Morgunblaðið - 18.11.1970, Síða 19

Morgunblaðið - 18.11.1970, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 1970 19 75 ára: Sigurður Gunnarsson fyrrum oddviti Sigurður Gunnarsson, fyrrum bóndi og oddviti i Vopnafirði, varð 75 ára þann 5. nóvember s.l. Sigurður er fæddur á Arn- hallsstöðum í Fljótsdal í Norður- Múlasýslu 5. nóvember 1895. Foreldrar hans voru Gunnar Helgi Gunnarsson siðar bóndi og hreppstjóri á Ljótsstöðum í Vopnafirði, Gunnarssonar, bónda á Brekku og Katrín dótt- ir Þórarins rika, Hálfdánarson- ar á Bakka í Skeggjastaða- hreppi (Afi á Knerri). Gunnar og Katrin áttu fimm börn, auk Sigurðar: Gunnar, skáld, Gunn arsson, hinn fjölhæfa, gáfaða rithöfund; Soffíu, er átti Hjálm- ar Sigurðsson kaupmann i Stykkishólmi; Þórunni, er giftist dönskum manni og hefur dvalizt utanlands; Guðrúnu, er dvald- ist ógift í föðurhúsum. Árið eftir að Sigurður fædd- ist, fluttust foreldrar hans að Ljótsstöðum í Vopnafirði. Ljóts- staðir hafa ávallt verið taldir með beztu jörðum þar í sveit og lengi verið tví- og þríbýli á jörð- inni. Þegar Gunnar, faðir Sig- urðar fluttist að Ljótsstöðum, bjó þar einnig Ágúst Jónsson læknir, homópathe, hinn mikil hæfasti maður. Fósturdóttir hans var Margrét Eggertsdóttir, en hún var systurdóttir Hall- dóru, konu Ágústs. Hún var hin mesta efnisstúlka og lærði lækn isdóma af fóstra sinum. Hún var einnig talin hin fegursta stúlka. Þegar Katrin, móðir Sigurðar andaðist árið 1897, stóð Gunn- ar uppi með 5 börn og það yngsta aðeins 2 ára. Margrét var þá á heimilinu og aðstoðaði hann. Síðar gengu þau í hjóna- band og hún tók að sér móður hlutverk barna Gunnars. Heim- ili þeirra var viðurkennt mennta- og höfðingsheimili, þrátt fyrir efnaleysi, enda gest- risni hin mesta. Frá uppvexti barnanna á Ljótsstaðaheimilinu hefur Gunnar, bróðir Sigurðar, bezt sagt i Fjallkirkjunni með sögu Ugga Greipssonar og vafalítið hefur hann einnig haft í huga hinn stórbrotna föður sinn, þegar hann mótar Örlyg á Borg í Borgarættinni. Það reyndist mikil gæfa fyrir Sigurð og systkini hans í ógæf- unni við móðurmissinn, að eign- ast Margréti fyrir stjúpmóður. Sigurður ólst upp í föðurhús um og stundaði búskap og bjó sig undir að taka við jörðinni af föður sinum, en Gunnar bróðir hans, sigldi utan til náms árið 1907. Það er álit manna, að Sigurður hafi líkzt mikið Gunn ari, föður sínum, en honum er þannig lýst, að hann hafi verið myndarmaður, vel í meðallagi hár og þrekinn, og það héldu Vopnfirðingar, að nokkuð mætti á reyna, ef honum yrði aflfátt, svo var hann samanrekinn og þó liðmannlegur. Hann var glað- lyndur, en þó skapmikill pers- ónuleiki. Ljótsstaðir voru að mestu heimili Sigurðar fram til ársins 1967, þegar hann afhenti tveim sönum sinum jörðina og fluttist í Vopnafjarðarkauptún. Sveitarstjórnarmál voru ætíð áhugamál Sigurðar, eins og föð ur hans, og tók Sigurður snemma þátt í ýmsum félagsmál um. Árið 1938 var hann kosinn í hreppsnefnd Vopnafjarðar- hrepps og jafnframt oddviti nefndarinnar. Þessari ábyrgðar- stöðu gegndi Sigurður í nær 30 ár, eða fram til ársins 1966. 