Morgunblaðið - 01.11.1970, Síða 15
MORGUN'BLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1. NÓVEMBER 1970
39
G1 j úf urleitarf oss.
um, en víkur þó sums staðar
frá.
Nú er haldið áfram á nýjum
vegi, en gamalli leið allt fram á
Sandtagl, en svo nefnist oddinn
innan við Kisu, þar sem hún fell
ur í Þjórsá.
Kisa hefur löngum þótt vara-
samt vatnsfall, getur verið vatns
mikil, og botn einnig varasamur,
en ekki var svo í þetta sinn.
Var í henni litið vatn og botn
tryggur. Lýkur nú Fjórðungs-
sandi og Norðurleit tekur við.
Við erum hér á Gnúpverjaafrétti
en hann liggur inn með Þjórsá
og nær allt inn að Hofsjökli.
Víða er fagurt graslendi í
Norðurleit, og þar er sauðland
gott. Hefur bílvegurinn hér ver-
ið sveigður upp fyrir aðalgras-
lendið og liggur austan við Flóa-
mannaöldu, sem er lág alda, en
allmikil um sig og er um 2 km
vestar en varðaða leiðin.
Dalsá rennur fyrir framan
Flóamannaöldu. Hún hefur þótt
illt vatnsfall, vatnsmikil og víða
stórgrýtt, en hér var hún ágæt,
góður sandbotn og vatnsmagn
enginn farartálmi.
Nú vorum við að komast að
þeim slóðum sem við ætluðum
einkum að skoða í ferðinni, en
það var fossinn Dynkur og Gljúf
urleit ásamt Gljúfurleitarfossi.
Þegar kemur nokkuð fram
fyrir Dalsá, fellur Þjórsá I
Gljúfrum. Þar heitir innst Krók
ur, en framar Gljúfurleit. Er
Búðarháls fyrir austan, brött
brekka allt upp úr, talin um 300
m há, en að vestan er hlíðin
ekki eins brött og hæð ekki nema
um 200 m (sbr. Árbók 1956, 29.
bls.). Niður í Þjórsá falla
að vestan innst Niðurgöngugil,
þá Hörtná, en framar Geldingaá.
Ekki er fullvíst, hvað langt á að
telja að Krókurinn nái, en
Gljúfurleit hefjist, en eðlilegt er
að kalla að það sé við Niður-
göngugil, svo sem gert er i Ár-
bók 1965 (100. bls.). Er þá Dynk
ur móts við Krókinn. Gljúfur-
leitarfoss er rétt innan við
mynni Geldingaár.
Við fórum á bílnum fram að
Geldingaá og dálítið niður með
henni af veginum eftir braut
sem þar hafði verið rudd, og
stóðu þar nokkrir íbúðarskálar.
Degi var nú tekið að halla, og
um kveldið og nóttina rigndi
talsvert, en sunnudagsmorgun-
inn var stytt upp, og gerði bezta
veður. Voru fossarnir skoðaðir
um kveldið og morguninn og
einnig Gljúfurleitin allt fram
fyrir Gljúfurleitarfoss. Tjöld
settum við um kveldið framan
við Geldingaá og vorum þar um
nóttina. Skal nú lýst nokkru
nánar því svæði sem við skoð-
uðum og staðháttum þar.
Eigi að skoða Dynk og síðan
Gljúfurleit allt fram um Gljúf-
urleitarfoss, má kalla að heppi-
legt sé að skilja við bílinn hjá
Geldingaá og ganga þaðan inn
að Dynk, síðan niður með ánni
og allt fram að Gljúfurleitar-
fossi, þá upp með Geldingaá og
til bílsins. Er um klukkutima
gangur frá Geldingaá og inn að
Dynk. Hjallar eru upp frá gljúfr
inu, vaxnir grasi og lyngi, fag-
urt land, en grjót er efst kem-
ur í hlíðina. Er ráðlegt að ganga
ofanvert við grasið á leiðinni
inn eftir, því að í graslendinu
eru víða grafskurðir, sumir djúp
ir og eru þeir til talsverðrar taf-
ar. Bezt er að slá sér ekki fast
niður að ánni fyrr en kemur inn
fyrir Niðurgöngugil, enda er þá
skammt inn að fossinum.
Dynkur er sérkennilegur foss.
