manna, eftir að hafa setið 12 ár
utan ríkisstjórnar; „íslendingar
verða eins og aðrar lýðræðisþjóð
ir að læra þá meginreglu, að
það er ekki heppilegt að búa
lengi við sömu stjórnina, hvort
heldur þar er um stjórn eins
flokks eða sambræðslustjórn að
ræða. Með nýjum stjórnum og
nýjum stjórnarflokkum gerist
alltaf einhver gagnleg breyting.
Gömlum úreltum venjum og
vinnubrögðum er vikið til hliðar
og ný tekin upp.
Allir þeir, sem með sanngimi
og raunsæi hugsa um þessi mál,
hljóta við nánari athugun að
sannfærast um, að það er komið
að tímamótum, þegar óhjákvæmi
legt er að skipta um stjórn, þann-
ig að nýir menn og ný sjónarmið
fái að móta nauðsynlegar hreyt-
ingar á vinnubrögðum og stjórn-
arstefnu.“
Þessi draumur um tímamót er
ekkert nýmæli, hann hefur kom-
ið fram við hverjar alþingis-
kosningar liðinn áratug. En nú
er svo komið, að Tíminn minnist
ekki lengur í þessu sambandi á
hentistefnur eins og: Hina leið-
ina, Nýju leiðina og Já, já, og
nei, nei leiðina. Á þessum þriðju
„tímamótum“ Tímans í ára-
tug snýst hinn venjubundni
draumur um það eitt að
komast í ráðherrastólana að
afioknum næstu kosning-
um. Réttmæti draumsins er
síðan stutt þeim rökum, að breyt-
ingar breytinganna vegna hafi
tilgang í sjálfu sér. Hentistefna
Framsóknarflokksins hefur til
þessa stuðlað að einangrun
flokksins á vettvangi stjórnmál-
anna, en fróðlegt verður að
fylgjast með framhaldinu, ef
flokkurinn tekur upp algjört
stefnuleysi.
---------—-------- ..................................... uuuiiuua^wwwt-j—■ owiiiimnnHmn» mraaBBannMMwm
Borgarfulltrúar og varaborgarf ulltrúar læra um borgarmálefni á borgarmálakynningunni í gæi
<§>KARNABÆR
TIZKUVERZLUN
UNGA FÓLKSINS
TÝSGÖTU 1 — 12330.
MIKID AF NÝJUM VÖRUM!!!
ÞETTA KOM í VIKUNNI.
Herradeild:
★
★
Á
★
★
★
★
HERRAPEYSUR í ÚRVALI
STAKAR BUXUR
NÝ MUNSTUR
IMÝ SNIÐ
JAKKAR
BINDI OG BINDASETT
LAKKLEÐURLÍKIS-
JAKKAR — ÓDÝRIR
SOKKAR I LITUM
EIGUM ENNÞÁ
KULDAJAKKA OG
HETTU-PEYSUR OG KÁPUR
Dömudeild:
★
★
★
★
★
LAKK-LEÐURLlKIS-
KÁPUR OG JAKKAR
KJÓLAR ÝMSAR
SlDDIR OG GERÐIR
PEYSUR I MIKLU ÚRVALI
FRÁ ERICA BUDD OG
HAROLD INGRAM
BUXNA-MIDI-PILS
MIDI-PILS
SPORTSOKKAR
POKABUXUR —
OG CREPE
— ULLAR
ULLAR
MARY QUANT-SNYRTIVÖRUR ! !
NÝ SENDING AF ALLS KONAR
SNYRTIVÖRUM — NÝJUNGAR ! !