1 starfi sínu sem oddviti var hann virtur af samborgurum sín um og opinberir embættismenn muna hann sem framúrskarandi nákvæman og samvizkusaman sveitarstjórnarmann. Voru skýrslur hans og ársreikningar, svo og öll starfsemi hans í þágu hreppsfélagsins til fyrirmyndar. Það var ekki fyrr en snemma á árinu 1967, að ég kynntist Sig urði Gunnarssyni. Var ég þá fenginn austur í Vopnafjörð til þess að vinna í uppgjöri fyrir hreppsfélagið, en • skrifstofa hreppsins hafði þá brunnið og mikið af bókhaldi og fylgiskjöl um hafði glatazt i brunanum. Við að greiða úr þessum vanda sneri ég mér til Sigurðar og spurði hann hvcrrt hann mundi vilja aðstoða mig við þetta verk, en ég taldi hann manna kunnugastan og færastan til þess, þótt hann hefði þá verið um ár burtu frá þessum störf- um. Hann féllst á þetta og hef ur síðan verið mér mikili styrk ur i starfi minu. Fyrsta daginn, sem Sigurður mætti á skrifstofu minni fann ég bréfmiða á borð- inu hjá mér, sem var frá honum. Á miðanum var visa: Aðkoman er ömurleg, er þér vandi á herðum. Auðnan stjórni á allan veg, öllum þínum gerðum. Ég hefi oft hugsað til þessar- ar visu og reynt að fá Sigurð til þess að lofa mér að sjá eitt- hvað af ljóðum eða visum eftir hann, en árangurslaust. Þó er ég viss um að hann hefur dund að við þetta, en maðurinn er hlédrægur og vill ekki láta skáldskap sinn koma fram. Ekki er að vita nema leynzt hafi í honum skáld eins og kom fram í Gunnari bróður hans. Þegar við Sigurður höfðum lokið við að vinna úr hálfbrunnum skjöl- unum og raðað því saman, sem hægt var, þá fann ég annan bréfsnepil á borði minu einn morguninn frá Sigurði, sem á var vísa : Ævina þá ég yfir lít, ýmislegt ég gerði. Margoft hef ég mokað skit, þó mestur þessi verði. Traustur og heiðarlegur mað- ur er Sigurður, sem ekki má vamm sitt vita í neinu sem að honum snýr. Hann er fastur fyr ir á sinni meiningu en húmor- isti með skemmtilega frásagnar- gáfu. Líf hans hefur verið þrot laus vinna og barátta fyrir heim ili sitt og hreppsfélagið, sem hann hefur fórnað svo miklu fyrir. Lánsmaður hefur Sigurður ver ið, þar sem hann kvæntist konu sinni Jóhönnu Sigurjónsdóttur, systur Friðriks Sigurjónssonar, hreppstjóra, í Ytri Hlíð i Vopna firði. Sigurði hefur verið mik- ill styrkur af þessari dugmiklu sæmdarkonu og oft hefur hún stutt við bak hans á erfiðum stundum, jafnframt því að ala honum 11 myndarbörn, sem öll eru á lífi. Börn þeirra eru þessi: Gunnar, bóndi á Ljótsstöðum í Vopnafirði, Sigurjón, bóndi á Syðra Hvarfi i Svarfaðardal, Ágúst, starfsmaður hjá Sjöfn á Akureyri, Sigurður, vatnsveitu- stjóri á Vopnafirði, Jörgen, vega verkstjóri í Vopnafirði, Jón bóndi á Hánefsstöðum i