í rauninni er hann margir smá-
fossar. Fellur áin þarna stall af
stalli og er miklu mest við út-
landið. Er hún sýnilega að grafa
sig þar niður. Hár drangur
stendur upp úr flúðunum ofan
við fossinn sjálfan.
Eigi nú að halda niður með
ánni frá Dynk, er ráðlegt að
víkja nokkuð frá ánni fyrst í
stað. Niðurgöngugilið er ófært
neðst, og um það bil hálfum öðr-
um km neðar er Hörtná.
Nokkru áður en hún rennur í
Þjórsá, steypist hún niður í
mjög djúpt gljúfur, og er þar
hár foss í ánni. Gljúfrið mynd-
ar tanga við Þjórsá, og geng-
ur hann fram í örmjóan rana.
Þykir mörgum óárennilegt að
fara þar niður, en ófært er upp.
Heitir tanginn Ófærutangi. Verð
ur að stökkva þar fram af mó-
bergsstalli og fóta sig á brött-
um örmjóum melrana, og nokkru
neðar er örmjó grastrjóna. Verð
ur að fika sig þar niður og fram
af kletti og ofan í snarbratta
brekku, en báðum megin við
þennan mjóa rana gapir við
hengiflug og því dauðinn vís, ef
út af ber. Margir hafa þó farið
þessa leið, fram af Ófærutanga,
m.a. fjallmenn Gnúpverja. Hef-
ur aldrei orðið að slysi, svo
að kunnugt sé, en óráðlegt er
óvönum eða lofthræddum að
fara þar, og ekki verður aftur
snúið, eftir að komið er fram af
efsta stallinum. Er því ráðlegra
að fara ofan við enda gljúfurs-
ins og ganga síðan niður með
því að vestan. Er gaman að
skoða gljúfrið og Ófærutanga.
Er það fagurt og hrikalegt í
senn.
Skemmtilegt er að ganga með
Þjórsá frá Hörtná og fram að
Geldingaá. Hlíðin er í þrepum
eins og annars staðar i Gljúfur-
leit, og allt vafið grasi og lyngi.
Er einkum mikið um bláberja-
lyng. Giljótt er nokkuð, en ekk-
ert gilið er djúpt eða til hindr-
unar gangandi manni. Hér er
fagurt sauðland og skjól í flest-
um áttum, enda snýr hlíðin
gegnt suðaustri. Neðar byltist
Þjórsá fram, víðast straumþung
og úfin og háir klettar beggja
vegna. Hinum megin árinnar
er brött brekka Búðarhálsins.
Hún er miklu gróðurminni en
Gljúfurleitin, enda meir áveðurs,
snýr til útnorðurs.
Ekki er lengi gengið frá
Hörtná fram að - Geldingaá, er
vegalengd aðeins um 2 km.
Gljúfurleitarfoss er rétt inn-
an við Geldingaá. Hann er
allmikill, um 28 m hár, fellur
allur í einu lagi, svipmikill og
fallegur.
Gljúfurleitin breytir nokkuð
um svip, þegar kemur niður fyr-
ir Geldingaá. Áin verður breið-
ari, vesturbrekkan ekki eins
brött, en landslag og gróður
með sama svip og áður.
Rúmlega 3 km fyrir framan
Geldingaá rennur Gljúfurá í
Þjórsá, og er talið að þar ljúki
Gljúfurleit.
Eins og fyrr er sagt, rennur
Geldingaá í Þjórsá skammt neð-
an við Gljúfurleitarfoss. Heitir
Geldingatangi innan við hana.
Ekki er Geldingatangi nærri því
eins hrikalegur og Ófærutangi,
því að klettar eru þar eigi mikl-
ir við Þjórsá. En Geldingaá fell-
ur hér ofan í afar djúpt gljúf-
ur í feikna háum fossi, og á hún
þar skammt til Þjórsár. Er þar
stuðlaberg mikið og fagurt í
hamrinum.
Allmiklar brekkur var að
ganga innan við Geldingaá,
þangað sem tjöld okkar voru.
Þessi hringganga er ekki löng,
mjög hægt gengið á 4 tímum. En
margt og fagurt er að skoða á
þessari stuttu leið, svo sem nú
hefur verið sagt, stórbrotna
fossa, tilkomumikil gljúfur og
fagrar gróðurbrekkur. Gljúfur-
leit er vissulega meðal fagurra
og ógleymanlegra staða í óbyggð
um landsins.
