Morgunblaðið - 18.11.1970, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.11.1970, Blaðsíða 7
MÐRGUNBl-AÐIÐ, MIÐVIKUDAG-UR 18. NÓVBMBER 1970 7 Vefelóllinn gamli. aa rifur, bb kljásteinar, cc bleinarkrókur (hleinar: stólpam* ir), e bandvindur, f fyrirvaf, g hræll, h snakkur (vinda), ii slanga (fetar), kk vef- ekóft, 11 mei(Ó)mir, m skcið, n skilskaft, o skilfjöl, p varlan, q spjálk, rr, ss baktré Kljá- steina- vefstóll Nú eru liðin um 200 ár síð an gamli kljásteinavefstóil- inn íslenzki tók að leggjast niður. Einn slíkur vefstóll er til í Þjóðminjasafni, og er hann kominn austan úr Skaftafellssýslu, en þar voru þessir stólar iengst við lýði; þó er getið um slikan vefstól í Hieiðrargarði í Eyjafirði um 1830 og var þá enn ofið í honum. 1 þessum vefstólum voru ofnir tvíbreiðir dúkar (um 1 metri á breidd) brekán og ábreiður og salúnsofin áklæði. Vefarar voru þá ein göngu konur. Þótti sá starfi ærið seinlegur og erfiður, þvi að ganga þurfti tvisvar í kringum vefstaðinn við hvert skii. Þótti það dugleg kona, sem gat ofið 18 áinir á viku, en það var ekki hægt nema með þvi móti, að hún hefði Ijós hjá sér og þá var vinnu- tíminn langur og unnið jafnt sunnudaga sem virka daga. Sagt er að sumar hafi ekki komið af nema aiin á dag, einkum ef band var smátt, en hafi þó orðið að ganga þingmannaleið umhverfis vef staðinn á þeim tíma. Jón biskup Árnason útveg- aði danskan vefstól og dansk an vefara um 1722, en þessi vefstóll var fyrir lin og hent aði ekki hér. Eftir honum var smíðaður annar vefstóll og fékk Skúii Magnússon hann og lét vefa mikið á hann. Olavius getur þess, að norð- ur á Kolbeinsá i Stranda sýsiu hafi hann séð danskan vefstól og hafi verið ofið á hann, og telur Olavíus þetta einsdæmi; en vefstóll þessi mun hafa verið kominn frá Boga Benediktssyni á Staðar felli, því að þegar hann reisti bú 1761, fékk hann danskan vefstað, rokka, vef- ara og alit er þar til heyrði. Vefstólarnir í klæðaverk- smiðjunni (innréttingunum) I Reykjavík, munu hafa verið með þeim fyrstu er komu á þær slóðir. Upp frá því fór dönskum vefstólum að fjölga hér á iandi. Breyttist allur vefnaður við það, og nú voru nær eingöngu ofnir mjórri dúkar en áður, eða einbreiðir. Var nú farið að smíða vefstóla hér á iandi og voru sumir hafðir tvíbreiðir. Þess er getið um Jón Jóns- son í Kristnesi í Eyjafirði, bróður séra Magnúsar í Lauf ási, að hann hafi smíðað tví- breiðan vefstól til áklæða- vefnaðar. Jón var kvæntur Björgu Þórðardóttur írá 1 Kjarna, en þær Kjamasyst- ur fengust mikið við slikan vefnað. Þessi vefstóll var til á Litlahamri í Eyjafirði fram um 1860 eða lengur, og var þá enn ofið i honum, þó ein- göngu einbreiðir dúkar. — A.ó. Frá horfnum tíma Toppur týndur Toppur heiti ég og týndist á fimmtudaginn var. Eigandi minn er búinn að leita þessi ósköp að inér á öllum bæjtim í Mosfells- sveitinni, og á eintim stað var honum sagt, að fólkið hefði ein- hvers staðar heyrt lýsingn á mér f óskilum. Ég er hreinræktaður íslenzkur hundur, hvítur og ljós brúnn á lit, og afar þrifinn og góðtir. Ef einhver les þetta, sem hefur hugmynd um dvalarstað itrninn, er hann vinsamlega beðinn að hringja í síma 66236. Leiðrétting Nýlega hef ég tekið á móti 16.000 króna gjöf til Hallgríms- htrkju frá Jóni Jónssyni listmál- ara, Njálsgötu lí B. Ýmsnr ■mærri gjafir hef ég einnig mót- tefeið og verður þeirra getið síð- ar. Kærar þakkir. Ragnar Fjalar Lájrusson. HITABYLGJA * i HAFNARFIRÐI FYRSTA sýning á vegum Leik- félags Reykjavíkur á Hitabylgju í Hafnarfirði var á laugardags- kvöldið 15. rtóvember í Bæjar- bíói. Leiknum var forkunnar vel tekið og virtust Hafnfirðingar vel kunna að meta þessa ný- breytni. Leikstjóri Hitabylgju eftir Ted Willis er Steindór Hjörleifsson, leikmynd gerði Jón Þórisson, en leikendur eru Sigríður Hagalín, Jón Sigurbjörnsson, Anna Krist- ín Arngrímsdótttir, Þorsteinn Gunnarsson, Jón Aðils, Jón Hjartarson og Margrét Magnús- dóttir. LtTIL IBÚÐ í>ska að taika á teíg’u litle íbúð. Góðn urmjerKjni og sk»i- vrsri areiðslu bertfB. Uppl. I síma 83519. BÓKHALDSAÐSTOÐ Ábugasaomjr meður cskast til aðstogar við að korna sktpulaigi á bókihald og rekst ur, hjá btu tðnfyriirtæiki. Tríb. merkt: „Strax 6357" sendist Mbl. BROT AMALMUR Kaupi ailan brotamávm lang- hæsta verði, staðgreiðsla. Nóatúni 27, sími 2-58-91. UNGUR MAÐUR sem stuindar kvöldskóte ós'k ar eftir atviinmi ti'l áramóta eða lengur. Hefur bíl tii um- ráða. Vinsaml. leggið ttíboð irrn á Mbl. f. 20. þ.m. merkt: 6115". Iðnaðtnbnsnæði óshost Á leigu óskast iðnaðarhúsnæði 100—150 íerm. fyrir bifreiðaviðgerðir. Upplýsingar í síma 36242. Verzlnn við Longnveg Vil selja smásöluverzlun á góðum stað við Laugaveg, til mála kemur að selja hálfa verzlunina og eiga hana t félagi við aðila sem getur séð um rekstur verzlunarinnar. Gott fyrir þann sem vill skapa sér sjólfstæða atvinnu. Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Verzlun — 8395". Fiskiskip til sölu 160 rúmlesta fiskiskip með fullkomnum trollútbúnaði og endurnýjaðri aðalvél. Góð lánakjör og útborgun hófleg SKIPA- SALA ______06_____ 3SKIPA. ILEIGA IVesturgötu 3. Simi 13339. Talið við okkur um kaup og söiu fiskiskipa. HIÐ FRÆGA VÖRUMERKI TRYGGIR GÆÐIN 20 “ - Kr. 23.710.- 24“ - Kr. 25.990.- NÝJAR GERÐIR AF HINUM GLÆSILEGU H. M. V. SJÓNVARPSTÆKJUM. TÆKNI- LEGAR NÝJUNGAR, S. S. TRANSISTORAR í STAÐ LAMPA AUKA ÞÆGINDI OG LÆKKA VIÐHALDSKOSTNAÐ. HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR. FALKINN HF. SUÐURLANDSBRAUT 8, REYKJAVÍK.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.