Seyðis- firði, Valgerður, saumakona á Vopnafirði, Anna, húsfrú á Felli i Vopnafirði, Katrín húsfrú á Seyðisfirði, Jóhann bóndi á Ljótsstöðum, Árni, starfsmaður hjá Mjólkursamsölunni í Reykja- vik. Jóhanna er fædd 9. nóvember árið 1900 og átti þvi sjötugs- afmæli um daginn. Hún er dótt- ir sæmdarhjónanna Valgerðar Helgadóttur og Sigurjóns Hall- grímssonar bónda og hrepp- stjóra i Ytri Hlíð í Vopnafirði. Oft var þröngt i búi á Ljóts- stöðum meðan verið var að koma upp þessum stóra barna- hópi, en þvi fleiri sem börnin urðu því sterkari varð Jóhanna og er hún einstök kona hvað þetta snertir, enda standa að henni merkar dugnaðarættir. Um leið og ég óska þessum sæmdarhjónum innilega til ham ingju með þeirra merkisafmæli vil ég færa þeim þakkir frá konu minni og mér fyrir góða viðkynningu og óska þeim allrar blessunar i framtiðinni. Vopnafirði 11. nóvember 1970. Ifaraldur Gíslason. Barðslrendingofélagor Málfundadelldin Barðstrendingur heldur fund í Dómus Medica miðvikudaginn 18. þ.m. kl. 8,30 s.d. Umræðuefni: Umferðamál og slysavarnir, yfimienn umferða- mála og fulltrúar frá Slysavamafélaginu koma á fundinn, halda fyrirlestra og svara spumingum. Barðstrendingur. ÞETTA GERÐIST í VEÐUR OG FÆRII. Breiðadalsheiði 6£ær vegna snjóa (2). Snjór og hálka á fjallvegum (3). Oddsskarð lokað vegna snjoa (9). ÚTGERÐIN. Jón Kjartansson RE aflar fyrir 12,5 millj, kr. á 2 mánuðum (16). íslenzku síldveiðibátarnir í Norður- sjó seldu fyrlr 28,2 millj. kr. á þrem ur dögum (17). Síldarsöltun í Grindavík, Reykjavík og Eyjum (19). Þorsteinn Gislason segir frá Norð- ursjávarveiðum (19). Væn síld veiðist við Surtsey (20). Sílóarsöltun áfram (99). 377 hvalir veiddust í sumar (27). FRAMKVÆMDIR. íslenzkur kjötmarkaður opnaður í Kaupmannahööi (2). íslenzk uppfinning eykur bygginga- hraða nýrrar hótelálmu Loftleiða að mum C5). Samningar gerðir um nýja vatns- leiðslu til Vestmannaeyja (9). Stálvík h.f. teiknar 700—800 tonna skuttogara fyrir aflakóng Færeyja (10). ..... íslenzk menningarmiðstöð opnuð 1 Húsi Jóns Sigurðssonar i Kaup- mannahöfn (12, 10). Benedikt Gíslason frá Hoftelgi reis- ir heyþymkunarverksmlðju i Hvera- gerði (17). Þjóðleikhúskjallarinn opnaður 1 nýjum búningi (19). Nýr 5,7 km vegarkafli olíumalar- borinn á Suðurlandsvegi (22), Nýtt hesthúsahverfi að risa i Selás- Iandi (23). Fyrsta gatan í Stylckishólmi steypt (23). Brú smíðuð á Kreppu vegtur af Amardal (24), 18 hjónaíbúðir byggðar á lóð Hrafn istu (25). MENN OG MÁLEFNl. Forsetahjónin frú Halldóra og herra Kristján Eldjárn fara í opinbera heirosókn til Danmerkur (2.—10.). Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins ákveður, að Jóhann Hafistein myndi nýtt ráðuneyti (2). Dr. Sigmundur Guðbjarnason skip- aður prófessor við verkfræði- og raun vísindadeild Háskóla íslands (2). Kariavin, forstjóri Prodintorg, mat vælainnkaupastofnunar Sovétiríkj- anna, í heimsókn hér (3), 24 manna hópur Færeyinga úr iðn- aðar- og viðskiptalífinu í heimsókn hér (3). Utanrí'kjsráðherrafumdur NoiBur- landa haldinn í Osló (3). Sergei Astavin nýskipaður sendi- herra Sovétríkjanna á Islandi (3). Hrólfur Ingólfsson ráðinn sveitar- stjóri í Mosfellssveit (4). Dr. Þorvarður Helgason ráðinn leik iistargagnrýnandi Morgunblaðsins (6). Guðmundur Karl Jónsson ráðinn bæjarstjóri á Seyðisfirði (8). Sjálfstæðlsflokkiurinn tilnefnir Auði Auðuns, alþm., til að taka við embætti dóms- og kirkjumálaráð- herra (12). Jón Helgason prófessor leiðir rök að því, að Egill Skallagrímsson hafi ekki ort Höfuðlausn (13). Dr. Robert McCullough, alþjóðafor- seti Lions, heimsækir ísland (16). Avigdor Dagan, sendiherra ísrael, í heimsókn (17). Norskir hagræðingarsérfræðingar hér á vegum Fél. ísl. stórkaupmanna (19). Todor Zhivkov, forsætisráðherra Búlgaríu, heimsækir ísland 24—26). Ármann Snævarr, prófessor, settur hæstaréttardómari (26). Sr. Hreinn Hjartarson tekur við starfi sendiprests í Kaupmannahöfn (29). íslendingar 3. í C-riðli á Olympíu- skákmótinu 1970 (26). Birni Pálssyni, alþm., dæmd Löngu- mýrarakjóna á eignarhefð (30). FÉLAGSMÁL. Dómsrannsókn hafin í Laxármálinu (l'). Aðalfundur Stéttarsambands bænda haldinn að Varmalandi í Borgarfirði (1). Jón ísberg, sýslumaður, kosinn for- maður Fjórðungssambands Norðlend- inga (2). Sr. Pétur Sigurgeirsson, vígslu- biskup, kosinn formaður Prestafélags Hólastiftis (5). Sr. Árni Sigurðsson kosinn formað ur Hólafélagsins (5). Alþjóðaráðstefna um ísvandamál við mannvirkjagerð haldin í Reykja- vík (8). F r arrvb oðslist i Alþýðub a nd al agsin s í Norðurlandskjördæmi eystra ákveð- inn (8). Prentarar semja við atvinnurekend ur um kaup og kjör (8). Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í N orðurlandsk j ördæm i eystra ákveð- inn (8). Þjóðfélagsfræðikennsla ákveðin með lögum við Háskóla íslands (9). 9. landsþing Sambands ísl. sveitar- félaga haldið í Reykjavík. Páll Líndal endurkjörinn fonrnaður (9, 11). Stjórnmálanefnd Evrópuráðsins á fundi hér á landi (9). FVamboðslisti Framsókníli'flokksins í Norðurlandskjördæmi vestra ákveð- inn (10). Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi ákveðinn (10). 17. þing SÍBS haldið í Reykjavík (12). 30 nýir kennarar við Háskóla ts- lands (12). Frú Sigríður F. Jónsdóttir, Egils- stöðum, kjörin heiðursfélagi Sam- bands austfirzkra kvenna (12). Nýr listaskóli — Myndsýn — tekur til starfa (13). Framboðslisti Sjálfstæðisimanna í Suðurlandskjördæmi birtur (13). Náttúruvemdarsamtök Austurlands stofnuð. Hjörleifur Guttormsson, Nes- kaupstað. formaður (15). 10. þing Norræna endurhæfingar- september 1970 sambandsins haldið hér (15, 24). 739 nemendur í Verzlunarskólanum næsta vetur (16). Fyrsti landsfundur bókavarða hald- inn í Reykjavík (17). Fulltrúar ríkisstjórnarinnar, ASÍ og Vinnuveitendasambandsins halda fundi um kaupgjalds- og verðlags- mál (17). Forysta Framsóknar harðlega gagn- rýnd á þingi SUF (22). Deilt um málningai vinnu í Breið- holti (22. 