Aflíðandi hádegi tökum við
upp tjöld okkar og höldum heim
á leið. Lengi hefði mátt una sér
enn á þessum slóðum, en áætl-
un okkar er að komast heim
þennan dag. Gerðist nú fátt tíð-
inda það sem eftir var leiðar-
innar.
Þegar við komum fram um
Lönguöldu, lá bílaleiðin vestan
við mýri nokkra. Skammt aust-
ur í mýrinni liggur Sprengi-
sandsvegurinn, og standá vörð-
urnar þar enn. Ein þeirra hef-
ur verið hlaðin uppi á stórum
steini. Þetta er Starkaðssteinn
og Starkaðsver. Hér var það
sem Starkaður frá Stóruvöllum
í Bárðardal lét lífið samkvæmt
þjóðsögunni, er hann var á leið
suður í Eystrihrepp að hitta
unnustu sína. Dreymdi hana um
sama leyti að Starkaður kæmi til
sín og kvæði:
Angur og mein fyrir auðarrein
oft hafa skatnar þegið,
Starkaðar bein und stórum
stein
um stundu hafa legið.
Slík hefur verið saga ófárra
áður fyrr, er treyst var á
fremsta að fara fjallvegi, jafn-
vel um hávetur.
Framan við Starkaðsver ligg-
ur vegurinn yfir litla á, Innri-
Skúmstungnaá, og eftir þetta
liggur bílvégurinn alveg á.sama
stað og vörðurnar og Sprengi-
Framhald á bls. 41
Dynkur.
NÚ GETA ALLIR EIGNAZT
LYNX SNJÓSLEÐA
Finnski snjósleðinn LYNX sem hlotið hefur
miklar og verðskuldaðar vinsældir á Norður-
löndum, fæst nú 1 fyrsta skipti á íslandi og
kostar aðeins:
KRÓNUR 73,500,oo
LYNX er léttur, hljóðlátur, skjótur í förum
og gangöruggur.
Tryggið ykkur strax LYNX snjósleða meðan
tími er til. Nokkrum LYNX snjósleðum er
ennþá hægt að ráðstafa úr síðustu sendingu.
DRÁTTARVÉLAR HF.
Suðurlandsbraut 6 — Reykjavík.
Sími 38540.
Skjótur og öruggur...
...arangur-
á aðeins
5 mínútum
á dagl
Já aðeins 5 mínútur á dag, til
að byggja upp vöðvastæltan
líkama!
Hver er leyndardómurinn?
Jú leyndardómurinn er nýja
uppfyndingin, sem kölluð er
Bullworker 2. Hinn skjóti og
ótvíræði árangur sem menn ná
með Bullworker 2 æfingatæk-
inu á fyrst og fremst rót sína
að rekja til þrotlausra rann-
sókna Gerts Kölbel, líkams-
ræktarsérfræðings, sem leitað
ist við að góður árangur næð-
ist á sem einfaldastan og á-
reynsluminnstan hátt, svo að
tækið ætti erindi til sem
flestra. Um árangu-rinn þarf
enginn að efast. — Tækið og
æfingakerfið, sem því fylgir,
hefur valdið gjörbyltingu 1
líkamsrækt.
I þeim löndum heims, sem tæk
ið hefur hazlað sér völl, mæl
ir fjöldi íþróttakennara, sjúkra
þjálfara og lækna ötullega með
þessari nýju tækni.
Hentar öllum!
Tækið vegur aðeins 2 kg, er 90
cm langt og opnar öllum,
jafnt þaulæfðum íþróttamönn-
um, sem öðrum, óvænta mögu
leika til að sýna líkama sínum
nauðsynlega ræktarsemi.
Fáið ókeypis
litmyndabækling
Allar upplýsingar um Bull-
worker 2 og æfingakerfið á-
samt verði, mun umboðið
senda til yðar að kostnaðar-
lausu, um leið og afklipping
urinn (hér að neðan), berst
umboðinu í hendur.
I Prentstafir
Vinsamlegast sendið mér litmyndabækimg
yðar um BULLV\/ORKER 2 mér að kostnað-
arlausu og án skuldbindinga frá minni hendi.
011170/m.
Nafn:
Heimilisf