23). Um 230 nemendur verða í fram- haldsdeildum gagnfræðaskólanna í vetur (23). Gunnar Guðmundsson endurkjörinn formaður Landssambands íslenzkra rafverktaka (24), Guðni Ásmundsson, ísafirði, kjör- inn formaður Bandalags íslenzkra leikfélaga (29). Úrslit prófkjörs Sjálfstæðismanna í Reykjavík birt (29, 30). Borgar^áð Reykjavíkur samþykkir nýja samþykkt um náttúruverndar- nefnd Reykjavíkur. BÓKMENNTIR OG LISTIR Tvö ný íslenzk leikrit meðal við- fangsefna Þjóðleikhússins á nýbyrj- uðu leikári (2). Tilraun um manninn, ný bók eftir Þorstein Gylfason (3). Brezka bítlahljómsveitin Kinks leik ur hér (9). Leikrit Halldórs Laxness, Dúfna- veislan, verður sýnd í Noregi og Dan mörku í vetur (9). Skáldsagan Kristrún í Hamravík, eftir Guðm. G. Hagalin kvikmynduð (10). „Innansveitarkrónika" — ný bók eftir Halldór Laxness komin út (13). Leikfélag Reykjavíkur sýnir Kristni hald undir Jökli, eftir Halldór Lax- ness (18). Ástríður Andersen heldur málverka sýningu í Reykjavík (19). Sr. Jóhann Hlíðar heldur málverka- sýningu í Vestmannaeyjum (19). Leikfélagi>ð Gríma tekur til sýninga fyrsta leikritið eftir Svövu Jakobsdótt ur, ,,Hvað er í blýhólknum?** Þjóðleikhúsið sýnir „Eftirlitssuann- inn eftir Gogól (24, 29). Lærdómsrit bókmenntafélagsms, fimm bækur heimsþekktra höfunda (25). Ballettflokkur Félags íslenzkra list dansara heldur sýningu (27). SLYSFARIR OG SKAÐAR Veiðimaður lendir niður Stórafosa i Laxá í Þingeyjarsýslu og var hætt kominn (1). Húsið Sigtún á Fáskrúðsfirði skemm ist mikið í eldi (1). 19 ára piltur, Gísli Már Einarsson, Heiðarbraut 41, Akranesi, bíður bana í bílslysi í Barðastrandarsýslu (8). Gunnar Gunnarsson, 75 ára, Ránar götu 9, bíður bana eftir átök við drukk inn mann (8). Sólfaxi, flugvél F.í. verður fyrir ó- happi í Grænlandi (11). Lítilli flugvél hlekkist á, lendir í skriðu á Hrafnseyrarheiði (15). Bergur Eysteinn Pétursson, 43 ára. flugvélstjóri, býður bana í bílslysi við Eyri í Kjós (15). DC-8-63 þota frá TIA-flugfélaginu hlekkist á á Keflavíkurflugvelli (19). Drengur á öðru ári verður undir vörubíl á Prestbakkakoti á Síðu og bíður bana (22, 23). Haraldur D. Haraldsson, 67 ára, Grindavík, féll af vörubílspalli og beið bana (22, 23). Fjárhús, hlaða og hey brenna að Skálabrekku í Þingvallasveit (25). Bjarni Jensson, flugstjóri, og sjö fær eyskir farþegar fórust, er íslenzk Fokker Friendship-flugvél rakst á fjall á Mykinesi í Færeyjum (27, 29, 30). Fullur súrheysturn sprakk að Grund 1 Höfðahverfi við Eyjafjörð (27). Hörður Jóhannsson, vélvirki, Hvammstanga, 38 ára, drukknar við Grímsey í Húnaflóa (29). ÍÞRÓTTIR Erlendur Valdimarsson, ÍR, setur í» landsmet í sleggjukasti, 58.62 m (1).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.